
Byggðamál

Iðnaðarráðherra segir að bæta þurfi dreifikerfi raforku
Iðnaðarráðherra segir ekki hafa gengið nógu vel að byggja upp dreifikerfi raforku í landinu. Hægt sé að auka samkeppni í raforkumálum án þess að selja orkufyrirtæki í opinberri eigu eða dreifikerfið.

Mér er kalt
Heitt vatn eru gæði á Íslandi sem er mjög misskipt. Þau landsvæði sem ekki búa við slíkan lúxus eru jafnan kölluð köld svæði og búa við þann veruleika að þurfa að hita hús sín með rafmagni með tilheyrandi notkun á kílóvattstundum.

Nýjar stofnanir verði á landsbyggðinni
Forsætisráðherra hefur brýnt fyrir ráðherrum að hugsa til landsbyggðarinnar þegar nýjar stofnanir eru settar á laggirnar. Minnisblað um málið lagt fram í ríkisstjórn. Fjórar nýjar stofnanir eru í farvatninu á yfirstandandi þingvetri.

Byggðastofnun svarar lánabeiðni Ísfisks innan nokkurra vikna
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar staðfestir að ósk um fyrirgreiðslu frá Ísfiski hafi borist hinn 11. september.

Segir græðgi ógna búsetu á Akranesi
Fiskvinnslufyrirtækið Ísfiskur á Akranesi sagði upp öllum starfsmönnum sínum í gær.

Útlit fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu árum
Útflutningsverðmæti verður líklega hátt í tuttugu milljarðar króna í ár sem nemur ríflega eitt prósent af heildarútflutningi.

Metnaðarfull aðgerðaráætlun í jarðarmálum
Eitt af forgangsmálum þingflokks Framsóknar á þessi þingi er þingsályktun um aðgerðaráætlun í jarðarmálum.

Stefnir í átök borgar og landsbyggðar
Samgöngumál, veggjöld, landbúnaðarmál, sameiningar sveitarfélaga. Stærstu mál nýhafins þings eru þekkt átakamál byggðapólitíkur hér á landi. Fréttablaðið ræddi við formenn fastanefnda Alþingis.

21 milljón í greiningu á iðnaðarkostum á Norðvesturlandi
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun veita SSNV tímabundinn 21 milljón króna styrk til greiningar á iðnaðarkostum sem gætu hentað Norðurlandi vestra.

Markaðssetja þurfi vannýtt svæði á landsbyggðinni
Breytt samkeppnisstaða Íslands hefur valdið því að samsetning ferðamanna og ferðahegðun á Íslandi hefur tekið breytingum. Slíkar sveiflur hafa ekki síst þrengt að ferðaþjónustufyrirtækjum á landsbyggðinni.

Gjaldþrot West Seafood á Flateyri: Fólk dofið yfir því hver staðan er eftir fyrri áföll
Formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða segir atvinnuástandið á Flateyri hafa verið sorgarsaga frá því að Kambur lokaði 2007.

Gæti orðið dýralæknalaust í dreifbýli
Charlotta Oddsdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands, segir að núverandi starfsumhverfi þeirra sem sinna dreifbýlum svæðum sé óviðunandi og samningar úreltir.

Komi ekki til opinberra styrkja verði innanlandsflug skert
Gert er ráð fyrir að innanlandsflug til Egilsstaða og Ísafjarðar dragist saman um 10 til 15 prósent í vetur að sögn forstjóra Air Icelandair Connect. Hann segir að hið opinbera verði að koma að rekstri innanlandsflugs.

Vill að fólk verði hvatt til að fljúga innanlands
Skiptar skoðanir eru á milli þingmannanna Jóns Gunnarssonar, Sjálfstæðisflokki og Hönnu Katrínar Friðriksson, Viðreisn, um hvort ríkið eigi að greiða niður rekstrarkostnað innanlandsflugfélaga með nokkrum hætti.

Telur að innanlandsflug gæti lagst af innan fárra ára verði ekki gripið til aðgerða
Innanlandsflug á Íslandi gæti lagst af innan fárra ára verði ekki gripið til aðgerða, að mati framkvæmdastjóra flugfélagsins Ernis.

Rætt um að flugið verði fjármagnað líkt og strætó
Aðgerðir til að bæta stöðu innanlandsflugs þola enga bið að mati þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Skoða þurfi hvort ríkið geti fjármagnað flugið líkt og almenningssamgöngur. Skoska leiðin dugi ekki til að mæta rekstrarvandanum en hún þurfi þó að koma til framkvæmda strax á nýju ári.

Funda um stöðu innanlandsflugs á Íslandi í fyrramálið
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis kemur saman í fyrramálið klukkan hálf níu til að ræða stöðu innanlandsflugs á Íslandi.

Farþegar í innanlandsflugi ekki verið færri frá því 2002
Flugfarþegar í innanlandskerfinu fyrstu sjö mánuði ársins hafa ekki verið færri síðan árið 2002. Samgönguráðherra segir þetta áhyggjuefni og að spýta þurfi í lófana. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir verðið komið yfir sársaukamörk.

Fjármunir til að niðurgreiða innanlandsflug eru til
"Miðað við þá vinnu sem hefur verið unnin að þá hefur verið bent á að einhverjar 700-800 milljónir myndu geta snúið við, talsvert þessari þróun, og veita fólki þennan möguleika á að fá niðurgreiddan flugmiða upp að tilteknum fjölda flugferða og þá fjármuni höfum við í dag," segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Skilur ekki af hverju það er ekki búið að tryggja innanlandsflug eins og fyrirheit voru um
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skilur ekki afhverju stjórnvöld séu ekki búin að tryggja innanlandsflug með niðurgreiðslu flugfargjalda sem fyrirheit voru um fyrir síðustu alþingiskosningar.

Segir að bregðast verði við mjög slæmri afkomu innanlandsflugs
Forstjóri Icelandair segir afkomu Flugfélags Íslands mjög slæma og verið sé að skoða alvarlega hvernig geri megi reksturinn sjálfbæran.

Vilja rafmagnsferju í Hríseyjarsiglingar
Sú hugmynd hefur verið rædd á meðal Hríseyinga að ný Hríseyjarferja gangi eingöngu fyrir rafmagni. Skipstjóri núverandi ferju segir að kominn sé tími á endurnýjun á ferjunni og tvímælalaust eigi þá að horfa til rafmagnsferju.

Þrífösun rafmagns: Skaftárhreppur og Mýrar í forgang
Ferðamála-, iðnaðar- og viðskiptaráðherra hyggst leggja til þriggja ára átak í að flýta þrífösun rafmagns í væntanlegri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2020 til 2024.

Stóriðja kemur ekki í veg fyrir flótta ungs fólks af landsbyggðinni
Niðurstöður víðtækrar könnunnar gefa til kynna að sýn stjórnvalda í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni sé engan veginn í takt við hug þeirra ungmenna sem þar búa.

Vonast til að olíuleitin byggi upp gróskumikið atvinnulíf
Fyrirtæki hefur verið stofnað á Reyðarfirði um þjónustumiðstöð fyrir olíuiðnað.

Kvótafrumvarp mun valda fólksfækkun í eyjum
Verði kvótafrumvarpið samþykkt óbreytt á Alþingi, leiðir það til mikillar fólksfækkunar í Vestmannaeyjum. Þetta segir í umsögn um bæjarráðs Vestmannaeyja sem telur að með frumvarpinu skerðist aflaheimildir í Eyjum um 15 prósent. Um 100 manns, sem starfi við veiðar og vinnslu, missi vinnuna og með afleiddum störfum megi gera ráð fyrir að um tvö hundruð störf tapist.

Líkir kvótafrumvarpinu við Tyrkjaránið og Heimaeyjargosið
Verði frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, samþykkt mun það leiða til mikillar fólksfækkunar í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í umsögn bæjarráðs Vestmannaeyjar um frumvarpið. Í umsögninni kemur fram að