
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Mikil fækkun umframdauðsfalla
Umframdauðsföllum á Íslandi fækkaði mikið í febrúar eftir gríðarlega aukningu í desember og janúar. Um tíma voru umframdauðsföll hvergi meiri í allri Evrópu en á Íslandi, 29 prósent, en í febrúar var hlutfallið komið niður í 10,7 prósent.

Loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar langt frá því að nást
Aðeins er útlit fyrir að innan við helmingur þess samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda sem ríkisstjórnin stefnir að fyrir lok áratugsins náist með núverandi aðgerðum. Losun á Íslandi jókst á milli ára árið 2021 en var þó ennþá lægri en fyrir kórónuveiruheimsfaraldurinn.

Ný rannsókn: Stefnir nú í að jafnrétti náist eftir 300 ár
Eflaust telja einhverjir að nú sé verið að reyna að herja á jafnréttisbaráttunni með fyrirsögn sem er svo sjokkerandi að hún getur ekki annað en náð athygli.

Margir einkennalausir með blóðtappa
Á bilinu 300 til 400 manns greinast árlega með blóðtappa hér á landi. Sjúkdómurinn er talsverð byrði á bæði heilbrigðiskerfinu og samfélaginu öllu því margir eru vangreindir og einkennalausir. Íslenskt fyrirtæki kemur að blóðtapparannsóknum á skógarbjörnum.

Ófyrirséð skakkaföll Berjaya og Icelandair Group fara fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Berjaya Hotels og Icelandair Group gegn fasteignafélaginu Suðurhúsum vegna húsaleigu sem fyrirtækin greiddu ekki í kórónuveirufaraldurinn. Málið er sagt hafa fordæmisgildi fyrir áhrif ófyrirséðra og óviðráðanlegra atvika á samninga.

Borgarstjóri segir Reykjavík með betri lánakjör en önnur sveitarfélög
Borgarstjóri segir Reykjavik nú þegar búna að afla sér um 7 milljarða af þeim 21 milljarði sem áætlað væri að taka að láni í ár. Borgin væri með minni skuldir miðað við tekjur en nágrannasveitarfélögin og önnur stærstu sveitarfélög landsins.

Fær „draumaferð“ sem fór út um þúfur ekki bætta
Kona sem missti af því sem hún lýsti sem draumaferð vegna glundroða á alþjóðlegum flugvöllum síðasta sumar fær kostnað sinn ekki endurgreiddan frá ferðaskrifstofunni sem bókaði ferðina. Hún taldi ráðgjöf ferðaskrifstofuna hafa verið óábyrga vegna ástandsins á flugvöllum á þeim tíma.

Panikka alltaf á mismunandi tímum en nú í skýjunum yfir viðtökunum
Það var heldur betur stemning í síðustu viku hjá þeim stöllunum Sigurlaugu Guðrúnu Jóhannsdóttur og Ölmu Dóru Ríkarðsdóttur, sem kynntu til leiks fyrstu útgáfuna af HEIMA-appinu svo kallaða:

Læknir áminntur fyrir að gefa út vottorð fyrir dýralyfi gegn Covid
Heilbrigðisráðuneytið staðfesti áminningu sem embætti landlæknis veitti heimilislækni fyrir að gefa út rangt og villandi læknisvottorð fyrir sjúkling sem flutti inn dýralyf sem fyrirbyggjandi meðferð við Covid-19. Læknirinn bar fyrir sig að hann vissi ekki að lyfið væri ætlað dýrum en ekki mönnum.

Nettröll níddust á föður sex ára drengs sem lést
Blaðamaður sem missti sex ára son sinn í janúar hefur orðið vinsælt skotmark fólks á netinu sem segist sannfært um að bóluefni gegn Covid hafi dregið barnið til dauða. Þetta fólk hefur níðst á manninum og sakað hann um að bera ábyrgð á dauða barnsins, jafnvel þó það hafi alls ekki dáið vegna bóluefna.

Æ fleiri karlar pissa sitjandi
Æ fleiri karlar hafa þvaglát sitjandi og virðist sem þeim hafi fjölgað sérstaklega í Covid-faraldrinum. Í Þýskalandi geta menn orðið fyrir því á almenningssalernum að Angela Merkel skipi pissandi körlum að setjast á klósettið.

Makamissir og veikindi: „Mér fannst aðalatriðið vera að hann kæmi heim“
„Ég var búin lifa það versta því það er ekkert verra en að missa barn. En munurinn var samt sá að þá héldum við Ási utan um hvort annað á næturnar og grétum saman. Núna var ég ein,“ segir Rúna Didriksen um sársaukann og sorgina sem fylgir því að missa maka sinn til áratuga, en Rúna missti einnig son í bílslysi árið 1987.

Flestar greiningar inflúensu frá áramótum
Vikuna 13. til 19. mars greindust fleiri inflúensutilfelli en nokkra aðra viku frá áramótum. Alls greindust 56 með inflúensu, þar af 47 með inflúensustofn B, fimm með inflúensustofn A(H3) og fjórir með stofn A(H1).

Í kjölfar Covid: Miklu fleira en Stóra uppsögnin í gangi
Í kjölfar heimsfaraldurs hefur mikið verið fjallað um Stóru uppsögnina, eða The Great Resignation tímabilið. Þar sem sú þróun sýndi sig á vinnumarkaði um allan heim að hlutfallslega hefðu aldrei jafn margir sagt upp störfum sínum og hreinlega tekið ákvörðun um að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi.

Óvissustigi vegna Covid aflýst
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Frá 27. janúar 2020 hafa ýmis almannavarnastig verið í gildi en er þar um að ræða óvissu-, hættu og neyðarstig.

Boris segir samkomurnar hafa verið nauðsynlegar
Boris Johnson svaraði fyrir „Partygate“ málið svokallaða fyrir þingnefnd í dag. Þar sagði hann að allar samkomur sem haldnar voru á Downingstræti 10, á meðan samkomutakmarkanir voru í gildi, hafi verið nauðsynlegar.

Tvö ár að sætta sig við breytta tilveru eftir Covid
Í lok febrúar þessa árs voru þrjú ár frá fyrsta Covid-19 smitinu hér á landi. Okkur óraði ekki fyrir því sem kom í kjölfarið en það fennir fljótt yfir þann tíma sem við bjuggum við takmarkanir og sóttvarnaraðgerðir.

Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar.

Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna
Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa.

Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur.

Skilur ekki hvernig Persónuvernd komst að niðurstöðunni
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir úrskurð Persónuverndar sem héraðsdómur felldi úr gildi í dag vera furðulegan. Fyrirtækið hafi einungis verið að sinna því verkefni sem sóttvarnalæknir fól þeim.

Kári lagði Persónuvernd
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Persónuverndar um að Íslensk erfðagreining hefði brotið persónuverndarlög í þremur málum sem sneru að notkun blóðsýna sjúklinga með Covid-19.

Bein útsending: Aðgerðir á vinnumarkaði í heimsfaraldri
Norræn ráðstefna stendur nú yfir á Grand Hótel um það hvað Norðurlöndin geta lært af þeim aðgerðum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins. Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 16 og er haldin í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hægt er að fylgjast með beinu streymi í spilara að neðan.

Óvissustigi vegna Covid-19 loks aflétt á Landspítala
Landspítalinn var í gær færður af óvissustigi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Runólfur Pálsson forstjóri ákvað þetta í samráði við farsóttanefnd spítalans en sjúkdómurinn Covid-19 virðist nú vera búinn að ná jafnvægi í samfélaginu.

Kröfur upp á 735 milljónir í þrotabú Hótel Sögu
Skiptum er lokið í þrotabú Hótel Sögu ehf., rekstrarfélagsins sem Íslands rak Hótel Sögu í Bændahöllinni við Hagatorg um áratugaskeið. Lýstar kröfur voru tæpar 735 milljónir króna.

Kínverjar opna fyrir erlendum gestum
Kínverjar hafa ákveðið að opna landamæri sín fyrir erlendum ferðamönnum á ný eftir kórónuveirufaraldurinn og taka breytingarnar gildi strax á morgun miðvikudag.

Nýsköpun í útrás: Stundum svolítið klaufalegt en tókst á endanum
Við heyrum oft af nýsköpunarfyrirtækjum sem eru að gera góða hluti. Fáum fréttir af fjármögnun eða styrkjum og markmiðum um útrás. En hvernig ætli síðan útrásin gangi? Og hvernig gengur hún fyrir sig þegar farið er af stað?

Máttu reka hjúkrunarfræðing sem neitaði hraðprófi
Heilbrigðisfyrirtæki var heimilt að rifta ráðningarsamningi skurðhjúkrunarfræðings sem neitaði að gangast undir hraðpróf þegar ómíkronafbrigði kórónuveirunnar blossaði fyrst upp árið 2021. Héraðsdómur taldi konuna hafa gerst seka um verulega vanefnd á samningi sínum við fyrirtækið.

Of ung til að stíga ekki reglulega út fyrir þægindaramman
„Mér fannst ég of ung til að vera ekki að takast á við nýjar áskoranir og stíga reglulega út fyrir þægindaramman,,“ segir María Guðjónsdóttir og hlær þegar hún skýrir út hvers vegna hún ákvað í fyrra að sækja um starf framkvæmdastjóra viðskiptaskrifstofu Breska sendiráðsins í Reykjavík. Sem einmitt í þessari viku, þann 9.mars, stendur fyrir viðburði fyrir íslensk fyrirtæki og hagaðila sem hafa áhuga á viðskiptum við og í Bretlandi.

Þríeykinu bárust alvarlegar hótanir: „Það vilja fjörutíu sextán ára krakkar lemja þig“
Þau Alma, Víðir og Þórólfur máttu sæta því á hápunkti faraldurs Covid-19 að þeim bárust líflátshótanir. Hótanirnar voru svo alvarlegar að lögregla vaktaði heimili þeirra allan sólarhringinn.