

Tónlist
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Dua Lipa stödd á Íslandi
Breska tónlistarkonan Dua Lipa virðist vera á Íslandi ef marka má Instagram-sögu hennar. Þar birtir hún mynd af manni að dansa á rauðum sandi og í bakgrunn má sjá glitta í bíla frá kvikmyndatækjaleigunni Kukl.

Hitti hetjuna sína: „Enn svífandi um á bleiku skýi“
Tónlistarmaðurinn Passenger hélt tónleika í Hörpu síðastliðinn sunnudag við mikla lukku aðdáenda. Hinn tíu ára gamli Arnór var þó líklega hvað ánægðastur aðdáenda þar sem hann fékk að hitta þetta átrúnaðargoð sitt að tónleikunum loknum. Blaðamaður heyrði í Gunnari Ágústi Ásgeirssyni, föður Arnórs, og fékk að heyra nánar frá þessari skemmtilegu lífsreynslu.

Tónlistarmínútur með Steinari Fjeldsted – Dúndrandi dans!
Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Íslenski listinn: „Samstarfið var frábært, eins og það hefur verið frá árinu 1988“
Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór sendu frá sér sumarsmellinn Dansa í maí síðastliðnum. Lagið hefur hækkað sig upp íslenska listann undanfarnar vikur og skipar nú sjöunda sætið. Blaðamaður tók púlsinn á bræðrunum og fékk að heyra nánar frá samstarfinu.

Nu Zau, Ali Demir og KrBear halda dansþyrstum við efnið á Húrra í kvöld!
Eina Íslenska výnil útgáfan Distrakt Audio bkl til heljarinnar partý í kvöld á Húrra!

„Reyni að þakka fyrir allt það sem ég fæ á hverjum degi“
Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, er landsþekktur tónlistarmaður og lífskúnstner með meiru. Hann er þekktur fyrir jákvæðni og lífsgleði og segir lífið sjálft vera það allra skemmtilegasta. Jónsi er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Justin Bieber með taugasjúkdóm
Poppstjarnan Justin Bieber hefur þurft að aflýsa fjölda tónleika vegna veikinda.

Eftirvænting, vonbrigði, spenna og vonleysi verða að einum melankólíu kokteil
Fjölhæfi listamaðurinn krassasig (Kristinn Arnar Sigurðsson) var að senda frá sér lagið 1-0 og er lagið hluti af væntanlegri breiðskífu.

Nýtt lag frá Svölu: Sjálfsvirðing, valdefling og popp tónlist sameinast í eitt
Söngkonan Svala Björgvins sendi frá sér lagið Bones fyrr í dag. Svala er nýbúin að skrifa undir plötusamning við Öldu Music og vinnur nú hörðum höndum að nýrri tónlist þar sem öll lögin verða á ensku og leggja áherslu á sjálfsvirðingu og valdeflingu. Blaðamaður tók púlsinn á Svölu og fékk að heyra nánar frá nýju tónlistinni.

Horfist í augu við ótta sinn á kóngulóm með nýju tónlistarverkefni
Tónlistarkonan Herdís Stefánsdóttir var að senda frá sér lagið Be Human undir listamannsnafninu Kónguló. Herdís hefur komið víða að í tónlistarheiminum bæði hérlendis sem og erlendis en þetta er fyrsta útgáfa hennar sem sóló listamaður. Blaðamaður tók púlsinn á Herdísi og fékk að heyra nánar frá þessu nýja tónlistarverkefni.

Klara frumsýnir myndbandið við Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt
Lífið á Vísi frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins í ár, Eyjanótt. Saga Sig er leikstjóri myndbandsins, Stella Rósenkranz framleiðandi og Klara Elias listrænn stjórnandi. Lagið er flutt af Klöru og samið af henni og Ölmu Goodman.

Nýtt lag frá Bassi Maraj: „Heil plata á leiðinni sem verður algjör veisla“
Tónlistarmaðurinn og raunveruleikastjarnan Bassi Maraj var að gefa út lagið Kúreki ásamt Daniil og Joey Christ. Lagið er hluti af væntanlegri plötu og segist Bassi elska allt ferlið á bak við tónlistina. Blaðamaður tók púlsinn á Bassa Maraj.

„Ég var 29 ára einstæð móðir og ég var að deita nýstúdent“
Þá var það fyrir sextán árum, þann 1. apríl árið 2006 nánar tiltekið, að leiðir söngkonunnar Regínu Óskar og smiðsins Sigursveins Þórs Árnasonar lágu saman í fyrsta sinn.

Frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins 2022 á Vísi á morgun
Lífið á Vísi frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins Eyjanótt eftir Klöru Elias á morgun klukkan 12:00, föstudag 10. júní.

Frumsýning á tónlistarmyndbandi Karítasar: „Ákveðin tilfinning sem flæðir um mann“
Tónlistarkonan, Reykjavíkurdóttirin og plötusnúðurinn Karítas Óðinsdóttir sendi frá sér lagið Carried Away 27. maí síðastliðinn. Hún frumsýnir nú hér á Vísi tónlistarmyndbandið við lagið, sem fjallar meðal annars um að gefa einhverjum síðasta tækifærið.

Tónlistarmínútur með Steinari Fjeldsted – Margt nýtt og næs!
Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Madonna hefur verið valin
Leikkonan Julia Garner hefur fengið boð um að leika stjörnuna Madonnu í kvikmynd um lífið hennar samkvæmt Variety. Madonna hyggst sjálf ætla að setjast í leikstjórastólinn og mun myndin fara yfir upphafið á hennar ferli.

Sjö ævintýri um skömm hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar
Leiksýningin Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson varð hlutskörpust þegar tilkynnt var um tilnefningar til Grímuverðlauna í dag með tólf tilnefningar. Fast á hæla hennar kom sýningin 9 Líf eftir Ólaf Egil Egilsson með tíu tilnefningar.

Stranger Things setur Kate Bush aftur á topplistann með 37 ára gamalt lag
Eftir að lagið Running Up That Hill með Kate Bush var notað í nýjustu þáttum Stranger Things hefur lagið heldur betur fengið endurnýjun lífdaga og er nú á topp tíu listum í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar.

Bað kærastans á Elton John tónleikum: „Besta kvöld lífs míns “
„Ég er eiginlega alveg orðlaus, þetta var besta kvöld lífs míns. Hún var búin að undirbúa allt og fór meira að segja til mömmu og pabba fyrir ferðina og bað um þeirra leyfi“ segir hinn nýtrúlofaði Orri Einarsson í samtali við Vísi.

Klara Elias frumflutti Þjóðhátíðarlagið 2022
Söngkonan Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár. Lagið, sem heitir Eyjanótt, kom út fyrr í dag á allar helstu streymisveitur og var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun.

Kveinuðu þegar Bubbi lofaði tíu árum í viðbót
Sérstök hátíðarsýning á söngleiknum Níu líf fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld í tilefni af 66 ára afmæli Bubba Morthens. Tónlistarmaðurinn segir góða tilfinningu fylgja því að vera viðstaddur hana á þessum tímamótum en Bubbi hefur horft á hverja einustu sýningu söngleiksins sem hefur notið mikilla vinsælda.

„Undirmeðvitundin er stundum svo mikið með á nótunum að hún er langt á undan manni“
Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm gefur út breiðskífu miðvikudaginn 8. júní. Platan, sem ber titilinn Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band III, er þriðja platan sem kemur út úr samstarfi hljómsveitarinnar við Mengi Records. Hún kemur út á stafrænu formi og á vínyl en einnig eru gefin út vídeóverk með öllum tónverkunum. Útgáfu plötunnar verður fagnað með tónleikum í Mengi samdægurs, miðvikudagskvöldið 8. júní. Blaðamaður tók púlsinn á Benna.

Einn stofnenda Bon Jovi látinn
Alec John Such, upphaflegur bassaleikari og einn stofnenda glysrokksveitarinnar Bon Jovi, er látinn, sjötugur að aldri. Jon Bon Jovi sjálfur segir Such hafa leikið lykilhlutverk í myndun sveitarinnar.

Kínverjar herja á KK á Spotify: „Ég heyri bara í Jóni Gunnarssyni, hann er duglegur að henda útlendingum út“
Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, kannast ekkert við þrjú nýjustu lögin sem hann er skráður fyrir á Spotify. Kannski ekki skrítið, því lögin eru kínversk hiphop lög, ekki beint sá tónlistarstíll sem KK er þekktur fyrir.

„Blanda af sumar fíling og því að fylgja hjartanu“
Plötusnúðurinn og tónlistarmaðurinn Doctor Victor situr í áttunda sæti íslenska listans þessa vikuna með nýjasta lagið sitt Falling. Lagið hefur verið á siglingu upp á við á undanförnum vikum. Blaðamaður tók púlsinn á Victori.

Nýtt lag frá Júníusi Meyvant: „Gúrúar syndandi í villtum kenningum“
Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant sendi frá sér nýtt lag í dag sem ber nafnið Guru. Lagið er af væntanlegri plötu og segja má að þetta sé það fyrsta nýja frá honum í 3 ár á heimsvísu, að undanskildum þeim tveimur íslensku lögum sem komu út aðeins á Íslandi á síðasta ári.

Frumsýning: Daniil og Joey Christ í beefi
Fyrsta myndbandið úr nýrri seríu frá útvarp 101 og Stúdíó Sýrlandi er nú frumsýnt hér á Vísi en í myndbandinu taka tónlistarmennirnir Daniil og Joey Christ lagið Ef þeir vilja Beef í beinni.

Nýtt lag: Sannkallað sumarmarmelaði með dass af Frikka Dór
Popp dúóið Draumfarir og Friðrik Dór Jónsson hafa sameinað krafta sína í sumarsmellinum Nær þér. Grípandi laglínur og skemmtilegur texti sem saminn er af þeim sjálfum gera lagið upplagt fyrir rúntinn í sólinni.

Hrun í tekjuhlutdeild íslenskrar tónlistar
Samanlagðar tekjur íslenskra tónlistarrétthafa af plötusölu og streymi hækkuðu um 5% milli 2020 og 2021. Aukast þær nú fjórða árið í röð en fyrir það mældist sjö ára samfelldur tekjusamdráttur. Þrátt fyrir aukninguna hefur hlutdeild íslenskrar tónlistar minnkað á hverju ári og er nú lægri en nokkru sinni fyrr.