Kvöldfréttir

Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar
Það hefur ekki farið framhjá neinum að sól og blíða hefur verið á landinu öllu þessa helgina og hitinn víða yfir tuttugu stig. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur fer yfir veðrið í beinni útsendingu.

Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision
Ísraelski herinn hefur haldið úti stöðugum loftárásum á Gasaströndina í nótt og í dag. Á annað hundrað hafa látið lífið síðasta sólarhringinn. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður
Hagfræðingur segir jákvætt að ríkinu hafi tekist að selja allan hlut sinn í Íslandsbanka. Augljóst sé að mikil eftirspurn sé eftir því meðal almennings að eignast hluti í íslenskum fjármálafyrirtækjum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að stækka útboð almennra hluta í Íslandsbanka og stendur nú til að selja allan eignarhlut ríkisins í yfirstandandi útboði. Við fáum ritstjóra Innherja til að varpa ljósi á þessar nýjustu vendingar.

Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá ófremdarástandi sem íbúar og húseigendur við Hverfisgötu lýsa, en maður sem grunaður er um frelsissviptingu á ferðamanni fyrr í mánuðinum er sagður halda nágrönnum sínum í miðborg Reykjavíkur í heljargreipum.

Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland
Útboð vegna sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hófst í morgun og segist bankastjórinn jákvætt að almenningur njóti forgangs. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum og Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja rýnir í fyrsta dag útboðsins.

Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána
Frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingar til hækkunar á veiðigjöldum hefur verið sent til atvinnuveganefndar eftir heitar umræður á þinginu. Við verðum í beinni útsendingu frá þinginu.

Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni
Umhverfisráðherra boðar aðgerðir gegn kínversku verslunarrisunum Temu og Shein. Það sé ólíðandi að vörur sem innihalda skaðleg efni séu flutt inn til landsins í bílförmum. Til skoðunar er að gera greiðslumiðlunarfyriræki eða flutningsfyrirtæki ábyrg og takmarka innflutning. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi
Fyrstu umræðu um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra lauk á alþingi í dag, en atkvæðagreiðslu um að vísa málinu til annarrar nefndar en upphaflega stóð til var frestað til mánudags.

Víðfeðm rannsókn, baunað á skólaþorp á bílastæði og stórvirki
Nefnd um eftirlit með lögreglu ætlar að ráðast í umfangsmikla frumkvæðisathugun á gagnaþjófnaði frá sérstökum saksóknara. Málið er nú á borði lögreglunnar á Suðurlandi og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ætlar einnig að taka það fyrir. Við ræðum við formann eftirlitsnefndar með störfum lögreglu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Nýr páfi, svik við almenning og loðnasti starfsmaður Rimaskóla
Ríkissaksóknari rannsakar tvö mál í tengslum við víðtækan gagnaþjófnað frá embætti Sérstaks saksóknara. Dómsmálaráðherra segir málið svik við almenning og réttarkerfið. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar og ræðum við mann sem var hleraður og íhugar að leita réttar síns.

Páfaspenna, drykkjulæti og umdeildur útburður
Stjórnvöld í Pakistan heita hefndum eftir árásir Indverja í Kasmír í Pakistan í nótt. Óttast er að átök milli þessara kjarnorkuvelda stigmagnist. Við sjáum myndir frá svæðinu í kvöldfréttum Stöðvar 2 og sérfræðingur í varnarmálum mætir í myndver til þess að fara yfir mögulega þróun.

Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð
Íslenskum körfuboltamanni hafa borist líflátshótanir og börnum hans verið hótað af fólki sem hefur veðjað á leiki sem hann hefur spilað. Nú síðast í úrslitakeppninni bárust honum rætin skilaboð eftir að hafa klikkað á tveimur vítum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við körfuboltamanninn og við sýnum frá skilaboðum sem honum hafa borist.

Kári Stefánsson í beinni, „hryllingshús“ og trillukarlar
Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að við fyrstu sýn hafi mátt lýsa aðferðum við uppsögn hans sem fantabrögðum. Það hafi hins vegar verið lygasaga sem olli brottrekstrinum. Við ræðum málið við Kára Stefánsson í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi
Dómsmálaráðherra segir óboðlegt að hælisleitendur, sem vísa á úr landi, séu vistaðir í fangelsi fyrir brottför, eins og hefur vreði. Koma á upp sérstakri brottfararstöð. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu
Fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki hafa áhyggjur af íslenskum framleiðendum sem selja vörur til Fríhafnarinnar. Þeir hafa lýst miklum áhyggjum vegna nýs rekstraraðila, sem hefur krafið framleiðendur um að lækka vöruverð. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Umtöluð frelsissvipting og stórslösuð sjónvarpsstjarna
Íslenskur karlmaður sem sætir gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa frelsissvipt erlendan ferðamann í húsnæði á Hverfisgötunni hefur endurtekið komið við sögu lögreglu. Verjandi mannsins segja ekki forsendur fyrir gæsluvarðhaldi. Hann eigi að vista á viðeigandi stofnun en maðurinn er með þroskaskerðingu.

Íslenskum framleiðendum gerðir afarkostir og kröfugöngur verkalýðsins
Íslenskir framleiðendur eru milli steins og sleggju að sögn framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda vegna krafa nýs rekstraraðila fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Segir lögreglumann sem njósnaði hafa gert mistök
Formaður nefndar um eftirlit með störfum lögreglu segir að mál Lúðvíks Kristinssonar, lögreglumanns sem var leystur frá störfum vegna njósna, sé litið alvarlegum augum. Ríkislögreglustjóri telur ástæðu til að endurskoða reglur um aukastörf lögreglumanna.

Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin
Íslensk dagskrárgerðarkona, búsett á Spáni, segir að það hafi verið hræðileg upplifun að vera án allra samskipta við umheiminn í fullkominni óvissu. Fyrst hafi rafmagnið farið, svo internetið og loks útvarpið. Enginn í þorpinu hennar vissi hvað var í gangi en sjálf óttaðist hún einhvers konar hryðjuverk. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld, og rætt við sérfræðing í myndveri um stöðuna hér á landi.

Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum
Samgöngutruflanir og sambandsleysi urðu á Spáni og Portúgal eftir að rafmagn fór af löndunum tveimur í dag. Íslendingar á Spáni lýsa mikilli óvissu um ástandið og framhaldið. Við fjöllum um rafmagnsleysið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld og ræðum við rafmagnsverkfræðing um málið, og mögulegar orsakir.

Geðheilbrigði í fangelsum og fækkun lóu og spóa
Að láta hælisleitendur sem vísa á úr landi sæta einangrun í fangelsum er versta úrræðið sem hægt er að bjóða þeim uppá. Þetta segir teymisstjóri geðheilsuteymis fanga sem segir andlega heilsu fólksins afar slæma. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á eftir.

Útför páfa og afbrot leigubílstjóra
Heimsbyggðin fylgdist grannt með útför Frans páfa sem fram fór í Vatikaninu í dag. Fjöldi þjóðarleiðtoga sótti athöfnina sem er söguleg en friðarumleitanir í Úkraínu voru ræddar í Páfagarði.

Fangelsin sprungin og skoðunarferð um herskip
Formaður Félags fangavarða segir fangelsin vera sprungin og full af fólki sem þar eigi ekki heima. Þar sé meðal annars fólk sem á að vísa úr landi og fólk með alvarlegar geðraskanir. Hann segir ástandið aldrei hafa verið jafn slæmt. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Ósáttur Bandaríkjaforseti og sumarsól
Bandaríkjaforseti hefur biðlað til forseta Rússlands að láta af árásum á íbúahverfi í Úkraínu. Hann segir mannskæða árás á Kænugarð í morgun illa tímasetta og óþarfa. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Milljarður í kostnað vegna öryggisvistunar og húðflúr í beinni
Reykjavíkurborg ver álíka upphæð í öryggisvistanir fyrir tæplega fjörtíu einstaklinga og í sértækan húsnæðisstuðning fyrir 4500 manns. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á eftir og rætt við sviðsstjóra hjá borginni sem segir löngu tímabært að breyta og bæta lagaumhverfi. Borgin sé að sinna verkefni sem henni beri ekki að sinna.

Breytingar á gosvirkni, júró-þrýstingur og umdeildir málshættir
Umtalsvert hefur dregið úr hraða landriss undir Svartsengi eftir að það fór kröftuglega af stað í kjölfar síðasta eldgoss. Talið er að gosvirkni á svæðinu sé að taka breytingum og við förum yfir málið í beinni útsendingu með fagstjóra á Veðurstofu Íslands í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Frans páfi, forsætisráðherra um fangelsismál og villtur páfagaukur
Frans páfa var minnst víða um heim í dag. Hann var á páfastóli í tólf ár og er minnst sem framsæknum, hógværum talsmanni þeirra sem minna mega sín. Banameinið er sagt vera heilablóðfall.

Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi
Lögmaður gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að hafa farið með rangt mál í tilkynningu sinni um skipan starfshóps sem yfirfara á reglur um dvalarleyfi á Íslandi. Hann segir þegar til staðar ákvæði í lögum um dvalarleyfi mansalsfórnarlamba, en þau séu ekki nýtt.

Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja
Utanríkisráðherra segir skiljanlegt að mikillar tortryggni gæti í herbúðum Úkraínumanna, um yfirlýsingar Rússlandsforseta um vopnahlé yfir páskana. Friður geti ekki komist á á forsendum Rússlands.