

Alls hafa nú 72 manns greinst með kórónuveirusmit í Færeyjum.
Fjórum Íslendingum, sem hugðust heimsækja Færeyjar , var vísað burt á flugvellinum í Vogum og meinað að koma inn í landið, í samræmi við hertar reglur Færeyinga vegna kórónufaraldursins.
Farþegaferjunni MS Norrænu verður ekki siglt frá Færeyjum til Seyðisfjarðar á mánudag eins og til hafði staðið.
Færeyingar hafa ákveðið að fyrstu tvær umferðirnar í efstu deild karla í fótbolta þar í landi verði spilaðar fyrir luktum dyrum.
Hljómsveitin Saving Grace, með söngvarana Robert Plant og Suzi Dian innanborðs, hefur afboðað komu sína á færeysku tónlistarhátíðina G! Festival, sem fram fer um miðjan júlímánuð.
Kórónuveiran er komin til Færeyja en yfirvöld þar í landi greindu frá því fyrir stundu að einn Færeyingur hafi greinst með veiruna eftir ferð til Parísar í Frakklandi.
Grunur vaknaði um að tveir væru sýktir af kórónuveirunni sem veldur COVID-19 í Færeyjum í dag.
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur tilkynnt að það muni hefja beint áætlunarflug milli Voga í Færeyjum og London í sumar.
Lögreglan í Þórshöfn í Færeyjum var kölluð til vegna slagsmála á tónleikastað í miðbænum.
Þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi.
Færeyska þingið hefur samþykkt að hætta verði að segja upp Hoyvíkursamningnum.
Bandaríska blaðið New York Times segir að Færeyjar séu orðnar nýjustu vígstöðvarnar í köldu stríði sem nú geisar á milli Bandaríkjanna og Kína vegna tæknimála. Í stórri grein fjallar blaðið ítarlega um mál sem nýverið kom upp í Færeyjum og tengist uppbyggingu á 5G-samskiptaferi landsins.
Helgi Abrahamsen, viðskiptaráðherra Færeyja, náðist á upptöku ræða það við aðstoðarmann sinn að sendiherra Kína í Danmörku hafi hótað háttsettum embættismönnum Færeyja.
35 ára gamall karlmaður, sem skaut og særði lögreglumann í Færeyjum, liggur nú á gjörgæsludeild Landssjúkrahússins í Þórshöfn eftir að hann var sjálfur skotinn af lögreglu.
Fótbolti.net greinir frá því í dag að Guðjón Þórðarson komi til greina sem næsti þjálfari færeyska landsliðsins í knattspyrnu.
Skipafélagið Smyril Line hefur fest kaup á nýrri vöruflutningaferju sem mun hefja áætlunarsiglingar um miðjan janúar 2020 milli Þorlákshafnar og Hirtshals í Danmörku.
Sjávarútvegsráðherra segir Evrópusambandið, Norðmenn og Færeyinga ekki segja Íslendingum fyrir verkum varðandi makrílveiðar, en sambandið og þessar þjóðir hafi haldið Íslendingum, Grænlendingum og Rússum utan við samninga um veiðiheimildir á makríl í mörg ár.
Íslensk stjórnvöld eru sögð hafa ógnað sjálfbærni makrílstofnsins í Norðaustur-Atlantshafi með ákvörðun sinni um að auka makrílkvóta íslenskra skipa í sumar.
Þorsteinn Már Baldvinsson, einn stærsti eigandi útgerðarfyrirtækisins Samherja og fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins, hefur sagt af sér sem stjórnarformaður útgerðarfélagsins Framherja í Færeyjum.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort Þorsteinn Már Baldvinsson muni segja sig frá stjórnarformennsku í Framherja í Færeyjum á meðan rannsókn á starfsháttum Samherja í Namibíu stendur yfir.
Þetta er annað útboðsferlið í röð sem reynist árangurslaust en í fjórða útboðinu í fyrra barst aðeins ein umsókn, sem síðar var dregin til baka.
Munu heimamenn og sjálfboðaliðar þá vinna að viðhaldi og uppbyggingu á vinsælum ferðamannastöðum á eyjunum.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari íslenska nítján ára landsliðsins og fyrrum þjálfari liða eins og KA, Fram, ÍA og Keflavíkur, er einn af þeim sem koma til greina sem næsti landsliðsþjálfari Færeyja. Hörður Magnússon sagði frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar tvö.
Gert er ráð fyrir að alltaf verði yfirstandandi einhverjar framkvæmdir við jarðgöng í uppfærðri samgönguáætlun til ársins 2034.
Færeyska fyrirtækið Bakkafrost hefur eignast 78 prósenta hlut í næst stærsta fiskeldisfyrirtæki Skotlands. Skoska fyrirtækið er með eldiskvíar á um 60 stöðum í Skotlandi og með yfir 600 starfsmenn.
Færeyska félagið HB Þórshöfn hefur staðfest að Heimir Guðjónsson mun snúa aftur heim til Íslands þegar keppnistímabilinu líkur.
Færeyingar hafa fengið nýja landsstjórn, hægri stjórn undir forystu Bárðar á Steig Nielsen, sem er nýr lögmaður Færeyja. Af sjö ráðherrum er aðeins ein kona.
Náðst hefur samkomulag milli leiðtoga Fólkaflokksins, Miðflokksins og Sambandsflokksins í Færeyjum um myndun nýrrar landsstjórnar eftir nýafstaðnar kosningar.
Bakslag er komið í stjórnarmyndunarviðræður Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Miðflokksins í Færeyjum. Flokkarnir þrír felldu stjórnina í þingkosningum sem fram fóru 31. ágúst síðastliðinn.
Stjórnarflokkarnir í Færeyjum misstu meirihluta sinn í þingkosningunum sem fram fóru á laugardag.