Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Bóluefni Pfizer gæti fengið markaðsleyfi í Evrópu á morgun
Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu mun á morgun, mánudag, koma saman til þess að afgreiða umsókn lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni þeirra við Covid-19.

Svíar og Frakkar loka á Bretland
Svíþjóð og Frakkland hafa bæst í hóp þeirra Evrópuríkja sem hafa sett takmörk á eða bannað alfarið samgöngur frá Bretlandi vegna nýs afbrigðis kórónuveiru sem dreifst hefur um Bretland, og er talið meira smitandi en önnur afbrigði.

Segja bóluefni fyrir 87 prósent þjóðarinnar tryggt
Íslensk stjórnvöld hafa þegar tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

„Við erum ekkert að fara á taugum yfir þessu núna“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki hafa komið til skoðunar að leggja til að gripið verði til sérstakra ráðstafana vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar sem komið hefur upp í Bretlandi, og er talið meira smitandi en önnur afbrigði.

Rúmlega tvö hundruð í sóttkví fyrir jól eftir smit í skóla
Rétt tæplega tvö hundruð börn og fjörutíu starfsmenn úr tveimur skólum í Reykjanesbæ eru í sóttkví eftir að covid-19 smit kom upp á báðum skólum. Þeir sem eru í sóttkví fara ekki í skimun fyrr en á aðfanga- og jóladag.

Fauci bólusetti jólasveininn
Anthony Fauci, helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna í kórónuveirufaraldrinum, sló á áhyggjur barna um að kórónuveirufaraldurinn gæti sett strik í reikninginn hvað varðar komu jólasveinsins. Sagðist hann hafa farið til Norðurpólsins og bólusett jólasveininn sjálfur.

Banna flug frá Bretlandi vegna nýja afbrigðisins
Nokkur Evrópulönd hafa gripið til þeirra ráða að banna samgöngur frá Bretlandi og hefur flugi til að mynda verið aflýst. Er þetta gert vegna þess nýja afbrigðis kórónuveirunnar sem hefur fundist í Bretlandi og er talið vera sjötíu prósent meira smitandi en önnur afbrigði.

Vísbendingar um að faraldurinn gæti verið á uppleið
Ákveðnar vísbendingar eru um að faraldurinn gæti verið á uppleið hér á landi að sögn sóttvarnalæknis sem segir veiruna úti í samfélaginu.

Þrettán greindust innanlands í gær
Þrettán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru átta í sóttkví við greiningu. Fimm voru utan sóttkvíar. Öll greindust í einkennasýnatöku.

WHO í samskiptum við Breta vegna nýja afbrigðisins
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) fylgist grannt með stöðu mála í Bretlandi vegna nýja afbrigðisins af kórónuveirunni sem hefur náð töluverðri dreifingu í Lundúnaborg og suðausturhluta Bretlands. Stofnunin er í nánum samskiptum við yfirvöld og verið er að rannsaka afbrigðið.

Þingkona sýndi frá bólusetningu á Instagram
Þingmönnum öldunga- og fulltrúadeildar Bandaríkjaþings var boðið í bólusetningu á föstudagskvöld. Bandaríska þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez var á meðal þeirra sem þáði bólusetninguna, en bólusetning þingmanna var þáttur í því að tryggja áframhaldandi starfsemi þingsins.

Réðst á starfsmann sem fór fram á grímunotkun
Einn var handtekinn í verslun í Breiðholti á sjöunda tímanum í gærkvöldi fyrir að ráðast á starfsmann. Starfsmaðurinn hafði beðið viðkomandi um að nota grímu inni í versluninni.

Gögn frá Facebook: Höfuðborgarbúar meira á ferðinni í desember
Með auknum umsvifum og hreyfingu fólks aukast líkur á dreifingu SARS-CoV-2, segja vísindamennirnir sem standa að baki spálíkaninu um líklega þróun Covid-19 faraldursins á Íslandi.

„Núna kom í fyrsta skipti tímabil þar sem maður náði andanum“
Þórður Jörundsson byrjaði ungur í hljómsveitum og ætlaði alltaf að verða tónlistarmaður. Hann vann við það samhliða öðru í rúmlega tíu ár með hljómsveitinni Retro Stefson. Hönnunin heillaði þó og nú er hann með vöru til sölu í verslun bróður síns Jör.

Nýja afbrigðið mögulega 70% meira smitandi
Nýtt afbrigði Covid-19 sem hefur náð töluverðri dreifingu í Lundúnum og suðausturhluta Bretlands er talið vera allt að 70% meira smitandi en önnur afbrigði. Enn sem komið bendir ekkert til þess að það valdi alvarlegri sjúkdóm eða sé banvænna.

Hætt að bjóða upp á útiæfingar eftir að lögreglan mætti í morgun
Brynjar Helgi Ingólfsson, yfirþjálfari í CrossFit Kötlu, fékk óvænta heimsókn á útiæfingu stöðvarinnar í morgun. Rétt fyrir klukkan ellefu mætti lögreglan á svæðið og í kjölfarið var stöðinni gert að loka.

Níu létust þegar öndunarvél sprakk á Covid-deild spítala
Níu eru látin eftir að öndunarvél sprakk á spítala fyrir kórónuveirusjúklinga í suðurhluta Tyrklands.

Biden bólusettur eftir helgi
Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, og Dr. Jill Biden, eiginkona hans, munu fá fyrri skammt bóluefnis við Covid-19 á mánudaginn.

Skelltu sér saman í bústaðinn og smituðust af Covid-19
Þrettán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar við greiningu. Rekja má smit sem greindust í gær til hóps sem fór saman í sumarbústað, sem sýni vel að veiran sé enn úti í samfélaginu.

Þrettán greindust innanlands í gær
Þrettán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Átta voru í sóttkví við greiningu en fimm utan sóttkvíar.

Útgöngubann yfir hátíðirnar á Ítalíu
Öll svæði Ítalíu hafa nú verið skilgreind sem hættusvæði og útgöngubann verður í gildi yfir hátíðirnar. Ítalir mega aðeins ferðast til og frá vinnu og til þess að leita sér heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins.

Neyðarleyfi í höfn hjá Moderna
Bandaríska lyfjaeftirlitið hefur veitt bóluefni Moderna neyðarleyfi í kjölfar einróma niðurstöðu ráðgjafaráðs stofnunarinnar um að mæla með veitingu leyfisins. Yfirvöld hafa gert samninga um kaup á 200 milljónum skammta frá fyrirtækinu.

Sagðist ekki þurfa að nota grímu og neitaði að yfirgefa verslunina
Rétt fyrir miðnætti þurfti lögregla að hafa afskipti af konu í verslun í Garðabæ sem þvertók fyrir það að nota andlitsgrímu og neitaði jafnframt að yfirgefa verslunina. Þegar lögreglu bar að garði vildi hún ekki gefa upp nafn og kennitölu og gaf á endanum upp rangt nafn.

Topp tíu viðhorfspistlar: Lán, ólán, foreldrar, Kári Stefáns, partí, opin bréf og Helgi Seljan
Þegar skoðuð eru gögn um hvaða viðhorfspistlar vöktu mesta athygli að teknu tilliti til lestrartalna, kemur á daginn að þeir fjalla um allt milli himins og jarðar.

Of margir á staðnum og gestir með leiðindi við lögreglu
Lögreglan sinnti göngueftirliti í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi þar sem staðan var tekin á veitingahúsum bæjarins. Sérstaklega var hugað að þeim stöðum sem fengu athugasemdir síðustu helgi en samkvæmt dagbók lögreglu var ástandið almennt mjög gott. Einn staður var þó rýmdur vegna brota á samkomubanni.

Varaforseti Bandaríkjanna bólusettur í beinni
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, var í dag bólusettur fyrir Covid-19 í beinni útsendingu. „Ég fann ekkert fyrir þessu,“ sagði hann við myndavélina eftir að hann var bólusettur.

Bóluefnin sem Íslendingar hafa samið um kosta 640 milljónir
Belgískur ráðherra hljóp á sig í dag og birti viðkvæmar trúnaðarupplýsingar á Twitter; hvað Evrópusambandið hefur skuldbundið sig til að greiða fyrir þau bóluefni gegn Covid-19 sem það hyggst kaupa.

Takmarkanir hertar í Svíþjóð og metfjöldi smitaðra
Svíar þurfa að bera grímur þegar þeir nýta sér almenningssamgöngur og fleiri en fjórir mega ekki vera inni á veitingastöðum í einu frá og með 24. desember.

Samhugur, samstaða og samvera í heimsfaraldri
Það er ljóst að þessi jóla og áramótahátíð verður öðruvísi en oft áður. Reyndar hafa margir eflaust upplifað jólahátíðina í skugga erfiðleika, sorgar og söknuðar vegna ýmissa ástæðna svo sem ástvinamississ, skilnaða og fjárhagserfiðleika svo eitthvað sé nefnt.

Fjöldatakmarkanir eigi við innandyra sem utandyra
Reglur um fjöldatakmarkanir gilda jafnt innandyra sem utandyra. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu.