Landhelgisgæslan

Varðskip veitir Dalvíkingum rafmagn
Varðskipið Þór er nú á leið frá Siglufirði til Dalvíkur þar sem til stendur að nýta skipið sem rafstöð fyrir bæinn

Verulega farið að hvessa á Vestfjarðamiðum
Landhelgisgæslan hefur birt myndband þar sem sjá má ölduganginn á Vestfjarðamiðum.

Eigendur skipa og báta hugi sérstaklega að þeim vegna veðurs
Landhelgisgæsla Íslands hvetur eigendur og umsjónarmenn skipa og báta í höfnum að huga sérstaklega að þeim við þær veðuraðstæður sem skapast geta á næstu dögum vegna vonskuveðurs sem spáð er.

Landhelgisgæslan bar sigurorð af breska flughernum
Rétt eins og á EM 2016 báru Íslendingar sigurorð af Englendingum í knattspyrnuleik. Að þessu sinni mættust Landhelgisgæslan og konunglegi breski flugherinn, (RAF).

Skuturinn reis átta metra í kolniðamyrkri
Áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sótti síðdegis í gær veikan skipverja sem staddur var á fiskiskipi um sjötíu sjómílur austur af Djúpavogi.

Landhelgisgæslan og breski flugherinn endurtaka leikinn 75 árum síðar
Síðast þegar breski flugherinn var hér á landi, árið 1944, var efnt til fótboltaleiks á milli liðsmanna flughersins og íslensku Landhelgisgæslunnar. Nú 75 árum síðar á að endurtaka leikinn

Heimila að Ægir og Týr verði seldir
Meðal breytingartillagna sem samþykktar voru við aðra umræðu fjárlaga er heimild til handa fjármálaráðherra að selja varðskipin Ægi og Tý og kaupa eða leigja hagkvæmari skip í staðinn. Í skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins fagnar Landhelgisgæslan umræddri heimild.

Gefa björgun bátsins upp á bátinn
Rannsóknardeild lögreglunnar á Vestfjörðum hefur í dag tekið skýrslur af fjórum skipverjum á fiskibátnum Einari Guðnasyni sem strandaði við Gölt, á utanverðum Súgandafirði, í gærkvöldi.

Landhelgisgæslan bjargaði fjórum eftir strand
Ekki reyndist unnt fyrir björgunarskip að komast nálægt strandstað frá sjó sökum brims og voru björgunarsveitir þá sendar landleiðina frá norðanverðum Súgandafirði. Landhelgisgæslunni tóks að bjarga áhöfninni, samtals fjórum, um borð í þyrluna.

Flugvél í vandræðum milli Íslands og Grænlands
Landhelgisgæslunni var gert viðvart.

Báturinn sem strandaði á Rifstanga á leið til Raufarhafnar
Björgunarsveitir af Norðurlandi, björgunarbáturinn Gunnbjörg frá Raufarhöfn og nærliggjandi bátur eru nú á leið að bát sem strandaði á sjötta tímanum í morgun á Rifstanga, sem er norður af Raufarhöfn.

Vörubíll og fólksbíll rákust saman í Suðursveit
Þjóðvegi 1, Hringveginum,hefur verið lokað rétt við Hala í Suðursveit vegna umferðarslyss.

Mannbjörg þegar bátur sökk í Breiðafirði
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá togbátbát sem staddur var norður af Stykkishólmi á tólfta tímanum í dag.

Spaðarnir enn á þyrlunni sem fórst í Suður-Kóreu
H225 Super Puma björgunarþyrla sem fórst í Suður-Kóreu fyrir helgi með sjö manns náðist upp úr sjónum í gær. Sjá má af myndum af flakinu að spaðar þyrlurnar eru enn áfastir.

Suðurkóreska þyrluflakið fundið
Björgunarsveitir hafa fundið flak sjúkraþyrlu sem hrapaði skömmu eftir flugtak við austurströnd Suður-Kóreu á föstudag. Landhelgisgæslan hefur tvær þyrlur sömu tegundar á leigu en þær hafa áður verið kyrrsettar vegna mannskæðra slysa.

Fylgjast með stöðunni eftir mannskætt þyrluslys í Suður-Kóreu
Þyrlan sem hrapaði er af gerðinni Airbus H225 Super Puma, þeirri sömu og leiguþyrlur Landhelgisgæslunnar.

Eigandi sprengiefnisins segir það ekki hafa „fundist“
Sprengiefnið var gert óvirkt í gærkvöldi og flutt af vettvangi.

Þyrla sótti rjúpnaskyttu sem varð fyrir slysaskoti í Eldhrauni
Skot hlaut úr byssu rjúpnaskyttu á sjötugsaldri og hæfði hann í fótinn.

Sigurður Steinar fallinn frá
Sigurður Steinar Ketilsson, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, er látinn. Hann lést á Landspítalanum þann 27. október síðastliðinn. Hann lætur eftir sig eiginkonu, tvo uppkomna syni og barnabörn.

Stuðlaði að björgun fjölda flóttamanna
TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, er komin til Íslands eftir að hafa sinnt eftirliti við Miðjarðarhaf.

Var ekki kominn út fyrir vængendann þegar vélin var orðin alelda
Litlu munaði að flugmaður lítillar flugvélar, sem brotlenti á Skálafellsöxl í september, hefði ekki komist frá flakinu sem varð alelda á örfáum sekúndum. Hann segir ótrúlegt í raun hvað hann slasaðist lítið og kraftaverk að hann sé enn á lífi.

Slysið á Snæfellsvegi var banaslys
Einn hefur verið úrskurðaður látinn en ástand hinna fjögurra sem í bifreiðinni voru liggur ekki fyrir.

Sjúkrabílar kallaðir út frá fimm stöðum vegna slyssins
Fimm slösuðust og þar af tveir alvarlega þegar bíll erlendra ferðamanna fór út af Snæfellsvegi nærri bænum Gröf við Kleifá á sunnanverðu Snæfellsnesi í dag.

Hættuástandi í Norðlingaholti aflýst eftir skoðun sprengjudeildar
Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var kölluð út um miðjan dag vegna tilkynningar um torkennilegan hlut sem fannst á víðavangi í Norðlingaholti.

Þyrlan sótti slasaða konu eftir bílveltu á Snæfellsnesi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir að umferðarslys varð rétt austan við Vegamót á Snæfellsnesi í kvöld.

Mikill viðbúnaður þegar leki kom að bát á Bakkaflóa
Viðbragðsaðilar voru með mikinn viðbúnað nú síðdegis eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um að leki hefði komið að fimm tonna fiskibáti sem staddur var á Bakkaflóa.

Skelltu sér á Þorbjörn og bættu öryggi á sjó
Áhöfnin á TF-LIF hefur í dag aðstoðað starfsmenn Neyðarlínunnar við endurbætur á fjarskiptabúnaði á fjallinu Þorbirni. Búnaðurinn sem um ræðir er nauðsynlegur fyrir fjareftirlit skipa og báta á sjó en kominn var tími á endurbætur.

Tveimur kajakræðurum bjargað um borð í TF-EIR
Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út vegna tveggja menna sem lentu í vandræðum á kajökum í Stóru-Laxá við Kerlingarfoss.

Ferðamennirnir komnir í þyrluna og á leið til byggða
Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um eittleytið í dag vegna ferðamanna í bíl sem eru innlyksa á vegi við Langavatn. Vegurinn er næstum alfarið í sundur og vatnavextir miklir.

Æfa viðbrögð við heimatilbúnum sprengjum á Keflavíkurflugvelli
Northern Challenge, árleg æfing sprengjusérfræðinga, hófst á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á sunnudag og stendur fram í næstu viku.