
Fjölmiðlar

Siðareglur RÚV voru tifandi tímasprengja
Ríkisútvarpið ætlar að ráðast í endurskoðun á siðareglum sínum í kjölfar dóms siðanefndar yfir Helga Seljan.

Stjórn Félags fréttamanna: „Samherji kastaði stóru neti og veiddi eina siðanefnd“
Stjórn Félags fréttamanna, stéttafélags fréttamanna á RÚV, sendi í dag frá sér ályktun vegna niðurstöðu siðanefndar RÚV vegna kæru Samherja á hendur ellefu fréttamönnum. Þar lýsir stjórnin vonbrigðum með niðurstöðuna og segist hafa áhyggjur af því hvaða afleiðingar niðurstaðan geti haft á gagnrýna fjölmiðlun.

Osbourne deilir örlögum Morgan og er látin taka pokann sinn
Raunveruleikaþáttastjarnan Sharon Osbourne mun ekki snúa aftur í spjallþáttinn The Talk, eftir heita umræðu í þættinum um rasisma. Umræðan átti sér stað í kjölfar þess að Osbourne lýsti yfir stuðningi við sjónvarpsmanninn Piers Morgan.

Nadine verðlaunuð fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins
Tilkynnt var um verðlaunahafa Blaðamannaverðlaunanna í beinu streymi frá húsakynnum Blaðamannafélagsins í dag. Nadine Guðrún Yaghi, fréttamaður Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, hlaut verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir umfjöllun sína um mistök við greiningu sýna hjá Krabbameinsfélaginu.

Helgi Seljan þverbraut siðareglur Ríkisútvarpsins ohf
Siðanefnd Ríkisútvarpsins hefur dæmt í máli Samherja hf. gegn Helga Seljan og tíu öðrum starfsmönnum Ríkisútvarpsins. Helgi er dæmdur sekur um brot gegn siðareglum stofnunarinnar en hin tíu sleppa hins vegar með skrekkinn. Brot Helga teljast alvarleg.

Bein útsending: Blaðamannaverðlaun tilkynnt
Klukkan 17 verður tilkynnt hverjir hljóta Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir síðasta ár. Vegna samkomutakmarkanna verður athöfnin í streymi.

Sýknudómur í máli Sjanghæ gegn Sunnu staðfestur
Landsréttur hefur staðfest sýknudóm úr héraði í máli veitingastaðarins Sjanghæ á Akureyri á hendur Sunnu Valgerðardóttur fréttamanni, Magnúsi Geir Þórðarsyni fyrrverandi útvarpsstjóra og Ríkisútvarpinu. Dómur var kveðinn upp klukkan 14. Eigandi Sjanghæ krafðist miskabóta upp á þrjár milljónir.

Stefna RÚV vegna Brúneggjaumfjöllunar Kastljóss
Eigendur fyrirtækisins Brúneggja hafa stefnt Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun vegna umfjöllunar Kastljóss um fyrirtækið, síðla árs 2016.

„Nei, nú ætla ég að segja stopp“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra taldi ástæðu til að lesa yfir Frosta Logasyni á öldum ljósvakans í morgun.

Sögulegur lestur á Vísi í eldgosaviku
234 þúsund íslenskir notendur heimsóttu Vísi að meðaltali á hverjum degi í liðinni viku og lásu, horfðu og hlustuðu á fréttir og annað efni.

„Víða herjað á störf blaðamanna“: Heimir Már býður sig fram til formanns Blaðamannafélags Íslands
Heimir Már Pétursson, fréttamaður á ritstjórn Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Blaðamannafélags Íslands. Hann segir almenna stöðu fjölmiðlunnar og nauðsyn þess að verja kjör blaðamanna ástæðu framboðsins.

Tobba Marínós hættir sem ritstjóri DV
Tobba Marínósdóttir er hætt sem ritstjóri DV. Hún greindi samstarfsfólki sínu hjá Torgi frá því upp úr hádegi í dag. Hringbraut greinir frá. Hún ætlar að snúa sér alfarið að matvælarekstri með móður sinni.

Stærsti sjónvarpssamningur sögunnar fyrir kvennadeild: „Stórkostlegt skref fram á við“
Sky Sports og BBC hafa keypt réttinn á ensku ofurdeildinni til þriggja ára. Talið er að samningurinn sé um 24 milljóna punda virði og er þetta stærsti sjónvarpssamningur sem gerður hefur verið fyrir kvennadeild í heiminum.

„Já, þetta kom mér aðeins á óvart“
Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur gerði því skóna í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins að ekki myndi gjósa en kvikan fór ekki eftir því.

Auglýsti eftir þáttastjórnanda í hlaðvarp og umsóknirnar dælast inn
„Viðbrögðin hafa verið vonum framar. Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir áhuganum í fyrstu. Taldi að svona tímabundið starf ætti við fáa en áhugi á hlaðvarpsvellinum er greinilega töluverður,“ segir Hugi Halldórsson sem heldur úti hlaðvarpinu Rautt & Hvítt.

Fréttamenn Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar tilnefndir til þrennra blaðamannaverðlauna
Erla Björg Gunnarsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi hafa verið tilnefndar til blaðamannaverðlaunanna í flokknum Umfjöllun ársins fyrir áhrifamikla og afhjúpandi umfjöllun Kompáss um dulinn vanda kvenna með þroskahömlun sem leiðst hafa út í vændi.

The Sun réði einkaspæjara til að fá upplýsingar um Meghan
Breska götublaðið The Sun borgaði bandaríska einkaspæjaranum Daniel Hanks fyrir að sækja upplýsingar um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, á fyrstu stigum sambands hennar við Harry Bretaprins. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið í kvöld.

Inga Sæland fékk að vita hverjir eru í sviðsljósinu hjá RÚV
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er sú sem kemur langoftast fyrir í fréttum og í þáttagerð starfsmanna Ríkisútvarpsins. Sigurður Páll Jónsson þingmaður Miðflokksins kemst varla á blað.

Aldrei fleiri kvartanir borist
Rúmlega 57 þúsund kvartanir hafa borist breska eftirlitsaðilanum Ofcom í kjölfar þáttar Good Morning Britain í síðustu viku þar sem viðtal Opruh Winfrey við hertogahjónin af Sussex var til umræðu. Aldrei hafa jafn margar kvartanir borist fjölmiðlaeftirlitinu vegna sjónvarpsefnis áður.

Top Gear-stjarnan Sabine Schmitz látin
Kappaksturs- og Top Gear-stjarnan Sabine Schmitz er látin 51 árs að aldri. Hin þýska Schmitz, sem þekkt var sem „Drottning Nürburgring“, hafði glímt við krabbamein síðustu ár.

Osbourne tekin af dagskrá vegna deilna um Morgan
Spjallþátturinn The Talk fer ekki í loftið í dag og á morgun vegna deilna Sharon Osbourne og meðþáttastjórnanda hennar Sheryl Underwood um skoðanir Piers Morgan á Meghan Markle.

Birting minningargreina Morgunblaðsins bönnuð á öðrum miðlum
Morgunblaðið hefur nú sett þann varnagla á að ekki er leyfilegt að birta efni úr minningargreinum, sem birtast í blaðinu, á öðrum miðlum án leyfis. Ástæða þess er að birting slíks efnis hefur fallið í grýttan jarðveg hjá aðstandendum látinna.

Hjörvar ráðinn yfirmaður íþróttamála hjá Viaplay á Íslandi
Hjörvar Hafliðason hefur verið ráðinn í nýja stöðu íþróttastjóra hjá Viaplay sport á Íslandi.

Netflix skoðar að stöðva dreifingu lykilorða
Starfsmenn streymisveitunnar vinsælu, Netflix, leita nú leiða til að koma í veg fyrir að margir aðilar sem búi ekki saman deili lykilorðum sín á milli.

Fjöldi starfsmanna Good Morning Britain kvartaði vegna ummæla Morgans
Tugir starfsmanna sjónvarpsþáttarins Good Morning Britain, sem er á dagskrá ITV á morgnana, kvörtuðu til stjórnenda sjónvarpsstöðvarinnar vegna ummæla sem Piers Morgan lét falla um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, í þættinum á mánudaginn.

Sendi sjálf inn formlega kvörtun vegna ummæla Piers Morgan
Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, var sjálf í hópi þeirra sem sendu inn kvörtun vegna ummæla fjölmiðlamannsins Piers Morgan á ITV um geðheilsu hennar.

Morgan stendur við orð sín um Meghan og bætir í
Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan, sem hætti í gær sem þáttastjórnandi í Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni vegna ummæla sinna um Meghan Markle, segist standa við það sem hann sagði.

Enginn Morgan á morgnana í kjölfar ummæla um Meghan
Sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan hefur ákveðið að hætta sem einn þáttastjórnenda Good Morning Britain, eftir uppákomu í þættingum í gærmorgun þegar viðtal hertogahjónanna Harry og Meghan við Oprah Winfrey bar á góma.

Ætlar að halda áfram að ræða við fjölmiðla þar til Meghan talar við hann
Thomas Markle, faðir Meghan Markle, hertogaynjunnar af Sussex og eiginkonu Harry Bretaprins, segist ætla að halda áfram að ræða við fjölmiðla þar til dóttir hans talar aftur við hann.

Piers Morgan móðgaðist og strunsaði út úr stúdíóinu
Piers Morgan, einn þáttastjórnanda Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni, strunsaði út úr myndverinu í beinni útsendingu í morgun í kjölfar umræðu um hið margumtalaða viðtal Opruh Winfrey við Meghan Markle og Harry Bretaprins.