Frakkland

Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir
Neyðarástandi var lýst yfir á Nýju-Kaledóníu í gær en hundruð franskra lögreglumanna er á leið til eyjaklasans eftir miklar óeirðir þar sem fjórir hafa látið lífið og fjöldi slasast.

Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi
Hundruð lögreglumanna leita nú fanga sem slapp úr lögreglubíl í Normandy héraði í Frakklandi þegar þungvopnaðir félagar hans gerðu árás á bílinn, drápu tvo fangaverði og náðu að frelsa hann.

Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka
Umfangsmikil leit stendur nú yfir að þungvopnuðum mönnum sem skutu að minnsta kosti tvo fangaverði til bana og særðu þrjár aðra alvarlega þegar þeir hjálpuðu fanga að strjúka í norðanverðu Frakklandi í dag. Strokufanginn var dæmdur fyrir rán.

Siðferðileg heilindi Háskóla Íslands á tímum þjóðarmorðs
Alda stúdentamótmæla hefur brotist út um allan heim og hafa stúdentar slegið upp tjaldbúðum og skipulagt mótmæli til að vekja athygli á þjóðarmorði Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni. Kennarar og stúdentar hafa verið handteknir, m.a. við Colombia háskóla í New York og Science Po í París.

Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn
Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í morgun að halda ætti heræfingar með svokölluð taktísk kjarnorkuvopn ríkisins. Æfingar þessar eiga að vera viðbrögð við ummælum vestrænna leiðtoga um innrás Rússa í Úkraínu og þá sérstaklega orð Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ekki ætti að útiloka það að senda hermenn til Úkraínu.

Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak
Xi Jinping, forseti Kína, kom í morgun í opinbera heimsókn til Parísar í Frakklandi þar sem hann mun hitta kollega sinn Emmanuel Macron. Þetta er fyrsta heimsókn Xi til Evrópu frá árinu 2019 en hann mun einnig heimsækja Serbíu og Ungverjaland.

Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons
Dmitrí Peskóv, talsmaður Valdimírs Pútín, forseta Rússlands, gagnrýndi í dag Emmanuel Macron, forseta Frakklands, og David Cameron, utanríkisráðherra Bretlands. Það gerði hann vegna ummæla sem hann sagði ógna öryggi í Evrópu og valda stigmögnun.

Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi
Listasafnið Louvre skoðar nú að færa málverkið af Mónu Lísu í annað rými á safninu. Forstöðukona safnsins segir að með því að færa verkið fengju gestir betri upplifun á því.

Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt
Spaðarnir á hinni sögufrægu Rauðu myllu í París hrundu til jarðar í nótt. Ekki urðu slys á fólki og slökkvilið telur ekki hættu á að fleiri hlutar hússins hrynji.

Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP
Saksóknarar í Þýskalandi hafa ákært sjö menn sem grunaðir eru um að hafa undirbúið hryðjuverkaárásir á vegum Íslamska ríkisins í Khorasan (ISKP) þar í landi og annarsstaðar í Vestur-Evrópu. Mennirnir eru sagðir hafa virt fyrir sér nokkur möguleg skotmörk og munu þeir hafa reynt að safna peningum og vopnum fyrir árásir.

Ótrúleg endurkoma í undanúrslitum Meistaradeildarinnar
Lyon vann hádramatískan 3-2 sigur er liðið tók á móti PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Unglingur lést eftir árás við skóla í Frakklandi
Fimmtán ára gamall piltur lést á sjúkrahúsi í dag tæpum sólarhring eftir að hópur ungmenna réðst á hann og barði við skólann hans í úthverfi Parísar í gær. Vaxandi ofbeldisalda á meðal ungmenna veldur áhyggjum í Frakklandi.

Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að útvega hryðjuverkamanni byssu
Maður hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa útvegað Cherif Chekatt skotvopn, sem hann notaði til að myrða fimm manns á jólamarkaði í Strasbourg í Frakklandi árið 2018.

Bein tveggja ára drengs sem hvarf komin í leitirnar
Bein tveggja ára drengs sem hvarf sporlaust í frönsku smáþorpi síðasta sumar hafa komið í leitirnar. Rannsókn á málinu stendur nú yfir þar sem ekki liggur fyrir hvað henti drenginn.

Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs
Lögregluþjónar lokuðu í gær smáu þorpi í frönsku Ölpunum. Sautján manns, auk lögregluþjóna, hafa verið í þorpinu til að reyna að finan einhver svör um hvað kom fyrir hinn tveggja ára gamla Emile sem hvarf þaðan sporlaust síðasta sumar.

Senda fleiri eldflaugar og fallbyssur til Úkraínu
Yfirvöld í Bandaríkjunum eru sögð ætla að tilkynna í dag nýjan fjögur hundruð milljóna dala pakka af hernaðaraðstoð til Úkraínu. Þetta yrði fyrsti pakkinn af þessu tagi frá Bandaríkjunum í nokkra mánuði en fjárveitingar til hernaðaraðstoðar situr fastur í bandaríska þinginu.

Spánn varð fyrsti Þjóðadeildarmeistarinn
Spánn er fyrsti Þjóðadeildarmeistari í kvennaflokki eftir 2-0 sigur gegn Frakklandi í úrslitaleik.

72 skotvopn gerð upptæk á heimili franskrar kvikmyndastjörnu
Lögregla í Frakklandi hefur lagt hald á 72 skotvopn og rúmlega þrjú þúsund skotfæri á heimili frönsku kvikmyndastjörnunnar Alain Delon.

Sprautuðu mykju yfir lögreglu í mótmælaskyni
Bændur í Evrópu eru reiðir yfir lágu matvöruverði, ódýrri innfluttri vöru og of mikilli skriffinsku sem tengist ýmsum reglugerðum Evrópusambandins. Bændur hafa nú mótmælt vikum saman víða um Evrópu.

Macron útilokar ekki að senda hermenn inn í Úkraínu
Emmanuel Macron Frakklandsforseti vildi ekki útiloka í gær að hermenn Evrópuríkja yrðu sendir inn í Úkraínu. Ítrekaði hann hins vegar að ekkert samkomulag lægi fyrir þar að lútandi.

Fjórir létust í snjóflóði
Fjórir skíðakappar létu lífið í dag þegar snjóflóð féll um 1600 metrum fyrir ofan þorpið Mont-Dore á svæði sem er kallað Val d'Enfer í Frakklandi.

Nýfrjálshyggjunni er ekki illa við einokun
Mont Pelerin-klúbburinn, sem átti eftir að verða eins konar akademía nýfrjálshyggjufólks (neoliberals), tók á stofnfundi sínum 1947 eindregna afstöðu gegn einokun og með samkeppni á frjálsum markaði.

Fann franskan kærasta skömmu eftir tökur
„Mig hafði alltaf dreymt um að flytja til Frakklands, alveg frá því ég var unglingur,“ segir Unnur Sara Eldjárn sem seldi íbúðina sína í Reykjavík og yfirgaf öryggið á Íslandi til að elta drauminn um að búa í Frakklandi fyrir fáeinum árum.

Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“
Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega.

Frakkar herða útlendingalög með umdeildri breytingu í Indlandshafi
Sem hluti af nýrri útlendingalöggjöf Frakklands munu þeir sem fæðast á eyjaklasanum Mayotte ekki lengur sjálfkrafa vera franskir ríkisborgarar. Íbúar klasans hafa mótmælt á götum úti í þrjár vikur vegna yfirvofandi breytinga.

Camembert og Brie í bráðri útrýmingarhættu
Sveppirnir sem eru notaðir til að framleiða camembert og brie eru í hættu á að deyja út vegna stöðlunar í framleiðslu ostanna.

Bílastæðagjald fyrir jepplinga hækkað í 2.700 krónur fyrir klukkustund
Eigendur jepplinga þurfa nú að greiða átján evrur fyrir að leggja bifreið sinni í klukkustund í miðborg Parísar. Gjaldið var áður sex evrur en 54,55 prósent íbúa í miðborginni greiddu atkvæði með tillögu um að þrefalda það.

Einn handtekinn eftir hnífaárás í París
Karlmaður var handtekinn í París í morgun eftir að hann stakk þrjá á Gare de Lyon lestarstöðinni í París. Á vef AP kemur fram að lögregla hafi handtekið hann stuttu eftir árásina og að hann hafi notað beitt vopn í árásinni sem átti sér stað um klukkan átta í morgun.

Spilar ekki með Kielce meðan rannsókn á nauðgun stendur yfir
Benoit Kounkoud spilar ekki með pólska handboltaliðinu Kielce meðan frönsk yfirvöld eru með mál hans til rannsóknar.

Evrópumeistarinn laus úr haldi lögreglu
Benoit Kounkoud, einum af nýkrýndu Evrópumeisturum Frakka í handbolta, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu en rannsókn á máli hans heldur áfram. Hann er sakaður um tilraun til nauðgunar á skemmtistað.