

Að minnsta kosti 150 voru handteknir í nótt eftir mótmæli almennings aðra nóttina í röð í Frakklandi eftir að lögregla skaut sautján ára gamlan ökumann til bana sem hafði ekki sinnt stöðvunamerkjum.
Haraldur Ingi Þorleifsson, sem gjarnan er kenndur við Ueno, segist ætla að rampa upp Evrópu næst og verður fyrsti samstarfsaðilinn í því verkefni Parísarborg. Verður um að ræða samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Parísarborgar í framhaldsverkefni fyrri verkefna hans þar sem markmiðið hefur verið að bæta hjólastólaaðgengi.
Flugvél Air France breytti stefnu sinni á leið milli LAX í Los Angeles og Charles de Gaulle í París og er nú á leið til Keflavíkurflugvallar.
Rannsakendur safna nú vísbendingum um um afdrif kafbátsins Títans sem fórst í Norður-Atlantshafi við flak Títanik saman á Nýfundnalandi. Fimm stofnanir frá fjórum löndum taka þátt í rannsókninni en ekki er ljóst hve langan tíma hún gæti tekið.
Íslenskur hópur í fríi í Cannes í Frakklandi var á siglingu við borgina þarsíðustu helgi þegar einn úr hópnum tók eftir myndavél sem falin var inni í vegg á klósetti í bátnum þar sem þau höfðu fataskipti. Málið var tilkynnt til lögreglu sem handtók skipstjórann við komu til hafnar.
Franskur maður byrlaði eiginkonu sinni og leyfði 83 mönnum að nauðga henni á meðan hún svaf. Hann tók nauðganirnar, sem áttu sér stað yfir tíu ára tímabil, upp og geymdi upptökurnar. Lögregla hefur borið kennsl á 51 mannanna sem munu auk eiginmannsins fara fyrir dóm í sögulegu dómsmáli.
Herþyrlur og bátar sjóhersins í Frakklandi leita nú slökkviliðsmannsins Iain Hughes, en tilkynnt var í fyrradag um að sundkappinn hafði týnst þegar hann gerði atlögu að Ermarsundinu.
Þrjátíu og sjö eru slasaðir og þar af fjórir lífshættulega eftir að gassprenging varð í miðborg Parísar upp úr hádegi í dag. Að minnsta kosti tveir eru taldir enn týndir í rústum hússins.
Fyrsta sýning franska tískuhússins Louis Vuitton undir stjórn Pharrell Williams fór fram í París í gær. Á sýningunni mátti sjá fjölmargar stórstjörnur auk forstjóra 66°Norður sem segir að sýningin hafi heppnast vel.
Að minnsta kosti sextán manns eru slasaðir eftir að gassprenging varð í miðborg Parísar, skammt frá Notre-Dame kirkjunni. Fjórir eru í lífshættulega slasaðir.
Kafbáturinn sem hvarf nálægt flaki Titanic síðastliðinn sunnudagsmorgun hefur ennþá ekki fundist en leitað er að bátnum í kapphlaupi við tímann. Eftir minna en fjörutíu klukkutíma verður súrefnið í kafbátnum á þrotum.
Franska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum undirbúningsnefndar Ólympíuleikanna í París í dag. Húsleitin er sögð tengjast rannsóknum á meintum fjárdrætti og mismunun á verktökum.
Umfangsmikil leit stendur nú yfir að kafbát sem hvarf nærri flaki Titanic á sunnudag. Talið er að fimm manns hafi verið um borð í skemmtiferð til að skoða flakið skipsins á tæplega fjögur þúsund metra dýpi.
Vikulöng flugsýning hófst í París í dag í fyrsta sinn frá því kórónuveirufaraldurinn skall á. Reiknað er með að gengið verði frá fjölda samninga um kaup og sölu á flugvélum á sýningunni fyrir stórar upphæðir.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, mun reyna að sannfæra Kylian Mbappe um að vera áfram hjá Paris Saint-Germain.
Maður sem var í pílagrímsferð í Annecy í Frakklandi hefur verið hylltur sem hetja eftir að hann barðist gegn manni sem stakk fjögur börn og tvo eldri menn í almenningsgarði í borginni í gær. Maðurinn heitir Henri, er 24 ára gamall og hefur verið lýst sem „bakpokahetju“.
Leikarinn Bryan Cranston hefur tilkynnt um áform sín um að setjast í helgan stein. Stefnir hann á að hætta að leika árið 2026, þegar hann verður sjötugur, og flytja til Frakklands.
Börnin fjögur sem voru stungin í almenningsgarði í frönsku borginni Annecy í gær eru í stöðugu ástandi að sögn lækna. Börnin, sem eru á aldrinum eins árs til þriggja ára, eru þó enn á sjúkrahúsi í umsjá lækna.
Átta börn særðust í stunguárás í frönsku borginni Annecy í austurhluta landsins í morgun. Þrjú barnanna eru sögð vera í lífshættu.
Opna franska meistaramótið í tennis stendur nú yfir á Roland-Garros leikvanginum í París. Í dag ræðst hvaða leikmenn tryggja sér sæti í undanúrslitum mótsins en úrslitin fara fram um helgina. Vinni Djokovic hinn unga Alcaraz kemst hann skrefi nær titlametinu.
Franska landbúnaðarráðuneytið hefur tilkynnt að bólusetningartilraunir við fuglaflensu á öndum hafi gefið viðunandi árangur. Stefnt er að því að bólusetja aliendur í haust.
Íslenska stuttmyndin Fár í leikstjórn Gunnar Martinsdóttur Schlüter hlaut í kvöld sérstaka viðurkenningu í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Kvikmynd franska leikstjórans Justine Triet, Anatomie d'une chute, sem mætti útleggja sem Anatómía falls, hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í kvöld. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem kvikmynd í leikstjórn konu hlýtur verðlaunin, sem eru ein þau eftirsóttustu í kvikmyndabransanum.
Frakkland hefur nú bannað stutt innanlandsflug ef sambærileg lestarferð er til staðar. Þetta er gert til að sporna við losun kolefnis þar sem lestarferðirnar eru töluvert umhverfisvænni. Það eru þó ekki jafn margar flugleiðir sem verða fyrir barði bannsins og upphaflega var gert ráð fyrir.
Stjórnvöld í Kína ásaka G7 ríkin um samantekin ráð um að sverta orðspor Kína á heimsvísu og ráðast gegn hagsmunum landsins.
Yfirvöld í Suður-Evrópu standa frammi fyrir miklum þurrkum í sumar en vatn skortir nú þegar á nokkrum svæðum og bændur óttast mikinn uppskerubrest. Takmörkuð úrkoma í nokkur ár og aukinn hiti hefur dregið verulega úr stöðu vatnsbóla og grunnvatns í sunnanverðri Evrópu.
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, heimsótti Sundhöll Reykjavíkur í gær og skellti sér í heita pottinn. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fór á Þingvelli í morgun ásamt Dúa J. Landmark og þjóðgarðsverði.
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi Frakklandsforseti, hefur tapað áfrýjun í spillingarmáli sínu. Dómstóllinn hefur þó úrskurðað að hann muni ekki þurfa að afplána fangelsisdóm heldur nægir fyrir hann að afplána heima hjá sér og vera með ökklaband.
Franska þingið hvetur til þess að Evrópusambandið skilgreini Wagner-málaliðahópinn sem hryðjuverkasamtök. Breskir miðlar segja að bresk stjórnvöld áformi að gera slíkt hið sama.
Leiðtogar rúmlega fjörutíu af 46 aðildarríkjum Evrópuráðsins hafa boðað komu sína hingað til lands í næstu viku. Þeirra á meðal eru Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands. Komist leiðtogar ekki á fundinn mæta í flestum tilfellum utanríkisráðherrar í þeirra stað.