Árborg

Krummalaupur á Selfossi með sex ungum í beinni útsendingu
Þetta er fimmta vorið í röð sem krummapar kemur uppi laupi ofan við skilti Byko á Selfossi. Misjafn hefur verið eftir árum hvað ungarnir eru margir en nú hafa öll met verið slegið því þeir eru sex talsins. Vefmyndavél er við laupinn þannig að það er hægt að fylgjast með foreldrunum fóðra ungana sína og sjá hvernig þeir braggast allan sólarhringinn.

Fyrsti mygluleitarhundur landsins tekin til starfa
"Hann sýnir mér hvar myglan er, hann stendur kyrr og bendir og það gefur okkur vísbendingu um hvar við getum þá leitað af myglunni“, segir Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir, hundaþjálfari, sem á fyrsta mygluleitarhund landsins.

71 prósent Selfossliðsins var ekki fætt þegar að liðið fór síðast í úrslit
Selfoss spilar til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handbolta.

„Við tökum allar kvartanir um áreitni á vinnustaðnum mjög alvarlega“
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir að stofunin taki allar kvartanir um áreitni á vinnustaðnum mjög alvarlega.

Fyrrverandi yfirmaður sjúkraflutninga á Suðurlandi talinn hafa áreitt samstarfskonur kynferðislega
Fyrrverandi yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands er talinn hafa áreitt fjórar samstarfskonur sínar kynferðislega. Þetta er niðurstaða athugunar sérfræðinga.

Á möguleika á að endurheimta peningana sína þökk sé skilvísri eldri konu
Lögreglan á Suðurlandi auglýsir eftir eiganda peninga sem virðist hafa glatað þeim nærri Nettó á Selfossi á verkalýðsdaginn í gær, 1. maí.

Hundrað konur í Zumba í sundi á Selfossi
"Líkaminn er í rauninni bara einn sjöundi af eigin þyngd með vatn upp öxlum, þannig að ef þú ert sjötíu kíló þá ertu bara 10 kíló, þannig að þetta hentar rosalega mörgum, sérstaklega þeim sem eiga við einhvern stoðkerfisvanda“, segir Elísabet Kristjánsdóttir, stofnandi Vatns og heilsu á Selfossi, sem fagnar 20 ára afmæli þessa dagana.

Gæsluvarðhald framlengt vegna brunans á Selfossi: Ekki fallist á að fyrri úrskurðir væru ógildir vegna dóms MDE
Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa valdið eldsvoðanum á Selfossi þann 31. október á síðasta ári sem varð tveimur að bana.

Skammarstrik Katrínar Jakobsdóttur
"Ég er bara mjög fegin að mín skammarstrik eða mín hegðun á þessum tíma er ekki geymd að eilífu á Internetinu, ég er bara stórkostlega fegin, þið megið bara vera fegin líka,“ sagði forsætisráðherra og skellti upp úr á opnum stjórnmálafundi á Hótel Selfossi.

Skrópuðu í skólanum til að mótmæla á Selfossi
Fjöldi nemenda í efstu bekkjum Sunnulækjarskóla á Selfossi mætti á ráðhúströppurnar við Ráðhús Árborgar á Selfossi og létu í sér heyra, bæði með hvatningarópum og kröfuspjöldum, sem þau báru.

Iðn, verk og tækninám slær í gegn á Suðurlandi
Starfamessa var haldin miðvikudaginn 10. apríl í verknámshúsinu Hamri sem er hluti af Fjölbrautaskóla Suðurlands á vegum Atorku, sem er samtök atvinnurekenda á Suðurlandi, Samtökum Sunnlenskra sveitarfélaga og Sóknaráætlun Suðurlands.

Peningarnir komust frá Hörpu til lögreglu á Suðurlandi
Erlendur ferðamaður kom á lögreglustöðina á Selfossi í dag með peninga sem hann fann við tónlistarhúsið Hörpu í miðbæ Reykjavíkur.

Kraftlyftingakonur sem borða lambakjöt og hafragraut
Tvær kraftlyfingakonur á Selfossi komu heim hlaðnar af verðlaunapeningum en þær kepptu báðar á Special Olympics í Abu Dhabi. Báðar segjast þær vera svona sterkar því þær séu úr sveit og borði lambakjöt og hafragraut.

Matarsóun er þriðji stærsti losunarvaldurinn á kolefni
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur áhyggjur af því að matarsóun í heiminum sé þriðji stærsti losunarvaldurinn í heiminum yfir kolefni og leggur áherslu á að stjórnvöld axli þá ábyrgð að dragi vagninn með markmiðum í loftlagsmálum.

Tveir Íslendingar fá heilablóðfall á dag
Heilablóðfall verður þegar æð sem flytur súrefnis- og næringarríkt blóð til ákveðins svæði heilans stíflast eða springur. Um tveir Íslendingar fá að meðaltali heilablóðfall á dag en sú tala fer þó sífellt lækkandi.

Allt stopp á Suðurlandsvegi vegna bíls sem þveraði veginn
Löng bílaröð myndaðist á Suðurlandsvegi í austur í grennd við Litlu kaffistofuna nú á sjönda tímanum.

Hrefna og Hrafn í beinni útsendingu allan sólarhringinn frá Selfossi
Nú er hægt að fylgjast allan sólarhringinn með hröfnunum Hrefnu og Hrafni í gegnum vefmyndavél við verslun Byko á Selfossi en fuglarnir eru að útbúa Laup og undirbúa varp við verslunina.

Lóan er komin að kveða burt snjóinn og leiðindin
Heiðlóan er komin til landsins – og vorið með – en þrjár lóur sáust í Stokkseyrarfjöru í gær, 28. mars.

Þrjár landsliðskonur á hestabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands
Hestabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands nýtur mikilla vinsælda en 25 nemendur eru á brautinni, þarf af þrjár landsliðskonur í hestaíþróttum.

Þingmaður VG: Sveitarfélögin geta lækkað leikskólagjöld eða fryst þau
Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna segir mikilvægt að sveitarfélög landsins komi að þeim kjaraviðræðum, sem standa nú yfir.

Rúta hafnaði utan vegar undir Ingólfsfjalli
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi var bílstjórinn einn í bílnum en slasaðist ekki.

Dæmd til að greiða tæpar 11 milljónir í bætur vegna leyndra galla á húsi
Kaupendur töldu sig vera að fá vandaða eign þar sem fagmenn höfðu séð um frágang, svo reyndist ekki vera.

Fokheldur menningarsalur á Selfossi í 33 ár
"Já, mér finnst þessu vel lýst sem einu best geymda leyndarmáli Suðurlands. Það er ljóst að það þarf ekki mikið til svo hér geti verið mikil og blómleg menningarstarfsemi og ég veit auðvitað að það er mikill áhugi á því í héraði", segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra um ófullgerðan Menningarsal Suðurlands, sem hefur staðið fokheldur í 33 ár í Hótel Selfossi.

Vinna úr gögnum alla næstu viku
Tókst ekki að staðsetja bíl Páls Mars í Ölfusá í dag.

Leita bíls með fjölgeislamæli
Svæðisstjórn björgunarsveita á svæðinu mun funda með lögreglu um framhaldið eftir helgi.

Næsta stóra aðgerð í Ölfusá verður með fjölgeisla
Leit hefur staðið í allan dag af Páli Mar Guðjónssyni, sem talið er að hafa ekið í Ölfusá fyrir neðan Hótel Selfoss á mánudagskvöld. Leit dagsins bar ekki árangur.

Leit hætt í Ölfusá án árangurs
Leit í Ölfusá að manni sem talinn er hafa farið í ána 25. febrúar hefur verið hætt. Fundað verður um framhaldið.

Nýtt heimili á Selfossi fyrir börn með fjölþættan vanda
Á Selfossi hefur tekið til starfa heimili fyrir börn með fjölþættan vanda og langvarandi stuðningsþarfir.

Leit heldur áfram í dag
Áfram verður leitað að Páli Mar Guðjónssyni í Ölfusá í dag.

Drónaleit í Ölfusá í dag
Björgunarsveitarmenn munu leita með drónum í Ölfusá í dag en leitað er af Páli Mar Guðjónssyni, sem talið er að hafa ekið í ánna fyrir neðan Hótel Selfoss mánudagskvöldið 25. febrúar.