Reykjanesbær
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 35 ›
Hrinan ekkert einsdæmi en von á skjálftum í einhverja daga „Þessi hrina er bara ennþá í gangi. Hún er á svipuðum slóðum og hún hefur verið, það er aðallega virkni við Fagradalsfjall,“ segir Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um stöðu mála á Reykjanesskaga. Innlent 27.2.2021 14:48
Yfirlýsing frá fjölskyldunni: „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði“ „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu konu sem lést í umsjá læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Læknirinn er grunaður um alvarleg mistök í starfi sem hafi leitt til andláts konunnar, líkt og fréttastofa hefur greint ítarlega frá. Fjölskyldan segir lækninn hafa sett móður þeirra á líknandi meðferð, án þess að forsendur væru fyrir því og án þess að upplýsa um meðferðina. Þau vilja að málið verði rannsakað sem manndráp. Innlent 24.2.2021 19:28
Læknirinn nú við störf hjá Landspítala Fyrrverandi læknir sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er nú við störf á Landspítalanum. Hann er ekki með starfsleyfi sem læknir. Kæra hefur verið lögð fram á hendur lækninum og lögreglurannsókn er hafin. Innlent 24.2.2021 18:37
Hættustigi lýst yfir Hættustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem gengur nú yfir. Hættustigið er sett á til að samhæfa aðgerðir ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Enn fremur er það sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum en ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sér að ræða. Innlent 24.2.2021 14:01
Suðvesturhornið nötrar og stærsti skjálftinn 5,7 að stærð Jörð hefur skolfið á suðvesturhorni landsins í morgun og virðist ekkert lát á skjálftavirkni. Fyrstu skjálftar fundust upp úr klukkan tíu og enn skelfur jörð þegar klukkan er að verða ellefu. Skjálftar hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu, vestur í Stykkishólm og austur á Helllu. Innlent 24.2.2021 10:07
Bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á lífslokameðferðum Læknir, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á svokölluðum lífslokameðferðum sem hann hafði umsjón með hjá stofnuninni, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hefur fréttastofa einnig heimildir fyrir því að athugasemdir hafi borist á hendur fleiri læknum hjá stofnuninni. Innlent 23.2.2021 20:49
Segir lækninn hafa neitað móður hans um meðferð Sonur aldraðrar konu sem þurfti að leita læknisaðstoðar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í kjölfar slyss segir að móður sinni hafi hreinlega verið neitað um meðferð af lækni hjá stofnuninni, en sá er grunaður um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum með þeim afleiðingum að minnsta kosti einn sjúklingur er látinn. Innlent 23.2.2021 18:51
Ráðherra segir NEI Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur glímt við verulegan vanda í áratugi. Þessi vandi er margþættur: mönnunarvandi, húsnæðisvandi, fjármögnunarvandi en einnig samskiptavandi sem oft hefur blossað upp og þá sett stofnunina í mjög erfiða stöðu. Skoðun 23.2.2021 10:31
Læknir grunaður um röð alvarlegra mistaka Fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sætir rannsókn vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka sem leiddu til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Málið er á borði lögreglu. Innlent 22.2.2021 18:31
„Mesta furða hvað fólk ber sig vel“ Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur (VSFK), segir Suðurnesjamenn bjartsýna og bera sig almennt nokkuð vel þrátt fyrir að atvinnuástandið þar sé það versta á landinu. Atvinnuleysi á Suðurnesjum mældist 24,5 prósent í janúar en þar að auki eru margir sem hafa verið þvingaðir í lægra starfshlutfall. Innlent 21.2.2021 16:07
Einkarekin heilsugæsla Heilbrigðisþjónusta á Suðurnesjum hefur mikið verið til umræðu og nýverið birtist niðurstaða úr þjónustukönnun sem sýndi að íbúar á Suðurnesjum bera ekki mikið traust til þeirrar heilbrigðisþjónustu sem þeim er boðið upp á. Skoðun 19.2.2021 07:01
Fleiri flugvélar lentu á Akureyri en á Keflavíkurflugvelli Það hefur sjaldan verið eins tómlegt á Keflavíkurflugvelli þar sem farþegum hefur fækkað enn frekar undanfarnar vikur. Nú ráfa nokkrir tugir og kannski í mestu örfá hundruð farþega um flugstöðina á meðan það voru þúsundir og jafnvel upp í tugþúsundir manna á ferð á hverjum degi. Innlent 18.2.2021 21:01
„Erfitt að bregðast við því þegar fólk er með svo einbeittan brotavilja“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að aukið eftirlit með komufarþegum á Keflavíkurflugvelli hafi meðal leitt til þess að fjölmargir panti leigubíl niður í bæ í Keflavík þangað sem ættingjar sækja þá. Innlent 18.2.2021 12:17
Vill leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og bæjarfulltrúi Beinnar leiðar, hefur gefið kost á sér til þess að leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Innlent 16.2.2021 14:28
Telur Alla með eitt af stærri forvarnaverkefnum sem ýtt hefur verið úr vör Reykjanesbær hrinti af stað stóru samfélagsverkefni á síðasta ári sem miðar að því öll börn fái tækifæri á að taka þátt í skipulögðu tómstundastarfi. Lögð er áhersla á jákvæð samskipti og hafa þegar verið gerð þrjátíu myndbönd til að kynna tómstundastarf í bænum. Innlent 13.2.2021 20:01
Heróínsmyglari kannaðist ekkert við fimmtán ára vinskap Michal Okapiec, þrítugur karlmaður búsettur í Reykjanesbæ, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi, að mestu skilorðsbundið, fyrir smygl á fíkniefnum og lyfjum, brot á vopnalögum og peningaþvætti. Félagi hans sem lögregla telur að hafi verið burðardýr í smyglinu fékk nýlega sex mánaða dóm fyrir sinn þátt. Innlent 12.2.2021 11:44
Ætla að auka virkni og vellíðan langtímaatvinnulausra Reykjanesbær ætlar á þessu ári að bjóða langtímaatvinnulausum úrræði sem felst í að auka vellíðan og virkni. Verkefnastjóri fjölmenningarmála segir mikilvægt að ná til þessa hóps. Innlent 31.1.2021 21:31
Gréta Björg og Guðmundur Kristján til Kadeco Guðmundur Kristján Jónsson og Gréta Björg Blængsdóttir hafa verið ráðin til Kadeco. Hefur Guðmundur Kristján verið ráðinn í stöðu viðskipta- og þróunarstjóra og Gréta Björg í starf fjármála- og skrifstofustjóra. Viðskipti innlent 26.1.2021 10:13
Þjösnaskapur Útlendingastofnunar Árið 2018 og 2019 gerði Nordregio sem er norræn rannsóknarstofnun, rannsókn á samfélögum á Norðurlöndum sem hafa hátt hlutfall íbúa af erlendum uppruna og valdi til þess eitt sveitarfélag í hverju landi. Skoðun 19.1.2021 12:00
Árið 2020 var sérstaklega erfitt hjá Viðari Skjóldal „Þetta var heldur betur árið sem átti að vera alveg frábært og í dag er ég giftur með þrjú börn og konu,“ segir Viðar Skjóldal, betur þekktur sem Enski, sem hefur verið fyrirferðamikill á Snapchat síðustu ár og vakið þar mikla athygli. Hann mætti í Harmageddon á X-inu í gær og fór yfir liðið ár. Lífið 15.1.2021 13:32
Drengurinn sem lögreglan leitaði að fundinn Uppfært: Drengurinn fannst heill á húfi. Innlent 13.1.2021 21:20
Tólf milljarða króna framkvæmdir að hefjast við stækkun Reykjanesvirkjunar HS Orka hefur ákveðið að hefja tólf milljarða króna framkvæmdir við stækkun Reykjanesvirkjunar. Verksamningar við þrjú verktakafyrirtæki, Ístak, Hamar og Rafal, verða undirritaðir næstkomandi föstudag. Viðskipti innlent 12.1.2021 22:52
Ekið á gangandi vegfarendur í Reykjanesbæ Ekið var á gangandi vegfarendur í Reykjanesbæ laust fyrir hádegi í dag. Tveir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi til aðhlynningar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu á Suðurnesjum. Innlent 7.1.2021 16:26
Segja viðtökur við hvalfirskum grjótkrabba frábærar Grjótkrabbi sem fannst fyrst í Hvalfirði fyrir um fjórtán árum er ný nytjategund hér á landi. Fyrirtækið Royal Iceland í Reykjanesbæ hefur þróað aðferðir til að vinna afurðir úr krabbanum og nú er konungleg krabbasúpa komin á innlendan markað. Eigendurnir segja viðtökurnar frábærar. Viðskipti innlent 2.1.2021 19:45
Vöknuðu við rúðurnar springa Talsverður eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi á Ásbrú í Reykjanesbæ í nótt. Tvö voru sofandi í íbúðinni þegar eldurinn kviknaði en vöknuðu þegar rúður sprungu vegna hita og komust óhult út, að sögn varðstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja. Víkurfréttir greindu fyrst frá málinu á Facebook-síðu sinni í morgun. Innlent 1.1.2021 17:18
Asbest-klæðning í útihúsi sem brann til kaldra kola í nótt Útihús við Merkines í Höfnum á Reykjanesi varð alelda í nótt. Allt tiltækt slökkvilið frá Bunavörnum Suðurnesja auk lögreglu var kallað til vegna eldsins en hlaðan þar sem eldurinn kom upp er brunnin til kaldra kola. Asbest var í klæðningu hlöðunnar sem brann. Innlent 31.12.2020 11:47
Að vera tryggður en samt ekki Með vinnuframlagi sínu tryggja launamenn framlag í Atvinnuleysistryggingasjóð sem er fjármagnaður með skyldugreiðslu tryggingagjalds, sem m.a. er nýtt til fjármögnunar sjóðsins og Fæðingarorlofssjóðs. Skoðun 23.12.2020 15:01
Hin sex ára Elena Mist safnaði 40 þúsund krónum á Instagram Elena Mist, sex ára í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ, er að fylgjast með Öðruvísi jóladagatali SOS Barnaþorpanna í fyrsta sinn. Lífið 23.12.2020 14:30
Rúmlega tvö hundruð í sóttkví fyrir jól eftir smit í skóla Rétt tæplega tvö hundruð börn og fjörutíu starfsmenn úr tveimur skólum í Reykjanesbæ eru í sóttkví eftir að covid-19 smit kom upp á báðum skólum. Þeir sem eru í sóttkví fara ekki í skimun fyrr en á aðfanga- og jóladag. Innlent 20.12.2020 17:28
4,1 stiga skjálfti á Reykjanesskaga Um klukkan 4.30 í morgun varð jarðskjálfti af stærð 4,1 um átta kílómetra norðaustur af Reykjanestá. Tilkynningar bárust af Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu um að skjálftinn hefði fundist þar. Innlent 16.12.2020 05:38