Kosningar 2017

Aukum rétt kjósenda strax
Traust á stjórnmálunum hefur verið lítið og er nú í lágmarki. Fólki finnst það vera haft að fífli, haldið utan við upplýsingar og ákvörðunartöku. Allur þorri kjósenda vill til dæmis að náttúruauðlindir verði lýstar þjóðareign, en í þjóðaratkvæðagreiðslunni fyrir nær fimm árum játtu þessu fjórir af hverjum fimm þeirra sem afstöðu tóku.

Þing kemur saman í síðasta sinn fyrir kosningar
Hefst þingfundur klukkan 13:30.

„Mér finnst þetta rosalega dapurlegur endir á þingstörfum mínum“
Birgitta Jónsdóttir, formaður Pírata, sagði á Facebooksíðu sinni að fundur með formönnum flokkanna hefði verið dapurlegur endir á þingstörfum sínum.

Bjarni skýtur föstum skotum á Pírata
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra telur að ekki sé æskilegt að hraða afgreiðslu á breytingum á stjórnarskrá.

Stefnt á að þingstörfum ljúki á morgun
Fimm þingflokkar hafa skrifað undir samkomulag um með hvaða hætti þingstörfum verði lokið.

Miðflokkurinn líklegt nafn á nýjan flokk Sigmundar Davíðs
Búið að skrá lénið midflokkurinn.is

Með Sigmundi Davíð færist fókusinn á botnbaráttuna
Nýtt framboð Sigmundar Davíðs er eins og sprengja inn í ástand sem þó einkenndist fyrir af glundroða.

Kjósendur halda sig frekar innan hægri og vinstri blokkanna en flakka síður á milli
Frumniðurstöður úr Íslensku kosningarannsókninni sem gerð var í fyrra benda til þess að þegar íslenskir kjósendur gera upp hug sinn fyrir kosningar þá virðast þeir fyrst og fremst velja á milli flokka innan hægri blokkarinnar eða vinstri blokkarinnar í íslenskum stjórnmálum frekar en að flakka á milli blokka.

Hvetur þá sem eru að íhuga framboð að stíga fram
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, hvetur þá sem eru að íhuga framboð að stíga fram og gefa kost á sér á lista flokksins.

Sveinbjörg Birna útilokar ekki að fara fram með Sigmundi Davíð
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi, útilokar ekki að bjóða sig fram fyrir nýjan stjórnmálaflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins.

Bara Vinstri, ekki Græn
Það var athyglisvert að fylgjast með framgöngu Lilju Rafneyjar þingmanns Vinstri Grænna á borgarafundi sem haldinn var í Ísafjarðarbæ á dögunum undir yfirskriftinni „fólk í fyrirrúmi“.

Fyrrverandi þingmaður Framsóknar segir sig úr flokknum
Margir Framsóknarmenn virðast nú íhuga nú stöðu sína, hvort þeir fylgi Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í nýtt afl eða haldi tryggð við Framsóknarflokkinn.

Óljóst hvort formenn flokkanna nái samkomulagi um þingstörfin
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, hefur boðað formenn flokkanna sem sæti eiga á Alþingi til fundar við sig síðdegis í dag

Rúmlega helmingur vill að Katrín verði forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri Grænna, er vinsælasta forsætisráðherraefni þjóðarinnar ef marka má nýja könnun Félagsvísindastofnunnar.

Í lokuðu bakherbergi
Umræðan virðist hafa tekið full langan tíma á kostnað einstaklinga sem eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að nýtt þing verði kosið með úrlausn sinna mála.

Fleiri trúnaðarmenn segja skilið við Framsókn
Formaður Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík, hefur ákveðið að segja sig úr flokknum.

Til hvers að starfa með fólkinu sem vildi drepa mig?
Nýtt afl Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar áformar að bjóða fram lista í öllum kjördæmum landsins. Forsætisráðherrann fyrrverandi segir flokkseigendafélag Framsóknar hafa haft það meginmarkið að koma honum frá.

Ólafur Ísleifsson til liðs við Flokk fólksins
Ólafur starfar sem framkvæmdastjóri gæðamála við Háskólann á Bifröst.

Segir Sjálfstæðisflokkinn hlaupast undan ábyrgð
"Eina tveggja flokka stjórnin sem Sjálfstæðisflokkurinn getur tekið þátt í er ef hann er einn í ríkisstjórn,“ segir Fjármálaráðherra.

Segir stöðugt verið að henda út óæskilegu fólki og kveikja elda
Segist ekki vera í náðinni hjá þeim hópi sem hefur endurheimt völd í flokknum.

Sveinn Hjörtur kveður líka Framsókn: Hunsa vilja fólks til að starfa saman
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson hefur ákveðið að segja sig úr Framsóknarflokknum en hann segir að skipulögð vinna ýmissa aðila í flokknum sé augljóslega ætluð til að ná völdum og hunsa vilja fólks til að starfa saman.

„Það er spurning hvort hann hafi ekki þorað að taka slaginn“
Þórunn Egilsdóttir bregst við tíðindum dagsins.

Gunnar Bragi segist hafa áhyggjur af vinnubrögðum innan Framsóknarflokksins
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra segir það sorglegt fyrir flokkinn að Sigmundur Davíð hafi ákveðið að segja skilið við hann.

Dapurlegt að fyrrverandi forystumaður gangi úr flokknum
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins segir það dapurlegt að Sigmundur Davíð fyrrverandi formaður segi skilið við flokkinn.

Sigmundur Davíð hættir í Framsókn
Sigmundur Davíð vinnur að stofnun nýs flokks.

Ásmundur Einar býður sig fram gegn Gunnari Braga
Ásmundur Einar býður sig gegn sitjandi oddvita lista Framsókanrflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Sósíalistaflokkurinn fer ekki fram
Sósíalistaflokkurinn fer ekki fram í komandi þingkosningum og þess í stað mun flokkurinn halda áfram að vinna að uppbyggingu fjöldahreyfingar sem í framtíðinni mun beita sér innan verkalýðshreyfingarinnar, í sveitastjórnum og á þingi.

Elsa Lára gefur ekki kost á sér: „Í dag hefst nýr kafli í lífi mínu“
Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi tilkynnti í dag að hún ætli að stíga til hliðar. Hún segir að þetta hafi ekki verið auðveld ákvörðun.

Kosið í prófkjörum Pírata fyrir Alþingiskosningarnar
Kosning í prófkjörum Pírata fyrir komandi Alþingiskosningar er hafin en framboðsfresturinn rann út kl. 15:00 í öllum kjördæmum. Kosning hófst í kjölfarið á vefsíðu Pírata.

Framsóknarmenn í Kópavogi skora á Willum
Framsóknarmenn í Kópavogi hafa skorað á Willum Þór Þórsson að gefa kost á sér í 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir komandi kosningar. Ályktun þess efnis var samþykkt samhljóða á fundi Framsóknarfélaganna í Kópavogi í morgun.