Ég segi Já Maggi! Nú kjósum við formann í Kennarasambandi Íslands í byrjun nóvember. Magnús þór Jónsson hefur boðið fram starfkrafta sína og óskað eftir stuðningi okkar kennara. Ég segi Já Maggi! Ég þigg með þökkum þína starfskrafta til að gegna þessu vandasama hlutverki. Skoðun 3. nóvember 2021 13:01
Seljaskóli og Hagaskóli áfram í úrslit Skrekks Hagaskóli og Seljaskóli voru hlutskarpastir á öðru undanúrslitakvöldi Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík í kvöld. Tvö hundruð og tuttugu ungmenni frá átta grunnskólum tóku þátt í kvöld. Lífið 2. nóvember 2021 23:41
Tekur tíma að koma alls staðar upp ókyngreindum salernum Ókyngreind salerni má nú finna í um það bil þremur af hverjum fjórum byggingum Háskóla Íslands. Skólinn hefur verið gagnrýndur fyrir að bjóða ekki upp á slíkt alls staðar. Innlent 2. nóvember 2021 22:00
Að kona leiði kvennastétt! Að vera kennari, vinna með börnum og ungmennum, vakna snemma til að taka glaðhlakkalega á móti einstaklingum með soðið kaffi í hendi og bros á vör eru algjör forréttindi. Skoðun 2. nóvember 2021 18:04
Magnús Þór fær atkvæðin okkar Nú eru hafnar formannskosningar í einu stærsta stéttar- og fagfélagi landsins, Kennarasambandi Íslands. Fjórir mjög frambærilegir einstaklingar hafa boðið sig fram til formennsku og á vef KÍ er einnig að finna kynningu á frambjóðendum. Skoðun 2. nóvember 2021 13:00
Umboðsmaður Alþingis kannar hvort innilokanir barna séu kerfislægur vandi Starfsmenn grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kærðir til lögreglu vegna meðferðar barns í skólanum. Umboðsmaður Alþingis er með innilokanir barna og önnur brot á réttindum þeirra til skoðunar eftir að hafa fengið fjölda ábendinga um slíkt. Innlent 2. nóvember 2021 12:31
„Læknar eru að drukkna í klínískri vinnu og hafa ekki rými til vísindastarfs“ „Það vantar miklu meiri áherslu og kraft frá yfirstjórn Landspítalans að eitt af meginmarkmið spítalans sé virkilega að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð. Þá þarf náttúrulega reksturinn og annað að snúast um það að styrkja og hlúa að vísindunum. Þetta er grafalvarleg staða.“ Innlent 2. nóvember 2021 10:00
Kjaraþróun komið verulega niður á hvata ungs fólks til að mennta sig Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019. Hækkaði launavísitalan allt að tvöfalt meira hjá láglaunahópum innan ASÍ og BSRB en launavísitala háskólamenntaðra með millitekjur hjá BHM og Kennarasambandi Íslands. Viðskipti innlent 2. nóvember 2021 08:40
Fjöregg þjóðar er framtíð hennar Farsæld hverrar þjóðar býr í nútímanum og því samfélagi sem hún býr sér en fjöreggið er alltaf það hvernig grunnur er lagður til vaxtar í framtíðinni. Skoðun 2. nóvember 2021 07:30
Kennari og starfsmenn skóla kærðir fyrir innilokun barns Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðfest að embættið sé að rannsaka mál er varðar ofbeldi gegn barni í skóla á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 2. nóvember 2021 07:06
Fellaskóli og Laugalækjarskóli komust í úrslit Skrekks Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sjö grunnskólar tóku þátt í kvöld og komust Fellaskóli með atriðið Hvað er að gerast sem fjallaði um Covid-19 og Laugalækjarskóli með atriðið Á bak við brosið sem fjallar líkamsvirðingu áfram í úrslit. Innlent 1. nóvember 2021 23:57
Formannsefni kennara segja kulnun mikilvægasta verkefnið Frambjóðendurnir fjórir til formanns Kennarasambands Íslands eru sammála um að umfjöllun um menntamál hér á landi sé allt of neikvæð. Þá geri pólitíkin kennurum erfitt fyrir með sífelldum breytingum á tíu ára fresti. Líflegar umræður spunnust í Pallborðinu á Vísi um menntamál í dag. Innlent 1. nóvember 2021 22:21
Bein útsending: Formannsefni kennara skiptast á skoðunum í Pallborðinu Fjögur gefa kost á sér í embætti formanns Kennarasambands Íslands. Formannsefnin mæta í Pallborðið í dag og ræða stöðuna í menntamálum hér heima og hvernig þau sjá fyrir sér að leiða kennara næstu árin. Innlent 1. nóvember 2021 11:38
Sá er talinn heimskur sem opnar sína sál Ég fór í Borgarleikhúsið að sjá sýninguna 9 líf á dögunum og var upprifin. Í verkinu er rakin saga okkar ástsæla Bubba Morthens, þjóðareign að gefnu tilefni. Það er hvert mannsbarn hér á landi með tengingu við hann og þá sérstaklega tónlistina hans, hvort sem við erum aðdáendur eða ekki. En svo er líka önnur tenging sem stór hópur á við söguna hans Bubba, sú tenging er kannski heldur falin. Eða jafnvel týnd? Skoðun 1. nóvember 2021 11:30
Fleiri karlkyns nemendur í framhaldsskólum Fleiri karlkyns nemendur eru nú skráðir í framhaldsskólanám en kvenkyns. Hlutfall karlkyns nemenda eru 53% á móti 47% kvenkyns nemendum. Í tölfræðinni er ekki gert ráð fyrir öðrum kynjum. Innlent 31. október 2021 11:37
Skóli og samfélag Skólakerfið er mikilvægt og gefandi fyrir okkur öll, foreldra, nemendur og samfélagið allt. Skoðun 30. október 2021 15:30
Leikskólar fyrir börnin Daglega er verið að brjóta á réttindum barna í leikskólum landsins af hálfu stjórnvalda. Ég heyri víðsvegar kveðið af starfsfólki, að of mörg börn, dvelji of lengi, í of litlu rými, og mig langar að bæta við að börn búa við of litla faglega athygli Skoðun 29. október 2021 08:01
Íslensk ungmenni í sérflokki í neyslu orkudrykkja Neysla íslenskra ungmenna á orkudrykkjum, sem innihalda koffín, er með því mesta sem þekkist í Evrópu og er vægi orkudrykkja í heildarkoffínneyslu íslenskra ungmenna mun meira en sést í sambærilegum erlendum rannsóknum. Innlent 28. október 2021 12:10
9,5 prósent einstaklinga 16 til 24 ára hvorki í námi né vinnu Um 9,5% einstaklinga á aldrinum 16 til 24 ára eru hvorki í námi né vinnu. Þetta er sama hlutfall og stóð utan menntakerfisins og vinnumarkaðarins árin 2014 og 2015 en fækkun varð í hópnum árin 2016 til 2018. Innlent 28. október 2021 06:52
Nanna Kristjana nýr framkvæmdastjóri Keilis Nanna Kristjana Traustadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Keilis. Hún hefur verið settur framkvæmdastjóri frá ágúst 2021 vegna leyfis fráfarandi framkvæmdastjóra. Viðskipti innlent 27. október 2021 20:37
Páll ekki rekinn en hlýtur ákúrur frá skólameistara Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ hefur sent nemendum og aðstandendum skólans bréf þar sem hann fer yfir mál Páls Vilhjálmssonar kennara við skólann sem varða afar umdeild bloggskrif hans um Helga Seljan fréttamann. Skólameistari lýsir sig afar ósáttan við skilaboð Páls til geðsjúkra. Innlent 27. október 2021 12:14
Daggæsla á vinnustað Það er skortur á úrræðum fyrir fjölskyldufólk í Reykjavík. Leikskólapláss eru af skornum skammti, biðlistar á frístundaheimili langir og dagforeldrum fer árlega fækkandi. Fjölskyldur flytja til annarra sveitarfélaga þar sem þjónusta er trygg og lífsgæði mælast betri. Skoðun 27. október 2021 08:30
Fimm starfsmenn FSu hafa greinst og skólanum lokað Fjölbrautaskóli Suðurlands verður lokaður í dag vegna kórónuveirusmita meðal starfsfólks skólans. Fimm starfsmenn skólans og að minnsta kosti einn nemandi hafa greinst með veiruna. Innlent 27. október 2021 07:28
Stytting á sóttkví grunnskólabarna til skoðunar Til skoðunar er að stytta sóttkví grunnskólabarna og gætu nýjar tillögur legið fyrir í lok vikunnar. Mennta- og menningarmálaráðherra ræddi stöðuna á ríkisstjórnarfundi í morgun. Innlent 26. október 2021 15:13
Ofbeldi snertir allt samfélagið Ofbeldi verður til umfjöllunar á málþingi Félagsráðgjafafélags Íslands (FÍ) og Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands sen fram fer á Reykjavík Natura í dag. Málþingið er haldið í samvinnu við fagdeildir FÍ í áfengis- og vímuefnamálum, barnavernd, félagsþjónustu, fræðslu- og skólaþjónustu, fötlunarmálum, heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu. Innlent 26. október 2021 09:16
Skólinn hefur það hlutverk að þjóna þörfum barna en ekki atvinnulífs Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu, hefur komist að þeirri niðurstöðu að það sé alvarlegt mál að íslensk börn séu ekki oftar í skólanum á hverju ári. Skoðun 25. október 2021 22:01
Með betri ákvörðunum sem ég hef tekið: Um sveigjanlegt nám við Háskólann á Akureyri Í umræðu á samfélagsmiðlum undanfarið hefur mikið verið rætt um fjarnám og staðnám, kosti þess og galla. Eins og það sé aðeins um tvennt að velja, annaðhvort stundarðu fjarnám eða nám á staðnum. Markmið mitt með þessum skrifum er að kynna fyrir fólki sveigjanlegt námsfyrirkomulag. Skoðun 25. október 2021 21:30
Frídagar barna komi niður á jafnrétti og kjörum Foreldri og atvinnurekandi segir launþega ekki eiga inni fyrir þeim dögum þar sem börn eru ekki í skóla vegna vetrarleyfis eða skipulagsdaga. Lítið samræmi sé milli skóla og innan sveitarfélaga um þær dagsetningar sem kemur niður á atvinnulífinu í heild. Innlent 25. október 2021 12:31
Tók son sinn úr hefðbundnu skólakerfi og ákvað að kenna honum heima Móðir sem tók son sinn úr hefðbundnu skólakerfi og ákvað að kenna honum í heimakennslu segir það gamla hugmyndafræði að börn sitji í skólastofu allan daginn. Hún vill að sveitarfélögum verði gert að greiða foreldrum fyrir heimakennslu. Innlent 24. október 2021 08:00
Margt í boði í borginni í tilefni af haustfríi Haustfrí hófst í grunnskólum Reykjavíkur í morgun og af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í söfnum borgarinnar. Fullorðnir fá frítt inn í fylgd með börnum meðan haustfríið varir. Sérstakur vefur hefur verið opnaður með allri dagskrá í Reykjavík. Það sama er upp á teningnum í Menningarhúsum Kópavogs. Innlent 22. október 2021 11:19