
Íran

Ísraelar hæfðu flugvöllinn í Aleppo í loftárás
Ísraelar eru sagðir hafa hæft Aleppo-flugvöll í Sýrlandi í loftárás. Talið er að loftárásin eigi að trufla íranskt birgðakerfi til Sýrlands.

Ísraelsher segist hafa tekið yfir og Selenskí skýtur á Íran
Daniel Hagari, talsmaður ísraelska hersins, segir herinn nú við stjórnvölinn á öllum svæðum. Eins og stendur sé ekki barist innan Ísrael en mögulega séu liðsmenn Hamas þar í felum.

Íran hafi komið að skipulagningu árásanna yfir nokkurra vikna skeið
Yfirmenn íranska hersins hjálpuðu til við að skipuleggja óvænta árásarhrinu Hamassveita á Ísrael yfir nokkurra vikna skeið, og gáfu grænt ljós á árásina síðasta mánudag.

Kúrdíski refurinn sem skelfir Svía sagður handtekinn í Íran
Rawa Majid, oft nefndur kúrdíski refurinn og höfuð Foxtrot-glæpahringsins í Svíþjóð, er sagður hafa verið handtekinn á landamærunum á leið yfir landamærin til Íran á föstudag. Sænska ríkissjónvarpið hefur þetta eftir heimildum sínum.

Hlýtur friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu gegn kúgun kvenna í Íran
Íranska baráttukonan og mannréttindafrömuðurinn Narges Mohammadi hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Hún hlýtur verðlaunin fyrir baráttu sína gegn kúgun kvenna í Íran og baráttu fyrir mannréttindum og frelsi allra.

Umdeildum fangaskiptum lokið
Umdeild fangaskipti milli Bandaríkjamanna og Írana hafa átt sér stað. Fimm manns sem voru í fangelsi í Íran hefur verið sleppt í Katar. Yfirvöld í Íran hafa ítrekað verið sökuð um að handsama fólk af Vesturlöndum og nota það sem vogarafl í samskiptum við erlenda ráðamenn.

Heilinn á konum er helmingi minni
Eitt ár er liðið frá morði íranskra stjórnvalda á Mahsa Amini, írönsku stúlkunni sem lést í haldi hinnar alræmdu írönsku siðgæðislögreglu. Amini hafði verið handtekin á þeim grundvelli að hún hefði ekki borið skyldubundinn höfuðklút kvenna á viðeigandi máta. Dauði Amini leiddi til mótmælaöldu í Íran sem breiddist út til fjölmargra landa.

Hætta við að bjóða Rússum, Írönum og Hvít-Rússum
Forsvarsmenn Nóbelsverðlaunanna hafa dregið boð til sendiherra Rússlands, Írans og Belarús (eða Hvíta-Rússlands) á afhendingu verðlaunanna í Stokkhólmi i ár til baka. Það er eftir að upprunaleg ákvörðun þeirra var harðlega gagnrýnd víða um heim og í Svíþjóð.

Auka eftirlit á Hormuz-sundi vegna afskipta Írana af skipaumferð
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að senda herskip og fleiri herþotur til Hormuz-sunds og Ómanflóa til að fæla Íran frá því að ráðast gegn skipum í eigu erlendra fyrirtækja.

Siðferðislögreglan aftur farin að vakta slæðuburð kvenna
Siðferðiseftirlit lögregluyfirvalda í Íran er komið í gang aftur eftir að hafa legið niðri í nokkra mánuði. Eftirlitið var lagt niður tímabundið í kjölfar mótmæla sem efnt var til í kjölfar dauða Möhsu Amini, sem lést í haldi lögreglu.

„Íslenska leyniþjónustan“ hafi kynt undir mótmælaölduna
Mohammed Kazemi, herforingi og yfirmaður leyniþjónustu íranska hersins, sakar leyniþjónustur tuttugu ríkja um að kynda undir mótmælaölduna sem geisað hefur í landinu í tæpt ár. Ísland er þar á meðal.

Tíu í fangelsi vegna farþegaþotunnar sem var skotin niður
Dómstóll í Íran dæmdi tíu lágt setta liðsmenn byltingarvarðarins í fangelsi vegna úkraínskrar farþegaþotu sem var skotin niður í janúar árið 2020. Aðstandendur fórnarlambanna segja málalyktirnar óviðunandi.

Íranir setja upp eftirlitsmyndavélar til að fylgjast með konum
Írönsk yfirvöld hafa komið upp eftirlitsmyndavélum á almenningssvæðum til að bera kennsl á og sekta konur sem nota ekki höfuðslæður. Aðgerðirnar eiga að fækka fjölda þeirra kvenna sem brjóta í bága við ströng lög landsins um höfuðslæðunotkun.

Gerðu loftárásir eftir mannskæða drónaárás
Bandarískur verktaki féll í drónaárás í Sýrlandi í nótt þar sem skæruliðahópur studdur af stjórnvöldum í Íran notaðist við dróna frá ríkinu til árásarinnar á herstöð í norðausturhluta landsins. Annar verktaki og fimm bandarískir hermenn særðust í árásinni.

Salman sagður hafa boðið Raisi í opinbera heimsókn
Mohammad Jamshidi, háttsettur embættismaður í Íran, segir Salman bin Abdul Aziz al-Sád, konung Sádi Arabíu, hafa boðið Ebrahim Raisi, forseta Íran, í opinbera heimsókn.

Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla
Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni.

Xi vill stærra hlutverk á alþjóðasviðinu
Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því að ríkið spilaði stærri rullu í alþjóðamálum. Forsetinn sagði í morgun að Kína ætti að taka virkan þátt í því að gera endurbætur á og að endurbyggja alþjóðakerfið. Það sagði Xi að myndi veita heimsfriði og framþróun „jákvæða orku“.

Íranar og Sádar taka aftur upp stjórnmálasamband
Fulltrúar Írans og Sádi-Arabíu tilkynntu að ríkin tvö ætluðu að taka aftur upp stjórnmálasamband og opna sendiráð sem var lokað í áralöngum illdeilum þeirra í dag. Kínverjar höfðu milligöngu um samningaviðræður ríkjanna.

Bar ekki höfuðklút á skákmóti og getur ekki snúið aftur til heimalandsins
Íranska skákkonan Sara Khadem vakti athygli á heimsmeistaramótinu í hrað- og atskák í Kasakstan í lok seinasta árs þegar hún bar ekki höfuðklút. Samkvæmt írönskum lögum ber konum að bera slíkan klút.

Æðsti leiðtogi Íran sagður hafa náðað tugþúsundir fanga
Æðsti leiðtogi Íran, Ayatollah Ali Khamenei, er sagður hafa náðað tugþúsundir fanga, þar af fjölda sem var handtekinn fyrir að mótmæla gegn stjórnvöldum. Ríkismiðlar segja náðanirnar háðar skilyrðum.

Mossad beitti sjálfsprengidrónum í Íran
Ísraelar gerðu um helgina drónaárás á skotmörk í borginni Isfahan í Íran. Árásin er sögð hafa verið framkvæmd af leyniþjónustu Ísraels og hafa mögulega beinst gegn eldflaugaframleiðslu Írans.

Átta hundruð slösuðust í jarðskjálfta
Átta hundruð slösuðust og þrír létust í jarðskjálfta af stærðinni 5,9 í Íran í gær. Jarðskjálftinn skall á rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi.

Ofbeldi gegn mótmælendum örvæntingarfull tilraun til að halda völdum
Fjórir hafa verið teknir af lífi fyrir að taka þátt í mótmælum í Íran. Mótmælin eru meðal þeirra verstu sem brotist hafa út síðan klerkaveldið var stofnað fyrir rúmum fjörutíu árum. Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty segir augljóst að írönsk stjórnvöld hræðist afleiðingar mótmælanna.

Dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að afhöfða eiginkonu sína
Íranskur karlmaður var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að afhöfða sautján ára eiginkonu sína. Konan hafði flúið land þegar maðurinn vildi ekki leyfa henni að skilja við sig en sneri aftur eftir að fjölskylda hennar sagðist geta tryggt öryggi hennar. Hún var myrt nokkrum dögum síðar.

Njósnari Breta tekinn af lífi í Íran
Bresk-íranski maðurinn Alireza Akbari var tekinn af lífi í Íran eftir að hafa verið sakaður um njósnir fyrir Bretland. Aftakan hefur verið fordæmd bæði í Bretlandi og í Íran.

Rannsókn stendur yfir vegna úrans sem fannst á Heathrow
Hryðjuverkalögregla Lundúna hefur hafið rannsókn í kjölfar þess að úran fannst í pakka á Heathrow flugvelli í desember. Scotland Yard staðfesti fregnirnar í gærkvöldi.

Fjórir hafa nú verið teknir af lífi vegna mótmæla í Íran
Fjórir hafa nú verið teknir af lífi í Íran fyrir það að taka þátt í mótmælunum sem blossuðu upp þar í landi um miðjan september síðastliðinn. Karate meistari og þjálfari í sjálfboðastarfi voru teknir af lífi í dag. Sameinuðu þjóðirnar biðla til íranskra stjórnvalda að hætta aftökunum.

Handtóku fótboltamenn eftir rassíu í nýárspartýi
Lögreglan mætti sem óboðinn gestur í nýárspartý fótboltamanna úr efstu deild í Íran í gær og tók fjölda þeirra með sér upp á stöð.

Dauðadómur mótmælanda endurskoðaður
Hæstiréttur í Íran hefur samþykkt að endurskoða dauðadóm sem féll yfir mótmælanda þar í landi sem sakaður er um að hafa skemmt almannaeign á meðan á mótmælum stóð.

Bar ekki höfuðklút á skákmóti í Kasakstan
Íranska skákkonan Sara Khadem vakti athygli á heimsmeistaramótinu í hrað- og atskák í Kasakstan á dögunum þegar hún bar ekki höfuðklút. Samkvæmt írönskum lögum ber konum að bera slíkan klút.