Birtist í Fréttablaðinu

Óánægja með vinstrislagsíðu stjórnar
Mikils pirrings gætir í grasrót Sjálfstæðisflokksins með forystu flokksins. Áhyggjur flokksmanna snúa frekar að vinstrislagsíðu stjórnarinnar en deilunni um þriðja orkupakkann og gagnrýni uppgjafaformanna flokksins, sá skjálfti er að mestu hjaðnaður.

Árlegt fjárframlag Stjörnunnar 130 milljónir
Garðabær greiðir Stjörnunni 130 milljónir sem árlegt fjárframlag en bærinn og félagið endurnýjuðu samstarfssamning fyrir skemmstu.

Tiger fékk bikarinn í pósti
Kylfingurinn Tiger Woods bar sigur úr býtum á Masters um miðjan apríl fyrr á þessu ári. Hann fór í frí eftir sigurinn á Masters-mótinu og hefur því verið fjarverandi frá heimili sínu í nokkrar vikur og fékk svo óvæntan glaðning sendan á heimili sitt í Flórída.

KR-ingar skilja ekkert í vanvirðingu umferðarinnar
Starfsmenn KR voru sakaðir um dónaskap gagnvart ungum manni í hjólastól í toppslag KR og Breiðabliks. KR-ingar segja þó að allir hafi verið rólegir og málið hafi verið leyst án illinda. Aðgengismál fatlaðra á knattspyrnuvöllum er í l

Lék í myndbandi Kelvyns Colt
Símon Nodle hefur síðustu fjögur ár verið að búa til takta og lög sem hann gefur út á SoundCloud.

Mikilvægt að huga að hreysti hugans til að sporna við heilabilun
Hundruð Íslendinga greinast með heilabilun á hverju ári og sjúkdómurinn veldur mikilli skerðingu á lífsgæðum fólks.

Krikketstjörnu boðið til Íslands
Íslenska krikketsambandið bauð indversku stjörnunni Ambati Rayudu að koma til Íslands og sækja um dvalarleyfi. Rayudu var ekki valinn í indverska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Bretlandi.

Íslendingum bjóðast tækifæri á Indlandi
Formaður Indversk-íslensku viðskiptasamtakanna segir Íslendinga og Indverja geta grætt vel á gagnkvæmum viðskiptum.

Við getum verið hvað sem er og hver sem er
Sigmundur Páll Freysteinsson er ungur og upprennandi fatahönnuður sem hefur fengið verðskuldaða athygli fyrir útskriftarlínuna sína úr Listaháskólanum. Hann horfir út fyrir landsteinana og stefnir á framhaldsnám.

Wellington selur í Eimskip
Tveir sjóðir á vegum bandaríska sjóðastýringarfyrirtækisins Wellington Management hafa minnkað hlut sinn í Eimskipi úr 2,8 prósentum í 0,7 prósent frá því í febrúar.

Breyta upplýsingalögum að tillögu atvinnulífsins
Forsætisráðherra kynnir nú á samráðsgátt stjórnvalda áform um breytingar á upplýsingalögum sem koma til móts við tillögur Samtaka atvinnulífsins í þágu einkahagsmuna fyrirtækja.

Rassabassi, ólöglegt reifpartí og sílíkonbrjóst
Rapparinn Elli Grill gaf út plötuna Rassabassa í gær. Takmark hans er heimsfriður og að öðlast heimsfrægð. Hann lætur sig einnig dreyma um að fá sílíkonbrjóst.

Ekki bara Brexit
Umræðan um Bretland hefur á síðustu misserum eðlilega snúist mikið um "Brexit“ og það pólitíska drama sem því fylgir. Við getum öll haft okkar skoðanir á þróun mála í sambandi við fyrirhugaða útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, en það er mikilvægt að setja hlutina í samhengi.

Háir skjólveggir sagðir skemma götumyndina
Íbúar í Urriðaholti hafa margir brotið gegn sérstökum skilmálum í deiliskipulagi hverfisins með því að reisa of háa skjólveggi sem skemma götumyndina.

Kjósa um sameiningu eystra í haust
Kjósa á á um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi 26. október í haust.

Tvær ljósmyndir
Þrátt fyrir að tugir milljóna manna séu á flótta í heiminum eru það sögur einstaklinga sem snerta okkur mest. Ljósmyndin af Oscar Alberto og Valeriu tæplega 2 ára þar sem þau liggja á grúfu, hún með hönd um háls föður síns, birti sannleika sem við þekkjum en sjáum sjaldan.

Heilsufarshrun
Lífsstílstengdir sjúkdómar leiða til 86 prósenta allra dauðsfalla á Vesturlöndum. Rekja má um 70 til 80 prósent af öllum heilbrigðiskostnaði til þeirra.

Skítt með einn kálf
Á dögunum átti undirritaður fund með umsjónarmanni hreindýra, sem er starfsmaður Náttúrustofu Austurlands. Ágætismaður, sem veit meira um hreindýrin á Íslandi og málefni þeirra en flestir aðrir.

Þegar hermangið fluttist búferlum
Reykjavík – Enn rifjast hún upp fyrir mér spurningin sem einn helzti listamaður þjóðarinnar beindi til mín við kvöldverðarborð í heimahúsi: Datt ykkur ekki í hug að bjóða þeim að halda þýfinu í skiptum fyrir nýju stjórnarskrána? Ekki mitt að bjóða, svaraði ég.

Af hverju?
Félagsmálaráðherra landsins ber aukatitilinn barnamálaráðherra, og fullt heiti er því félags- og barnamálaráðherra.

Auka hlutafé um 300 milljónir
Kynnisferða juku við hlutafé fyrirtækisins um 300 milljónir króna í fyrra.

Fyrrum ráðherra talinn hæfastur
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er metin hæfust umsækjenda um starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna (EFA).

Valitor fellst á að greiða Datacell og SPP 1.200 milljónir
Samkomulag náðst um að greiðslumiðlunarfyrirtækið, sem er í eigu Arion banka, greiði Datacell og SPP, rekstrarfélagi WikiLeaks, skaðabætur í samræmi við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í apríl.

Óverjandi að bíða ekki með framkvæmdirnar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir óverjandi að VesturVerk skuli ekki hafa beðið með framkvæmdir í Hvalá.

Spurt um stórleikinn
Í kvöld fer fram einn af úrslitaleikjum Pepsi Max deildar kvenna þegar Valur og Breiðablik mætast. Liðin eru jöfn að stigum á toppnum. Fréttablaðið fór á stúfana og spurði hvernig færi.

Grét vegna meiðsla í kálfa
Emil Lyng, leikmaður Vals, sást með tárin í augunum eftir sigurleik Vals gegn HK í Pepsi deild karla.

Gylfi ekki með til Kenía
Everton heldur til Kenía á föstudag en liðið kom saman til æfinga á mánudag. Gylfi Sigurðsson er þó enn að njóta hveitibrauðsdaga sinna og fær frí ásamt nokkrum öðrum úr liðinu.

Skipt um gír eftir hraða uppbyggingu
Bláa Lónið fjárfesti fyrir 13 milljarða króna á fimm árum í innviðum án þess að safna skuldum eða auka hlutafé. Grímur Sæmundsen forstjóri segir að nú verði áhersla lögð á almennan rekstur.

Málaði Heimaklett sundur og saman
Næsta fimmtudag opnar listamaðurinn Tolli einkasýningu á flugvellinum í Vestmannaeyjum. Hann segir magnað hve Vestmanneyingar tengi mikið við náttúruundrið Heimaklett.

Afnám hafta og háir vextir geri Ísland að góðum kosti
Fjárfestingastjóri BlueBay Asset Management, eins stærsta sérhæfða skuldabréfastýringarfyrirtækis Evrópu, telur að aflétting fjármagnshafta og háir vextir geri Ísland að aðlaðandi fjárfestingarkosti og býst við því að fleiri erlendir fjárfestar endurnýi kynni sín af landið.