

Sænska söngkonan Zara Larsson, sem hitaði upp fyrir Ed Sheeran á Laugardalsvelli um helgina, skellti sér í ferðalag um Ísland eftir seinni tónleika Sheerans á sunnudag.
Einkakokkur Eds Sheeran, Josh Harte, og söngkonan Zara Larsson heimsóttu eftir tvenna tónleika höfuðstöðvar Matís ohf. til að fræðast um hefðbundin og ný íslensk matvæli og framtíð í matvælagerð með þrívíddarprentun matvæla og sýndarveruleika. Heimsóknin átti sér stað eftir tvenna tónleika sem Sheeran hélt hér á landi. Larsson var á meðal þeirra sem hituðu upp fyrir kappann.
Ástandið á Laugardalsvelli er gott þrátt fyrir tvenna tónleika Eds Sheeran um helgina.
Ed Sheeran hélt tónleika í Laugardalnum á laugardags- og sunnudagskvöld. Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live er ánægður með helgina, ef frá er talið vandamál með raðir fyrri daginn.
"Mér leið náttúrulega bara hræðilega., gjörsamlega skelfilega. Það eru náttúrulega allir sítengdir og fólk stendur bara í röðinni og hraunar yfir okkur, sem er skiljanlegt,“ segir Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdarstjóri Senu Live, um röðina sem myndaðist fyrir utan tónleikasvæði Ed Sheeran á laugardaginn.
Frábærir tónleikar með frábærum tónlistarmanni sem er á toppi ferils síns.
Mynd af þeim Ed Sheeran og Hafþóri Júlíusi Björnssyni hefur vakið mikla athygli eftir að hún birtist á Instagram-aðgangi söngvarans.
Lögreglan handtók tvo tónleikagesti í Laugardal í gærkvöld.
Skipulag á tónleikum breska tónlistarmannsins Ed Sheerans hefur verið með besta móti í kvöld, samkvæmt þeim sem þar standa vaktina.
Svo virðist sem breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hafi mælt sér mót við aflraunamanninn Hafþór Júlíus Björnsson, betur þekktur sem Fjallið, í Íslandsferð sinni nú um helgina.
Tónleikagestir voru ánægðir með frammistöðu Ed Sheeran á Laugardalsvelli í gær og sögðu þeir að hann hafi farið fram úr björtustu vonum.
Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hélt í veglega verslunarferð í miðbæ Reykjavíkur í dag.
Poppstjarnan Ed Sheeran virtist skemmta sér konunglega í eftirpartýi sem haldið var eftir tónleika hans sem fóru fram á Laugardalsvelli í gær.
Nokkrir lýstu yfir óánægju með fyrirkomulag skipuleggjanda í gær, en ansi löng röð myndaðist inn á tónleikasvæðið og greindu nokkrir tónlistargestir frá því að hafa beðið í nokkra klukkutíma til að komast inn á svæðið.
Skipulagi á röðinni inn á tónleika Eds Sheeran á Laugardalsvelli í gærkvöldi var breytt þegar ljóst var orðið að röðin inn á standandi svæði vallarins gengi of hægt fyrir sig. Nýja skipulagið verður notað á seinni tónleikum söngvarans í kvöld.
Innan við fimmtán mínútur liðu frá því að stórtónleikum breska tónlistarmannsins Ed Sheerans á Laugardalsvelli lauk og þar til síðustu gestir höfðu yfirgefið tónleikasvæðið.
Það er óhætt að segja að breska tónlistarmanninum Ed Sheeran hafi verið vel tekið á Laugardalsvelli í kvöld.
Það er líf og fjör í Laugardalnum þar sem gert er ráð fyrir að þrjátíu þúsund manns séu staddir á tónleikum breska tónlistarmannsins Ed Sheeran.
Nokkurrar óánægju gætti meðal þeirra aðdáenda breska tónlistarmannsins Ed Sheeran sem þurftu að bíða lengi í röð inn á tónleika hans á Laugardalsvelli í kvöld.
Enski hjartaknúsarinn og tónlistamaðurinn Ed Sheeran stígur á stokk á fyrri tónleikum sínum á Íslandi á Laugardalsvelli í kvöld.
Röðin inn á tónleika breska tónlistarmannsins Ed Sheeran teygir sig frá Laugardalsvelli og alla leið út að Glæsibæ, og jafnvel lengra, eða vel rúman kílómetra.
Snemm-innritun er aðeins hugsuð fyrir stóra hópa sem ætla ekk inn á tónleika Eds Sheeran á sama tíma en keyptu miða saman. Armbandið sem fæst við innritun er ekki nauðsynlegt til þess að komast á tónleikana. Miði er nóg.
Tónleikar Ed Sheeran verða vel sóttir í kvöld en búast má við hátt í 30 þúsund gestum á tónleikasvæðinu.
Hinn enski Ed Sheeran mun troða upp fyrir troðfullum Laugardalsvelli í kvöld. Hann elskar tómatsósu, hefur leikið í Game of Thrones og virkar eins og fínasti náungi.
Uppselt er á fyrri tónleika Ed Sheeran sem fara fram í kvöld, en tónleikarnir eru sagðir þeir stærstu í Íslandssögunni
Hafrún Ósk Sigurhansdóttir varð heldur betur undrandi þegar hún tók upp jólagjöf frá eiginmanninum 2017. Þar leyndist ferð til Dyflinnar á tónleika með stórstjörnunni Ed Sheeran. Í kvöld fær hún að upplifa þá aftur.
Tónleikagestir á stórtónleikum enska söngvarans Eds Sheeran, sem fram fara á Laugardalsvelli næstkomandi laugardags- og sunnudagskvöld, fá frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Enn er unnið að því að setja upp ljósabúnað og skjái fyrir tónleika Eds Sheeran sem fara fram um helgina. Búist er við um 50.000 gestum.
Enski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran mun eftir örfáa daga halda tvenna tónleika á Laugardalsvelli. Hann hefur áður komið til landsins.