
Samfélagsmiðlar

Tók Sveppadýfuna með Sveppa í hundraðasta myndbandinu
„Síðustu mánuði hef ég verið á ákveðinni vegferð á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem ég hef verið að gera myndband á hverjum einasta degi,“ segir samfélagsmiðlastjarnan Gústi B.

Birgitta Líf og Enok eru nýtt par
Birgitta Líf Björnsdóttir eigandi Bankastræti club og markaðsstjóri World Class hefur fundið ástina. Sá heppni heitir Enok Jónsson.

Stjörnulífið: Brunch, ferðalög og barn á leiðinni
Skemmtanalífið á landinu er að lifna við og það er vor í lofti. Hér verður farið yfir það helsta af Instagram þekktra Íslendinga síðustu daga.

Sigmundi sárnaði glósur og háðstónn í umfjöllun um fjárkúgunarmálið
Sumarið 2015 barst Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þá forsætisráðherra landsins bréf þar sem því var hótað að óþægilegar upplýsingar um hann myndu birtast um hann ef hann borgaði ekki átta milljónir króna.

Eftirmál Þórhildar og Nadine: „Það er hægara sagt en gert að hætta í fréttum”
Nýjar vendingar eru boðaðar í stórum fréttamálum sem fönguðu athygli þjóðarinnar á sínum tíma, í hlaðvarpsseríu sem Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi vinna nú saman að.

Ragnar Þór segist ætla að selja eitt sumarhús VR með afslætti
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segist hafa tekið ákvörðun um að selja eitt sumarhús í eigu VR á 35 milljónir. Gangvirði eða ásett verð nákvæmlega eins sumarhúsa, í sama hverfi, er um 40 milljónir.

Æði strákarnir taka upp þáttaröð fjögur á Tenerife
Patrekur Jaime, Binni Glee og Bassi Maraj eru staddir á Tenerife í augnablikinu. Þeir eru þar í samstarfi við Úrval útsýn að taka upp fjórðu þáttaröð af Æði, sem slegið hafa í gegn á Stöð 2.

Okkar Astrid Lindgren kveður
Eftir að andlátsfregn birtist, að Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður væri látin, hafa fjölmargir lýst yfir aðdáun sinni á þessum áhrifamikla rithöfundi, og kvatt hana með miklu þakklæti. Þjóðin syrgir nú einn sinn allra vinsælasta höfund.

Unnur og Travis eignuðust stúlku
Unnur Eggertsdóttir, leik- og söngkona, tilkynnti í kvöld að henni og unnusta hennar Travis hefði fæðst stúlkubarn.

Ingó segist ekki hafa neinu að tapa lengur
Síðasta tæpa ár hefur reynst Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni þungbært en hann hefur setið undir ásökunum um margvíslegt kynferðislegt ofbeldi. Ingólfur vísar ásökunum alfarið á bug og hefur nú skrifað grein þar sem hann fer ítarlega yfir sína hlið mála.

Sekur á samfélagsmiðlum
Undanfarna mánuði hef ég verið borinn þungum sökum sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum og setið undir ósannindum af ýmsu tagi. Ég hef til að mynda verið kallaður ofbeldismaður, nauðgari og barnaníðingur þó það gæti ekki verið fjær sannleikanum.

Facebook og Instagram lokað í Rússlandi vegna ofstækis
Rússneskur dómstóll hefur skipað Meta, móðurfyrirtæki Facebook, að stöðva starfsemi Facebook og Instagram í Rússlandi án fyrirvara. Í úrskurðinum er vísað til „ofstækisvirkni“ og Meta skilgreint sem ofstækisfélag.

Instagram bannar Kanye
Meta hefur tekið þá ákvörðun að banna Kanye West af Instagram í sólarhring vegna áreitis á miðlinum. Rapparinn hefur verið að áreita Pete Davidson sem er kærasti fyrrverandi eiginkonu hans Kim og einnig þáttastjórnandann Trevor Noah.

Nökkvi Fjalar og Embla Wigum í paraferð í París
Parið Nökkvi Fjalar og Embla Wigum skelltu sér í paraferð til Parísar þar sem þau eru stödd þessa dagana að njóta borg ástarinnar. Parið byrjaði nýlega saman eftir að hafa upphaflega flutt til London sem vinir og viðskiptafélagar.

Vilja normalísera tilfinningar stráka og karla
Samfélags- og fræðslumiðilinn Karlmennskan stendur nú fyrir átakinu jákvæð karlmennska þar sem áhersla er á að normalísera tilfinningar stráka og karla.

Stökkið: Embla Wigum getur breytt sér í álfa og avatar með 1,6 milljónir fylgjenda á Tik Tok
Embla Wigum er hæfileikabúnt en efnið sem hún gefur frá sér er uppfullt af sköpunargáfu og er mikill metnaður lagður í framleiðsluna. Hún er búsett í London sem hún féll fyrir þegar hún bjó þar í hálft ár aðeins fimmtán ára gömul.

Afar blendnar tilfinningar netverja með niðurstöðuna
Óhætt er að segja að spennan hafi verið rafmögnuð þegar úrslitin í Söngvakeppninni voru kynnt í kvöld. Eins og gengur voru margir ánægðir en aðrir í áfalli yfir niðurstöðunni.

Leita til TikTok-áhrifavalda til að tækla upplýsingaóreiðu
Til þess að stemma stigu við upplýsingaóreiðu um innrás Rússa í Úkraínu hafa bandarísk yfirvöld leitað til þrjátíu helstu TikTok-áhrifavaldanna í Bandaríkjunum.

Varð vinsælasta smáforritið á Íslandi á sólarhring
Smáforritið OverTune kom út formlega núna síðasta laugardag og var strax orðið það mest sótta í App Store hér á landi sólarhring síðar. Forritinu er ætlað að gera notendum þess kleift að semja tónlist á einfaldan máta fyrir samfélagsmiðla með svokölluðum taktpökkum.

Átti bókaðan tíma hjá Gumma daginn eftir að hann bauð henni á stefnumót
Lína Birgitta og Gummi Kíró höfðu verið góðir félagar um nokkurt skeið áður en þau fóru að líta hvort annað rómantískum augum. Gummi ákvað eitt kvöldið að láta til skarar skríða og bjóða Línu á stefnumót. Það sem hann vissi ekki var að hún átti bókaðan tíma hjá honum á Kírópraktorstöðinni morguninn eftir og varð sá tími vægast sagt vandræðalegur fyrir þau bæði.

Sólveig Anna hellir sér yfir Halldóru Sveinsdóttur
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, sem nú bíður þess að taka aftur við stjórnartaumunum í verkalýðsfélaginu eftir sigur í formannskosningum fyrir nokkru, vandar þriðja varaforseta ASÍ, Halldóru Sveinsdóttur, ekki kveðjurnar í pistli sem hún birtir á Facebook-síðu sinni.

Áminning um auðlindir
Manstu hver þú varst áður en heimurinn sagði þér hver þú værir? Áður en bíómyndirnar lögðu drög að draumum þínum og samfélagsmiðlar komu á tilfinningalegu kvótakerfi í hausnum á þér til að úthluta athygli þinni til erlendra stórfyrirtækja? Manstu hver þú varst áður en undirmeðvitund þín varð að bandarískri nýlendu?

Markaðsmisnotkun vestanhafs með notkun samfélagsmiðla
Rúmum 15 mánuðum eftir tilkomu Facebook, birtist á internetinu vefsíða undir nafninu reddit.com (Reddit). Reddit er í dag sjöunda vinsælasta síðan í Bandaríkjunum á eftir Yahoo, Wikipedia, Amazon, Facebook, Youtube og Google, í þeirri röð.

Loka fyrir samfélagsmiðla í Rússlandi
Rússneska fjarskiptastofnunin Roskomnadzor hefur ákveðið að loka fyrir aðgang að Facebook og Twitter í landinu. Svo virðist sem yfirvöld í Moskvu ætli að einangra landið algjörlega á netinu.

Tanja Ýr er komin aftur í samband
Áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir er komin með nýjan kærasta. Hún sagði frá þessu á Instagram í gær og birti af honum myndir.

Slógust á Selfossi og talið að myndband sé í dreifingu
Til átaka kom meðal fjögurra drengja á unglingastigi á Selfossi um tíuleytið í morgun. Þetta kemur fram í tölvupósti skólastjóra Vallaskóla til foreldra og forráðamanna. Hann segir hluta drengjanna nemendur við skólann og grunur á að myndskeið af átökunum sé í dreifingu. Hugrakkt starfsfólk hafi skorist í leikinn.

Segir sögu íslenskra húsa: „Datt í hug að það gæti verið sniðugt að vera með eitthvað jákvætt á Facebook“
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur birtir í dag tvö hundruðustu færsluna á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir stuttlega frá sögu húss á Íslandi sem hafi vakið áhuga hans. Hann hefur kallað færslurnar „Hús dagsins“ og hafa þær notið mikilla vinsælda hjá vinum og Facebook-fylgjendum Guðjóns.

Verbúðaræðið, nostalgían og myndaflóðið á samfélagsmiðlum
Fáar sjónvarpsseríur hafa vakið upp eins mikla nostalgíu eins og hin margrómaða Verbúð Vesturports og eiga eflaust margir eftir að sakna þess að bíða spennt á sunnudögum eftir línulegri dagskrá kvöldsins.

Innlit á heimili Kim Kardashian
Kim Kardashian fékk Vogue í heimsókn á dögunum og sýndi hún alla sína uppáhalds hluti. Þar á meðal eru málverk eftir dóttur hennar North.

Blöskrar að fólk leyfi sér að réttlæta ofbeldi á samfélagsmiðlum
Baráttukonu fyrir réttindum barna í skólakerfinu blöskrar umræða um mál fjórtán ára stúlku í Dalvíkurskóla sem lenti í átökum við kennara. Fólk leyfi sér að réttlæta ofbeldi gegn börnum á samfélagsmiðlum en líti fram hjá hinu raunverulega vandamáli: kerfi sem bregðist börnum í vanda.