Faraldur kórónuveiru (COVID-19) „
173 174 175 176 177 178 179 180 181 … 334 ›
„Ég var alveg viss um að ég myndi deyja næst“ „Mér líður alveg bærilega en þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma,“ segir Pétur Reynisson, sem nýlega lauk endurhæfingu á Reykjalundi vegna Covid-19 eftirkasta. Pétur missti báða foreldra sína í vegna Covid-19 og voru þau fyrst til að falla frá vegna faraldursins hér á landi. Lífið 23.1.2021 07:00
„Án áhorfenda er ekkert leikhús“ Leiksýningin Vertu Úlfur var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn í fjóra mánuði sem sýnt er á stóra sviði leikhússins. Samkvæmt reglugerð um sóttvarnaraðgerðir, sem tók gildi í síðustu viku, mega nú um hundrað áhorfendur vera í salnum í stað fimmtíu áður. Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri vonast til að hægt verði að fylla salinn af áhorfendum áður en langt um líður. Lífið 22.1.2021 23:20
Útlit fyrir töf á afhendingu AstraZeneca innan Evrópusambandsins Færri skammtar af bóluefni AstraZeneca verða afhentir innan Evrópusambandsins næstu vikurnar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Búist var við hundrað milljónum skammta á fyrsta ársfjórðungi, en samkvæmt Financial Times gætu þeir orðið færri en fjörutíu milljónir. Erlent 22.1.2021 23:15
Dapurleg staða í Þýskalandi og víðar Á meðan staðan fer batnandi hér heima heldur faraldurinn áfram að herja af fullum krafti á önnur ríki Evrópu. Takmarkanir voru hertar víða í dag. Erlent 22.1.2021 21:37
Áhyggjuefni að færri fari í sýnatöku Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir fulla ástæðu til að gleðjast yfir þeim árangri sem hefur náðst í baráttunni við kórónuveiruna í þessari þriðju bylgju faraldursins. Enginn smit greindust innanlands í gær, en hátt í sjö hundruð fóru í sýnatöku. Innlent 22.1.2021 21:35
„Erfitt fyrir fólk að koma aftur í vinnuna eftir langa fjarveru“ Sóttvarnalæknir telur aðgerðir á landamærum hafa skipt sköpum í baráttunni við kórónuveiruna. Hann er bjartsýnn á að það takist að slaka á sóttvarnaraðgerðum fyrr en til stóð en segir þó mikilvægt að flýta sér hægt. Sálfræðingur segir erfitt fyrir marga að mæta aftur til vinnu eftir langa fjarveru nú þegar vinnustaðir eru farnir að bjóða fleirum að mæta aftur á skrifstofurnar. Innlent 22.1.2021 19:41
Mögulega hærri dánartíðni meðal þeirra sem smitast af breska afbrigðinu Fyrstu niðurstöður rannsóknar á hinu svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar benda til þess að það gæti verið hættulegra heilsu fólks og leitt til verri veikinda. Þetta er haft eftir Boris Johnson forsætisráðherra á vef breska ríkisútvarpsins. Erlent 22.1.2021 17:27
Rúmlega fimmtíu þúsund Þjóðverjar hafa dáið vegna Covid-19 Fjöldi þeirra sem hafa dáið vegna Covid-19 í Þýskalandi er kominn yfir fimmtíu þúsund. Yfirvöld þar opinberuðu í dag 859 dauðsföll milli daga og samkvæmt opinberum tölum hafa 50.642 dáið þar í landi. Erlent 22.1.2021 14:26
Zidane með veiruna Zinedine Zidane, þjálfari Spánarmeistara Real Madrid í fótbolta, greindist með jákvætt sýni við sýnatöku vegna COVID-19. Fótbolti 22.1.2021 13:17
Þórólfur bjartsýnn og útilokar ekki að slaka fyrr á aðgerðum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ef fram haldi sem horfir í fjölda innanlandssmita hér á landi muni hann taka frekari afléttingar til skoðunar. Hann leggur þó enn áherslu á að grunnreglan sé að flýta sér hægt. Erlendir miðlar sýna stöðunni á Íslandi áhuga enda ástandið í mörgum nágrannalöndunum afar erfitt. Innlent 22.1.2021 11:37
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Fimm greindust á landamærum. Alls eru 89 manns nú í einangrun vegna Covid-19. Innlent 22.1.2021 10:37
Rannsókn lokið: Ásmundarsalarmálið sent ákærusviði Lögregla hefur lokið rannsókn á mögulegum sóttvarnabrotum í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns verður málið sent ákærusviði lögreglunnar í dag, ef það er ekki þegar komið þangað. Innlent 22.1.2021 10:22
Nýju Bond-myndinni enn frestað Frumsýningu á nýju myndinni um njósnara hinnar hátignar James Bond, No Time to Die, hefur enn á ný verið frestað. Aðstandendur myndarinnar tilkynntu í nótt að nýr frumsýningardagur sé 8. október næsta haust. Bíó og sjónvarp 22.1.2021 08:47
Að minnsta kosti 54 af 63 þingmönnum hyggjast þiggja bólusetningu gegn Covid-19 Yfirgnæfandi meirihluti þingmanna hyggst þiggja bólusetningu gegn Covid-19, samkvæmt svörum við fyrirspurn Vísis. 54 segja annað hvort já eða hefðu sagt já ef þeir hefðu ekki þegar fengið sjúkdóminn. Innlent 22.1.2021 08:27
Fauci segir frelsandi að vinna ekki lengur undir Donald Trump Dr. Anthony Fauci, yfirmaður Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna og einn helsti sóttvarnasérfræðingur, segir að það sé frelsandi tilfinning að geta nú greint frá vísindalegum staðreyndum í tengslum við kórónuveiruna og faraldur hennar án þess að óttast viðbrögð Donalds Trump. Erlent 22.1.2021 06:58
„Hjálpin er á leiðinni“ Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur nú skrifað undir tíu forsetatilskipanir sem snúa að baráttunni við kórónuveirufaraldurinn í Bandaríkjunum. Tilskipununum er ætlað að hrinda af stað metnaðarfullri áætlun forsetans til að draga verulega úr útbreiðslu Covid-19. Erlent 21.1.2021 23:30
109 tilkynningar borist vegna gruns um aukaverkun Alls hafa 109 tilkynningar borist Lyfjastofnun vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Þar af eru 75 vegna bóluefnis Pfizer/BioNTech og 34 vegna Moderna. Níu tilkynningar eru metnar alvarlegar, ein í tengslum við bóluefni Moderna. Búið er að bólusetja 5.725 einstaklinga hér á landi með fyrri skammti. Innlent 21.1.2021 20:41
Vanskil aldrei verið minni þrátt fyrir efnahagsáfall Vanskil einstaklinga og fyrirtækja hafa aldrei verið minni en á árinu 2020 samkvæmt tölum úr vanskilaskrá Creditinfo. Telur fyrirtækið líklegt að greiðslufrestir frá lánastofnunum og fyrirtækjum sem veittir voru vegna áhrifa heimsfaraldurs COVID-19 eigi stóran þátt í þessari þróun. Viðskipti innlent 21.1.2021 18:32
Þjálfari kvennaliðs Santos lést úr COVID-19 Kórónuveiran hefur haft mikil áhrif á eitt liðið í kvennafótboltadeildinni í Mexíkó. Fótbolti 21.1.2021 18:00
Biden gefur í gegn veirunni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, skrifar undir tíu forsetatilskipanir í dag sem snúa að baráttunni við faraldur nýju kórónuveirunnar. Meðal þeirra aðgerða sem grípa á til er að skikka fólk til að auka framleiðslu bóluefna, auka skimun, opna skóla og fyrirtæki samhliða því að auka notkun andlitsgríma. Erlent 21.1.2021 15:33
Þurfum að vera búin undir veirustofna sem sleppa undan bóluefni Sóttvarnalæknir segir að fólk þurfi að búa sig undir það að stofnar kórónuveirunnar komi fram, sem bóluefni bíti ekki á. Ekki sé heldur ljóst hversu lengi ónæmi af þeim bóluefnum sem leyfi hafa fengist fyrir vari lengi og ekki útilokað að bólusettir þurfi aftur í bólusetningu. Innlent 21.1.2021 14:29
Biður fólk að hætta að senda tölvupósta til að komast ofar í forgangsröðun Sóttvarnalæknir biðlar til fólks að hætta að senda embætti landlæknis og sóttvarnalæknis tölvupósta með óskum um að komast framar í forgangsröðun í bólusetningu gegn kórónuveirunni. Slíkt skapi aðeins óþarfa álag á starfsfólk og leiði ekki til neins. Innlent 21.1.2021 12:21
Bíða ekki eftir ESB og samþykkja bóluefni AstraZeneca og Sputnik V Lyfjastofnun Ungverjalands hefur veitt bóluefni AstraZenica og rússneska bóluefninu Sputnik V bráðabirgðaleyfi í landinu. Erlent 21.1.2021 12:07
Fáum heldur færri skammta frá Pfizer næstu vikur en gert var ráð fyrir Heldur færri skammtar af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer gegn kórónuveirunni koma til landsins á næstu vikum en gert var ráð fyrir. Skorturinn verður hins vegar bættur upp í mars og heildarfjöldi skammta í marslok verður því óbreyttur frá því sem áætlað var. Innlent 21.1.2021 11:18
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki. Innlent 21.1.2021 10:40
Svona var 155. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Fundinum verður streymt á Vísi. Innlent 21.1.2021 10:29
COVID-19 - spotkanie informacyjne Najnowsze informacje dotyczące obecnej sytuacji związanej z COVID-19. Polski 21.1.2021 10:17
Bæði eitt versta og besta ár lífsins Bolli Thoroddsen heillaðist af Japan og rekur þar fyrirtækið Takanawa og dvelur þar langtímum en hann var gestur í Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun. Hann fór fyrst út til Japans árið 1995 en þá var hann fjórtán ára gamall og fékk ferðina í fermingargjöf frá móður sinni. Lífið 21.1.2021 07:01
Rafræn bólusetningarvottorð aðgengileg á morgun Þeir fyrstu sem fengu bólusetningu við covid-19 hér á landi fá sína seinni sprautu í dag og á morgun. Embætti landlæknis leggur nú lokahönd á rafræna lausn sem á að gera fólki kleift að nálgast bólusetningarvottorð í gegnum netið á heimasíðunni heilsuvera.is. Innlent 20.1.2021 18:24
Lögreglan lýkur brátt rannsókn á málinu í Ásmundarsal Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýkur væntanlega rannsókn sinni á hvort að sóttvarnarlög hafi verið brotin í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Í framhaldinu verður hún send til ákærusviðs sem tekur ákvörðun um framhaldið. Innlent 20.1.2021 15:00