
Heilbrigðismál

Bein útsending: Varðar mig eitthvað um krabbameinsrannsóknir?
Krabbameinsfélagið stendur fyrir málþingi á alþjóðadegi krabbameinsrannsókna. Yfirskrift málþingsins er: „Varðar mig eitthvað um krabbameinsrannsóknir? Já, því vísindin eru leiðin fram á við.“

Bein útsending: Er mamma bara með heilabilun þrjá daga í viku?
Alzheimersamtökin blása til ráðstefnu í Hofi á Akureyri í tilefni af alþjóðlegum Alzheimerdegi í dag. Ráðstefnan hefst klukkan 13 og lýkur klukkan 16.

Aðstandendur heilabilunarsjúklinga
Heilabilun er sjúkdómur sem fáir vilja tala um og enginn vill fá. En staðreyndin er sú að sjúkdómar sem valda heilabilun munu herja á sístækkandi hlutfall þjóðar með hækkandi meðalaldri. Rétt er einnig að muna að heilabilunarsjúkdómar geta gert vart við sig hjá fólki á miðjum aldri.

Velferð við upphaf þingvetrar
Nýr þingvetur er hafinn og fjölbreytt verkefni blasa við. Frá kosningum 2021 hef ég verið formaður fjárlaganefndar og nú verður sú breyting á að ég tek við formennsku í velferðarnefnd.

Leita að lömuðu fólki fyrir tilraunir með heilatölvur
Forsvarsmenn fyrirtækisins Neuralink eru byrjaðir að auglýsa eftir fólki sem er tilbúið til að láta tengja tilraunabúnað við heila sinn. Elon Musk, einn auðugasti maður heims, stofnaði fyrirtækið en starfsmenn þess vinna að því að þróa smáar tölvur sem eiga að greina hugsanir manna og gera fólki kleift að stýra öðrum tækjabúnaði með hugsunum sínum.

„Fæstir vissu hversu veik ég var“
Hin 36 ára Bára O‘Brien Ragnhildardóttir er alin upp í Hafnarfirði, kláraði Flensborg og náði sér svo í BS gráðu í fjármálaverkfræði.

Dagdrykkja meðal sjúklinga SÁÁ þrefaldast á þrjátíu árum
Netverslun áfengis er mikið áhyggjuefni að sögn læknis hjá SÁÁ. Áfengisneysla hefur tæplega tvöfaldast á síðustu fjörutíu árum hér á landi hjá fimmtán ára og eldri. Þá hefur fjöldi þeirra skjólstæðinga SÁÁ sem drekkur daglega rúmlega þrefaldast á þrjátíu árum.

Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð
Íbúar landsbyggðarinnar eru nánast farnir að taka því sem sjálfsögðum hlut að leggja land undir fót með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn til þess að sækja sér sérfræðiþjónustu til Reykjavíkur.

Manstu ekki eftir mér?
„Manstu ekki eftir mér? Mikið lítur vel út beibí frábært hár. Manstu ekki eftir mér? Hvar ertu er búin að vera öll þessi ár?“ Við erum mörg sem þekkjum þessar laglínur og raulum þær meira að segja stundum, ekki satt!

Bein útsending: Ráðstefna um áfengi og lýðheilsu
Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við embætti landlæknis stendur fyrir norrænni ráðstefnu um áfengi og lýðheilsu í dag.

„Það hefur fennt yfir, en sárið er ekki gróið“
Gunnar Alexander Ólafsson, aðstandandi konu sem lést eftir röð mistaka á Landspítala árið 2013, segist hafa ákveðið að halda erindi um málið til þess að unnt verði að draga lærdóm af því og að slíkt muni ekki endurtaka sig.

Að fara og vera, að halda og sleppa, að lifa og deyja
Elsku mamma fæddist árið 1947 og verður því 77 ára bráðum. Í dag er það ekki hár aldur, sérstaklega ekki fyrir atorkusama konu sem elskar fjallgöngur og hreyfingu. Stundum, aðallega í fjallgöngum, hitti ég konur á hennar aldri og tek spjallið.

Lífið í óvissunni
Nú um þessar mundir fagnar MS-félag Íslands því að 55 ár eru liðin frá stofnun þess. Einhverjum kann að finnast það óviðeigandi að tala um að fagna afmæli sjúklingasamtaka, því enginn vill fá ólæknandi sjúkdóm, enginn vill lifa við skerðingu lífsgæða og enginn vill lifa í óvissunni um hvernig lífið með MS þróast. Það ber samt að fagna því hve mikið hefur áunnist á þessum 55 árum frá stofnun félagsins. Því ber að fagna að við sem greinumst með ólæknandi sjúkdóm skulum eiga félagasamtök sem hlúa að okkur og aðstandendum okkar. Við fögnum því að eiga félag sem beitir stjórnvöld aðhaldi um bætt lífsgæði, um bætta greiningu og betri meðferðir sjúkdómsins. Einnig fögnum við öllu sem hefur áunnist í réttindamálum fólks með MS.

Mikilvægast að segja satt um læknamistök og gera það strax
Læknir sem gerði banvæn mistök þegar hann tók á móti barni segir ekkert mikilvægara en að heilbrigðisstarfsfólk segi sannleikann og gangist strax við mistökum sínum. Hann telur fámenni Íslendinga gera þessi mál erfiðari.

Ótækt að börn bíði í tvö ár eftir nauðsynlegri þjónustu
Umboðsmaður barna segir of mörg börn á bið eftir nauðsynlegri þjónustu, og það of lengi. Áætlanir stjórnvalda um snemmtæka íhlutun geti ekki staðist ef ekki er úr bætt.

Bein útsending: Mennska er máttur - líka í heilbrigðiskerfinu
Alvarleg atvik í heilbrigðiskerfinu verða til umræðu á ráðstefnunni „Mennska er máttur - líka í heilbrigðiskerfinu“ sem fram fer í Fróða, sal Íslenskrar erfðagreiningar, í dag á alþjóðlegum degi öryggis sjúklinga.

Byggjum upp betra heilbrigðiskerfi, hlustum á raddir notenda
Árið 2019 ákvað WHO að 17. september ár hvert verði alþjóðlegur dagur „öryggis sjúklinga“.

Að upphefja raddir sjúklinga
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) gerði 17. september að alþjóðadegi sjúklingaöryggis. Í ár hefur dagurinn verið tileinkaður því hvernig auka megi þátttöku sjúklinga í því að efla öryggismenningu í heilbrigðiskerfinu.

Íslendingar að renna út á tíma í málum aldraðra
Fimm hundruð eru á biðlista eftir hjúkrunarrými á landinu og byggja þarf ígildi níu hjúkrunarheimila bara í Reykjavík til að mæta gríðarlegri fjölgun í elstu hópum. Forstjóri Sóltún segir að þjóðin sé að renna út á tíma í málum aldraðra.

Ert þú hluti af þessum 70%?
Kæri lesandi, vissir þú að á Íslandi gætu verið um 25000 einstaklingar með PCOS en aðeins um 7500 af þeim veit af því? Það þýðir að 17500 einstaklingar þjást af einkennum PCOS án þess að hafa hugmynd um hvað er að plaga þau.

Öryggi sjúklinga og aðkoma þeirra
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin helgar 17. september öryggi sjúklinga. Að þessu sinni er þema dagsins hvernig hækka megi rödd sjúklinga og virkja þá til þess að efla öryggi í heilbrigiðisþjónustu (e. Engaging patients for patient safety - Elevate the voice of patients).

Staða sem íbúar Suðurnesjabæjar geti ekki sætt sig við
Formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar segir íbúa ekki geta beðið lengur eftir heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Um tíu kílómetra fjarlægð er í næstu heilsugæslu og að erfitt geti verið að komast þangað um hávetur. Einnig er kallað eftir aukinni þjónustu við aldraða.

Eitt sveitarfélag á Suðurnesjum skilið eftir í heilbrigðismálum
Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið alls 4.011 nú í byrjun þessarar viku.

Herminám í heilbrigðisvísindum - spennandi tímar framundan!
Á Íslandi er hermikennsla í heilbrigðisvísindum ört vaxandi kennsluform, hvorttveggja fyrir nemendur, sem og við endur- og símenntun heilbrigðisstarfsfólks. Víða um heim er hermikennsla órjúfanlegur þáttur í kennslu í heilbrigðisvísindum og ítrekað hefur verið bent á margþættan ávinning hennar, umfram hefðbundnari kennsluaðferðir.

Hræðist framtíðina og hefur beðið um frið
Móðir ellefu ára drengs með ólæknandi taugahrörnunarsjúkdóm og krabbamein segir það hafa gert honum erfiðara fyrir hvað hann sé klár. Hann geti því reiknað út hvað bíði hans. Það sé hræðilegt að horfa upp á drenginn sinn, sem þrái að verða betri í fótbolta, verða sífellt lélegri sama hvað hann æfi sig. Vinir og vandamenn standa fyrir tónleikum til styrktar Mikael í kvöld.

Telja sig hafa komist að því hvers vegna heilafrumurnar deyja
Vísindamenn í Bretlandi og Belgíu telja sig hafa komist að því af hverju heilafrumur deyja í Alzheimersjúklingum. Dauði heilafrumanna hefur verið ráðgáta í marga áratugi en vonir eru bundnar við að uppgötvunin greiði fyrir þróun nýrra lyfja við sjúkdómnum.

„Ég held að þetta sé verst fyrir krakka“
Notkun einnota rafretta hefur aukist verulega síðustu ár og sífellt fleiri skilja þær eftir í náttúrunni eftir notkun. Einn helsti plokkari landsins segir retturnar hafa áhrif á umhverfið sem og þá sem finna þær á víðavangi.

Ozempic ófáanlegt en væntanlegt
Blóðsykurslyfið Ozempic hefur verið ófáanlegt á landinu frá því í sumar en er væntanlegt aftur í sölu í næstu viku. Lyfið er afar vinsælt í megrunarskyni.

Segir þörf á 700 hjúkrunarrýmum til viðbótar á næstu fimmtán árum
Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu, segir gríðarmikinn vanda blasa við en þörf sé á ríflega 700 hjúkrunarrýmum til viðbótar í Reykjavík á næstu fimmtán árum.

Sigríður Dóra nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára. Skipunin tekur gildi á föstudag.