

Formaður Miðflokksins spurði forsætisráðherra hvernig hefði gengið að semja um bóluefni framhjá þeim samningum sem gerðir hefðu verið með Evrópusambandinu.
Börn fædd árið 2005 eða síðar skulu fara í sýnatöku við komuna til landsins eins og fullorðnir og allir sem koma frá hásmitasvæðum verður gert að taka sóttkví út í sóttvarnahúsi frá og með fyrsta apríl. Verið er að leita að hótelum til að hýsa þetta fólk.
Nei, sannarlega ekki. En umræðan um bólusetningar, sóttkvíarreglur, breytingar á sóttvörnum gagnvart fólki utan Schengen og fyrirhugaða breytingu á sóttvarnarreglum frá og með 1. maí hefur grautast töluvert saman undanfarna viku.
Kaffitár hefur lokað kaffihúsi sínu í Bankastræti tímabundið og endanlega hætt rekstri í Þjóðminjasafninu. Þetta staðfestir Marta Rut Pálsdóttir, rekstrarstjóri kaffihúsa hjá Kaffitári, í samtali við Vísi.
Læknir og hjúkrunarfræðingur, sem bæði hafa verið bólusett fyrir kórónuveirunni, fóru um borð í súrálsskip frá Brasilíu við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði í gær.
Bilun kom upp í greiningartæki sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans í gær sem tafði greiningu Covid-sýna. Ekki er reiknað með að það verði marktækar tafir á greiningu sýna í dag.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tvær tillögur sóttvarnalæknis um aðgerðir er tengjast landamærunum og kórónuveirufaraldrinum.
Sóttvarnaaðgerðir í Þýskalandi verða framlengdar um þrjár vikur og hertar verulega yfir páskana. Ástæðan er þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins sem gengur nú yfir Þýskaland og ýmis önnur Evrópuríki.
Þeim fjölgar mjög á milli daga sem eru í sóttkví vegna kórónuveirusmita. Í gær voru tæplega 200 einstaklingar í sóttkví en í dag eru þeir 435 samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is.
Skipverjar um borð í súrálskipinu Taurus Confidence sem smitaðir eru af Covid-19 eru allir með brasilíska afbrigðið. Þetta staðfestir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, við Fréttablaðið en raðgreiningu á smitunum er lokið.
Breska ríkisstjórnin ætlar að leggja hundruð þúsunda króna sekt á Englendinga sem reyna að ferðast til útlanda fyrir lok júní. Sektirnar eru hluti af hertum aðgerðum breskra stjórnvalda á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins.
Einn einstaklingur greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Hann var í sóttkví.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlar á fundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í dag að kynna drög að nýjum reglum varðandi fólk sem kemur hingað til lands.
Bandarísk yfirvöld telja að niðurstöður úr umfangsmikilli rannsókn á kórónuveirubóluefni AstraZeneca í Bandaríkjunum hafi stuðst við „úrelt gögn“. Því hafi fyrirtækið mögulega gefið ófullkomna mynd af virkni bóluefnisins.
Dönsk stjórnvöld komust í kvöld að samkomulagi um að danskt samfélag skuli verða opið að mestu þegar allir 50 ára og eldri hafa verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Þá var kynnt ítarleg langtímaáætlun um tilslakanir á sóttvarnareglum næstu tvo mánuði.
Ný norsk rannsókn sýnir að fólk er 2,6 sinnum líklegra til þess að þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda ef það smitast af breska afbrigðinu samanborið við upprunalega afbrigðið. Breska afbrigðið hefur verið í mikilli útbreiðslu í Noregi.
Nemandi í Laugarnesskóla greindist í dag smitaður af kórónuveirunni. Kennari við skólann greindist með veiruna í gær.
Yfirhafnsögumaður á Reyðarfirði, sem fara þurfti um borð í súrálsskip með veika skipverja innanborðs á laugardag, segir að honum hafi verið illa við að fara um borð. Þá segir hann að ekki hafi fengist upplýsingar um veikindi skipverjanna nema með krókaleiðum.
Þjóðhagsspá sem kom út í dag samhliða útgáfu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar spáir um 700 þúsund ferðamönnum hingað til lands í ár. Fjármálaráðherra segir bólusetningar þar lykilatriði og að gangur þeirra muni skera úr um hvort spárnar rætist.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalann, segir álagið á spítalann hafa aukist upp á síðkastið. Til skoðunar er hvort hækka eigi viðbúnaðarstig spítalans úr óvissustigi yfir á hættustig en ný afbrigði veirunnar munu ekki hafa áhrif á verklag á spítalanum.
Þrátt fyrir að leikmaður Fylkis sé smitaður og liðið hafi spilað gegn Stjörnunni á föstudagskvöldið eru Stjörnumenn ekki í sóttkví. Þetta staðfesti Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar.
Lögregla á Norðurlandi vestra sektaði tvo ferðamenn um helgina fyrir brot á sóttkví. Eftir komuna til landsins fóru ferðamennirnir í ferðir á bíl og á skíði. Þá áttu þeir bókað flug heim einum degi síðar en niðurstaða seinni skimunar átti að liggja fyrir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir aðstæður á landamærum hafa breyst upp á síðkastið; fleiri greinist nú í seinni landamæraskimun en áður og ljóst að sumir gæti ekki að sér í sóttkví.
Tveir farþegar í Norrænu greindust með kórónuveiruna er þeir komu um borð í ferjuna í Hirtshals í Danmörku. Farþegarnir höfðu báðir framvísað neikvæðu PCR-prófi í samræmi við reglur. Kannað verður við komuna til landsins hvort smitin eru gömul.
Nick Nurse gerði Toronto Raptors að NBA-meisturum á sínu fyrsta tímabili með liðið en nú gengur allt á afturfótunum hjá liðinu.
Starfsmaður Landspítala er meðal þeirra sem greindust með Covid-19 í gær og eru innan við tíu samstarfsmenn nú komnir í sóttkví vegna þessa. Ekki er talið að smitið muni hafa teljandi áhrif á starfsemi spítalans.
Starfsmaður KSÍ og fólk sem sat þjálfaranámskeið knattspyrnusambandsins um helgina er komið í sóttkví eftir að þátttakandi greindist með Covid-19. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, staðfestir þetta í samtali við Vísi og segir sambandið hafa verið í samskiptum við smitrakningateymið eftir að fregnir bárust af smitinu í gærkvöldi.
Allt er gert til að koma í veg fyrir að smit tíu skipverja súrálsskips berist út í samfélagið. Yfirlögregluþjónn á Austurlandi segir að enginn nema heilbrigðisstarfsmenn megi fara um borð í skipið og þá er megi enginn fara frá borði. Líðan skipverjanna er þokkaleg miðað við aðstæður að sögn yfirlögregluþjóns.
Norðurlöndin, þar á meðal Ísland, hafa ákveðið að rannsaka betur bóluefni AstraZeneca gegn Covid-19 áður en lengra er haldið með notkun bóluefnisins.
Bóluefni AstraZeneca reyndist veita góð vörn gegn Covid-19 í viðamikilli rannsókn í Bandaríkjunum. Fyrirtækið segir að sérfræðingar þess hafi ekki merkt aukna hættu á blóðtappa sem leiddi til þess að nokkur Evrópuríki stöðvuðu notkun efnisins tímabundið.