Dýr
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 69 ›
Álftir éta og éta upp kornakra bænda Álftir eru verulegt vandamál þegar kornrækt er annars vegar því fuglarnir éta upp heilu hektarana frá bændum á örskotsstund. Kornbóndi á Suðurlandi segir að þó að þær séu reknar upp af ökrunum koma þær jafn harðan aftur, það verði að fækka fuglinum en í dag eru álftir friðaðar. Innlent 22.10.2022 13:06
Lést vegna heilaétandi amöbu Unglingur í Nevada í Bandaríkjunum lést nýlega af völdum heilaétandi amöbu. Dýrið er talið hafa farið inn í nef og upp í heila unglinsins þegar hann baðaði sig í stöðuvatni í fylkinu. Erlent 22.10.2022 11:46
Attenborough hvetur til aðgerða til þess að bjarga megi dýralífi jarðar Tilfinningaþrungið myndbrot úr þáttunum „Frozen Planet“ með David Attenborough hvetur fólk til þess að huga að áhrifum eigin tilveru á hlýnun jarðar og grípa í taumana áður en það verði of seint. Bíó og sjónvarp 21.10.2022 12:48
Fulltrúar Íslands komu í veg fyrir atkvæðagreiðslu um griðasvæði hvala Sendinefnd Íslands hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu gekk út af fundi ásamt hópi annarra ríkja til þess að koma í veg fyrir að atkvæðagreiðsla um griðasvæði hvala í Suður-Atlantshafi gæti farið fram. Íslensk stjórnvöld segjast telja að ólýðræðislegt hefði verið að halda atkvæðagreiðsluna. Innlent 21.10.2022 10:58
Telur sig mega sæta ofsóknum af hálfu MAST Árni Stefán Árnason lögfræðingur, sem hefur sérhæft sig í dýraverndunarlöggjöf og barist ákaft fyrir velferð dýra, telur borðleggjandi að Matvælastofnun ofsæki sig vegna skoðana sinna og gagnrýni sem hann hefur sett fram á hendur stofnuninni. Innlent 20.10.2022 10:52
Hin hrossin send aftur til eigenda Þrettán hross í Borgarfirði voru aflífuð af Matvælastofnun (MAST) í gær vegna alvarlegs ástands. Önnur hross reyndust vera í ásættanlegum holdum og var skilað til umráðamanns. Tíu þeirra eru þó sögð vera í viðkvæmu ástandi. Innlent 19.10.2022 09:43
Segja hrossin hafa verið færð í sláturhús og folald fellt á staðnum Tólf af hrossunum í Borgarfirði sem Vísir hefur fjallað um síðan í sumar eru sögð hafa verið felld. Matvælastofnun hafi mætt á vettvang. Innlent 18.10.2022 23:45
Mega nú ferðast með gæludýrin í búrum á útisvæði Herjólfs Farþegar Herjólfs mega nú fara með gæludýr í búrum upp á útisvæði ferjunnar á meðan á siglingu stendur. Áður þurftu þurfti gæludýraeigendur að geyma gæludýr sín í bílnum eða þá í sérstöku herbergi á bíladekki. Innlent 18.10.2022 11:32
Stöndum saman um líffræðilega fjölbreytni Heilbrigð vistkerfi á landi, í ferskvatni og sjó eru undirstaða alls lífs á jörðinni og fjölbreytni lífríkisins er forsenda þess að vistkerfi geti starfað. Án fjölbreytni eru engir valkostir þegar bregðast þarf við breyttum aðstæðum og jafnvel ógnum eins og hlýnandi loftslagi. Skoðun 18.10.2022 10:32
Fjölgar rjúpum sem má veiða á tímabilinu Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verður frá 1. nóvember til 4. desember í ár. Ráðlögð veiði á tímabilinu er 26 þúsund fuglar, sem er fjölgun um sex þúsund fugla frá síðasta tímabili. Innlent 17.10.2022 19:59
Efast um hæfi MAST Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) segja viðbrögð Matvælastofnunar (MAST) við vanrækslu hrossa í Borgarfirði ekki vera í samræmi við alvarleika málsins. Samtökin skora á MAST að tryggja viðunandi aðbúnað dýranna á meðan málið er enn í skoðun. Innlent 14.10.2022 09:33
Taminn forystuhrútur í Skagafirði Forystuhrúturinn Móri í Skagafirði þykir einstaklega fær þegar kemur að því að hlaupa samhliða hesti í bandi með bjölluna sína. Bóndinn á bænum, sem hefur tamið Móra notar hann mikið þegar hann er að smala því kindurnar laðast að Móra og síðan hleypur hann með þær heim á bæ. Innlent 13.10.2022 21:30
Fær ekki krónu eftir árekstur við kanínu Hjólreiðamaðurinn Hlöðver Bernharður Jökulsson hafði ekki erindi sem erfiði er hann reyndi að sækja bætur úr ábyrgðatryggingu Reykjavíkurborgar vegna slyss sem varð er Hlöðver hjólaði á kanínu í Elliðaárdalnum og slasaðist nokkuð. Óhappatilvik var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 13.10.2022 18:08
Evrópumeistarar í dýraníði - það er Ísland - fyrri hluti Ef ég ætti, að skilgreina opinbera dýravernd og að nokkru leyti dýravernd umráðamanna hérlendis sækir sú hugsun fyrst að mér að við séum Evrópumeistarar í dýraníði. Skoðun 13.10.2022 16:31
„Þetta er svo mikill hryllingur“ Búið er að hleypa hestunum í Borgarfirði sem Vísir hefur fjallað um í sumar út. Þeir voru lokaðir inni um langt skeið og efast hestafólk í nærsveitum um að þeir lifi veturinn af, svo illa eru þeir farnir. Innlent 13.10.2022 15:33
Til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra Sæl Svandís, ég er að setja mig í samband við þig vegna dýraníðs í Borgarfirði. Þú hefur örugglega heyrt af þessu máli í fjölmiðlum. Steinunn Árnadóttir benti á þetta og hefur fylgt málinu eftir. MAST gerir ekkert. Lögreglan og dýraeftirlitsmaður á svæðinu gerir ekkert. Skoðun 13.10.2022 10:31
Villtum dýrum fækkað um 70 prósent á fimmtíu árum Villtum dýrum á jörðinni hefur fækkað um tæp 70 prósent á rétt tæpum fimmtíu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu en þar er ofurneyslu mannfólks, minnkun skóglendis vegna ágangs manna og mengun þeirra kennt um þessa gríðarlegu fækkun dýra. Erlent 13.10.2022 07:53
Eitruð froða rann um læk við Stekkjabakka Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur barst tilkynning í dag um froðu í læk við Stekkjabakka. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Veitur og fulltrúar Heilbrigðiseftirlitsins mættu á vettvang. Stíflu var komið fyrir til þess að koma í veg fyrir að froðan myndi flæða út í Elliðaár en froðan er talin hafa verið eitruð. Innlent 12.10.2022 20:08
Íhuga að skattleggja beljurop Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni. Erlent 11.10.2022 13:59
Handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn: „Þetta var ekki rétt“ Leigusali karlmanns sem var handtekinn fyrir að skjóta hest með boga var handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn í aðgerðum sérsveitarinnar á aðfararnótt laugardags. Feðgarnir gagnrýna vinnubrögð lögreglu en þeir þurftu báðir að dvelja á lögreglustöðinni á Selfossi langt fram á nótt. Innlent 9.10.2022 20:55
Villtum dýrum í Evrópu fjölgar á ný Aðgerðir til að fyrirbyggja útrýmingu villtra dýra hafa gefist afar vel á síðustu áratugum og nú er svo komið að dýr sem fyrir fáum áratugum voru í útrýmingarhættu farnast vel í villtri náttúru Evrópu. Evrópusambandið hyggst setja aðildarríkjum sínum enn strangari kröfur til að styrkja tilvist villtra dýra. Erlent 8.10.2022 16:18
Golfkúluhundurinn Kjói á Ísafirði Hundurinn Kjói á Ísafirði er magnaður þegar kemur að golfi og golfíþróttinni því hann týnir upp í kjaftinn sinn allar golfkúlur, sem eru fyrir utan golfvöllinn í bænum. Hann tekur engar kúlur inn á vellinum, bara kúlurnar fyrir utan og skilar þeim til eiganda síns, sem er með mörg hundruð kúlur, sem Kjói hefur komið með heim. Innlent 7.10.2022 20:20
Dularfullt lambsdráp í Skorradal Refaskytta í Borgarnesi birti myndskeið af sundurskotinni kind á Facebooksíðu sinni. Fyrir liggur að einhver hefur beint riffli sínum að kindinni og skotið hana. Innlent 28.9.2022 11:46
Segir hundinn ekki hafa ráðist á neinn Eigandi hundsins á Akureyri sem fjallað var um á Vísi í gær segir hann ekki hafa bitið neinn heldur einungis hlaupið í átt að stúlku með annan hund í bandi. Hundurinn sé aldrei skilinn einn eftir úti. Innlent 27.9.2022 21:31
Tveir kettir, kannski einn, á fyndnustu gæludýramynd ársins Sigurvegarar hinnar árlegu gæludýraljósmyndakeppni Comedy Pet Photo Awards voru opinberaðir í síðustu viku. Rúmlega tvö þúsund myndir bárust í keppnina þetta árið en sigurvegarinn er Kenichi Morinaga sem tók kostulega mynd ef tveimur köttum, eða jafnvel bara einum. Lífið 27.9.2022 12:30
Segir hund nágrannans hafa ráðist á litla stelpu: „Maður bara fékk sjokk“ Íbúi á Akureyri segist ráðalaus vegna hunds sem börnum stafi ógn af. Hundurinn hafi glefsað í litla stelpu fyrr í dag, og kallað hafi verið á lögreglu. Hún segir hundinn sitja bundinn úti í garði heilu og hálfu dagana og gelta stanslaust. Íbúinn vill hundinn burt. Innlent 26.9.2022 21:11
Úthverfatófan ekki hættuleg mönnum Tófan sem sást á flakki um Breiðholtið fyrr í vikunni hefur sést bæði í Árbænum og Grafarholti síðan þá. Dýraþjónusta Reykjavíkur segir enga ástæðu til að óttast tófuna en varar fólk þó við að reyna að klappa henni. Innlent 21.9.2022 09:09
Hundruð hvala stranda við Tasmaníu Um 230 grindhvalir hafa strandað á Ocean-ströndinni á Tasmaníu síðustu daga. Um helmingur þeirra er enn á lífi og verið er að vinna í því að koma þeim aftur í sjóinn. Erlent 21.9.2022 07:40
Vilja stækka Hundavinahópinn: „Þeim mun fleiri sem við náum til, því betra er það fyrir okkar skjólstæðinga“ Hundavinir Rauða krossins leita að sjálfboðaliðum sem vilja bætast í starfið en þegar eru 42 virk pör sem sinna heimsóknum til einstaklinga og stofnana. Verkefnastjóri segir alltaf þörf á fleiri sjálfboðaliðum og eru allir og hundar þeirra, stórir sem smáir, velkomnir. Innlent 20.9.2022 17:32
Týnd í fjögur ár en heldur nú til fjölskyldunnar í Svíþjóð Saga kattarins Dimmu er lyginni líkust. Hún týndist í pössun árið 2018 og hefur verið á vergangi síðan. Nú, fjórum árum síðar, heldur læðan til fjölskyldu sinnar sem er flutt til Svíþjóðar. Fjölskyldan var ansi hissa er þau fengu símtal frá Dýraverndarfélaginu Villikettir sem hafði fundið hana í holu undir bílskúr í Hlíðunum. Lífið 19.9.2022 17:38