
Palestína

Hatari gagnrýndur fyrir skort á gagnrýni
Á meðan landsmenn og heimsbyggðin öll veltir því fyrir sér hvort hatrið muni sigra Eurovision er hljómsveitin Hatari gagnrýnd fyrir skort á gagnrýni um málefni Palestínu og Ísraels. Íslenskur tónlistarblaðamaður sem sniðgengur hátíðina í ár hvetur Hatara til að hnykkja betur á skilaboðum sínum.

Hökkuðu sig inn í Eurovision-útsendinguna og vöruðu við loftárásum á Tel Aviv
Ísraelska ríkissjónvarpið kennir hinum palestínsku Hamas-samtökum um verknaðinn.

Hatarar rukkaðir um mótmæli vegna hernámsins
Eurovision-gleðin hömlulaus en undir niðri krauma efasemdir.

Eldfimara en þau bjuggust við: „Ákveðin orð þykja svo gildishlaðin og vekja svo mikla athygli“
Klemens segir að hljómsveitarmeðlimir reyni vissulega að nýta dagskrárvaldið til að koma sínum boðskap á framfæri og nýta athyglina sem fylgir þátttöku í Eurovision til góðs.

Lenti í vandræðum með þvenginn: „Annað eistað hékk úti!“
Það var stutt á milli æfingu Hatara á stóra sviðinu í Tel Aviv og blaðamannafundar sem var á dagskrá hjá hljómsveitinni og föruneyti hennar.

Matthías fær silfrið
Matthías Tryggvi Haraldsson, annar tveggja söngvara hljómsveitarinnar Hatara, sem keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision keppninni sem þetta árið fer fram í Tel Aviv, fær silfurmedalíu í keppni sem hann sannarlega skráði sig ekki í.

Finnst meðlimir Hatara ógnvekjandi á heillandi hátt
Söngkonan Kate Miller-Heidke, sem keppir fyrir hönd Ástralíu á stóra sviðinu í Eurovision þetta árið, kann vel að meta framlag Íslendinga í keppninni. Hún segist raunar elska það.

Söngvarar Hatara segja aðskilnaðarstefnuna í Ísrael auðsjáanlega
Hataramenn segjast sannfærðir um að þeir geti notfært sér dagskrárvaldið sem fylgir þátttöku í Eurovision til þess að beina sjónum heimsins að ástandinu í Ísrael og Palestínu.

Samið um vopnahlé á Gaza
Ísraelski herinn nam í morgun úr gildi viðbúnað sem verið hefur í suðurhluta Ísraels síðustu daga.

Hótanir gegn Eurovision
Samtök herskárra íslamista úr röðum Palestínumann hefur í tilkynningu hótað Eurovision-söngvakeppninni að sögn Jerusalem Post.

Þunguð kona og barn á meðal fórnarlamba í gagnárás Ísraelshers
Að sögn Ísraelshers skutu Hamasliðar 430 eldflaugum yfir til Ísraels síðan á laugardag en loftvarnir hersins náðu að stöðva flestar þeirra en þó ekki allar því þrír óbreyttir borgarar særðust og einn lést.

Yfir 150 flugskeytum skotið yfir landamæri Ísrael og Palestínu
150 flugskeytum hefur verið skotið frá Gaza-ströndinni yfir landamærin til Ísrael í dag, samkvæmt ísraelska hersins. Árásunum var svarað með mótárásum á Gaza-svæðið

Netanjahú reynir að höfða til þjóðernissinnaðri kjósenda
Nái Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, endurkjöri í þingkosningunum sem fram fara í Ísrael 9. apríl mun hann leitast eftir því að innlima þau svæði Vesturbakkans þar sem Ísraelar hafa aðsetur.

Ár síðan vikuleg mótmæli hófust við landamæri Gasa og Ísrael
Tugir þúsunda Palestínumanna komu saman á Gasaströndinni í gær og mótmæltu í vikulegum mótmælum við landamærin að Ísrael.

Rólegur dagur eftir sprengjuregn í nótt
Ísraelsher hefur látið sprengjuregn dynja á Gasasvæðinu eftir að eldflaug frá Rafah hæfði íbúðarhús í borginni Mishmeret.

Ísraelsher lét sprengjum rigna yfir Gaza-ströndina í gærkvöld
Ísraelski herinn hóf í gær loftárásir á Gaza-svæðið. Að sögn ísraelskra yfirvalda er árásin til komin vegna flugskeytaárásar Palestínumanna árla í gær. Skeytið hæfði hús í Ísrael miðju og særði sjö.

Ísraelar sakaðir um að svipta Palestínumenn drykkjarvatni
Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir Ísraela stunda rányrkju á jörðum Palestínumanna og að landtaka þeirra haldi áfram þar óáreitt.

Bachelet lýsir áhyggjum af gerðum Ísraels
Herkví Ísraela um Gasasvæðið og ákvörðun þeirra um að hundsa tilmæli rannsakenda mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna er áhyggjuefni.

Finnst atriði Hatara „frekar misheppnað“
Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir sumt í atriði Hatara vera á gráu svæði og telur sniðgöngu hafa verið sterkara val.

Hatari settur í „fjölmiðlafrí“
Hatari mætti ekki í Kastljós í kvöld líkt og sigurvegarar fyrri ára hafa hingað til gert.

Hatari varaðir við að hafa uppi pólitískan áróður í Tel Aviv
Veruleg heift meðal margra í Ísrael vegna fordæmingu Hatara á framferði Ísraelsmanna í garð Palestínu.

Ísraelskir fjölmiðlar vara við Hatara
Ísraelskir fjölmiðlar hafa slegið því upp að Hatari hafi sigrað í íslensku Söngvakeppninni og þannig megi búast við því að Eurovision, sem haldin verður í Tel Aviv í maí verði vettvangur and-ísraelskra mótmæla.

Gjörningur Hatara lagðist misvel í fólk og vinkona þeirra gagnrýnir þá harðlega
Hatari átti Söngvakeppnisumræðuna um liðna helgi.

„Okkar markmið er að afhjúpa þessa svikamyllu“
Keppnin er einn alstærsti alþjóðlegi viðburður sem haldinn hefur verið í Ísrael. Miklir hagsmunir eru í húfi. Keppnin er glansmynd, lygi, hvítþvottur, áróðursvél og svikamylla. Okkar markmið er að afhjúpa þessa svikamyllu.

Páll Óskar biðst afsökunar á ummælum um gyðinga: „Gekk allt of langt í orðum mínum“
Segir ríkisstjórn Ísraels og Ísraelsher fá hins vegar engan afslátt frá sér.

Ummæli Páls Óskars um gyðinga og Helförina vekja undrun og furðu
Ummæli tónlistarmannsins Páls Óskars Hjálmtýssonar um að gyðingar hafi ekki lært neitt af Helförinni og að þeir hafi saumað sig "í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma“ hafa vakið bæðu undrun og furðu á samfélagsmiðlum.

Páll Óskar og dagskrárstjóri RÚV tókust á um Eurovision: „Sterkara að sniðganga keppnina en að mæta á svæðið, taka þátt í partýinu og reyna að segja eitthvað innan gæsalappa“
Páll Óskar Hjálmtýsson og Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, tókust á um Eurovision í Lestinni á Rás 1 í dag.

Hætta fjárstuðningi við öryggissveitir Palestínu
Bandaríkin hætta í dag að veita fé til öryggissveita Palestínu og er það gert að beiðni yfirvalda Palestínu.

Forsætisráðherra Palestínu biðst lausnar
Rami Al-Hamdallah, forsætisráðherra Palestínu, hefur beðist lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína.

Ástralir munu viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísrael
Ástralir munu brátt bætast í þann hóp ríkja sem viðurkenna stöðu Jerúsalem sem höfuðborg Ísrael.