Reykjavík
1 2 3 4 5 6 … 334 ›
Steingleymdi að taka niður sólgleraugun Það vakti talsverða athygli á blaðamannafundi í Úlfarsárdal í gær þegar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var með sólgleraugu á meðan hún kynnti húsnæðisuppbyggingu í hverfinu. Lífið 30.10.2025 15:08
Ný nálgun – sama markmið: Heimili fyrir fólkið í borginni Það er fátt mikilvægara fyrir velferð fólksins í borginni okkar en að eiga öruggt heimili. Húsnæði er ekki bara fjárfesting, það er grunnurinn að lífi og samfélagi, staður þar sem við byggjum fjölskyldur, vináttu og traust. Skoðun 30.10.2025 14:31
„Þetta verður allt saman stórvarasamt í fyrramálið“ Búast má við miklum umferðartöfum á höfuðborgarsvæðinu í dag, og strætisvagnar eru víða ekki á áætlun. Gular viðvaranir eru í kortunum og veðurfræðingur á von á mikilli hálku á morgun, þegar snjó tekur að leysa. Veður 30.10.2025 11:50
Spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi á götunni Formaður reiðhjólabænda segir ökumenn ekki þurfa að sýna hjólreiðafólki einhverja sérstaka varúð heldur einfaldlega fara að umferðarlögum. Hann spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi sem neyðast til að ganga á götunni. Atvik í Spönginni þar sem ökumaður bíls keyrir utan í hjólreiðamann sem bregst við með skemmdarverkum hefur vakið mikla athygli. Innlent 30.10.2025 11:31
Var ofurölvi þegar hann hljóp yfir Reykjanesbraut Karlmaður á fimmtugsaldri, sem lést eftir að bíl var ekið á hann á Reykjanesbraut við Álfabakka í apríl á þessu ári, var ofurölvi þegar banaslysið varð. Maðurinn hafði skyndilega hlaupið út á Reykjanesbraut og hrasað í veg fyrir bíl. Innlent 30.10.2025 10:38
Vill sjá byggingakrana í Úlfarsárdal á næsta ári Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segir húsnæðispakkann, sem ríkisstjórnin kynnti í gær, tímamótapakka. Hún vonast til að geta séð byggingakrana í Úlfarsárdal, þar sem reisa á fjögur þúsund íbúðir, strax á næsta ári. Innlent 30.10.2025 09:22
Fagnar aðgerðum en telur húsnæðispakkann „fremur rýran“ Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segist fagna því að ríkisstjórnin setji aukna áherslu á húsnæðismál en henni þyki nýr húsnæðispakki ríkisstjórnar í heild „fremur rýr“. Rætt var við Guðrúnu í kvöldfréttum Sýnar í gær. Innlent 30.10.2025 08:35
Myndskeiðið segi ekki alla söguna Eigandi bifreiðar sem keyrði utan í hjólreiðamann við Spöngina í dag segir myndskeið af atvikinu ekki segja alla söguna. Ekki hafi verið ætlunin að keyra svo nálægt hjólinu og hjólreiðamaðurinn áður sýnt árásargirni. Innlent 29.10.2025 21:09
Vinstri grænir í Reykjavík gagnrýna leikskólaplan borgarinnar Félag Vinstri grænna í Reykjavík gagnrýnir harðlega tillögur borgarstjórnar í leikskólamálum en flokkurinn á sjálfur fulltrúa í borgarmeirihlutanum. Enginn hafi kosið þessar tillögur. Félagið vill frekar tímabundið rýmka ráðningarheimildir leikskóla og ráðast í ráðningarátak. Innlent 29.10.2025 20:25
Þúsundir nýrra íbúða og óvissu eytt: „Verið að einfalda og hagræða“ Ríkisstjórnin ætlar að fjölga íbúðum í Úlfarsárdal um fjögur þúsund, hlutdeildarlán verða aukin, regluverk einfaldað og fólki gert kleift að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán í tíu ár. Forsætisráðherra segir aðgerðirnar stuðla að lækkun húsnæðisverðs og byggingakostnaðar. Innlent 29.10.2025 19:45
„Alveg brjálaður yfir því að hann sé að hjóla á götunni“ Ökumaður sást keyra utan í hjólreiðamann við Spöngina í Reykjavík í dag. Pétur Jóhannesson var á keyrslu þar um fjögurleytið þegar atvikið átti sér stað. Innlent 29.10.2025 18:50
Svona lítur fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar út Forsætisráðherra segir fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sýna að hún þori og framkvæmi. Gengið sé í verk og gripið til aðgerða sem talað hafi verið um svo árum skipti. Innlent 29.10.2025 16:47
Eigandi skrifstofu í Kringlunni þarf að borga fyrir auglýsingar Eigandi skrifstofuhúsnæðis í Kringlunni þarf að taka þátt í kostnaði vegna auglýsinga- og kynningarstarfsemi Kringlunnar, þrátt fyrir að hafa í engu notið góðs af henni. Viðskipti innlent 29.10.2025 15:51
Ekki gefinn afsláttur á gjaldskyldu í snjókomu Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir samgöngustjóri Reykjavíkurborgar segir Bílastæðasjóð hafa sektað í gær eins og aðra daga. Hafi fólk athugasemdir við sektir sem það fékk í gær geti það sent beiðni um endurupptöku máls á Bílastæðasjóð. Neytendur 29.10.2025 14:02
Nýtt snjódýptarmet í Reykjavík í október Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, mældi nýtt met í snjódýpt í mælareit Veðurstofunnar á Bústaðavegi klukkan níu í morgun. Nýtt met fyrir snjódýpt í Reykjavík í október er nú 40 sentímetrar og bættust þannig þrettán sentímetrar við það met sem slegið var í gær þegar snjódýptin var mæld 27 sentímetrar. Veður 29.10.2025 13:54
Öryggisgæslu í Mjódd, núna, takk fyrir! Mér hefur verið tíðrætt um skiptistöðina í Mjódd, meðal annars vegna þess að ástand skiptistöðvarinnar lýsir svo vel áherslum vinstri-meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um langa hríð – bjástrað er við gæluverkefni en minni áhersla lögð á að veita borgarbúum úrvals grunnþjónustu. Skoðun 29.10.2025 13:32
Góður grunnur en ekki nóg til að opna Snjó kyngdi niður í Bláfjöllum líkt og annars staðar á suðvesturhorninu í gær og í fyrrinótt og má ljóst vera að styttist í að hægt verði að opna svæðið fyrir skíðaiðkun. Innlent 29.10.2025 12:54
Þurftu að halda peppfund á lygilegum óhappadegi Fjöldi árekstra í ófærðinni sem myndaðist í gær á höfuðborgarsvæðinu sló met að sögn þjónustuaðila. Lögregla segist vonsvikin með það hversu margir ökumenn hafi haldið út á vanbúnum bílum. Veðurstofa segir ekki von á slíku fannfergi á höfuðborgarsvæðinu í bráð. Innlent 29.10.2025 12:33
Lokuðu veginum um Kjalarnes vegna veðurs Búið er að loka veginum um Kjalarnes vegna veðurs og slæms skyggnis. Umferð er beint um Mosfellsdal og Kjósarskarð á meðan. Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar. Innlent 29.10.2025 12:20
Leita konu sem ók á konu og stakk af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns, sem vitni segja vera konu, sem ók á konu á rafmagnshlaupahjóli á hjólastíg við Hverfisgötu í Reykjavík, á móts við Þjóðleikhúsið, þriðjudagsmorguninn 7. október síðastliðinn rétt fyrir klukkan níu. Innlent 29.10.2025 11:58
„Græna gímaldið“ fer ekki fet Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum Búseta um að „græna gímaldið“ svokallaða í Álfabakka verði rifið. Innlent 29.10.2025 11:25
Gera ekki tilkall til höfuðborgartitils þótt Akureyri verði borg Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem verður kannski bráðum borgarstjóri, segir það skipta máli fyrir þá þjónustu sem er veitt á Akureyri og hvaða verkefni Akureyri fer með fyrir sitt nágrenni að bærinn verði borg. Verkefnin verði að vera vel skilgreind og það viðurkennt að Akureyri fari með þessi verkefni. Ef byggð eigi að vera á öllu landinu verði að tryggja öflugt atvinnulíf og þetta sé eitt skref að því. Innlent 29.10.2025 10:32
Lögreglumenn svekktir að sjá hversu margir hundsuðu fyrirmæli í gær Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir stöðuna enn erfiða í umferðinni. Sjálfur fór hann út klukkan sjö í morgun. Hann segir lögreglu svekkta í gær að sjá hversu margir fóru út á vanbúnum bílum í gær. Innlent 29.10.2025 08:41
Snjómokstur í fullum gangi en verkið er viðamikið Snjómoksturstæki hafa unnið að mokstri í alla nótt en þrátt fyrir það er færðin enn nokkuð þung og má búast við að umferðin gangi hægt framan af morgni. Innlent 29.10.2025 07:51
Vesturbæjarlaug opnuð enn eina ferðina eftir viðgerðir Barna- og aðallaug Vesturbæjarlaugar verða opnaðar aftur í fyrramálið en ráðist var í lagfæringar á þeim eftir að málning byrjaði að flagna í kjölfar umfangsmikilla viðhaldsframkvæmda í sumar. Opnunin er tilkynnt með fyrirvara um að veður leyfi. Innlent 28.10.2025 19:50
Eitt glæsilegasta hús Reykjavíkur til sölu Við Öldugötu í miðborg Reykjavíkur stendur tæplega 400 fermetra einbýlishús á þremur hæðum, byggt árið 1927. Húsið er steinað að utan með Hrafntinnu og Silfurbergi og telst eitt glæsilegasta og virðulegasta hús borgarinnar. Óskað er eftir tilboði í eignina. Lífið 28.10.2025 15:31
Kærðu umdeildar framkvæmdir allt of seint Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað kæru húsfélagsins að Grettisgötu 18, vegna framkvæmda á lóðinni við hliðina á, frá. Nágrannar hafa sagst hafa fengið upp í kok af framkvæmdunum og hrundið af stað undirskriftasöfnun vegna þeirra. Innlent 28.10.2025 15:07
Þarf að borga bætur þrátt fyrir breytingar á hlaupahjólinu Vís hefur verið gert að greiða manni bætur vegna slyss sem hann varð fyrir þegar hann lenti í árekstri við bifreið þegar hann var á rafhlaupahjóli. Tryggingafélagið hafði neitað að viðurkenna bótaskyldu sína vegna breytinga sem maðurinn hafði gert á hlaupahjólinu. Innlent 28.10.2025 14:00
Hvatt til varúðar vegna snjóflóðahættu á suðvesturhorninu Talsverð snjókoma hefur verið á suðvesturhorni landsins og áfram er spáð mikilli snjókomu í dag. Svæðisbundin snjóflóðaspá hefur verið uppfærð í appelsínugulan, sem þýðir töluverð hætta á snjóflóðum. Innlent 28.10.2025 13:34
Eldur í blokk við Ljósheima Eldur var laus í íbúð við Ljósheima í Reykjavík. Slökkvilið var kallað út 19 mínútur yfir 12 í dag og er enn vinna á vettvangi. Samkvæmt uplýsingum frá vakthafandi varðstjóra, Steinþóri Darra Þorsteinssyni, er ekki vitað til þess að neinn hafi slasast. Innlent 28.10.2025 12:39