Þreyttir eftir harða bardaga: „Vinir okkar týna lífinu í skóginum, einn af öðrum“ Eftir þriggja mánaða baráttu tókst úkraínskum hermönnum að frelsa bæina Klistjívka og Andrjívka í austurhluta Úkraínu. Hermenn lýsa aðstæðum þar sem helvíti en þeim tókst að sigra Rússa og segjast hafa fellt og handsamað fjölmarga rússneska hermenn. Erlent 21. september 2023 16:01
Umfangsmiklar árásir á báða bóga Úkraínumenn gerðu í gærkvöldi umfangsmikla árás á flugstöð Rússa á Krímskaga. Á sama tíma skutu Rússar fjölmörgum eld- og stýriflaugum sem ætlað var að valda skemmdum á orkuinnviðum Úkraínu. Erlent 21. september 2023 12:16
Pólverjar hætta vopnasendingum til Úkraínu Pólverjar hafa lýst því yfir að þeir séu hættir að sjá Úkraínumönnum fyrir vopnum í baráttu sinni við innrásarher Rússa. Erlent 21. september 2023 07:13
Vill taka neitunarvaldið af Rússum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði eftir því í dag að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna yrði breytt á þann veg að hægt yrði að svipta ríki sem eiga fast sæti í ráðinu neitunarvaldi. Öryggisráðið og SÞ gætu ekkert gert vegna stríðsins þar sem árásaraðilinn, Rússland, væri með neitunarvald. Erlent 20. september 2023 16:59
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segjast hafa rofið varnir Rússa við Bakhmut Gagnsókn Úkraínumanna heldur áfram en hefur enn sem komið er skilað litlum árangri í formi frelsaðs landsvæðis. Úkraínskir hermenn sækja þó fram, bæði í suðurhluta landsins og í austri en töluverð óvissa ríkir um mannfall hjá bæði Rússum og Úkraínumönnum. Erlent 20. september 2023 09:00
„Illsku er ekki treystandi“ Illsku er ekki treystandi. Þetta voru skilaboð Volodómírs Selenskís Úkraínuforseta þegar hann hélt ávarp sitt á Allsherjarþingi Semeinuðu þjóðanna í gærkvöldi. Erlent 20. september 2023 07:45
Sagði engan öruggan ef Pútín yrði leyft að búta Úkraínu í sundur Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir heiminn verða að standa við bakið á Úkraínumönnum og standa gegn ofstopa Rússa. Engin þjóð yrði örugg ef Rússum yrði leyft að búta Úkraínu í sundur. Erlent 19. september 2023 16:52
Telja eldflaugina hafa verið úkraínska Útlit er fyrir að eldflaugin sem banaði minnst fimmtán manns og særði rúmlega þrjátíu í bænum Kostiantynivka í austurhluta Úkraínu þann 6. september hafi verið skotið á loft af Úkraínumönnum sjálfum. Eldflaugin lenti á markaði í bænum en innan við tveimur tímum síðar sakaði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, Rússa um árásina. Erlent 19. september 2023 09:34
Úkraínumenn sækja fram í grennd við Bakhmut Úkraínumenn eru sagðir hafa náð yfirráðum yfir bænum Klishchiivka sem er í grennd við borgina Bakhmut þar sem harðir bardagar hafa geisað um mánaða skeið. Erlent 18. september 2023 07:45
Munu mögulega sæta aðgerðum af hálfu erlendra ríkja Utanríkisráðuneytið segir ekki útilokað að erlend ríki muni grípa til aðgerða gegn tveimur Íslendingum sem tóku þátt í „kosningaeftirliti“ í Kherson á dögunum, einu þeirra svæða sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu. Innlent 15. september 2023 06:48
Skemmdu herskip og kafbát með stýriflaugum Úkraínski herinn skemmdi í nótt rússneskt herskip og kafbát sem voru í slipp í Sevastopol á Krímskaga. Það gerðu Úkraínumenn með Storm Shadow stýriflaugum en árásin beindist að höfuðstöðvum Svartahafsflota Rússa. Erlent 13. september 2023 22:00
Erlendir hjálparstarfsmenn létust í stórskotaliðsárás í Úkraínu Tveir hjálparstarfsmenn, annar spænskur og hinn kanadískur, létust í stórskotaliðsárás í Bakhmut í Úkraínu í dag. Tveir til viðbótar slösuðust alvarlega. Erlent 10. september 2023 19:00
Breti fannst látinn bundinn á höndum í Úkraínu Breskur fyrrverandi hermaður fannst myrtur, með hendur bundnar á bak aftur, í Úkraínu í ágúst. Hann hafði gengið til liðs við her Úkraínumanna til aðstoðar gegn Rússum. Erlent 9. september 2023 21:07
Segir málamiðlun ómögulega og að lokamarkmiðið sé tortíming Úkraínu Oleksii Reznikov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur hvatt til samstöðu gegn Rússlandi til að bjarga heimsbyggðinni frá þriðju heimsstyrjöldinni. Hann segir lokamarkmið Rússa að útrýma Úkraínu. Erlent 8. september 2023 07:55
Slökkti á Starlink fyrir árás Úkraínumanna Elon Musk, auðugasti maður heims, skipaði starfsmönnum sínum að slökkva á netþjónustu Starlink undan ströndum Krímskaga í fyrra. Það gerði hann til að stöðva leyniárás Úkraínumanna á rússneska flotann, þar sem notast var við dróna sem stýrt var með nettengingu í gegnum Starlink. Erlent 7. september 2023 14:56
Drónaárásir í Rússlandi og Úkraínumenn fá umdeild skotfæri Úkraínumenn eru sagðir hafa gert drónaárásir í nótt á rússnesku landsvæði. Erlent 7. september 2023 07:31
Sextán borgarar féllu í árás Rússa Að minnsta kosti sextán borgarar létu lífið og 31 særðist þegar eldflaug lenti á markaði í borginni Kostiantynivka í austurhluta Úkraínu í dag. Ráðamenn í Úkraínu segja Rússa hafa skotið eldflauginni en sprengingin náðist á myndband. Erlent 6. september 2023 15:13
Rýnt í gagnsóknina: Enginn endir í sjónmáli Þrír mánuðir eru liðnir frá upphafi gagnsóknar Úkraínumanna í suðurhluta Úkraínu, auk þess sem þeir hafa sótt fram í austri, nærri Bakhmut. Gagnsóknin hefur gengið hægar en Úkraínumenn og bakhjarlar þeirra vonuðust til og er það að mestu rakið til umfangsmikilla varna Rússa. Erlent 6. september 2023 08:01
Endurnýjar ekki kornsamning nema kröfum hans verði mætt Vladímír Pútín Rússlandsforseti ljær ekki máls á því að endurvekja samkomulag um kornflutning á Svartahafi nema vestræn ríki fallist á kröfur hans um tilslakanir fyrir Rússland. Geri þau það verði hægt að endurnýja samninginn á fáum dögum. Erlent 4. september 2023 14:37
Reznikov ekki lengur varnarmálaráðherra Úkraínu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur greint frá því að varnarmálaráðherrann Oleksii Reznikov hafi látið af embætti. Reznikov hefur farið fyrir varnarmálum Úkraínu frá því að innrás Rússa hófst en Selenskí segir nýrrar nálgunar þörf. Erlent 4. september 2023 06:56
Senda Abrams og umdeild skot úr rýrðu úrani til Úkraínu Ríkisstjórn Bandaríkjanna mun í fyrsta skipti senda Úkraínumönnum umdeild skotfæri fyrir skriðdreka sem inniheldur rýrt úran. Skotin eru hönnuð til að fara í gegnum brynvörn annara skrið- og bryndreka og eru þau ætluð Abrams skriðdrekum sem einnig verða sendir til Úkraínu á næstu vikum. Erlent 2. september 2023 21:36
Fordæmir spillingu í tengslum við undanþágur frá herþjónustu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur fordæmt spillingu í tengslum við heilsufarslegar undanþágur frá herþjónustu en hann segir að á sumum svæðum hafi fjöldi þeirra tífaldast frá því í fyrra. Erlent 31. ágúst 2023 06:56
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Harðir bardagar í suðri Úkraínskir hermenn hafa náð tiltölulega miklum árangri í Sapórisjíahéraði í suðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum og vikum. Svo virðist sem aukinn hraði hafi færst í framsókn Úkraínumanna nærri bænum Robotyne en Rússar hafa sent sínar bestu hersveitir á svæðið til að stöðva sóknina. Erlent 30. ágúst 2023 10:56
Umfangsmiklar árásir í nótt á báða bóga Úkraínumenn gerðu í nótt víðtækar drónaárásir á svæði í Rússlandi. Í einni árásinni voru tvær flutningavélar sprengdar í loft upp á Pskov flugvellinum er í mörg hundruð kílómetra fjarlægð frá víglínunni í Úkraínu. Erlent 30. ágúst 2023 07:24
Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út. Erlent 28. ágúst 2023 11:19
Saka Úkraínumenn um umfangsmestu árásirnar til þessa Rússneska varnarmálaráðuneytið heldur því fram að Úkraínumenn hafi skotið flugskeyti að Moskvu og ráðist á Krímskaga með á fimmta tug dróna í dag. Ef rétt reynist eru það umfangsmestu árásir Úkraínumanna á Rússland og hernumin svæði til þessa. Erlent 25. ágúst 2023 08:50
Deilt um gagnsóknina Bandarískir og úkraínskir herforingjar eru sagðir hafa deilt um framkvæmd gagnsóknar Úkraínumanna. Valerí Salúsjní, yfirmaður úkraínska hersins, segir hermenn sína nærri því að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa. Erlent 24. ágúst 2023 22:33
Rússar sagðir hafa ráðist á korngeymslur við Dóná Rússar réðust á korngeymslur og aðra innviði við Dóná í Úkraínu í nótt. Samkvæmt þarlendum yfirvöldum kviknaði eldur í að minnsta kosti einni byggingu. Erlent 23. ágúst 2023 07:01
Vilja að Úkraínumenn einbeiti sér að suðrinu Bandamenn Úkraínu telja forsvarsmenn úkraínska hersins hafa dreift of mikið úr hermönnum sínum. Úkraínumenn þurfi að einbeita sér frekar að því að sækja fram í suðurhluta Úkraínu heldur en í austri. Erlent 22. ágúst 2023 22:30
Segja klasasprengjurnar nýtast vel gegn Rússum Úkraínskir hermenn segja klasasprengjur hafa nýst vel gegn Rússum á undanförnum vikum. Þær nýtist sérstaklega vel til að stöðva árásir Rússa í austurhluta landsins, á meðan Úkraínumenn reyna að sækja fram í suðri. Erlent 21. ágúst 2023 22:07