Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

37 greindust innanlands
Alls greindust 37 með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa svo margir greinst á einum degi síðan 8. september. Fjórtán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 38 prósent. 23 voru utan sóttkvíar, eða 62 prósent.

Afkoma hins opinbera ekki verri síðan 2008
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 254 milljarða króna árið 2020, eða sem nemur 8,6 prósent af vergri landsframleiðslu ársins. Hefur hún ekki verið verri síðan 2008. Faraldur kórónuveirunnar hefur haft mikil áhrif á tekjur og gjöld hins opinbera.

Grímuskylda í leikskólum borgarinnar að minnsta kosti fram að mánaðamótum
Ákveðið var á fundi hjá Reykjavíkurborg í morgun að viðhalda og ítreka grímuskyldu í leik- og grunnskólum borgarinnar fram að mánaðamótum. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að flestir þeir sem sæta einangrun þessa dagana eru börn á yngsta og miðstigi grunnskóla.

Tíu greindust smitaðir á Reyðarfirði og skólum lokað
Alls greindust tíu manns með kórónuveiruna á Reyðarfirði eftir fjöldasýnatöku gærdagsins sem ráðist var í eftir að grunur kom upp um smit í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Skólum verður áfram lokað í dag á meðan smitrakning stendur yfir.

Bein útsending: Hjúkrunarfræðingar í heimsfaraldri
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stendur fyrir rafrænu málþingi í dag milli klukkan 9 og 16.

Í kjölfar Covid: Engin skömm að því að tala um hvernig okkur líður
„Í könnuninni kom fram að algengasta hlutfall launa af rekstrarkostnaði sé 70-79%, meðalhlutfallið var 57%. Hlutfallið er tæp 52% á almenna markaðnum og ríflega 70% á opinbera markaðnum,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðstjóri Deloitte og einnig í vinnuhópi hjá Mannauði um mannauðsmælingar og tölfræði, um nýjar niðurstöður könnunar sem Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi, lét gera meðal félagsmanna.

Ekki á réttri leið í losun eftir faraldurinn
Ekkert bendir til töluverður samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda í kórónuveirufaraldrinum í fyrra hafi nokkur varanleg áhrif á loftslagsbreytingar á jörðinni. Losun vegna orkuframleiðslu og iðnaðar var þegar orðin jafnmikil eða meiri á fyrri helmingi þessa árs en fyrir faraldurinn.

Farsóttarhúsinu í Fosshótel Reykjavík lokað
Farsóttarhúsinu í Fosshótel Reykjavík var lokað í dag, en þar gistu um og yfir 300 manns þegar mest lét. Þetta staðfestir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa Rauða krossins, í samtali við Vísi.

Skarðshlíðarleikskóli lokaður í dag vegna smits meðal nemenda
Skarðshlíðarleikskóli í Hafnarfjarðarbæ var lokaður í dag vegna Covid-19 smits. Um er að ræða eitt barn af um 80 sem skráð eru á fjögurra deilda leikskólann.

Grunnskólanum lokað vegna gruns um smit
Grunur leikur á Covid-19 smiti í grunnskólanum á Reyðarfirði og hefur því verið ákveðið að loka skólanum í dag meðan unnið er að kortlagningu mögulegs smits.

Barn lagt inn á sjúkrahús með Covid-19 í fyrsta sinn
Unglingsdrengur var í gær lagður inn á Landspítalann vegna Covid-19. Þetta er í fyrsta skipti sem barn er lagt inn á spítala hérlendis með sjúkdóminn eftir að faraldurinn hófst.

26 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
Alls greindust 26 með kórónuveiruna innanlands í gær. Átján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 69 prósent. Átta voru utan sóttkvíar, eða 31 prósent.

Bandarískir háskólar hyggjast rannsaka tengslin milli bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna
Rannsakendur við fimm bandarískir háskólar hyggjast nú gera langtíma rannsókn á mögulegum tengslum bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna. Margar konur hafa greint frá breytingum í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19 en enn sem komið er hefur ekki verið sýnt fram á að um orsakasamband sé að ræða.

Covid árið 2020 gert upp: Veikindadögum fækkaði og jafnlaunavottunin virkar
Starfsmannaveltan var 13% á því sögulega ári 2020 þegar Covid skall á. Veikindadögum fækkaði á milli ára og jafnlaunavottunin er að virka. Þá eru fyrirtæki að þreifa fyrir sér í sjálfvirknivæðingu og gervigreind, þó þannig að starfsfólki er ekki að fækka.

Neyddu Steinda í Covid-19 heimapróf í miðjum þætti
Það er Tenerife þema í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu BLÖKASTIÐ sem kemur út í dag. Þáttur vikunnar er í mynd og fá áhorfendur meðal annars að fylgjast með Steinda Jr. í Covid-19 sýnatöku.

Nýjar takmarkanir fá misjafnar viðtökur: Menntskælingar í skýjunum en hárgreiðslumenn brjálaðir
Nýjar samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti leggjast misjafnlega í fólk. Hárgreiðslufólk skilur ekkert í því að þurfa áfram að bera grímur á meðan menntaskólanemar geta ekki beðið eftir að komast aftur á skólaböll.

Hefði viljað ganga lengra í dag
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefði viljað ganga lengra í tilslökunum á sóttvarnatakmörkunum innanlands. Hún hefði meðal annars vilja afnema grímuskyldu.

Ný reglugerð tekur gildi á miðnætti: 500 mega koma saman og opnunartími lengdur
Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um sóttvarnaaðgerðir en samkvæmt henni munu 500 geta komið saman án takmarkana og opnunartími skemmtistaða verður lengdur um klukkustund, það er að segja að staðirnir mega hleypa gestum inn til miðnættis en verða að vera búnir að loka klukkan eitt.

29 greindust innanlands
Alls greindust 29 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sautján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 59 prósent. Tólf voru utan sóttkvíar, eða 41 prósent.

Bein útsending: Ráðherra ræðir tilslakanir innanlands
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er mætt á reglulegan þriðjudagsfund ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Pútín einangrar sig vegna smitaðra í hans innsta hring
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur ákveðið að einangra sig eftir að fólk í hans innsta hring greindist með Covid-19. Forsetinn ku vera við góða heilsu en hann hefur fengið tvo skammta af rússneska bóluefninu Sputnik V.

Sleppti Met Gala vegna bólusetningarkröfu og lætur gagnrýnendur heyra það
Tónlistarkonan Nicki Minaj var meðal þeirra sem mættu ekki á Met Gala í gærkvöldi, sökum þess að kröfur voru gerðar um bólusetningu. Hvatti hún þá sem völdu að mæta til að fara varlega og bera góða grímu.

500 megi koma saman og opnunartími skemmtistaða lengist
Sóttvarnalæknir leggur til talsverðar tilslakanir á öllum samkomutakmörkunum innanlands í minnisblaði sem hann skilaði til heilbrigðisráðherra í gær. Þar leggur hann til að 500 megi koma saman og að skemmti- og veitingastaðir fái að hafa opið lengur.

Vill slaka á eins og mögulegt er með mið af fyrri bylgjum
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir tilefni til að slaka á takmörkunum innanlands í ljósi þess hve staðan í faraldrinum er góð. Þar eru allar takmarkanir undir. Faraldurinn virðist kominn í mikla rénun hér á landi og greindust afar fáir smitaðir af veirunni um helgina; 14 á laugardaginn og 26 í gær.

26 greindust smitaðir innanlands
Að minnsta kosti 26 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Þrettán voru í sóttkví við greiningu og þrettán utan sóttkvíar.

Falla frá áformum um „bólusetningarvegabréf“
Stjórnvöld í Bretlandi eru hætt við að taka í notkun svokölluð bólusetningarvegabréf, líkt og til stóð að gera í lok þessa mánaðar. Vegabréfinu var ætlað að gera bólusettum kleift að sýna fram á bólusetningu, til þess að fá að fara á skemmtistaði og mannmarga viðburði.

Tilslakanir í kortunum
Sóttvarnarlæknir sendi Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í morgun minnisblað með tillögum í Covid-sóttvörnum. Þetta staðfestir ráðherra í samtali við fréttastofu, en segist ekki hafa lesið minnisblaðið í þaula, en þar sé að finna tillögur um tilslakanir í sóttvarnaraðgerðum.

Fjórtán greindust smitaðir
Fjórtán greindust smitaði af Covid-19 innanlands í gær. Níu þeirra voru fullbólusettir og níu voru í sóttkví. Sex eru á sjúkrahúsi og tveir á gjörgæslu.

31 greindist smitaður
31 greindist smitaður af Covid-19 hér á landi í gær. Sex eru á sjúkrahúsi og tveir á gjörgæslu. Nítján þeirra sem greindust voru óbólusettir og rúmur helmingur var í sóttkví.

Rannsaka hvort viðbrögð fyrrverandi ráðherra í upphafi faraldursins hafi verið saknæm
Sérstakur rannsóknarréttur franska lýðveldisins rannsakar nú hvort sækja eigi Agnès Buzyn, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Frakklands, til saka vegna viðbragða hennar í upphafi kórónuveirufaraldursins.