Kjaramál
151 152 153 154 155 156 … 156 ›
Orðalagið rýrir gildi samninganna Samninganefnd kennara segir loðið orðalag hafa rýrt gildi samninganna sem gerðir voru við sveitarfélögin árið 2001. Meðal kennara heyrast þær raddir að tími sé kominn til að skipta út nefndarmönnum. Innlent 13.10.2005 14:41
Ráðherra beitir sér ekki Félagsmálaráðherra segist ekki að ætla að beita sér fyrir því að launþegar á almennum vinnumarkaði öðlist rétt til sumarleyfis á launum í fæðingarorlofi eins og ríkisstarfsmenn. Hann segir Fæðingarorlofssjóð ekki geta staðið undir slíkum skuldbindingum. Innlent 13.10.2005 14:41
Engar undanþágur veittar Engar undanþágur verða veittar vegna kennaraverkfallsins en svonefnd undanþágunefnd fór yfir umsóknirnar á fundi sínum í dag. Þrettán umsóknir bárust en að sögn Þórörnu Jónasdóttur, fulltrúa kennara í nefndinni, voru ekki allar umsóknir fullnægjandi. Hinum var hafnað. Innlent 13.10.2005 14:41
Langt í úrlausn verkfalls Samninganefnd kennara hyggst ekki funda með launanefnd sveitarfélaganna fyrr en nýtt tilboð liggur á borðinu. Launanefnd sveitarfélaganna ætlar ekki að leggja fram tilboðið fyrr en umræður hafa farið fram milli þeirra og kennara. Fyrsta fundi deilenda eftir að til verkfalls kennara kom lauk á tólfta tímanum í gærmorgun. Næsti fundur hefur verið boðaður eftir tæpa viku. Innlent 13.10.2005 14:41
Kennt í grunnskóla sveitarfélags Verkfall kennara hefur ekki áhrif á 6. bekk Sk í Flataskóla. Hann er eini bekkur skólans sem stundar nám í fjarveru grunnskólakennara og sá eini á landsvísu sem fær kennslu í skólum sveitafélaganna. Ástæðan er sú að bekknum kennir stundakennari um mánaðarskeið meðan umsjónarkennari þeirra er í leyfi. Innlent 13.10.2005 14:41
LÍÚ ber ábyrgð á Brimi LÍÚ ber sína ábyrgð á úrsögn skipsins Sólbaks úr samtökunum, segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. Hann segir reginmisskilning hjá Guðmundi Kristjánssyni, forstjóra Brims, að ASÍ hafi hvatt til vinnustaðasamninga á borð við þann sem hann gerði við áhöfn skipsins.</< /> > Innlent 17.10.2005 23:41
Þorgerður útilokar ekki inngrip Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra útilokar ekki að stjórnvöld grípi inn í deilu kennara. "Ég mun ekki beita mér neitt í deilu kennara og sveitarfélaganna; alla vega ekki í bili," sagði Þorgerður eftir fund með fulltrúum svæðasamtaka og landssamtaka foreldra í ráðuneytinu í gær. Innlent 13.10.2005 14:40
Fyrsti fundur deilenda í verkfalli Forsvarsmenn kennara og sveitarfélaganna funda í dag hjá ríkissáttasemjara. Fundurinn hefst klukkan níu. Innlent 13.10.2005 14:40
Engar undanþágur veittar enn Verklagsreglur undanþágunefndar kennara og sveitarfélaganna voru ræddar á fyrsta fundi hennar í gær. Þegar hefur verið óskað eftir undanþágum vegna verkfalls kennara en engar ákvarðanir verið teknar, segir Þórarna Jónasdóttir, fulltrúi Félags grunnskólakennara og skólastjórnendafélags Íslands í undanþágunefndinni. Innlent 13.10.2005 14:40
Beggja vegna borðsins Birgir Björn Sigurjónsson, formaður launanefndar sveitarfélaga, var áður framkvæmdastjóri BHMR og hefur því á vissan hátt setið beggja vegna borðsins. Innlent 13.10.2005 14:40
Munur á launum kennara eftir kyni Karlkyns kennarar hafa að meðaltali liðlega 12 þúsund króna hærri dagvinnulaun en starfssystur þeirra. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir ástæðurnar vera þrennar. Innlent 13.10.2005 14:40
Áhyggjufullir en óbugaðir Kennarar búa sig undir fjárhagsáhyggjur og þunglyndi eftir því sem líður á verkfallið. Þeir stappa stálinu hverjir í annan í verkfallsmiðstöðvum um allt land. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:40
BUGL sækir um undanþágu Um tíu undanþágubeiðnir vegna yfirstandandi kennaraverkfalls höfðu borist svokallaðri undanþágunefnd í gær, að sögn Þórörnu Jónasdóttur fulltrúa Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands í nefndinni. Sótt hefur verið um undanþágu vegna þeirra nemenda sem dvelja á Barna- og unglingageðdeildinni á Dalbraut og fá kennslu frá Brúarskóla. Innlent 13.10.2005 14:40
Verðir í Valsheimilinu Verkfallsverðir kennara fóru í alla skóla á höfuðborgarsvæðinu í gær til að kanna hvort þar væri unnið í trássi við verkfall grunnskólakennara. Þá heimsóttu þeir einnig tuttugu fyrirtæki og stofnanir í Reykjavík, þar á meðal leikjanámskeið KB banka í Valsheimilinu. Innlent 13.10.2005 14:40
Skylda deilenda að flýta málinu Menntamálaráðherra lýsir þungum áhyggjum af verkfalli grunnskólakennara og segir það skyldu deilenda að ná samkomulagi á stuttum tíma. Forseti borgarstjórnar segir brýnt að samningamenn fái ráðrúm til að leysa deiluna. Innlent 13.10.2005 14:40
Tugur beiðna um undanþágur Um það bil tugur beiðna um undanþágur vegna verkfallsins hafa borist kennurum en bið er á því að umsóknirnar verði teknar fyrir. Verkfallið gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir börn sem eiga við geðsjúkdóma að stríða. Innlent 13.10.2005 14:40
Grípur ekki til aðgerða Verkfallanefnd grunnskólakennara hefur ákveðið að grípa ekki til aðgerða að sinni vegna meintra verkfallsbrota þar sem önnur verkefni þyki brýnni. Innlent 13.10.2005 14:40
Ekki samúð með kennurum? Foreldrar virðast ekki hafa mikla samúð með grunnskólakennurum í verkfalli, ef marka má þá sem fréttastofan hitti í dag. Innlent 13.10.2005 14:40
Engar aðgerðir að sinni Kennarar ætla ekki að grípa til aðgerða vegna meintra verkfallsbrota að sinni, af tillitssemi við börnin. Þeir segja fyrirtæki standa fyrir kennslu í íþróttahúsi í Mosfellsbæ, sem sé klárt verkfallsbrot, og svíður sárt að þar skuli starfa nemi í Kennaraháskólanum. Innlent 13.10.2005 14:40
Stál í stál Mikið ber í milli í deilu grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna og sáttafundur hefur ekki verið boðaður fyrr en á fimmtudag. Kennarar lögðu fram sáttatillögu sem þeir töldu hafa 16 prósenta kostnaðarhækkun í för með sér fyrir sveitarfélögin. Launanefnd sveitarfélaga taldi hækkunina nær 24 prósentum. Innlent 13.10.2005 14:40
Foreldrar aðstoða í Ísaksskóla Vökul augu verkfallsvarða fylgdust grannt með foreldrum sem fylltu upp í kennslustundir barna í Ísaksskóla í morgun. Skólinn er meðal þeirra einkaskóla sem starfa í verkfallinu en það gerist með hjálp foreldra. Innlent 13.10.2005 14:40
Aðför að stéttarfélögum landsins Formaður Sjómannasambandsins segir að samningur áhafnarinnar á togaranum Sólbaki EA og útgerðarfélagsins Brims, um stofnun einkahlutafélags um rekstur skipsins til að sniðganga kjarasamninga, sé aðför að stéttarfélögum í landinu. Innlent 13.10.2005 14:40
Undanþágubeiðnir vegna verkfalls Um tíu undanþágubeiðnir hafa borist vegna verkfalls grunnskólakennara, bæði frá einstaklingum og skólum. Svo virðist sem bið verði á svörum þar sem ekki hefur tekist að koma saman svokallaðri undanþágunefnd. Innlent 13.10.2005 14:40
40 miljónir sparast á dag Sveitarfélögin spara um fjörutíu milljónir króna í launagreiðslur á dag vegna verkfalls rúmlega fjögur þúsund kennara. Launakostnaður sveitarfélaganna vegna grunnskólakennara og skólastjóra á þessu ári var áætlaður 16,2 milljarðar króna, en ljóst er að hann lækkar eftir því sem verkfallið dregst á langinn. Erlent 13.10.2005 14:40
Þónokkur dæmi um verkfallsbrot Trúnaðarmenn grunnskólakennara hafa bent Landsstjórn um verkfallsaðgerðir á þónokkur dæmi um hugsanleg verkfallsbrot í kennaraverkfallinu en verkfallsstjórn metur skipulagt skólastarf á vegum fyrirtækja og stofnana sem brot. Innlent 13.10.2005 14:40
Hafa tilnefnt fulltrúa í nefndina Samband sveitarfélaga hefur tilnefnt fulltrúa í sérstaka nefnd sem tekur til umfjöllunar beiðnir um undanþágu til kennslu í verkfalli grunnskólakennara. Um tugur beiðna hefur borist nefndinni. Innlent 13.10.2005 14:40
Aukin óvissa frístundaheimila Færri börn skiluðu sér inn á frístundaheimili borgarinnar á fyrsta degi verkfalls kennara. Soffía Pálsdóttir, fræðslustjóri Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, segir það valda ugg þar sem frístundaheimilin leiti starfsfólks til að bjóða þeim 100 börnum sem eru á biðlista pláss. Innlent 13.10.2005 14:40
Tugir fatlaðra barna án vistunar Um 75 fötluð börn, sem stunda nám í Öskjuhlíðarskóla eru á köldum klaka í yfirstandandi kennaraverkfalli. Þau fá enga skóladagvist og geta ekki farið í sameiginlega gæslu. Verkfallið veldur miklu róti í lífi fötluðu nemendanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:40
Illskiljanleg kjaradeila Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri segir að upp sé komin mjög erfið staða í viðræðum kennara og sveitarfélaga. ,,Það ber mikið á milli aðila og ég tel að það sé ógjörningur fyrir sveitarfélögin að verða við kröfum kennara. Það bætir ekki úr skák að umræðan um kröfugerðina er illskiljanleg venjulegu fólki." Innlent 13.10.2005 14:40
Kostnaður hækkar um 10 milljarða Launakostnaður sveitarfélaganna vegna grunnskólakennara fer úr 16 í 26 milljarða króna á ári, ef gengið verður að kröfum kennara, samkvæmt útreikningum Launanefndar sveitarfélaganna. Enginn fundur verður í deilunni fyrr en á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 14:40