
Kaffispjallið

Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney
Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og lögfræðingur hjá Kvis, segist vera kómísk blanda af einstaklingi sem fæddist 107 ára en er ung í anda. Hödd segir kaffivélina mjög elskað heimilistæki og nýtir morgnana í að læra ítölsku með Duolingo.

„Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“
Páll Pálsson fasteignasali á Heima er best, segir að eftir að testerónið fór að minnka og estrógenið að aukast geti hann tárast yfir nánast öllu sem hann horfir á. Páll leggur áherslu á „me time“ á morgnana.

Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, viðurkennir að langa ekkert endilega fram úr strax og hún vaknar á morgnana. Öll Abbalögin og Meat Loaf koma henni alltaf í dansgírinn og vinælt á hlaupalagalistanum eru Bubbi Morthens og Grýlurnar.

Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana
Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill og texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni TVIST, segir tvær mennskar vekjaraklukkur sjá til þess að hann fari snemma fram úr á morgnana; Önnur er fjögurra ára og hin eins og hálfs árs.

„Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“
Friðrik Björnsson, fjármálastjóri AÞ-Þrifa, á það til að elda heilu kvöldmáltíðirnar þegar fjölskyldan er sofnuð en Friðrik er einn þeirra sem snúsar snúsin þegar vekjaraklukkan hringir á morgnana.

Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur
Snorri Másson, ritstjóri eigin fjölmiðils, segist hafa óeðlilega þörf fyrir því að strauja allt. Snorri nýtir tímann á morgnana til að strauja, enda sannfærðist hann um það eitt sinn að nítíu mínútur þyrftu helst að líða frá því að fólk vaknar og þar til það drekkur fyrsta kaffibollann sinn.

„Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“
Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Elmu orkuviðskipta, mælir með því að allir vinahópar eigi sér sitt lag til að koma sér í gírinn. Í hennar vinkvennahópi er lagið Fernando tekið á góðum stundum og er Katrín ekki frá því að hópurinn hljómi jafnvel betur en sjálf Cher.

Vopnfirska kjötsúpan stoltið hjá efnahagsráðgjafa ríkistjórnarinnar
B maðurinn Konráð S. Guðjónsson, efnahagsráðgjafi ríkistjórnarinnar, viðurkennir að hann muni seint teljast meistarakokkur. Stoltið í eldhúsinu er samt vopnfirska kjötsúpan sem er innblásin af Jóa stjúpföður hans.

„Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“
Dr.Erla Björnsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns segir alvarlega andlitsblindu sína oft geta uppskorið mikil hlátursköst og oftar en ekki kemur hún Erlu í alvarleg vandræði. Daginn byrjar Erla með því að knúsa eiginmanninn.

„Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“
Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri hjá Katla Travel og formaður SAF finnst gaman að elda og elskar ítalska eldhúsið og að vinna með villibráð sem hann veiðir sjálfur. Pétur segir börnin sín betur kunna að meta matseldina hans nú en þegar þau voru yngri.

Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að
Berglind Óskarsdóttir, fata- og fylgihlutahönnuður hefur verið búsett ásamt þremur börnum sínum í Mílanó á Ítalíu síðastliðin átta ár. Best finnst henni að drekka morgunbollann úti í garði, hlustandi á fuglana synga, lesa fréttir og skrolla á Instagram.

Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni
Jóhann Gunnar Jóhannsson, forstjóri Securitas, er snúsari. Nema á sumrin, þá vaknar hann fyrr og fer á mótorhjóli í vinnuna.

Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu
Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara.

„Einn mjög fárra karla á mínum aldri sem er ekki í golfi!“
Það er allt í mjög föstum skorðum hjá Andrési Magnússyni framkvæmdastjóri SVÞ, sem segist svo vanafastur að hann taki dræmt í allar hugmyndir eiginkonunnar um breytingar á morgunvenjum.

„Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“
Brynhildur Lilja Björnsdóttir forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar, segist svo vel gift A manneskju að hún fær rjúkandi heitt rjómakaffi í rúmið frá eiginmanninum á hverjum morgni. Og D-vítamín.

Vandræðalega kvöldsvæfur framkvæmdastjóri
Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar stofnandi indó sparisjóðs segir morgnana besta tíma dagsins en þá situr hann með fjögurra ára syni sínum og deilir með honum ristabrauðsneið áður en aðrir á heimilinu vakna.

Gæðasamtöl við dótturina, mömmu eða vinkonu á leið í vinnu
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Verði Tryggingum, nýtir tímann vel á leiðinni til vinnu á morgnana. Því þá á hún góða gæðastund með dótturinni í bílnum og eftir að hafa skutlað henni í skólann, hringir hún oft í vinkonu eða mömmu sína og tekur stutt spjall.

Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum
Þótt Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventurues, vakni snemma á morgnana, er hann B-maður að eðlisfari, sofnar seint á kvöldin en freistast til að mæta uppsafnaðri svefnþörf á öðrum stöðum, til dæmis í leikhúsi, flugvélum, á tónleikum eða í kirkjum.

Nú er hægt að kúra og slappa af á morgnana
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir morgnana nokkuð rólegri nú en þegar börnin voru lítil og læti dagsins hófust við fyrsta hanagal. Í dag nýtur hún þess að horfa út um gluggann og fylgjast með barnabörnunum í leikskólanum.

„Það er fátt skemmtilegra en að taka einn Tene dag“
Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri Flurekstrarsviðs Play og flugstjóri, segir fáa koma sér í betra skap en Sveppa og Pétur Jóhann. Skemmtilegasta eldamennskan er á föstudögum og eftir uppvaskið er það Gísli Marteinn. Að taka einn og einn dag í flugi til Tene er líka á topplistanum.

Tímabilið þegar allir fóru í tíu ljósatíma fyrir fermingu
María Rún Hafliðadóttir forstjóri Gleðipinna, sem rekur tíu veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu, segist ein þeirra sem túperaði hárið í rot á Duran Duran tímabilinu og fór í tíu ljósatíma í beit fyrir fermingu. Eins og allir unglingar gerðu á þeim tíma.

„Fyrst langar mig til að rota mig, taka inn eitur eða bara eitthvað“
Ástin er pókerspil segir Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri hringrásarhagkerfis Sorpu, tónlistar- og fjölmiðlamaður, veislustjóri, skemmtikraftur og sitthvað fleira. Að koma sér á fætur á morgnana er stór áskorun í lífi Freys.

Gulur, rauður eða bangsadagur reynir á skipulagsmálin
Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri segir eiginmanninn dekra við sig á morgnana með góðum kaffibolla. Halla endurnærir hugann fyrir svefn með útiveru eða með því að taka lag á harmónikkuna.

Erfitt að standast kombó af súkkulaði og söltu með smá krönsi
Bókaormurinn Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, á erfitt með að standast ákveðnar freistingar þegar kemur að namminu. Enda segir hún vísindin rökstyðja að sumt er varla hægt að standast.

Gæti ekki einu sinni hlustað á sjálfan sig syngja
Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa er einn þeirra sem vaknar á undan klukkunni. Sem þó hringir klukkan sjö. Gunnar viðurkennir að hann er afburðar lélégur söngvari, en trommar á stýrið.

Sprenghlægilegt að sjá pabba sinn á dansgólfinu
Ólöf Kristrún Pétursdóttir, stjórnarkona í UAK, verkefnafulltrúi hjá KLAK-Icelandic Startups og nemi í hátækniverkfræði í HR, segist þeim megin í lífinu að hláturinn lengi lífið og á auðvelt með að skella uppúr yfir alls konar hlutum í daglegu lífi.

„Nú skal það takast að setjast yfir bækurnar og klára prófið“
Albert Magnússon, umboðsaðili fyrir Lindex og Gina Tricot, segist sjá svolítið af sjálfum sér í elsta syninum, sem vakir fram á nætur yfir háskólanáminu. Sem eitt sinn var venjan hjá honum en nú er öldin önnur og hann orðinn mjög kvöldsvæfur. Albert segist alltaf upplifa áramótin sem ákveðin kaflaskil og áramótaheitið í ár er að klára flugnámið.

„Hef oft grínast með að langa að verða ruslamálaráðherra“
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík, segist klárlega samsvara sig við karakterinn í áramótaskaupinu sem endaði með að flokka sjálfan sig. Og telur reyndar að sjálf hafi hún bæði flokkað og endurnýtt sjálfan sig.

Kaffispjallið 2023: A týpur, B týpur, rómantík og alls kyns uppljóstranir
Það eru alls kyns leyndarmál og skrýtnar venjur sem opinberast í kaffispjallinu á Vísi á laugardögum. Þegar að við fáum að kynnast fólki aðeins betur en eingöngu sem talsmenn vinnunnar sinnar. Því lífiði er jú meira en bara vinna.

Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist hafa týnt jólabarninu svolítið í sér um tíma. Það er þó að breytast aftur og í dag gefur hún sjálfri sér sex í einkunn sem jólabarn á skalnum 1-10. Með stækkandi fjölskyldu eru nýjar hefðir að bætast við um jólin.