Viðskipti

Sádar vilja auka olíuframleiðslu
Sádi-Arabar hafa mælt með því við önnur OPEC-ríki að framleiðsla á olíu verði aukin til að lækka verð á henni, en það hefur sjaldan verið hærra en um þessar mundir. Fulltrúar olíuframleiðsluríkjanna hittast á fundi á miðvikudag en á honum hyggjast Sádar leggja til að framleiðslan verði aukin um tvö prósent, í 27,5 milljónir tunna á dag.

Óvíst með samruna félaganna
Pálmi Haraldsson, annar tveggja aðaleigenda lágfargjaldaflugfélagsins Iceland Express, segir að viðræður um kaup á norræna flugfélaginu Sterling hafi staðið yfir síðan á síðari hluta síðasta árs. Hann vill ekki tjá sig um hvort stefnt sé að samruna félaganna og segir uppsagnir ekki á döfinni til að hagræða í rekstri þeirra.
Vextir standa í stað
Vextir íbúðalánasjóðs munu að öllum líkindum ekki lækka, eins og greiningardeild Landsbankans spáði fyrir helgi. Í útboði Íbúðalánasjóðs á föstudag bárust tilboð að nafnvirði 19 milljarða króna. Ákveðið var að taka tilboðum í bréf að nafnvirði 11 milljarða, sem er einum milljarði meira en áætlað var.
Sjálfkjörið í stjórn SÍF
Sjálfkjörið er í stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda á aðalfundi félagsins á föstudag, en til stendur að fækka stjórnarmönnum úr sjö í fimm. Í tilkynningu frá SÍF kemur fram að Ólafur Ólafsson, núverandi stjórnarformaður, og stjórnarmennirnir Aðalsteinn Ingólfsson og Guðmundur Hjaltason bjóði sig áfram fram, en Hartmut M. Krämer, stjórnarmaður Kingfisher plc, Toupargel SA og Herlitz AG, og Nadine Deswasiere, framkvæmdastjóri hjá Nestlé í Frakklandi, koma væntanlega ný inn í stjórnina.

Hagvöxtur eykst milli ára
Hagvöxtur var 5,2 prósent í fyrra samkvæmt áætlun Hagstofunnar. Þetta er einu prósentustigi meiri hagvöxtur en árið 2003. Einkaneysla jókst hins vegar um 7,5 prósent og fjárfestingar um tæp 13 prósent sem leiddi til 70 milljarða króna viðskiptahalla.

Brynjólfur segir sig úr stjórnunum
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, hefur sagt sig úr stjórnum Bakkavarar, Almenna lífeyrissjóðsins og Sindra hf. Hann segist, í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu, gera þetta með heildarhagsmuni Símans í huga og til þess að söluferli fyrirtækisins verði hafið yfir allan vafa.

Hagnaður Hampiðjunnar eykst mjög
Hagnaður Hampiðjunnar á síðasta ári var 276 milljónir króna eða tæpum 120 milljónum meiri en árið 2003.

Formaður eða ráðherra hindri leka
Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir það hlutverk stjórnarformanns Landssímans eða fjármálaráðherra að tryggja að trúnaðarupplýsingar leki ekki út við sölu Landssímans. Einkavæðingarnefnd bregðist hins vegar við, geri aðrir það ekki.

Krónan ekki sterkari í 12 ár
Íslenska krónan hefur ekki verið sterkari frá gengisfellingunni í júní árið 1993 að sögn Greiningardeildar Landsbankans. Hún styrktist um 0,7% í dag. Bandaríkjadalur kostar nú 58,6 krónur. Landsbankinn segir líklegt að styrkingu krónunnar síðustu daga megi rekja til aukins áhuga erlendra fjárfesta á íslenskum gjaldeyrismarkaði.

800 milljóna hækkun hlutafjár
Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að hækka hlutafé bankans um 800 milljónir króna að nafnverði og selja til núverandi hluthafa bankans. Nýir hlutir verða boðnir hluthöfum bankans til kaups í samræmi við hlutafjáreign þeirra við lok viðskipta í dag.

25% íbúðalána hjá bönkunum
Fjórðungur íbúðalána er nú hjá bönkunum áætlar greiningardeild Landsbankans. Þetta er aukning frá því í janúar þegar bankarnir höfðu 19% markaðshlutdeild. Íbúðalánasjóður ætti þannig að vera með 62% lánanna og lífeyrissjóðir um 13%.

Kaupa lyfjaverksmiðjur á Spáni
Hópur íslenskra fjárfesta hefur keypt tvö spænsk lyfjafyrirtæki sem sérhæfa sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja. Íslenska fyrirtækið Invent Farma kaupir fyrirtækin, en forystumaður hópsins er Friðrik Steinn Kristjánsson, stofnandi Omega Farma sem nú tilheyrir samsteypu samheitalyfjafyrirtækisins Actavis.

Björgólfur á meðal ríkustu manna
Björgólfur Thor Björgólfsson er fyrsti Íslendingurinn til að komast á lista Forbes-tímaritsins yfir auðugustu menn veraldar. Tímaritinu var dreift í verslanir vestanhafs í gærkvöldi. Bill Gates, stofnandi Microsoft, er sem fyrr í efsta sætinu, ellefta árið í röð, en eigur hans eru metnar á rúmlega 46 milljarða dollara.

Olíuverð lækkar enn
Olíuverð hefur enn lækkað á heimsmarkaði í morgun, einkum vegna þess að olíubirgðir í Bandaríkjunum eru í hámarki. Það sló nokkuð á verðlækkunina að Alþjóðaorkumálastofnunin telur enn að olíuþörf verði mikil á næstunni. Bandaríkjadollari hefur einnig lækkað um hartnær 2,5 prósent í þessari viku gagnvart íslensku krónunni.
Vinsælustu fyrirtækin verðlaunuð
Ölgerð Egils Skallagrímssonar, Hitaveita Suðurnesja, Sparisjóðirnir og Olís eru vinsælustu fyrirtækin á Íslandi samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sem kynnt var í dag.

Tekjur ferðaþjónustu 39 milljarðar
Heildargjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar voru rúmlega 39 milljarðar króna árið 2004 og jukust um 5,4 prósent frá árinu 2003. Tekjurnar skiptast þannig að eyðsla erlendra ferðamanna innanlands var 26 milljarðar og fargjaldatekjur 13 milljarðar.

Umbunað með hlutabréfum
Flugleiðir hf. héldu aðalfund í dag og var nafni fyrirtækisins breytt í FL Group. Hagnaður félagsins var 3,4 milljarðar króna árið 2004 og samkvæmt tilkynningu frá félaginu hefur afkoman aldrei verið betri. Vegna þessa ákvað stjórnin að gefa hverjum starfsmanni hlutabréf í fyrirtækinu að markaðsvirði 70.000 krónur.

Enn hækkar olíuverð
Heimsmarkaðsverð á olíu fór í gær yfir 55 dollara á tunnu í fyrsta sinn á þessu ári. Ástæðurnar eru sagðar mikil eftirspurn, kalt veður og veik staða dollarans. Verðið í gær fór ansi nálægt hámarki síðasta árs þegar tunnan fór hæst í tæpa 60 dollara.
Vextir gætu lækkað
Tíu milljarðar í íbúðabréfum Íbúðalánasjóðs verða boðin út í dag. Spáð er lækkun vaxta á lánum sjóðsins.

SÍF tapar tæplega 350 milljónum
Tæplega 350 milljóna króna tap varð af rekstri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, SÍF, á árinu 2004 samanborið við rúmlega 50 milljóna króna hagnað árið á undan. Miklar breytingar urðu á rekstri fyrirtækisins á síðasta ári og jukust sölutekjur um 15,6 prósent á milli ára.

Vísitala neysluverðs hækkar
Vísitala neysluverðs í nú mars hækkaði um 0,75 prósent frá fyrra mánuði og er nú 241,5 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,35 prósent á sama tíma. Vetrarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 12,2 prósent. Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 3,3 prósent en verð á bensíni og olíu hækkaði um 2,7 prósentustig.

Skattbyrði eykst hér og í Ástralíu
Ísland og Ástralía eru einu vestrænu ríkin sem hafa aukið skattbyrði undanfarin átta ár, samkvæmt nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um tekjuskatt ríkja. Í skýrslunni kemur fram að hjá öllum vestrænum ríkjum, fyrir utan Ástralíu og Ísland, hafi álögur á skattgreiðendur minnkað á tímabilinu að meðaltali um tvö prósent.

Spáir 6,2 prósenta verðbólgu í ár
Greiningardeild KB banka spáir 6,2 prósenta verðbólgu í ár. Rætur verðbólgunnar á þessu ári liggja einkum í miklum hækkunum á fasteignaverði sem hafa verið mjög hraðar allt frá síðasta hausti en húsnæðiskostnaður vegur rúmlega fimmtung í vísitölu neysluverðs. Greiningardeildin spáir 20 prósenta hækkun á fasteignaverði í ár.

Netviðskipti aukast mikið í Evrópu
Viðskipti á Netinu hafa aukist um heil 80 prósent í Evrópu á aðeins einu ári. Það eru einkum alls konar peningaviðskipti og heimabankastarfsemi sem og sala á flugferðum og ferðalögum sem hafa aukist gríðarlega.

Ekki beðinn að víkja úr stjórnum
Enginn hefur beðið forstjóra Símans um að víkja úr stjórnum Almenna lífeyrissjóðsins og Bakkavarar, sem er eitt þeirra fyrirtækja sem líklegast þykir til að berjast um kaup á Símanum. Forvera hans var hins vegar skipað að víkja úr stjórnum tveggja félaga vegna einkavæðingaráforma Símans.

Heildarvelta Bakkavarar tífaldast
Starfsmönnum Bakkavarar fjölgar úr 2500 í þrettán þúsund og heildarvelta samstæðunnar tífaldast með kaupum Bakkavarar á breska framleiðslufyrirtækinu Geest Plc. Kaupverðið nemur um 58 milljörðum íslenskra króna.

Bakkavör stærst í heimi
Bakkavör er orðin stærsti framleiðandi ferskrar, tilbúinnar matvöru í heiminum með kaupum á breska fyrirtækinu Geest, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Alls greiðir Bakkavör 70 milljarða króna fyrir Geest en Barcleys-bankinn lánar 58 milljarða sem forstjórinn segir hæsta lán sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið.

Stjórnvöld eiga næsta leik
Stjórnvöld eiga næsta leik, vilji þau að matvælaverð lækki frekar á Íslandi. Þetta sagði Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, á aðalfundi Samtaka verslunar og þjónustu í dag.

3 milljarða hagnaður Samherja
Hagnaður Samherja var 2.914 milljónir króna á sl. ári samanborið við 1.067 milljóna hagnað árið áður samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2004 sem stjórnin samþykkti á stjórnarfundi sínum í dag.
Félagsmenn eignast séreignasjóð
Á aðalfundi Verzlunarmannafélgs Reykjavíkur mun stjórn félagsins leggja til að hver félagsmaður eignist séreignarsjóð hjá félaginu.