Auglýsinga- og markaðsmál

Veðurstilltar auglýsingar nýjung í auglýsingabransanum
Auglýsingatæknifyrirtækið Púls Media tilkynnti á á dögunum um nýjung í auglýsingatækni en það eru veðurstilltar auglýsingar.

Ámundi allur
Ámundi Ámundason, sem kallaður var umboðsmaður Íslands löngu áður en Einar Bárðarson varð svo mikið sem hugmynd, andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk 14. júní.

Sigga Beinteins syngur í enn einum bensínstöðvareyrnaorminum
Sigga Beinteinsdóttir söngkona með meiru syngur nýjasta lagið frá Atlantsolíu. Um er að ræða enn einn eyrnaorminn frá bensínstöðinni, sem lýsir laginu sem sumarsmelli í tilkynningu.

Vilja að BSRB hætti birtingu „ólögmætra áróðursauglýsinga“ strax í dag
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur skorað á BSRB að láta af því sem sambandið kallar „ólögmætar áróðursauglýsingar“ fyrir klukkan fjögur í dag. Auglýsingarnar sem um ræðir eru birtar undir nafni sveitarfélaga.

Breyta merkinu án ótta við hæðni netverja
Nýtt útlit lágvöruverslunarinnar Krónunnar var frumsýnt í dag. Daði Guðjónsson, markaðsstjóri Krónunnar segir mikla spennu ríkja fyrir breytingunum og segist ekki hræðast gagnrýni netverja á nýja merkinu.

Silja ráðin samskiptastjóri HA
Silja Jóhannesar Ástudóttir hefur verið ráðin í starf samskiptastjóra Háskólans á Akureyri.

Ranghugmyndir um hvaða fólk notar TikTok og hvernig
„Oft er TikTok bara meðhöndlað þannig að yngsta starfsmanninum er réttur síminn og hann beðinn um að gera eitthvað sniðugt,“ segir Klara Símonardóttir framkvæmdastjóri Petmark sem nýlega hlaut hæstu einkunn í viðskiptadeild Háskólans á Bifröst það sem af er ári, fyrir BS ritgerðina sína í viðskiptafræði.

Lilja undirbýr breytingar á auglýsinga-málum Ríkisútvarpsins
Menningarmálaráðherra er að undirbúa starfshóp til að útfæra breytingar á auglýsingamálum Ríkisútvarpsins með það að markmiði að bæta stöðu einkarekinna fjölmiðla. Þá leggi hún vonandi fram frumvarp í haust um heildarstefnumótun fyrir íslenska fjölmiðla.

Leggja til að leggja niður „aggressíva“ auglýsingadeild RÚV
Meirihluti allsherjar- og menntamálefndar leggur til að auglýsingadeild Ríkisútvarpsins verði lögð niður. Deildin sé agressív í sölumennsku sinni sem einkareknir fjölmiðlar finni fyrir með ýmsum hætti. RÚV verði þó ekki tekið af auglýsingamarkaði því auglýsendur geti áfram pantað auglýsingar í gegnum vef Ríkisútvarpsins samkvæmt verðskrá. Sextán manns starfa á auglýsingadeildinni.

Íslenskir krakkar auglýsa æðardúnúlpur með söng á kínversku
Kínverskt stórfyrirtæki hefur hafið framleiðslu á dúnúlpum úr íslenskum æðardún. Íslensk börn voru fengin til að syngja inn á auglýsingu fyrir nýju úlpurnar á kínversku.

Segir að um „víðtæka og kostnaðarsama aðgerð gegn vörumerki félagsins“ sé að ræða
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir listgjörning Odds Eysteins Friðrikssonar víðtæka og kostnaðarsama aðgerð gegn vörumerki félagsins. Hann segir Samherja hafa leitt hjá sér túlkanir á list og tjáningarfrelsi meðan hann verji mikilvæg vörumerki félagsins.

Lilja ætlar ekki að taka RÚV af auglýsingamarkaði
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra – fjölmiðlaráðherra – telur ekki skynsamlegt að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði vegna þess að þá færu auglýsingatekjurnar í auknari mæli til Facebook, Google og YouTube.

Aldís Amah verður ný rödd Vodafone
Leikkonan Aldís Amah Hamilton hefur tekið við sem rödd Vodafone og mun því tala fyrir vörumerkið í auglýsingum fyrirtækisins. Aldís tekur við hlutverkinu af leikaranum Vali Frey Einarssyni sem hefur lesið inn á auglýsingar fyrirtækisins síðustu ár.

Skamma Olís vegna HM-afláttar sem gilti bara á sumum ÓB-stöðvum
Neytendastofa hefur slegið á fingur Olís vegna auglýsinga um afslátt á eldsneyti á völdum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Félagið auglýsti þar afslátt af eldsneyti, sem tengdist úrslitum íslenska landsliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Svíþjóð í janúar síðastliðinn, án þess að tekið var fram að afslátturinn gilti ekki á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Hefur félaginu verið bannað að viðhafa slíka viðskiptahætti.

Kjaradeilan harðnar: BSRB gerir sveitarfélögum upp leit að meðvirku starfsfólki
BSRB hóf í dag óvenjulega auglýsingaherferð vegna kjaradeilu sinnar við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samskiptastjóri BSRB segir markmiðið að upplýsa íbúa sveitarfélaganna sem mismuni starfsfólki sínu. Deiluaðilar munu funda hjá ríkissáttasemjara klukkan 13:00 á morgun.

Ilva var heimilt að kalla útsölu á Korputorgi „rýmingarsölu“
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Neytendastofu frá síðasta sumri vegna kynninga Ilva um rýmingarsölu.

Erna ráðin markaðsstjóri Terra
Erna Björk Häsler hefur verið ráðin sem markaðsstjóri Terra umhverfisþjónustu og hefur þegar hafið störf.

Hrökklast frá vegna ofsafenginna viðbragða við trans áhrifavaldi
Yfirmaður markaðsmála fyrir bandarísku bjórtegundina Bud light, er farinn í leyfi eftir að samstarf fyrirtækisins við trans áhrifavald vakti ofsafengin viðbrögð íhaldsmanna. Reiðir hægrimenn ákváðu að sniðganga vörur framleiðandans.

Neytendastofa slær á fingur Origo
Neytendastofa hefur bannað Origo hf. að nota fullyrðinguna „besta noise cancellation í heimi“ í markaðsefni um Bose heyrnartól sem fyrirtækið selur. Stofnunin taldi gögn sem Origo lagði fram sér til stuðnings ekki ná að sanna jafn afdráttarlausa fullyrðingu og þá sem um ræðir.

Ætla að skoða veru RÚV á auglýsingamarkaði
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar-og viðskiptaráðherra hyggjast setja á laggirnar þriggja manna starfshóp um málefni Ríkisútvarpsins. Hópnum er ætlað að ljúka vinnu sinni eigi síðar en 1. júlí næstkomandi.

„Allt að 70% afsláttur“ reyndist iðulega einungis fimm prósent
Dekkja- og bílaþjónustan ehf., rekstraraðili dekk1.is, hefur verið sektað vegna viðskiptahátta sinna. Auglýstur var allt að 70 prósent afsláttur í „Cyberviku“ en einungis var hægt að finna dekk á mun lægri afslætti, iðulega einungis fimm prósenta. Þarf félagið að greiða 200 þúsund króna sekt.

Fjölmiðlar og framtíðin
Mörg fjölmiðlafyrirtæki um allan heim eiga við ramman reip að draga um þessar mundir. Ör tækniþróun, samfélagsmiðlar og breytt neysluhegðun hefur óumdeilanlega áhrif á reksturinn. Fyrirtækin hafa sum hver þurft undirgangast uppskurð til að aðlaga sig breyttum veruleika.

Galið að MS hafi aðgang að upplýsingum um nýfædd börn og herji á foreldra
Móðir ungs barns er gagnrýnin á bæklinga sem Mjólkursamsalan hefur sent á foreldra ungra barna, þar sem Stoðmjólk, vara frá fyrirtækinu, er auglýst.

Björg og Bogey til Brandenburg
Hönnunar- og auglýsingastofan Brandenburg hefur ráðið tvo nýja starfsmenn, Björg Valgeirsdóttur og Bogeyju Ragnheiði Sigfúsdóttur. Báðar munu þær gegna stöðu viðskiptastjóra innan fyrirtækisins. Þær hafa báðar hafið störf.

Fjölmiðlar þurfa áskriftartekjur, ekki ríkisstyrki
Margir hafa dregið rangan lærdóm af gjaldþroti Fréttablaðsins. Lausnin er einföld og margreynd. Það mun hvorki bjarga fjölmiðlum að ríkisstyrkja þá í meira mæli né taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Rekstrarvandi fjölmiðla verður einungis leystur með vitundarvakningu á meðal landsmanna. Fólk þarf að borga fyrir fréttir. Sú leið er þrautreynd. Á blómaskeiði fjölmiðla var greitt fyrir þjónustuna.

Steinunn, Svanhildur og Guðrún til Aton.JL
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir, Guðrún Norðfjörð voru nýlega ráðnar til Aton.JL en þær hafa þegar hafið störf. Steinunn og Svanhildur starfa sem ráðgjafar og Guðrún starfar sem verkefnastjóri.

Stofnuðu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins eftir tveggja ára undirbúning
Í dag var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning. Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og stofnendur eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins.

Eitt stykki RÚV er horfið af auglýsingamarkaði
Fall Fréttablaðsins er stórviðburður á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Ekki bara því þar hverfur sögufrægur miðill sem um tíma var ekki aðeins útbreiddasti fjölmiðill landsins, heldur sá langsamlega arðbærasti í þokkabót.

Love Island, kynlífstæki og pósthross
Margir hlupu eflaust apríl í gær. Fjöldi fyrirtækja tók þátt í þessari alþjóðlegu hefð; Elko sagðist ætla að opna nýja verslun á Tenerife, Krónan auglýsti grænmetisfyllt páskaegg, Pósturinn boðaði umhverfisvæna aðgerð með dreifingu pósts á hestbaki, ný göng undir Selfoss áttu að verða að veruleika og svo lengi mætti telja.

Væri búin að taka RÚV af auglýsingamarkaði væri það lausnin
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og ferðamálaráðherra, segir daginn í dag hvorki vera góðan fyrir fjölmiðlun né lýðræði í landinu. Hún segir yfirvöld hafa stóraukið stuðning við einkarekna fjölmiðla og að hún væri búin að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði væri það lausnin við vanda fjölmiðla á borð við Fréttablaðið, sem gefið var út í hinsta sinn í morgun.