Slökkvilið

Árekstur vörubíls og fólksbíls í Hafnarfirði
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að vörubíll og fólksbíll rákust saman í Hringhellu í Hellnahverfi í Hafnarfirði í morgun.

Eldsvoði í Auðbrekku
Mikill eldur kom upp í íbúðarhúsnæði að Auðbrekku fjögur í Kópavogi um klukkan þrjú í nótt. Fjórtán manns voru í húsnæðinu á tveimur hæðum og sluppu allir út.

Hálkuslys í höfuðborginni
Nokkuð hefur verið um hálkuslys á götum höfuðborgarinnar í morgun.

Slökkvilið kallað út vegna reyks í húsi við Norðurbrún
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út eftir að tilkynnt var um reyk í húsi með íbúðum aldraðra sem stendur við Norðurbrún í Reykjavík.

Kölluð út vegna alelda bíla í Kópavogi
Slökkvilið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út eftir að tilkynnt var um eld í bíl í hverfi 203 í Kópavogi um miðnætti.

Mikill viðbúnaður slökkviliðs sem finnur ekki upptök reyks
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði mikinn viðbúnað þegar tilkynnt var um eld í hóteli við Tryggvagötu í miðbæ Reykjavíkur.

Gróðureldum fjölgar og þörf á að efla viðbúnað slökkviliðs
Árið 2021 voru 186 gróðureldar skráðir á Íslandi og hefur þeim farið verulega fjölgandi en árið 2018 voru þeir 76. Starfshópur á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir nauðsynlegt að efla viðbúnað slökkviliðs og fjárfesta í fleiri slökkviskjólum.

Ekið á barn nærri Gerðaskóla í Garði
Ekið var á dreng nærri Gerðaskóla í Garði á Suðurnesjum um klukkan átta í morgun.

Velti bílnum í Ártúnsbrekku
Bílvelta varð í Ártúnsbrekku á áttunda tímanum í morgun. Mikill snjór er á götum borgarinnar eftir nóttina og færð eftir því.

Kona slapp ósködduð úr brunanum í bústaðnum á Hólmsheiði
Altjón varð á sumarhúsi sem brann við Lynghólsveg á Hólmsheiði síðdegis í gær. Engan sakaði í brunanum en um tíma var óttast að einhver kynni að vera innandyra en ógerningur reyndist að komast inn í bústaðinn.

Fara ekki inn í bústaðinn í kvöld
Eldur kom upp í húsi skammt frá Hafravatni fyrr í dag en búið var að slökkva eldinn á tíunda tímanum í kvöld. Bústaðurinn er ónýtur en slökkvilið telur ólíklegt að einhver hafi verið inni þegar eldurinn kom upp.

Kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum
Eldur kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum austan Hellisheiðar á fimmta tímanum í dag. Ekki er vitað til þess að nein slys hafi orðið á fólki.

Allir hinir látnu fundnir: Sóttu líkin með kafbáti vegna erfiðra aðstæðna
Aðstæður til köfunar í Þingvallavatni þóttu of erfiðar köfurum í dag vegna mikils kulda og ísmyndunar á Þingvallavatni. Því var smákafbátur með myndavélabúnaði og griparm notaður til að sækja lík þeirra sem létust í flugslysinu í síðustu viku.

Tuttugu og tveir kafarar taka þátt
Ríflega tuttugu kafarar koma að því að ná þeim sem fórust með flugvélinni í Þingvallavatni og flugvélinni sjálfri upp á yfirborðið. Aðgerðin sem hefst í fyrramáli er mjög flókin þar sem kafarar geta ekki athafnað sig nema í örfáar mínútur á svo miklu dýpi og kulda.

Ryðja, tjalda og koma upp þyrlulendingarstað við Þingvallavatn
Gert er ráð fyrir að fimmtíu til sextíu manns muni taka þátt í aðgerðum við Þingvallavatn á morgun. Um tuttugu manns vinna nú að því að setja upp vinnubúðir og aðstöðu við vatnið og er áætlað að aðgerðir hefjist klukkan níu í fyrramálið ef veður leyfir.

Kviknaði í bíl í Hamraborg
Eldur kviknaði í bifreið í bílageymslu í Hamraborg í Kópavogi á níunda tímanum í kvöld. Slökkvilið segir að vel hafi gengið að ráða niðurlögum eldsins.

„Hef þurft að úrskurða vinnufélaga minn látinn“
„Maður veit aldrei hvað vaktin ber í skauti sér. Stundum er maður að fara til fólks sem maður þekkir ekki neitt en stundum er þetta fólk sem maður þekkir allt of vel og jafnvel þínir nánustu,“ segir Stefnir Snorrason bráðatækni í síðasta þætti af Baklandinu á Stöð 2.

Eldur kviknaði í íbúð í Furugerði
Fjölmennt lið slökkviliðs var sent á vettvang við Furugerði 1 í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt eftir að eldur kviknaði í íbúð. Um er að ræða níu hæða fjölbýlishús.

Tveir árekstrar með skömmu millibili í Garðabæ
Tveir tveggja bíla árekstrar áttu sér með stað með skömmu millibili á Hafnafjarðarvegi á fimmta tímanum nærri Olís í Garðabæ. Sjúkrabíll og dælubíll var sendur á vettvang frá slökkvistöðinni í Hafnarfirði og var einn fluttur með minniháttar meiðsli á slysadeild.

Eldur kviknaði í bíl í Breiðholti
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti á fimmta tímanum útkalli við verslun Bónus í Lóuhólum í Breiðholti í Reykjavík hvar kviknað hafði í bíl.

Eldur kviknaði í eldhúsi á Mýrargötu
Eldur kviknaði í grilli á veitingastað við Mýrargötu 2-8 í Reykjavík sem hýsir Slippbarinn og Icelandair Hotel Reykjavík Marina.

Slökkvilið sinnti fjölda útkalla vegna lægðarinnar
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölda útkalla í gær vegna lægðarinnar sem gekk yfir landið með tilheyrandi roki á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrstur á vettvang þegar tveir hröpuðu í fallhlíf og náðist allt á myndband út af fótboltaleik
Lárus Petersen, varðstjóri sem hóf störf hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðan 1987, rifjaði upp slys í síðasta þætti af Baklandinu en það átti sér stað á sínum tíma rétt við slökkviliðsstöðina í Skógarhlíðinni.

Keyrt á kyrrstæðan bíl á aðrein á Reykjanesbraut
Sjúkrabílar Brunavarna Suðurnesja voru sendir á vettvang eftir tilkynning barst um að bíl hafi verið ekið á kyrrstæðan bíl á aðrein á Reykjanesbraut skömmu eftir klukkan hálf níu í morgun.

Telja að eldurinn hafi kviknað út frá framkvæmdum
Eldur kviknaði í þaki í íbúðarhúsi á Framnesvegi í Vesturbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í dag. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en slökkvilið er enn á staðnum.

Slökktu eld í ruslatunnu við Mýrarhúsaskóla
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í kvöld vegna elds sem kom upp í russlatunnu fyrir utan Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi.

Eldur í Brekkubæjarskóla á Akranesi: „Þetta fór vel“
Eldur kviknaði í Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrr í kvöld. Slökkviliðsstjóri segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn eða um tíu til fimmtán mínútur.

Kviknaði í tengivagni flutningabíls í Fljótum
Slökkvilið Fjallabyggðar var kallað út eftir að eldur kom upp í tengivagni flutningabíls á Siglufjarðarvegi, nærri Laugalandi í Fljótum, skömmu eftir klukkan hálf átta í gærkvöldi.

Slökkviliðið hvetur fólk til að huga að niðurföllum í morgunsárið
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt í vatnsveðrinu sem gekk yfir borgina.

Ekkert brunavarnarkerfi og engir reykskynjarar hjá slökkviliðinu í Vík
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gert fjölmargar athugasemdir við aðbúnað slökkviliðsins í Vík í Mýrdal, meðal annars að það sé ekkert brunavarnarkerfi á slökkvistöðinni og engir reykskynjarar. Oddviti Mýrdalshrepps hefur ekki áhyggjur af athugasemdum og segir að þeim verði öllum kippt í liðinn.