
Spánn

McAfee handtekinn í Barcelona
Tæknifrumkvöðullinn John McAfee hefur verið handtekinn í Barcelona á Spáni. McAfee, stofnandi vírusvarnarforrits sem kennt er við hann, er sakaður um umfangsmikið skattsvik í Bandaríkjunum og fyrir fjársvik í tengslum við rafmyntir.

Grípa til harðra aðgerða í Madríd
Um það bil 4,8 milljónir íbúa Madrídar mega nú ekki yfirgefa borgina, sem er fyrsta höfuðborg Evrópu þar sem gripið er til svo harðra sóttvarnaraðgerða á nýjan leik.

Fimmtíu þúsund lítrar af rauðvíni til spillis á Spáni
Töluverð hætta skapaðist í brugghúsinu Vitivinos á dögunum en starfsemin er staðsett í borginni Villamalea á Spáni.

Deilur milli ríkis og höfuðborgar á Spáni
Höfuðborgin Madríd og níu aðliggjandi borgir og bæir hafa fengið fyrirskipun um að grípa til harðra aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar en hún er í mikilli útbreiðslu á þessu svæði um þessar mundir.

Héraðsforsetinn settur af og Spánverjar sakaðir um mannréttindabrot
Utanríkismálastjóri Katalóníuhéraðs segir yfirvöld á Spáni brjóta gegn tjáningarfrelsinu. Forseti héraðsstjórnar Katalóníu var settur af með dómi hæstaréttar landsins í gær.

Unglæknar krefjast endurbóta
Unglæknar í Barcelona fjölmenntu á götum borgarinnar í dag. Þar mótmæltu hundruð lækna vinnuaðstöðu þeirra, álagi og kjörum á meðan þau berjast við aðra bylgju nýju kórónuveirunnar sem herjar nú á Spánverja.

Íslendingur á gjörgæslu vegna Covid á Kanaríeyjum
Þetta staðfestir Anna Sigrún Baldursdóttir aðstoðarmaður forstjóra Landspítala í svari við fyrirspurn fréttastofu.

Mótmæla hertum aðgerðum stjórnvalda
Hundruð íbúa fátækari hverfa Madrídar, höfuðborgar Spánar, mótmæltu í dag sóttvarnaaðgerðum spænskra stjórnvalda.

Hátt í milljón þarf að sæta hertum aðgerðum á Spáni
Íbúar stórra hluta Madrídar, höfuðborgar Spánar, munu frá og með næstkomandi mánudegi þurfa að sæta hertum samgöngu- og samkomutakmörkunum vegna hraðrar útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á Spáni.

Íslendingur tekinn með kókaín á flugvellinum í Barcelona
35 ára gamall íslenskur karlmaður var handtekinn á flugvellinum í Barcelona þann 20. júlí síðastliðinn með tæplega fimm kíló af kókaíni.

Messi gæti fengið háa sekt
Lionel Messi gæti fengið rúmlega milljón punda sekt frá Barcelona eftir að hafa ekki mætt á fyrstu æfingar liðsins eftir sumarfrí.

Rafmagnaður bíltúr frá Mosó til Alicante
Hjónin Bragi Þór Antoníusson og Dagný Fjóla Jóhannsdóttir fluttu nýverið ásamt sonum sínum tveimur til Spánar. Þau flugu þó ekki út, líkt og flestir Íslendingar eru vanir að gera þegar þeir skella sér til sólarlanda, heldur keyrðu þau frá Mosfellsbæ til Alicante og það á rafmagnsbíl.

Vonar að faraldrinum verði lokið innan tveggja ára
Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), segist vona að kórónuveirufaraldrinum verði lokið innan tveggja ára.

Virðist í uppsveiflu víðs vegar um Evrópu
Kórónuveirufaraldurinn virðist nú í uppsveiflu víðs vegar um Evrópu og í mörgum löndum álfunnar voru staðfest smit í gær fleiri en þau hafa verið um mánaðaskeið.

Staðfesta að Jóhann Karl er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Fyrrverandi konungur Spánar, Jóhann Karl, hefur haldið til í Sameinuðu arabísku furstadæmunum frá 3. ágúst síðastliðnum síðan hann flúði heimalandið vegna fjársvikamáls sem er til rannsóknar á Spáni.

Banna reykingar sé ekki hægt að tryggja fjarlægðartakmarkanir
Spænsku héruðin Galisía og Kanaríeyjar hafa ákveðið að banna reykingar á almenningssvæðum vegna ótta um frekari útbreiðslu kórónuveirunnar.

Áhöfn TF-SIF kom auga á bát með tæpt tonn af hassi
Spænska lögreglan handtók á dögunum fjóra og gerði 963 kíló af hassi upptæk eftir að áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar kom auga á hraðbát með torkennilegan varning um borð við landamæraeftirlit á vestanverðu Miðjarðarhafi.

Banderas smitaður af kórónuveirunni og fagnar sextugsafmælinu í einangrun
Spænski stórleikarinn Antonio Banderas hefur greint frá því að hann hafi greinst með kórónuveiruna og mun fagna sextugasta afmælisdegi sínum í einangrun.

Evrópa býr sig undir aðra hitabylgju
Fólk á meginlandi Evrópu býr sig nú undir aðra hitabylgju. Búist er við að heitast verði á Spáni þar sem reiknað er með að hitinn nái 40 stigum um helgina.

Segja Jóhann Karl njóta lífsins á lúxushóteli í Abú Dabí
Fyrrverrandi konungur Spánar hefur notið lífsins á einu af glæsilegustu hótelum heims síðan að hann flúði heimalandið vegna fjársvikamáls sem er til rannsóknar á Spáni.

Krefst afsagnar konungs vegna máls Jóhanns Karls
Leiðtogi Katalóníu krafðist þess í dag að konungur Spánar afsalaði sér krúnunni eftir að Jóhann Karl faðir hans og fyrrverandi konungur flúði land í gær grunaður um spillingu.

Jóhann Karl yfirgefur Spán vegna fjársvikamáls
Fyrrverandi konungur Spánar, Jóhann Karl, segir í bréfi stíluðu á son sinn Filippus VI. Spánarkonung að hann hyggist yfirgefa Spán vegna ásakana um fjárhagslegt misferli. Bréfið var birt á vef spænsku konungsfjölskyldunnar í dag.

Spánverjar biðla til Breta að afnema sóttvarnareglur
Forsætisráðherra Spánar hvetur bresk stjórnvöld til að endurskoða nýjustu sóttvarnaráðstafanir sínar.

Skilgreina Spán aftur sem áhættusvæði eftir fjölgun smita
Spænsk stjórnvöld reyna nú að koma ferðamannaiðnaðinum til bjargar eftir að breska ríkisstjórnin gaf út að þeir sem koma frá Spáni þurfi að fara í fjórtán daga sóttkví. Fleiri lönd hvetja borgara sína til þess að forðast ferðalög til Spánar.

Deila um fyrirkomulag stuðningssjóðs vegna veirunnar
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittast í dag í fyrsta sinn augliti til auglitis frá því kórónuveirufaraldurinn fór að láta á sér kræla í Evrópu.

Ásakanir um spillingu fyrrverandi Spánarkonungs
Forsætisráðherra Spánar lýsti áhyggjum sínum að uppljóstrunum um spillingarmál Jóhanns Karls, fyrrverandi konungs, sem er til rannsóknar á Spáni og í Sviss. Fyrrverandi konungurinn er sakaður um að hafa þegið milljónir evra í mögulegar mútur frá Sádi-Arabíu.

Kórónuveirutilfellum á heimsvísu aldrei fjölgað meira
Tilfellum kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 sjúkdómnum hefur aldrei fjölgað meira á heimsvísu en síðasta sólarhringinn, samkvæmt upplýsingum frá WHO.

Frekari lokanir á norðanverðum Spáni vegna faraldursins
Yfirvöld í Galisíu á Norðvestur-Spáni hafi komið aftur á takmörkunum til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á svæði þar sem um 70.000 manns búa vegna þess að smitum hefur farið fjölgandi þar. Útgöngubann tók aftur gildi í hluta Katalóníu af sömu ástæðu í gær.

Útgöngubanni komið á í hluta Katalóníu vegna uppgangs veirunnar
Yfirvöld hafa hert aftur á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í hluta Katalóníu eftir að nýjum smitum fjölgaði á nýjan leik. Íbúum svæðisins er bannað að yfirgefa það en þurfa ekki að halda sig heima eins og í upphaflega útgöngubanninu.

Byrja að fljúga Íslendingum til Alicante og Tenerife í júlí
Beint áætlunarflug frá Íslandi til Alicante og Tenerife á Spáni hefst á ný í júlí.