Norski handboltinn

Sigvaldi og Janus öflugir í stórsigri Kolstad
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Janus Daði Smárason og félagar þeirra í Kolstad unnu stórsigur á Sandnes í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

„Mikill metnaður til að ná hærra og gera meira“
Halldór Stefán Haraldsson kveðst spenntur fyrir því að taka við karlaliði KA. Honum fannst vera kominn tími á nýja áskorun eftir sjö ár með kvennalið Volda í Noregi.

Janus Daði og Sigvaldi í aðalhlutverkum þegar Kolstad vann stórsigur
Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson áttu báðir góðan leik fyrir Kolstad sem vann stórsigur í norsku úrvalsdeildinni í dag. Fleiri Íslendingar voru í eldlínunni með sínum liðum.

Orri og félagar stálu sigri gegn Arendal
Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í norska meistaraliðinu Elverum unnu dramatískan eins mark sigur gegn Arendal í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-32.

Samningi Lovísu í Noregi rift
Lovísa Thompson, landsliðskona í handbolta, mun ekki klára tímabilið með Tertnes í Noregi en samningi hennar þar var rift þar sem hún er að glíma við meiðsli og er frá keppni.

Þrjú íslensk mörk í tapi Volda
Lið Volda tapaði með níu mörkum gegn Fana í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Rakel Sara Elvarsdóttir og Dana Björg Guðmundsdóttir komust á blað hjá Volda í kvöld.

Þórir Hergeirsson þjálfari ársins í Noregi
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, var í gærkvöldi valinn þjálfari ársins á Idrettsgallaen, uppgjörshátíð norskra íþrótta.

Fór í lið með litla sögu en stóra drauma: „Lokamarkmiðið að vinna Meistaradeildina“
Janus Daði Smárason var einn af sex leikmönnum sem kynntir voru til leiks þegar norska félagið Kolstad tilkynnti um áform sín að ætla sér að verða stórveldi í evrópskum handbolta. Hann var einn af fjórum leikmönnum sem gekk til liðs við félagið í sumar og liðið trónir nú á toppi norsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga að fjórtán umferðum loknum.

Stórkostlegur Sigvaldi Björn í enn einum sigri Kolstad
Sigvaldi Björn Guðjónsson kom, sá og sigraði þegar Kolstad vann níu marka sigur á Haslum í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 40-31 og Kolstad enn með fullt hús stiga.

Lovísa í norsku úrvalsdeildina
Landsliðskonan Lovísa Thompson er genginn til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Tertnes. Lovísa er samningsbunin Val, en verður á láni hjá norska félaginu út tímabilið.

Þrjú íslensk mörk þegar Volda tapaði stórt
Þrír íslenskir leikmenn skoruðu fyrir Volda í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Liðið tapaði stórt gegn Molde og situr í þriðja neðsta sæti deildarinnar.

Gerðu sér vonir um að spila um verðlaun ef allt gengi upp en unnu svo mótið
Þórir Hergeirsson gerði sér vonir um að norska kvennalandsliðið í handbolta myndi spila um verðlaun á EM í Slóveníu, Norður-Makedóníu og Svartfjallalandi enda höfðu fjórir lykilmenn helst úr lestinni frá síðasta stórmóti, HM 2022.

Norsku Evrópumeistararnir skipta með sér 51 milljón í sigurbónus
Leikmenn norska kvennalandsliðsins í handbolta skipta með sér 3,6 milljónum norskra króna í bónus fyrir sigurinn á EM. Það jafngildir tæplega 51 milljónum íslenskra króna.

Sigvaldi markahæstur og Kolstad enn með fullt hús stiga
Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæsti maður vallarins með sex mörk er Íslendingalið Kolstad vann öruggan tíu marka sigur gegn Runar í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 36-26.

Janus fór á kostum í naumum sigri gegn meisturunum
Janus Daði Smárason var allt í öllu í sóknarleik Kolstad er liðið vann nauman tveggja marka sigur gegn Noregsmeisturum Elverum í Íslendingaslag norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag, 26-24.

Ómar Ingi og Gísli Þorgeir atkvæðamiklir í dramatísku tapi
Þýsku meistararnir í Magdeburg biðu lægri hlut fyrir Flensburg í stórleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad
Íslendingalið Kolstad komst örugglega áfram í undankeppni Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld.

Íslendingalið Kolstad byrjar á sigri
Landsliðsmennirnir Sigvaldi Björn Guðjónsson og Janus Daði Smárason byrja tímabilið í Noregi á sigri en þeir gengu í raðir ofurliðs Kolstad í sumar. Liðið lagði Nærbø naumlega í kvöld með tveggja marka mun, lokatölur 29-27.

Janus og Sigvaldi fóru á kostum í Evrópusigri Kolstad
Landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson áttu báðir frábæran leik er norska verðandi ofurliðið Kolstad vann tveggja marka sigur gegn Drammen í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í handbolta í gær, 28-26.

Sigvaldi verður fyrirliði norska ofurliðsins
Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur verið útnefndur fyrirliði norska handboltaliðsins Kolstad. Hann mun deila hlutverkinu með Norðmanninum Vetle Eck Aga.

Aron Dagur og Orri Freyr meistarar í Noregi
Elverum varð í kvöld norskur meistari í handbolta karla en liðið tryggði sér titilinn með 34-28 sigri sínum gegn Arendal.

Elverum mistókst að tryggja sér norska meistaratitilinn á heimavelli
Elverum tapaði leik þrjú í úrslitaeinvígi norska handboltans á heimavelli gegn Arendal, 25-30.

Elverum tók fyrsta úrslitaleikinn gegn Arendal
Orri Freyr Þorkelsson, Aron Dagur Pálsson og félagar í Eleverum eru komnir 1-0 yfir í úrslitaeinvígi um norska meistaratitilinn eftir 32-28 sigur í fyrsta einvígi liðanna.

Orri og Aron í úrslit
Orri Freyr Þorkelsson og Aron Dagur Pálsson, leikmenn Elverum, eru komnir áfram í úrslitaeinvígið um norska meistaratitilinn í handbolta eftir stórsigur á Nærbø í undanúrslitum, 40-28. Elverum vinnur einvígið samanlagt 3-0.

Íslendingalið Elverum norskur bikarmeistari
Elverum er norskur bikarmeistari í handbolta.

Orri skoraði fimm og Elverum er einum sigri frá úrslitum
Orri Freyr Þorkelsson átti góðan leik er norsku meistararnir í Elverum unnu öruggan tíu marka sigur í undanúrslitum norsku úrslitakeppninnar gegn Nærbø í handbolta í kvöld, 34-24. Elverum hefur nú unnið fyrstu tvær viðureignir liðanna og er því aðeins einum sigri frá úrslitaeinvíginu.

Sú efnilegasta fer til Noregs eftir tímabilið
Rakel Sara Elvarsdóttir, leikmaður Íslandsmeistara KA/Þórs, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Volda í Noregi.

Elverum áfram í undanúrslit
Elverum er komið áfram í undanúrslit í úrslitakeppninnar í norska handboltanum eftir 21-38 sigur á útivelli gegn Baekkelaeget.

Orri Freyr og Aron Dagur einum sigri frá fullkomnu tímabili
Arri Freyr Þorkelsson, Aron Dagur Pálsson og félagar þeirra í Elverum eru enn með fullt hús stiga þegar aðeins ein umferð er eftir af norsku deildinni í handbolta, en liðið vann fimm marka sigur gegn Kristiansand fyrr í dag, 38-33.

Íslensku handboltamennirnir sigursælir
Nokkrir íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni með liðum sínum í evrópskum handbolta í dag.