

Frá árinu 2018 hefur lyfjaávísunum fjölgað nærri þrefalt meira en Íslendingum. Þetta kemur fram í ársskýrslu Lyfjastofnunar fyrir árið 2022 sem birt var í dag.
Lyfsalar og apótek eru mikilvægur hlekkur í samfellu heilbrigðisþjónustunnar og bera ábyrgð á að aðgengi fólks sé tryggt að þeirri lyfjameðferð sem þörf er á, þegar hennar er þörf. Það kemur því mörgum spánskt fyrir sjónir, hversu takmarkaður opnunartími apóteka er, sérstaklega á landsbyggðinni og þar með hversu skert aðgengi margra Íslendinga er að nauðsynlegum lyfjum.
Áhyggjur eru uppi vegna „stjórnlauss“ brottflutnings hjúkrunarfræðinga frá bágstöddum ríkjum á borð við Ghana til efnaðri ríkja, til að mynda Bretlands. Árið 2022 voru 1.200 hjúkrunarfræðingar frá Ghana nýskráðir á lista yfir hjúkrunarfræðinga á Bretlandseyjum.
Engar sérstakar reglur eða undantekningar eru í gildi fyrir hjón við úthlutun hjúkrunarrýma, þar sem báðir einstaklingar hafa fengið færni- og heilsumat og bíða flutnings.
Treystir þú á að gervigreindin muni sinna þér í ellinni? Reiknar þú með að gervigreindin komi til með að hjúkra þér, hjálpa þér við að sinna frumþörfum þínum? Já, eða halda í höndina á þér þegar erfiðleikar steðja að? Varla. Vel menntað fagfólk með þekkingu og færni til að takast á við breytingar og framþróun velferðarsamfélagsins mun sjá um þessi störf um ókomna framtíð.
Fjögur af átta verðmætustu nýsköpunarfyrirtækjum landsins starfa á heilbrigðissviði, ef marka má gagnagrunn Dealroom. Þau hafa safnað 678 milljónum evra frá fjárfestum, jafnvirði 101 milljarðs króna, en um 43 prósent fjárhæðarinnar má rekja til Alvotech, næstverðmætasta fyrirtækis Kauphallarinnar. Þegar litið er framhjá Alvotech hafa þrjú sprotafyrirtæki - Kerecis, Sidekick Health og Oculis - á sviði heilbrigði safnað 292 milljónum evra, jafnvirði 44 milljarða króna.
Heilbrigði hefur verið skilgreint sem andleg, líkamleg og félagsleg velferð og vellíðan samkvæmt Alþjóða Heilbrigðisstofnuninni (e. WHO).
Bráðabirgðaákvæði sem heimilar tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu rennur út í lok morgundagsins. Læknir segir að þó innflutningurinn hafi mikil áhrif á íslenskan markað megi ekki gleyma lýðheilsusjónarmiðum. Bakteríur, sem meðal annars eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og hafa hingað til verið óþekktar hér á landi, finnist í miklu magni í úkraínsku kjöti.
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.
Tugir leita til Hjálparstarfs kirkjunnar í hverjum mánuði til að fá aðstoð með lyfjakaup. Í mörgum tilfellum er fólk að bíða með bullandi sýkingu fram að mánaðamótum til að geta greitt sýklalyf.
Nú eru 542 nætur eða svo frá því að núverandi heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson tók við ráðuneyti heilbrigðismála.
Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.
Stjórn Læknafélags Íslands krefst þess að gripið verði til markvissra aðgerða í heilbrigðiskerfinu í ákalli til stjórnvalda. Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir stöðuna alvarlega um allt kerfið.
Ný rannsókn fjögurra íslenskra vísindamanna sýnir að gervigreind getur aðstoðað við að raða sjúklingum eftir einkennum. Einkenni margra ganga yfir af sjálfu sér án inngrips á heilsugæslu.
Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.
Verjandi hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild sakaði Landspítalann um að vera með puttana í lykilgögnum málsins og skipta sér af framburði lykilvitna. Ákæruvaldið hafi skautað létt fram hjá ábyrgð spítalans sjálfs á andlátinu.
Hjúkrunarfræðingur sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans tók pirring vegna aðstæðna á deildinni út á sjúklingnum, að mati saksóknara í málinu. Þrátt fyrir að hann hafi ekki ætlað að drepa sjúklinginn hafi hann gengið fram af offorsi og mátt vera ljóst hverjar afleiðingarnar yrðu.
Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn skýra heimildir þeirra til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi í samráði við þolanda sem leitar á heilbrigðisstofnun. Sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu segir þetta lið í nýju verklagi sem verið er að innleiða hér á landi.
Læknayfirvöld í Indiana í Bandaríkjunum hafa áminnt kvensjúkdóma- og fæðingalækninn Caitlin Bernard fyrir að hafa rætt við blaðamann um mál tíu ára stúlku sem fékk þungunarrofsþjónustu hjá Bernard í kjölfar nauðgunar.
Forstjóri Landspítalans staðfesti að aðstæður á geðdeild hafi verið ófullnægjandi þegar kona lést þar fyrir tæpum tveimur árum í framburði fyrir dómi í morgun. Innri rannsókn spítalans leiddi í ljós að vaktin var undirmönnuð, mikið álag var á starfsfólki, fyrirmæli skiluðu sér ekki og sjúklingurinn ekki vistaður á heppilegum stað. Þá hafði ákærða unnið nítján vaktir á sextán dögum fyrir andlát sjúklingsins.
Krabbameinsfélagið skorar á stjórnvöld að setja af stað undirbúning vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar krabbameinstilvika og þeirra sem sigrast á krabbameini eða lifa með krabbameini.
Réttarlæknir telur að kona sem lést á geðdeild Landspítalans árið 2021 hafi kafnað vegna vökva sem náði djúpt ofan í lungu hennar. Hjúkrunarfræðingur er ákærður fyrir að valda dauða konunnar með því að hella ofan í hana næringardrykkjum.
Fentanýl fannst nýlega í MDMA kristölum sem voru í umferð hér á landi og sagðir hreinir. Þetta kom í ljós þegar notandi gerði greiningu á efninu og hætti af þeim sökum við að nota það. Stofnendur fyrirtækis sem flytur inn greiningarpróf vonast til að stjórnvöld hafi áhuga á samstarfi til að tryggja betur öryggi notenda.
Kona sem lést á geðdeild Landspítalans fyrir tæpum tveimur árum var send alvarlega líkamlega veik til baka af bráðadeild í Fossvogi vegna erfiðra aðstæðna þar. Mönnun á geðdeildinni var engu að síður talin ófullnægjandi til að sinna hjúkrunarverkefnum þar.
Nýtt bóluefni gegn meningókokkum hefur vakið vonir um að hægt verði að koma í veg fyrir nær öll tilfelli heilahimnubólgu af völdum bakteríusýkinganna, sem eru taldar valda 250 þúsund dauðsföllum í heiminum á ári hverju.
Á árunum 2018 til 2023 hafa verið skráðar 3.017 komur á heilsugæslur landsins í tengslum við langvarandi einkenni Covid-19. Þar af voru heimsóknir karla 1.040, kvenna 1.982 og kynsegin fimm.
Göngudeildum SÁÁ og meðferðarstöðinni í Vík verður lokað í sumar vegna fjárskorts á sama tíma og fréttir berast af ópíóðafaraldri. Yfirlæknir segist ekkert hafa heyrt frá heilbrigðisráðherra eftir að hann boðaði aukna fjárveitingu fyrir rúmum tveimur vikum.
Grundvallarmunur er á lýsingum hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans og starfsmanna sem voru á vaktinni á því hvað gerðist. Hjúkrunarfræðingurinn neitaði að hafa hellt næringardrykk í sjúklinginn þar til hann missti meðvitund við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Í tímaritinu „The Economist“ var nýverið birt grein sem bar fyrirsögnina ,,Why health-care services are in chaos everywhere. Now is an especially bad time to suffer a heart attack“. Þar er fjallað um þann mikla vanda sem steðjar að heilbrigðiskerfum flestra vestrænna landa í kjölfar Covid.
Aðalmeðferð í máli geðhjúkrunarfræðings á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Umfjöllun um það sem fram kemur við þinghaldið er bönnuð þar til í lok dags.