
KR

Uppgjörið: KR - Álftanes 72-84 | Álftanes sigldi fyrsta sigrinum í höfn
Álftanes vann langþráðan og kærkomin sigur þegar liðið sótti KR heim á Meistaravelli í fjórðu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Álftanes kom sér á blað í deildinni með 84-72 sigri.

Gaz-leikur Pavels: Mjólkurglasið staðið lengi og fer brátt að súrna
„Maður er ekkert vanur að vera með svona mikla pressu á sér í fjórða leik á Íslandsmótinu,“ segir Helgi Már Magnússon um Gaz-leik kvöldsins, þar sem stigalausir Álftnesingar sækja KR heim í Bónus-deildinni í körfubolta.

Theodór Elmar hættir og verður aðstoðarþjálfari
Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður KR, mun leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir leik KR við HK í Bestu deild karla í fótbolta á laugardag. Hann tekur sæti í þjálfarateymis Vesturbæjarfélagsins.

KR heldur áfram að sækja unga og efnilega leikmenn
Róbert Elís Hlynsson er genginn í raðir KR frá Lengjudeildarliði ÍR. Hann skrifar undir þriggja ára samning í Vesturbænum.

„Lekur af honum orkan og það er smá hundur í honum í líka“
„Drengirnir mínir kalla hann „him“ í staðinn fyrir Nim,“ sagði Helgi Már Magnússon um Nimrod Hilliard IV, leikmann KR í Bónus-deild karla í körfubolta, þegar farið var yfir sigur KR á Þór Þorlákshöfn í Körfuboltakvöldi.

Örlög HK ráðast í Laugardal
Mikil eftirvænting ríkir vegna lokaumferðarinnar í Bestu deild karla í fótbolta um næstu helgi. Nú er orðið ljóst að niðurstaðan í fallbaráttunni ræðst meðal annars af leik á heimavelli 1. deildarliðs Þróttar í Laugardal.

Sjáðu markið sem hélt lífi í vonum HK
Þorsteinn Aron Antonsson skoraði sigurmark HK gegn Fram á elleftu stundu í gær. HK-ingar eiga því enn möguleika á að halda sér í Bestu deild karla. Í gær unnu KR-ingar svo sinn þriðja sigur í röð þegar þeir sóttu fallna Fylkismenn heim.

„Ég reyndi að standa mig eins og í öllum öðrum leikjum“
Matthias Præst Nielsen var í undarlegum aðstæðum í kvöld þegar hann lék með núverandi liði sínu Fylki, gegn framtíðarliði sínu KR. Matthias klæddi sig í treyju KR undir lok félagaskiptagluggans í sumar og skrifaði undir samning, sem tekur gildi þegar tímabilinu lýkur næstu helgi. Hann segir það hafa verið svolítið skrítið en reyndi að standa sig eins og í öllum öðrum leikjum.

Uppgjörið: Fylkir - KR 0-1 | KR fagnaði sigri gegn tíu Fylkismönnum
KR stökk yfir lækinn og vann Fylki með einu marki gegn engu. Fylkismenn misstu mann af velli í fyrri hálfleik. Vitað var fyrirfram að þeir væru fallnir og KR væri búið að bjarga sér frá falli.

Uppgjör og viðtöl: Þór Þ. - KR 92-97 | Þrususlag í Þorlákshöfn lauk með sigri KR
Þór Þorlákshöfn laut í gras fyrir KR í Þorlákshöfn í hörkuleik fyrr í kvöld. KR voru betri í fyrri hálfleik en Þór náði ekki komast yfir þá í þeim seinni þar sem sóknarfráköst KR fóru illa með heimamenn. Leikar enduðu 92-97 og liðin jöfn í deildinni.

Pavel um bestu liðin í deildinni: Ég sé tækifæri fyrir KR
Pavel Ermolinskij og Helgi Már Magnússon fóru vel yfir málin í síðasta þætti af Bónus Körfuboltakvöldi karla og það var margt tekið fyrir í framlengingunni.

Kynntu nýtt merki KR
KR-ingar héldu upp á 125 ára afmælið sitt í ár með því að endurskoða merkið og heildarásýnd félagsins.

Pavel „ofboðslega hrifinn“ af nýju KR-ingunum
Það er alltaf mikið happadrætti að velja sér erlenda leikmenn í köfuboltanum en KR-goðsögn er á því að þeir hafi fengið vinninginn í haust.

„Verðum að gera betur og halda haus, þetta var ennþá okkar leikur“
Jakob Sigurðarson, þjálfari KR, var ánægður með frammistöðuna en svekktur með niðurstöðuna, 86-87 tap gegn Stjörnunni. Hann segir sína menn þurfa að vera sterkari andlega og ekki missa stjórn á skapinu í samræðum við dómarana.

Uppgjörið: KR - Stjarnan 86-87 | Linards klikkaði á línunni og Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari
Stjarnan sótti 87-86 sigur á Meistaravelli í æsispennandi leik gegn KR þar sem ein tæknivilla hafði heilmikil áhrif. Linards Jaunzems fékk tækifæri til að jafna eða vinna leikinn af vítalínunni þegar hálf sekúnda var eftir, en klúðraði báðum skotum.

„Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“
„Það er alltaf geggjað að koma til Íslands, finna kuldann í beinunum og hitta fjölskylduna og strákana aftur,“ segir Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaður í fótbolta.

„Þú ert skilgreindur af nútíðinni“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var eðlilega ánægður að leik loknum á Akureyri í dag þar sem hans menn unnu 4-0 sigur á KA í Bestu deild karla. KR nú unnið tvo leiki í röð og með markatöluna 11-1 í leikjunum tveimur.

Uppgjörið: KA - KR 0-4 | Gott gengi KR heldur áfram
KA tók á móti KR á Akureyri í dag en fyrir leik voru gestirnir enn í fallhættu á meðan Akureyringar sátu í efsta sæti neðri helmings Bestu deildarinnar. KR-ingar mættu fullir sjálfstrausts inn í leikinn og unnu sannfærandi 0-4 sigur gegn lúnum KA-mönnum.

Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars
Viðar Örn Kjartansson hefur tekið betri vítaspyrnur á ferli sínum en hann gerði í leik KA og KR í Bestu deild karla í fótbolta síðdegis í dag.

Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis
Sem kunnugt er mætast Valur og Breiðablik í dag í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta. Þótt þessi lið hafi ekki áður mæst í úrslitaleik sem þessum voru þau bæði í baráttunni um titilinn í eftirminnilegri lokaumferð 1991. Fyrir hana gátu fjögur lið orðið meistarar og þau mættust öll innbyrðis.

KR sækir tvo frá Fjölni
KR hefur samið við tvo leikmenn Lengjudeildarliðs Fjölnis um að leika með næstu árin. Um er að ræða markvörðinn Halldór Snæ Georgsson og miðvörðinn Júlíus Mar Júlíusson.

Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur
KR bar sigur orð af liði Tindastóls í Bónus Deildinni í dag á Sauðárkróki, lokatölur í leiknum voru 85-94, þægilegur sigur KRinga.

Snýr aftur heim í KR
Miðjumaðurinn Óliver Dagur Thorlacius er snúinn aftur í KR og hefur skrifaði undir samningu við félagið sem gildir til næstu þriggja ára.

Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F
Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið þegar KR og Keflavík mættust. Í liði KR voru þau Gísli Marteinn Baldursson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram
Gærdagurinn í Bestu deild karla í fótbolta var áhugaverður og bauð upp á margar mismunandi sögulínur. Ekki vantaði mörkin í leikina fjóra og þá var dramatíkin allsráðandi í slag Vals og Víkings Reykjavíkur

Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu
KR vann ótrúlegan 7-1 sigur á Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu. Benóný Breki skoraði fjögur mörk í liði heimamanna, Óðinn Bjarkason skoraði í sínum fyrsta leik í Bestu deildinni á meðan Luke Rae og Atli Sigurjónsson skoruðu einnig. Markús Páll Ellertsson skoraði mark Fram. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum
KR-konur fögnuðu vel og innilega í dag eftir að hafa tryggt sér sæti í Lengjudeildinni í fótbolta á næsta ári, í lokaumferð 2. deildarinnar.

Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks
Gylfi Þór Sigurðsson og Ísak Snær Þorvaldsson skoruðu glæsileg mörk í gærkvöld þegar fyrstu leikirnir í efri hluta Bestu deildarinnar í fótbolta fóru fram.

Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR
Gary Martin segist hafa tekið ranga ákvörðun þegar að hann gekk til liðs við Val árið 2019 en á þeim tíma stóð honum líka til boða að halda aftur til KR þar sem að hann hafði bæði orðið Íslands og bikarmeistari á sínum tíma. „Kannski var ég gráðugur,“ segir Gary.

„Endum leikinn sem betra liðið“
Vestri sóttu eitt stig á Meistaravelli í dag er liðið heimsótti KR í fyrstu umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli eftir frábæran seinni hálfleik.