Kjaramál

Kjaradeilu sjúkraliða og SFV til ríkissáttasemjara
Máli Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Kjarasamningur deiluaðila rann út 31. mars 2019.

Segir alvarlegt að kjaradeila hjúkrunarfræðinga fari í gerðardóm
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segist vilja að félagsmenn hennar kynni sér vel samning félagsins við ríkið og að þeir myndi sér skoðanir á honum áður en atkvæði verða greidd um hann.

Fundi flugfreyja og Icelandair lokið
Fundi samninganefnda flugfreyja og Icelandair er nú lokið. Hann hófst í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni klukkan 9:30 í morgun. Boðað hefur verið til annars fundar á morgun klukkan hálf tíu.

Ræða forsendur kjarasamninga á formannafundi
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir að stjórnvöld hafi ekki staðið við nokkur stór mál sem samið var um í lífskjarasamningunum. Forsendur kjarasamninga verða á dagskrá formannafundar ASÍ sem nú stendur yfir. Drífa á von á hreinskiptum umræðum.

Samninganefndir flugfreyja og Icelandair funda
Fundur samninganefnda Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands hófst í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni klukkan 9:30 í morgun.

Óvenjuleg lausn undir óvenjulegum kringumstæðum
Fyrirhuguðu verkfalli hjúkrunarfræðinga sem átti að hefjast í fyrramálið var afstýrt seint í kvöld þegar samkomulag náðist um miðlunartillögu sem Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari lagði fram til samninganefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og ríkisins.

Ekki verður af verkfalli hjúkrunarfræðinga
Fundi samninganefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins lauk í Karphúsinu á tólfta tímanum í kvöld. Fyrirhuguðu verkfalli sem átti að hefjast klukkan 08:00 í fyrramálið hefur verið afstýrt

Verði af verkfalli er ekki unnt að manna alla skimunarbása á Keflavíkurflugvelli
Hjúkrunarfræðingar og ríkið funda enn. Að óbreyttu hefst verkfall hjúkrunarfræðinga klukkan átta í fyrramálið.

Hjúkrunarfræðingar sýna samningsnefnd samstöðu fyrir utan Karphúsið
Hjúkrunarfræðingar söfnuðust saman fyrir utan Karphúsið í dag áður en samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins mættu þar til fundar á þriðja tímanum.

Klukkan tifar í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins
Samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins funda í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 14 í dag. Að óbreyttu hefst verkfall hjúkrunarfræðinga í fyrramálið.

Samninganefndir hjúkrunarfræðinga og ríkisins funda nú sitt í hvoru lagi
Hlé hefur verið gert á sameiginlegum fundi samninganefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Samninganefndir vinna nú áfram sitt í hvoru lagi og halda sameiginlegar viðræður áfram á morgun þegar þeirri vinnu er lokið.

Hvers virði eru hjúkrunarfræðingar þér?
Ég er fædd á kvennaárinu 1975 og tel ég mögulegt að það hafi haft veruleg áhrif á þroskun taugabrauta minna. Ég fékk líka skýr skilaboð frá foreldrum og forráðamönnum um að ég gæti tekið mér hvað sem fyrir hendur í lífinu og myndi ná árangri eins lengi og ég legði mig fram í verkið.

Hjúkrunarfræðingar funda í Karphúsinu
Samningafundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins hófst á ný klukkan hálf tíu í morgun og stendur enn. Að óbreyttu hefst verkfall hjúkrunarfræðinga klukkan átta á mánudagsmorgun.

Ummæli Boga í Mannlífi komu Flugfreyjufélaginu á óvart
Fundi milli samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair lauk nú klukkan 19:30 án niðurstöðu. Umræður á fundinum voru góðar að sögn formanns FFÍ.

Starfsfólk Landspítala fær allt að 250 þúsund í umbun vegna faraldursins
Allir starfsmenn Landspítala, að forstjóra, aðstoðarmanni forstjóra, framkvæmdastjórum og forstöðumönnum undanskildum, fá greidda út umbun um næstu mánaðarmót vegna vinnu þeirra í faraldri kórónuveirunnar,

Undirbúningur verkfalls hjúkrunarfræðinga á lokastigi
Samningafundi í kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins lauk á fimmta tímanum í dag án niðurstöðu. Nýr fundur hefur verið boðaður í deilunni og hefst hann klukkan hálf tíu í fyrramálið. Útlit er fyrir að verkfall hjúkrunarfræðinga hefjist eftir rúma tvo sólarhringa. Formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir undirbúning verkfalls á lokastigi.

Fundur hjúkrunarfræðinga og ríkisins heldur áfram á morgun
Fundi samninganefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins lauk á fimmta tímanum í dag hjá ríkissáttasemjara án niðurstöðu.

Kjaradeila flugfreyja: „Alltaf von þegar fólk talar saman“
Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair koma saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan tvö í dag.

Taka daginn frá undir viðræðurnar
Samninganefndir ríkisins og Félags íslenskar hjúkrunarfræðinga koma saman til fundar í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 10.

Tíminn til þess að semja við hjúkrunarfræðinga að renna út
Útlit er fyrir að verkfall hjúkrunarfræðinga hefjist eftir rúma þrjá sólarhringa. Hjúkrunarfræðingar eru ósáttir við laun sín og segja ekki hlustað á þá en það hryggi þá að ekki sé meira lagt í sölurnar við að mæta kröfum þeirra við samningaborðið.

Munu ekki ganga í störf hjúkrunarfræðinga
Hjúkrunarfræðinemar við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingu við kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga.

Boðað til annars fundar á morgun
Fundi samninganefnda ríksins og hjúkrunarfræðinga í húsakynnum ríkissáttasemjara var slitið um klukkan 13:30 í dag.

„Tónn“ hjúkrunarfræðinga varðandi launahækkun sjúkraliða kom Bjarna á óvart
Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingar, og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tókust á í óundirbúnum fyrirspurnatíma nú í morgun varðandi kjaradeilur hjúkrunarfræðinga.

Galið að sjómenn þurfi að semja við vinnuveitendur sjálfir án aðkomu stéttarfélaga
Bergur Þorkelsson formaður Sjómannafélags Íslands segir galið að sjómenn sem eru í engri samningsstöðu þurfi að standa í kjaraviðræðum við vinnuveitendur sína sjálfir án þess að stéttarfélögin komi að því.

Sigla heim eftir að áhöfnin hafnaði launalækkun
Áhöfnin á rækjuskipinu Berglíni GK 300 tóku í gær einróma ákvörðun um að fara ekki aftur á veiðar eftir að í ljós kom á mánudag að laun skipverja hafi verið lækkuð um 35% án samráðs.

Boða til næsta samningafundar á fimmtudag
Samninganefndir Hjúkrunarfræðinga og ríkisins funduðu í dag.

Stefna að því að samkomulag við alla aðila sé í höfn 29. júní
Viðræður Icelandair Group og íslenskra stjórnvalda vegna mögulegrar lánalínu eða tryggingar láns til félagsins eru á áætlun. Tímalína félagsins hefur þó verið uppfærð.

Semjið við hjúkrunarfræðinga strax!
Nú eru slétt fimm ár síðan ég leiddi hjúkrunarfræðinga í verkfalli sem endaði með lagasetningu og gerðadómi.

Vika í fyrirhugað verkfall hjúkrunarfræðinga
Samninganefndirnar funda hjá ríkissáttasemjara klukkan 14 í dag.

Boða til fundar á Suðurnesjum um kjaraviðræður á háannatíma á Keflavíkurflugvelli
Boðað hefur verið til fundar hjá Landssambandi lögreglumanna á Suðurnesjum í dag þar sem staða kjaraviðræðna lögreglumanna verður kynnt. Stjórn sambandsins mun funda í Reykjanesbæ klukkan 15 og verður svo haldinn almennur félagsfundur klukkan 16.