
Píratar

Börn á sakaskrá
Ofbeldi hefur mikið verið í umræðunni og hefur verið rætt um börn og ungmenni sem að beita ofbeldi. Sumir hugsa kannski, þetta hefur alltaf verið svona það er engin breyting á ofbeldishegðun barna og ungmenna á Íslandi. Staðreyndin er þó sú að það er breyting.

Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig, VG dalar
Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig mestu fylgi á milli mánaða samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu. Vinstri græn er eini stjórnarflokkurinn sem tapar fylgi á milli skoðanakannana.

Hvaða laun hafa hækkað?
Það hefur stundum verið sagt að það sé ekki hægt að bæði borða kökuna og eiga hana. Samtök atvinnurekenda bregðast gjarnan harkalega við þegar kemur að kjaraviðræðum og samtök launþega leggja fram sínar kröfur. Sérstaklega þegar kemur að lægstu launum og óskað er eftir leiðréttingu á þeim.

Biður forsætisnefnd um hvítan Monster á Alþingi
Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata hefur sent forsætisnefnd Alþingis formlegt erindi þess efnis að orkudrykkurinn Monster Ultra Energy White, betur þekktur sem hvítur Monster, verði gerður aðgengilegur í mötuneyti Alþingis.

Telur ummæli um virkjanaþörf óábyrg
Þingmaður Pírata segir ummæli formanns starfshóps sem vann skýrslu um orkumál óábyrg en hann sagði að ef við ætlum að tvöfalda raforkuframleiðslu Íslands þurfi að reisa eina 100 megawatta virkjun á ári fram til ársins 2040. Þingmaðurinn segir vel hægt að ná markmiðum um orkuskipti án virkjana.

Vill að úkraínskt flóttafólk fái atvinnuleyfi við komuna til landsins
Þingmaður Pírata segir nauðsynlegt að flóttafólk frá Úkraínu fái atvinnuleyfi við komuna til landsins. Hann segir stjórnvöld vísa fólki leið sem feli í sér minni réttindi en það eigi rétt á. Búist er við að tvö til fimm þúsund úkraínskir flóttamenn muni leita hingað til lands á næstunni.

Eintómt bla, bla, bla um loftslagsmál!
Ríkisstjórnin ætlar að setja Íslandi sjálfstætt markmið um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, samkvæmt stjórnarsáttmála. Illa hefur gengið að fá skýringar á því hvernig það markmið muni líta út.

Sigurbjörg og Dóra leiða Pírata í Kópavogi og Reykjavík
Nú liggur fyrir uppröðun á efstu sætum lista Pírata í Reykjavík og Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Dóra Björt Guðjónsdóttir leiðir listann í Reykjavík en Sigurbjörg Erla Egilsdóttir leiðir í Kópavogi.

Samskipta- og upplýsingatækni og grænn ferðamáti – eru allir á sömu línu?
Nú á 21. öldinni er samfélagið okkar að taka hröðum breytingum á mörgum sviðum. Alþjóðavæðing, stefanan um skóla án aðgreiningar, stefnan um sjálfstætt líf, grænni hugsun og svo mætti áfram telja. Allar þessar breytingar eru af hinu góða og liður í átt að betra samfélagi. En er ekki nauðsynlegt að skoða málin oft betur, til að sem flestir geti notið þeirra?

Vökvum nærandi rætur grænnar og réttlátrar Pírataborgar
Reykjavík hefur á kjörtímabilinu tekið stór og mikilvæg skref fyrir tilstilli Pírata. Skref í átt að meira gagnsæi, eflingu lýðræðis og dreifingu valds, bættu eftirliti, að loftslagsmál móti alla ákvarðanatöku, í átt að aukinni mannréttinda- og dýravernd, skaðaminnkun og bættum lífsgæðum jaðarsettra hópa.

Stríð eru óskynsamleg
Vegna frétta síðustu daga er stríð okkur mörgum ofarlega í huga. Þau eru hrikaleg og heimskuleg, og aldrei réttlætanleg nema mögulega í sjálfsvörn eða vörn fyrir aðra.

Stytting vinnuvikunnar í borginni
Mig langar að segja ykkur frá því sem hefur breytt einna mest fyrir mig í vinnunni en það er stytting vinnuvikunnar. Frá 1. janúar 2021 hef ég hef ég getað styttað vinnudaginn 4 klukkustundir miðað við 100% vinnu.

Sagan endalausa í Norðvestur
Fyrir fólk á mínum aldri fylgir nokkur sælutilfinning að rifja upp ævintýrið Söguna endalausu sem fjallar samhliða um raunir Bastian, hinn hugrakka Atreyu, óskadrekann Falkor og fleiri verur Fantasíu í baráttunni við Ekkertið. Það er hins vegar óhætt að segja að það fylgi því engin sælutilfinning þegar hremmingarnar við talningu í Norðvesturkjördæmi séu rifjaðar upp, hremmingar sem enn hefur ekki verið leyst úr.

Borgarskipulag gegn félagslegri einangrun
Síðasta vor fékk ég miða inn um lúguna um að fólkið í götunni ætlaði að koma saman einn dag og tína rusl í nágrenninu.

Tónlistarborgin
Fyrsta stefnumótunin sem ég fór fyrir var að skrifa stefnu um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík til 2030, með góðu liðssinni bæði borgarfulltrúa og starfsfólks á skóla- og frístundasviði.

Baráttan um ókyngreind salerni og innleiðingu laga um kynrænt sjálfræði skilar árangri
Barátta mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur gegn úreldum reglugerðum hefur staðið yfir síðan 2018 við upphaf núverandi kjörtímabils. Fyrsta samþykkt ráðsins á kjörtímabilinu var að gera salerni í stjórnsýsluhúsnæði ókyngreind með því markmiði að gera Reykjavík að hinseginvænni vinnustað sem og bæta aðgengi trans fólks og kynsegin fólks.

Mótmælum ofsóknum á fjölmiðlafólki
Í dag klukkan 14 boða ungliðahreyfingarnar Ungir jafnaðarmenn, Ungir Sósíalistar, Ung Vinstri græn, Uppreisn – ungliðahreyfing Viðreisnar og Ungir Píratar til mótmæla á Austurvelli í Reykjavík og á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan 14:00. Við gerum það vegna aðfarar að einni af grunnstoðum frjáls lýðræðissamfélags: frjálsri blaða- og fréttamennsku.

Samfylking og Píratar kjósa í forystusæti í Kópavogi og Reykjavík
Tvennt sækist eftir að leiða lista í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi. Tveir borgarfulltrúar Pírata sækjast eftir endurkjöri í Reykjavík og oddviti flokksins í Kópavogi vill leiða flokkinn áfram en tekist er á um annað sætið.

Atli Stefán sækist eftir sæti á lista Pírata í Reykjavík
Viðskiptafræðingurinn Atli Stefán Yngvason býður sig fram í fyrsta til þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar en hann er núverandi formaður Pírata í Reykjavík.

Er unglingurinn þinn með líkama upp á tíu, sjöu eða kannski bara fjarka?
Hvað er pólitíkin að skipta sér af? Nýverið olli tillaga ungmenna í Reykjavíkurráði miklu fjaðrafoki, um að gera sund að valfagi fyrir 9. og 10. bekk.

Ríkið bregst þolendum ofbeldisglæpa
Þegar fólk verður fyrir ofbeldi getur verið nokkuð löng þrautarganga að fá einhvers konar réttlæti. Verður málið rannsakað?

Magnús D. Norðdahl býður sig fram hjá Pírötum í borginni
Magnús D. Norðdahl lögmaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-4. sæti í prófkjöri Pírata í borginni fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Hvar á fólk að búa?
Vandi húsnæðiskerfisins á Íslandi er í senn afar flókinn og mjög einfaldur. Hann er flókinn því lausnin krefst aðkomu margra aðila en á sama tíma einfaldur í því að hann liggur í aðeins tveimur þáttum. Húsnæði er of dýrt og eigið fé fólks er of lítið.

Hvert fara molarnir þegar kakan stækkar?
Kaupmáttur, ráðstöfunartekjur, eignir, skuldir, ... allt þetta segir fjármálaráðherra að fari bara batnandi, hvergi á norðurlöndunum hafi betur verið gert og heimilin hafa aldrei haft það betra. Þegar gögnin eru skoðuð kemur hins vegar ýmislegt áhugavert í ljós því fjármálaráðherra er tamt að tala í einföldum meðaltölum. Það er því eðlilegt að spyrja, hvernig er þetta nákvæmlega?

Fátt nýtt í fámennu ráðuneyti
Þegar ný ríkisstjórn tók við störfum í haust var farið í sögulegar tilfærslur á verkefnum á milli ráðuneyta til að geta fjölgað ráðherrastólum svo kapallinn á milli stjórnarflokkanna gengi örugglega upp.

Hverjir eru þingmenn Sósíalista?
Í síðustu kosningum vöktu Sósíalistar verðskuldaða athygli. En árangurinn varð ekki sá sem útlit var fyrir og Sósíalistar fengu engan þingmann. Framboð þeirra hafði engu að síður þó nokkur áhrif á niðurstöður kosninga.

Dagur segir hvergi hafa borið skugga á meirihlutasamstarfið en Viðreisn heldur öllu opnu
Oddvitar þeirra fjögurra flokka sem mynda meirihluta í borginni, Samfylkingar, Viðreisnar, Vinstri grænna og Pírata segja samstarfið hafa gengið vel og myndu vilja halda því áfram. Oddviti Viðreisnar ítrekar að samstarfið sé gott en er sá oddviti sem sker sig úr um að leggja áherslu á að flokkurinn gangi óbundinn til kosninga.

Ættu að geta reitt sig á dómskerfið en ekki „hvísl“ til að tryggja öryggi
Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, furðar sig á því að ekki sé sjálfstætt refsiákvæði um byrlun í refsilöggjöf ekki síst í ljósi þess að athæfið hafi verið stundað í árafjöld. Aragrúi frásagna kvenna sem ná langt aftur í tímann eru til vitnis um það.

Algjör þögn um vopnaflutninga
Fyrir þremur árum kom í ljós að stjórnvöld voru með allt niðrum sig varðandi leyfisveitingar til vopnaflutninga með íslenskum loftförum. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur sýndi að yfirvöld höfðu m.a. heimilað flutninga vopna til Sádi-Arabíu, þaðan sem þau bárust til Jemens og Sýrlands – þvert á alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar Íslands.

Engin tölfræði til um byrlanir
Byrlun er ekki skilgreind sem sjálfstætt brot í refsilöggjöf á Íslandi og því eru engar tölfræðiupplýsingar um byrlanir eða tilraunir til byrlana til hér á landi. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Lenyu Rúnar Taha Karim varaþingmanns Pírata.