
Salan á Arion banka

Ríkissjóður fær tíu milljarða við sölu Arion banka
Kaupskil, félag í eigu Kaupþings, hefur lokið sölu á öllu hlutafé sínu í Arion banka, eða 20 prósent eignarhlut í bankanum.

Kaupþing selur allan hlut sinn í Arion banka
Kaupþing hefur lengst af átt stóran meirihluta í Arion banka frá endurreisn bankans, en nú stendur til að selja þau 20% sem eftir eru af hlut félagsins.

Frjálsi kominn í hóp stærstu hluthafa Arion
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem kom fyrst inn í hluthafahóp Arion banka í hlutafjárútboði bankans síðasta sumar, hefur bætt við sig í bankanum og fer nú með 1,18 prósenta hlut í honum, samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa hans.

Attestor selur í Arion fyrir fjóra milljarða
Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital seldi í gær hátt í þriggja prósenta hlut í Arion banka fyrir um fjóra milljarða króna, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Eftir söluna fer sjóðurinn með um 2,8 prósenta hlut í bankanum.

Seldi í Arion banka fyrir tvo milljarða
Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital seldi fyrr í mánuðinum tæplega eins og hálfs prósents hlut í Arion banka að virði ríflega tveggja milljarða króna. Eftir söluna fer sjóðurinn með um 5,6 prósenta hlut í bankanum, samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa hans.

Ríkið fær sex milljarða við sölu Kaupþings
Afkomuskiptasamningur stjórnvalda og Kaupþings vegna Arion banka hefur virkjast í fyrsta sinn. Fjármunir vegna sölu Kaupþings fyrr í þessum mánuði á 15 prósenta hlut fyrir samtals 20,5 milljarða renna að stórum hluta til ríkisins.

„Ég var ekki rekinn“
Segir ákvörðunina um starfslok alfarið sína.

Taconic kaupir í Arion fyrir 6,5 milljarða
Kaupskil ehf.,þrotabú gamla Kaupþings, hefur gengið frá sölu á 5 prósentum í Arion Banka til vogunarsjóðsins Taconic Capital.

Þýskur banki í hóp stærstu hluthafa Arion banka
Þýska fjármálafyrirtækið MainFirst Bank fer með eins prósents eignarhlut í Arion banka, samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa bankans

Attestor selur og Eaton Vance kaupir í Arion
Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital seldi um 0,3 prósenta eignarhlut í Arion banka í síðasta mánuði og fór í lok mánaðarins með 8,58 prósenta hlut í bankanum.

Vildi rannsaka sölu Arion í Bakkavör
Meirihluti stjórnar Arion banka hafnaði tillögu fulltrúa Bankasýslu ríkisins um að sala bankans á hlut sínum í Bakkavör yrði rannsökuð. Tillaga þáverandi varaformanns stjórnar bankans svipaðs efnis var einnig felld. Bankasýslan segir sömu spurningar hafa vaknað við söluna og í Borgunarmálinu.

Benedikt fer í stjórn Arion banka
Benedikt Gíslason, fyrrverandi varaformaður framkvæmdahóps stjórnvalda við losun hafta, verður kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi bankans sem fer fram næstkomandi miðvikudag.

Selt tæplega helming bréfa sinna í Arion
Stoðir hafa minnkað við sig í Arion banka eftir að bankinn var skráður á markað í júní. Félagið á nú 0,37 prósenta hlut í bankanum. Snæból, í eigu Finns Reyrs Stefánssonar og Steinunnar Jónsdóttur, hefur nær fjórfaldað hlut sinn.

Sala á bönkunum mun taka tíu ár
Bankastjóri Arion banka hefði viljað að stærri skerf hefði verið úthlutað til íslenskra fjárfesta í útboði bankans. Skaðaði viðskiptasamband bankans. Á von á því að meirihluti í Valitor verði brátt settur í opið söluferli. Sala á bönkunum er vegferð sem mun taka tíu ár.

Olíusjóðurinn keypti fyrir um 500 milljónir
Norski olíusjóðurinn á um 0,3 prósenta hlut í Arion. Nærri 20 nýir erlendir sjóðir bættust við hluthafahópinn í nýafstöðnu útboði. Flestir keyptu á bilinu 0,5 til 1 prósents hlut, meðal annars sænska eignastýringarfyrirtækið Lannebo Fonder.

Stoðir keyptu í Arion banka fyrir um milljarð
Stoðir eru stærstu íslensku einkafjárfestarnir með 0,6 prósent. Skráðu sig fyrir um 100 milljónum hluta en fengu 12 milljónir. Félagið Vogun, sem Kristján Loftsson og fjölskylda stýra, keypti í Arion banka fyrir um 600 milljónir króna.

Meta Arion allt að 56 prósent yfir útboðsgengi
Greinendur meta gengi hlutabréfa í Arion banka allt að 56 prósent hærra en útboðsgengi bréfanna. Sérfræðingar IFS telja líklegt að vaxtamunur muni lækka vegna aukinnar samkeppni. Capacent segir vaxtarmöguleika íslenskra banka takmarkaða.

Skráðu sig fyrir 30 prósenta hlut
Fjárfestar hafa skráð sig fyrir samanlagt nærri 30 prósenta eignarhlut í Arion banka í hlutafjárútboði bankans.

Selja vart meira en um fjórðung í Arion
Arðsemi eigin fjár af kjarnastarfsemi Arion banka hefur dregist saman og kostnaðarhlutfallið hækkað á undanförnum árum. Talið var nauðsynlegt að verðleggja bankann lágt í útboðinu til þess að auka áhuga erlendra fjárfesta. Lágt gengi hefur hreyft við fjárfestum.

Þrautaganga
Að lágmarki fjórðungshlutur í Arion banka verður seldur langt undir bókfærðu eigin fé bankans.

Kostnaður við útboð og skráningu Arion banka á þriðja milljarð
Samanlagður kostnaður við hlutafjárútboð og skráningu Arion banka, sem leggst á annars vegar bankann og hins vegar Kaupþing og vogunarsjóðinn Attestor Capital, mun nema á þriðja milljarð króna.

Vilja kaupa um 5 prósenta hlut í Arion
Tveir erlendir fjárfestingarsjóðir hafa skuldbundið sig til að kaupa allt að 20 prósent af þeim bréfum sem verða seld í útboði Arion banka. Sjóðirnir eru fyrir á meðal stærstu hluthafa fyrirtækja í Kauphöllinni.

Ríkið fellur að hluta frá forkaupsrétti að Arion
Ríkið fellur tímabundið frá forkaupsrétti sínum að ákveðnum hluta Kaupþings í Arion við hlutafjárútboð. Einnig til skoðunar að Kaupþing ábyrgist greiðslu til ríkisins miðað við lágsmarksgengið 0,8. Útboð og skráning bankans í júní.

„Ég er mikill aðdáandi Sigmundar en skil þetta mál ekki hjá Miðflokknum“
Brynjar Níelsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem þeir ræddu sölu ríkisins á hlut sínum í Arion banka.

Fjármálaráðherra sakar þingmenn Miðflokksins um innihaldslaust blaður
Fjármálaráðherra segir þingmenn Miðflokksins vera með innihaldslaust blaður varðandi sölu á hlut ríkisins í Arion banka til að breiða yfir gjörsamlega mislukkaða kosningabaráttu flokksins

Taconic kominn með 46 prósent í Kaupþingi
Vogunarsjóðurinn bætti við sig átta prósenta hlut í fyrra og hefur þrefaldað eignarhlut sinn í félaginu frá 2016. Beinn og óbeinn eignarhlutur sjóðsins í Arion banka nemur um 36 prósentum. Och-Ziff og Attestor minnka við sig.

Sigmundur telur stjórnvöld missa tökin á stöðunni með sölu Arion
Sala ríkisins á hlut sínum byggist á samkomulagi sem ríkið gerði við kröfuhafa Kaupþings um fjármögnun Arion.

Sigmundur Davíð segir vogunarsjóðina aftur hafa tekið völdin
Formaður Miðflokksins segir að verðið fyrir hlut ríkisins á Arion banka blikni við hliðina á því tækifæri sem ríkið hafi misst af við að endurskipuleggja fjármálakerfið.

Ætla að nýta kauprétt á hlut ríkisins í Arion banka
Kaupskil, dótturfélag Kaupþings ehf, hefur tilkynnt Bankasýslu ríkisins um að félagið hyggist nýta sér kauprétt á kauprétt á þrettán prósent hlut ríkisins í Arion banka hf. Kaupverðið er 23,4 milljarðar króna.

Leggja til 25 milljarða arðgreiðslu takist að selja hlut í Arion banka
Stjórn Arion banka leggur til að bankinn greiði 25 milljarða í arð til hluthafa bankans. Tillaga stjórnarinnar gerir þó ráð fyrir að arðgreiðslan sé háð því skilyrði að stærsti eigandi bankans hafi selt minnst tvö prósent eignar félagsins í bankanum fyrir 15. apríl.