Hælisleitendur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 33 ›
Elva Hrönn hættir í VG Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi meðlimur stjórnar Vinstri grænna og varaformaður þeirra í Reykjavík, sagði sig úr flokknum fyrr í dag. Hún segist ekki geta kennt sig við hreyfingu „sem samþykkir þau mannréttindabrot sem nýsamþykkt útlendingafrumvarp felur í sér.“ Innlent 16.3.2023 21:21
Dólgslega góð Samfylking Nýlega datt ég óvænt inn á þing sem varaþingmaður fyrir Eyjólf Ármannsson í Flokki fólksins. Það hefur að öllu leyti verið skemmtilegur tími, sérstaklega að vinna með frábærum þingflokki og framúrskarandi starfsfólki Flokks fólksins. Það hefur jafnframt verið ánægjulegt að rekast á gamla kunningja í þingliði og starfsfólk þingsins. Skoðun 16.3.2023 19:01
Varaþingmaður VG tekur þung skref og segir sig úr flokknum Varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sagði sig úr flokknum nokkrum mínútum eftir að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt í gær. Hann ætlar ekki að taka sæti aftur á þingi jafnvel þótt hann yrði kallaður inn. Innlent 16.3.2023 11:48
Útlendingafrumvarpið samþykkt Meirihluti Alþingis hefur samþykkt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Fjölmargar breytingartillögur voru lagðar fram á Alþingi í dag en þær voru jafnóðum felldar. Minnihlutaþingmenn voru ómyrkir í máli og gagnrýndu meirihlutann harðlega. Innlent 15.3.2023 20:47
Breytingartillögur felldar jafnóðum Þingmenn úr minnihluta Alþingis hafa lagt fram fjölmargar breytingartillögur á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á fundi sem nú stendur yfir. Meirihluti þingmanna hefur fellt tillögurnar jafnóðum. Innlent 15.3.2023 19:17
Mótmælt fyrir utan Alþingi Hópur flóttamanna frá Írak stendur fyrir mótmælum fyrir utan Alþingi í dag vegna umdeilds frumvarps Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Greidd verða atkvæði um frumvarpið á þingi í dag. Innlent 15.3.2023 16:50
Frumvarpið sé illa úthugsað og afleiðingarnar óljósar: „Þetta er mikil afturför“ Allar líkur eru á að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verði að lögum frá Alþingi eftir daginn í dag en lokaatkvæðagreiðsla fer fram síðdegis. Þingmaður Pírata segir að í grunninn sé um að ræða pólitíska yfirlýsingu sem lýsi tortryggni og jafnvel andúð í garð fólks á flótta. Flóttamenn hafa boðað mótmæli fyrir utan Alþingi í dag vegna málsins og munu Píratar gefa stjórnarliðum lokatækifæri til að skipta um skoðun á eftir. Innlent 15.3.2023 13:01
Lokaatkvæðagreiðsla um útlendingafrumvarpið á morgun Þriðju umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lauk á Alþingi skömmu eftir klukkan sex nú síðdegis. Atkvæðagreiðslu var frestað en hún fer fram á morgun klukkan korter yfir fimm. Verði frumvarpið samþykkt verður það að lögum frá Alþingi. Innlent 14.3.2023 19:45
Mörg ríki með verra drykkjarvatn en Venesúela að mati Birgis Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði gæði drykkjarvatns í Venesúela að umtalsefni á opnum nefndarfundi á Alþingi í dag þar sem rætt var um alþjóðleg vernd vegna aðstæðna í Suður-Ameríkuríkinu. Formaður kærunefndar útlendingamála benti Birgir hins vegar á að heildarmat á aðstæðum þar í landi benti til algjörs hruns réttarkerfisins. Innlent 14.3.2023 11:11
Bein útsending: Opinn nefndarfundur um alþjóðlega vernd vegna aðstæðna í Venesúela Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund milli klukkan 9:10 og 10 í dag þar sem fundarefnið er alþjóðleg vernd vegna aðstæðna í Venesúela. Innlent 14.3.2023 08:40
Söfnun fyrir ungbörn fer vel af stað Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir söfnun á barnafatnaði og öðrum nauðsynjum fyrir nýbura hafa farið vel af stað. Konur sem hafi fengið hæli hér á landi skorti oft þessa hluti og hafi einnig ekki alltaf áttað sig á veðurfarinu á Íslandi. Innlent 10.3.2023 11:42
Ísland sem söluvara Staðan í hælisleitendamálum á Íslandi er stjórnlaus. Dómsmálaráðherra hefur nú viðurkennt þetta ítrekað sem og að þetta sé afleiðing af stefnu íslenskra stjórnvalda. Enn bendir þó fátt til þess að stjórnvöld geri sér grein fyrir eðli og umfangi vandans. Skoðun 13.2.2023 18:00
Fólk komi ekki frá Venesúela til að nýta velferðarkerfið Ekkert bendir til þess að fólk frá Venesúela komi til Íslands þess að misnota velferðarkerfið í stórum stíl segir þingkona Pírata. Það hryggi hana að menn ýti undir fordóma með slíkum málflutningi. Myndband frá ferðaskrifstofu í Venesúela lofar fólki sem fer til Íslands öllu fögru. Innlent 12.2.2023 21:30
Útlendingafrumvarpið loks komið til lokaafgreiðslu í fimmtu tilraun Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum var samþykkt í dag að lokinni annarri umræðu á Alþingi, eftir ríflega hundrað klukkustunda umræður. Allar breytingatillögur stjórnarandstöðunnar voru felldar. Innlent 9.2.2023 19:20
Hætta málþófi um útlendingafrumvarpið Þingmenn Pírata eru hættir málþófi útlendingafrumvarpið svokallaða frá dómsmálaráðherra. Lítið sem ekkert annað hefur verið rætt á þingi á þessu ári en nú telja þingmennirnir að fullreynt sé að opna augu stjórnarliða um frumvarpið og galla þess. Píratar segja það skerða réttindi fólks á flótta. Innlent 8.2.2023 17:31
Stríð ríkisstjórnarinnar gegn mannréttindum Undanfarnar vikur hefur mikið verið rætt um meint málþóf Pírata. Það er rétt að við höfum tekið dágóðan tíma í að ræða útlendingafrumvarpið inni á þingi, en tilgangurinn með því var að gera heiðarlega tilraun til þess að fá samstarfsfólk okkar þar til að hlusta. Skoðun 8.2.2023 17:00
Örfáir þingmenn hafi tekið þingið í gíslingu svo dögum skiptir Umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er enn og aftur á dagskrá þingsins í dag en tillaga um að taka málið af dagskrá var felld og tillaga um að lengja þingfund samþykkt. Fjármálaráðherra sagði stjórnarandstöðuna beita sér í grímulausu málþófi undir því yfirskini að greiða fyrir störfum þingsins. Innlent 7.2.2023 15:31
Þingfundi slitið klukkan tvö í nótt Þingfundi var slitið klukkan tvö í nótt en þá hafði framhald annarrar umræðu um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra staðið yfir í tíu klukkustundir. Innlent 2.2.2023 06:17
„Píratar stýra ekki þinginu, þeir eru ekki í meirihluta“ Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum í tugi klukkustunda frá því þing kom saman eftir jólahlé í síðustu viku. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Pírata, sem hafa látið að sér kveða í umræðum um málið, ekki stýra þinginu. Innlent 1.2.2023 22:24
Stjórnarandstaðan vill sjá á spilin: „Mér er gjörsamlega misboðið“ Önnur umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra stendur nú yfir á Alþingi en ákveðið var að lengja þingfundinn í dag. Þingmenn Pírata og Samfylkingarinnar vildu að hlé yrði gert á umræðunni þar sem meirihlutinn hefur boðað breytingar. Einn þingmaður Pírata sagði þau eiga skilið að sjá á spilin og annar sagði stjórnarliðum ekki treystandi. Fjármálaráðherra sagði minnihlutann snúa öllu á hvolf. Innlent 1.2.2023 18:35
Píratar vilja þrýsta útlendingafrumvarpi aftur til nefndar Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um útlendingalög í þrjátíu og eina klukkustund frá því Alþingi kom saman eftir áramót. Þingflokksformaður Pírata segir frumvarpið meingallað og brjóta á mannréttindum flóttafólks. Stjórnarflokkarnir gætu lokið umræðunni með því að kalla málið aftur til nefndar til lagfæringar. Innlent 1.2.2023 18:07
Ekki við mótmælendur að sakast hvernig fór við brottvísun Hussein Embætti ríkislögreglustjóra hafnar því að þau kenni mótmælendum um hvernig fór þegar flóttamanninum Hussein Hussein var vísað úr landi. Áætlanir hafi breyst eftir að boðað var til mótmæla, sem hefðu getað verið fjölmennari en raun bar vitni. Embættið beri ábyrgð og ekki sé við mótmælendur að sakast. Innlent 1.2.2023 11:57
Sema segir ríkislögreglustjóra „ljúga upp á almenna borgara“ Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris og baráttukona fyrir réttindum flóttafólks, sakar ríkislögreglustjóra um að ljúga opinberlega upp á almenning í svörum sínum við erindi umboðsmanns Alþingis. Innlent 1.2.2023 06:24
Leitar að hjólastólavænum bíl fyrir brottvísanir Ríkislögreglustjóri bindur vonir við að embættið geti fest kaup á eða leigt bifreið, sem hentar fólki sem notast við hjólastól, á fyrri hluta þessa árs. Slíka bifreið sé nauðsynlegt fyrir embættið að hafa þurfi það að flytja einstaklinga í hjólastól. Innlent 31.1.2023 10:31
Grasrót gegn útlendingafrumvarpi Enn er reynt að þröngva frumvarpi um útlendinga í gegn um þingið með örlitlum breytingum. Umrætt frumvarp einkennist af útlendingaandúð og virðist hafa það eitt að markmiði að neita fleirum, enn hraðar, um hæli. Skoðun 27.1.2023 11:31
66 umsækjendur af 178 sem sögðust börn metnir fullorðnir Frá árinu 2014 hafa 178 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd hér á landi sem fylgdarlaus börn. Eftir gagnaöflun og aldursgreiningu voru 78 metnir sem börn en 66 sem fullorðnir. Innlent 25.1.2023 11:57
Segir dómsmálaráðherra bjóða upp á útvatnað ræksni Þingmenn fluttu tæplega hundrað og fimmtíu ræður á um átta klukkustundum um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra á Alþingi í gær. Formaður Miðflokksins kallar frumvarpið ræksni málamiðlana milli skynsemishyggju og fullkominnar vitleysu. Innlent 25.1.2023 11:41
Bara útlendingafrumvarp á dagskrá: „Alveg ljóst að margir hyggjast taka til máls“ Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er eina málið á dagskrá á fyrsta þingfundi ársins í dag og forseti Alþingis gerir jafnvel ráð fyrir að þannig verði það áfram í vikunni. Það stefnir í mikil átök en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sagt að frumvarpið megi ekki samþykkja óbreytt. Innlent 23.1.2023 12:01
Útlendingafrumvarpið eina þingmálið á dagskrá Alþingi kemur saman á ný í dag og hefst þingfundur klukkan 15. Á dagskrá er óundirbúinn fyrirspurnartími og önnur umræða um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Innlent 23.1.2023 06:54
Fólk á flótta svelt til hlýðni Ein af tillögum dómsmálaráðherra í útlendingafrumvarpinu er að svipta umsækjendur réttindum 30 dögum eftir að ákvörðun verður „endanleg á stjórnsýslustigi”. Á mannamáli þýðir þetta að eftir að kærunefnd útlendingamála hefur skilað sinni niðurstöðu um umsóknina gilda réttindi umsækjandans aðeins í 30 daga í viðbót. Þetta á ekki bara við um fæði og húsaskjól, heldur einnig heilbrigðisþjónustu. Skoðun 20.1.2023 15:30