Fjölmiðlar

Tímamótabreytingar fram undan hjá BBC
Fjárframlagakerfi til breska ríkisútvarpsins tekur miklum breytingum á allra næstu árum að sögn Nadine Dorries, menningarmálaráðherra Bretlands, sem kynnti framtíðaráætlanir ríkisstjórnarinnar í dag. Afnotagjöld breska ríkisútvarpsins verða felld niður eftir fimm ár.

Topplisti Creditinfo: Kauphöllin aftur í efsta sæti
Kauphöllin var það fyrirtæki sem kom oftast fyrir í fréttum í vikunni en þetta er önnur vikan í röð sem Kauphöllin er efst á lista.

Búið að segja Jóni Má upp á X-inu
Jóni Má Ásbjörnssyni hefur verið sagt upp störfum á X-inu en hann hefur stýrt útvarpsþættinum Séra Jón um nokkurt skeið.

Bera meðvirkni fjölmiðla nú saman við meðvirkni þeirra fyrir bankahrun
Það er töluverður skortur á því að fjölmiðlar spyrji gagnrýnna spurninga þegar kemur að sóttvarnaraðgerðum stjórnvalda, ákvörðunum um það hvaða takmarkanir eru settar á, hvenær og hvernig og hvaða árangri þeim er ætlað að bera.

Helgi Seljan frá RÚV á Stundina: „Veitir mér leyfi til að svara fyrir mig“
Fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi, sem hefur starfað á miðlinum frá árinu 2006, hefur verið í leyfi frá störfum og hyggst ekki snúa aftur. Hann tekur við sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar þann 15. febrúar.

Pallborðið: Hvíslað um kynferðisbrot
Hvað mega þolendur og fjölmiðlar segja þegar kemur að kynferðisbrotamálum? Má nafngreina meinta gerendur og hvað gerist þegar enginn vill segja neitt? Um þetta og fleira var rætt í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi sem Hólmfríður Gísladóttir stjórnaði.

Arna Schram látin
Arna Schram, sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg og fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands, lést á Landspítalanum í gær, 53 ára að aldri.

Fyrrverandi stuðningsmaður Flokks fólksins segir Ingu drulla yfir spyrla og aðra vinstri hægri
Inga Sæland formaður Flokks fólksins birtir skilaboð til sín þar sem henni eru ekki vandaðar kveðjurnar. Sá sem það gerir ætlar ekki að kjósa flokk hennar aftur vegna framkomu sem viðkomandi telur ekki sæma þingmanni.

Ritstjóri Mogga blandar sér varfærnislega í heita umræðu um kynferðisbrot
Í leiðara Morgunblaðsins er fjallað um heita umræðu á samfélagsmiðlum og dómsstól götunnar, sem leiðarahöfundur segir óskapnaður.

Anna Kristine blaðamaður og kattavinur fallin frá
Anna Kristine Magnúsdóttir Mikulcakova, blaðamaður og dagskrárgerðarkona, er látin 68 ára að aldri. Hún lést á heimili sínu fimmtudaginn 6. janúar.

Isavia og Íslandsbanki voru oftast í fréttum á árinu 2021
Ríkisfyrirtækið Isavia kom oftast fyrir í fréttum á árinu 2021 samkvæmt úttekt Creditinfo á fjölmiðlaumfjöllun um fyrirtæki.

Umdeildur skopmyndateiknari Moggans hverfur á braut
Helgi Sig. hefur starfað sem skopmyndateiknari Morgunblaðsins nú í rúman áratug. Teikningar hans hafa reynst afar umdeildar og nú hefur hann sagt gott og er hættur.

Áslaug Arna lækar færslu Loga sem lokar á athugasemdir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að læka Facebook-færslu Loga Bergmanns Eiðssonar fjölmiðlamanns frá því í gær, þar sem hann segist iðrast að hafa farið yfir mörk konu en neitar að hafa brotið gegn henni.

Dagurinn sem fimm þjóðþekktir karlmenn stigu til hliðar
Hún var hröð atburðarrásin í dag þegar fimm þjóðþekktir karlmenn ýmist létu af störfum eða fóru í leyfi í tengslum við ásakanir ungrar konu um að fjórir þeirra hafi brotið á henni á meðan hún átti í ástarsambandi við vin þeirra.

Logi Bergmann í leyfi frá K100
Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson, sem stjórnar Síðdegisþættinum á K100, segist ætla að fara í frí. Hann lýsti þessu yfir í upphafi þáttarins klukkan 16 núna síðdegis.

Neituðu að birta fyrirsögn um þyngdaraukninguna
Diljá Ámundadóttir Zoëga birti skoðanagrein á Vísi í dag þar sem hún talar um fitufordóma og hvernig þeir viðgangast í samfélaginu og á hinum ýmsu miðlum. Þá nefnir hún sérstaklega einn fjölmiðil sem hún átti í samskiptum við fyrir nokkrum árum.

Forsíðufyrirsögnin: „Þyngdist um 15 kíló og hefur aldrei litið betur út”
Í upphafi hvers árs fara þættir um mataræði og heilsu (þá aðallega heilsu tengda við vigt) að verða fyrirferðamiklir í sjónvarpinu og aðrir miðlar birta viðtöl við fólk (aðallega konur) sem hafa misst einhvern fjölda kílóa og eru í hinu svokallaða formi.

Ásakanir Seðlabankastjóra á hendur Fréttablaði vart skotheldar
Í gær fór Seðlabankastjóri mikinn á Facebook-síðu sinni, og áskaði hann Fréttablaðið um óvandaðan og óboðlegan fréttaflutning.

Harmageddon snýr aftur sem hlaðvarp
„Hin kærleiksríki og óumdeildi útvarpsþáttur með Frosta og Mána snýr aftur sem hlaðvarpsþáttur í áskriftaformi,“ segir í nýrri tilkynningu frá Tal hér á Vísi.

Seðlabankastjóri segir fréttaflutning Fréttablaðsins óboðlegan
Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri segir sjálfhætt ef ekki skuli að segja af ásökunum virts sagnfræðings á hendur seðlabankastjóra um ritstuld.

Einar Þorsteins hættur á RÚV
Einar Þorsteinsson fréttamaður á RÚV, og einn helsti stjórnandi Kastljóss undanfarin ár, hefur sagt upp störfum á Ríkisútvarpinu.

Rakel meyr eftir síðasta vinnudaginn hjá Ríkisútvarpinu
Rakel Þorbergsdóttir lauk sinni síðustu vakt í dag á Ríkisútvarpinu í bili eftir 22 ára starf á fréttastofunni. Hún lætur þar af leiðandi af störfum sem fréttastjóri og hyggst byrja nýtt ár á tveggja mánaða leyfi. Því næst á vit ævintýranna.

Egill Einarsson segir tóma dellu að hann sé sóttvarnadólgur
Egill Einarsson, fjölmiðlamaður og líkamsræktarþjálfari, er staddur úti á Tenerife í góðu yfirlæti. Umdeild frásögn hans á Instagram í gær rataði víða og hún höfð til marks um að Egill væri að hæðast að sóttvörnum. Hann segir ekkert fjær sanni.

Það gerist ýmislegt á bak við tjöldin
„Enginn veit neitt og allir eru bara að gera sitt besta.“ Þessi tilvitnun hefur sjaldan átt jafn vel við og á þessum síðustu og verstu. Stundum er bara allt svolítið flókið og erfitt. En það gera allir mistök og það má bara ekki tapa gleðinni.

Hlaðvörp eru ekki fjölmiðlar
Fjölmiðlar sinna gæsluhlutverki gagnvart ríkisvaldinu. Hlaðvörp gera það ekki. Hlaðvörp eru ekki fjölmiðlar. Að telja að svo sé lýsir því miður viðtekinni skoðun og viðhorfi ríkisins til fjölmiðla. Hlaðvörp eru líkari skoðanapistli heldur en fjölmiðli. Að kalla hlaðvörp fjölmiðil gerir því lítið úr fjölmiðlum og er atlaga að tjáningarfrelsi almennra borgara.

Söng eitt vinsælasta sumarlag Íslendinga
Söngvarinn sem gerði Þórsmerkurljóðið um hana Maríu að einhverjum vinsælasta sumarsöng Íslendinga er látinn. Hann hét Sigurdór Sigurdórsson og var jafnframt einn reynslumesti blaðamaður þjóðarinnar.

Beitir neitunarvaldi gegn umdeildum fjölmiðlalögum
Andrzej Duda, forseti Póllands, hefur beitt neitunarvaldi sínu gegn umdeildum fjölmiðlalögum sem pólska þingið samþykkti á dögunum og takmörkuðu erlent eignarhald.

Baldvin Þór verður ritstjóri breytts Kastljóss
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri boðar skipulagsbreytingar hjá Ríkisútvarpinu ohf.

Brúneggjamálinu vísað frá dómi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli tveggja helstu hluthafa í Brúnegg ehf gegn Ríkisútvarpinu og MAST frá dómi.

Mótmæltu nýjum lögum um takmarkað eignarhald erlendra aðila á fjölmiðlum
Þúsundir mótmæltu nýjum fjölmiðlalögum í Póllandi í gær og fjöldi fólks mætti fyrir utan forsetahöllina til að þrýsta á forsetann Andrzej Duda að neita að undirrita lögin.