
Hagsmunir stúdenta

Að Háma í sig pening
Háma er allt of dýr. Það veit hver stúdent sem að hefur a) verslað í Hámu, og b) verslað í öðrum verslunum á Íslandi.

Mennt er máttur
Menntakerfið er ein af grunnundirstöðum samfélagsins og þar spilar námslánakerfið lykilhlutverk. Námslán hafa gert fjölda fólks kleift að öðlast menntun, sem ella hefði þurft að hverfa frá námi og halda út á vinnumarkað.

Falskar ástir (ekki Flóna-lagið)
Þegar ég hóf nám við Háskóla Íslands einkenndist samfélagið og kennslan af veirufaraldri. Fáeinum mánuðum síðar flæddi inn í byggingar skólans og sú litla kennsla sem þar var lagðist af. Þá kom upp sú staða að háskólanum vanti milljarð, og nú á síðustu vikum hefur legið fyrir úrskurður áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema þar sem nefndin taldi útreikning þriðjungshluta skrásetningargjalds skólans ekki byggja á fullnægjandi útreikningum.

Skrásetningargjöld við Háskóla Íslands eru ólögmæt
Stúdentaráð Háskóla Íslands hélt blaðamannafund fyrr í dag í tilefni úrskurðar áfrýjunarnefndar kærumála háskólanema, sem birtist 5. október síðastliðnum. Leiddi sá úrskurður í ljós að skrásetningargjöld við Háskóla Íslands eru ólögmæt.

Niðurstaðan kveði ekki á um endurgreiðslu skrásetningargjalds
Háskólaráðherra segir nýjan úrskurð ekki kveða á um endurgreiðslu skrásetningargjalda né að það sé í heild sinni ólögmætt. Stúdentaráð hefur krafið háskólann um endurgreiðslu.

Hafa sent HÍ kröfu um endurgreiðslu aftur til 2014
Stúdentaráð Háskóla Íslands krefst þess að háskólinn endurgreiði skráningargjöld við skólann sem greidd hafi verið af öllum nemendum undanfarin ár. Skoða þurfi hve langt aftur krafan nái en hún nái nokkur ár aftur í tímann. Fulltrúi Vöku, í minnihluta í Stúdentaráði segist efast um að endurgreiðsla sé það besta fyrir stúdenta.

Segir gjaldið ekki ólögmætt og mikilvægt að forðast misskilning
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir mikilvægt að niðurstaða Áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema sé ekki rangtúlkuð eða misskilin.

Stúdentar boða til blaðamannafundar: Skrásetningagjald úrskurðað ólögmætt
Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur boðað til blaðamannafundar á morgun vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema sem hefur gert skólanum að endurgreiða nemanda skrásetningagjald sem hann greiddi til skólans vegna skólaársins 2021 til 2022.

Styttum skuldahala stúdenta
Slagorð eins og „mennt er máttur“ og „fjárfestum í framtíðinni“ heyrast oft þegar talað er um mikilvægi þess að ungt fólk mennti sig. Mikilvægið og þessi fögru slagorð virðast hins vegar auðveldlega gleymast þegar kemur að því að gera hinum almenna námsmanni kleift að stunda nám.

„Þú getur farið í viðskiptabanka og fengið húsnæðislán á betri kjörum en námslán“
Hægt er að fá húsnæðislán á betri kjörum en námslán og lántakendum hefur fækkað á síðustu árum. Forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta kallar eftir hugarfarsbreytingu hjá stjórnvöldum.

Fá ekki heimild til að hækka skrásetningargjöldin
Opinberu háskólarnir fá ekki heimild til að hækka skrásetningargjöld sín úr 75 þúsund krónum í 95 þúsund krónur líkt og beðið hafði verið um.

Óttast ekki að fleiri fái óverðskuldaðar gráður
Nýtt fyrirkomulag við fjármögnun háskólanna var kynnt í dag. Gert er ráð fyrir að það skili auknum gæðum í íslensku háskólanámi. Forseti landssamtaka íslenskra stúdenta óttast að það verði til þess að færri komist í háskóla en fyrir breytingu.

815 á biðlista eftir húsnæði á Stúdentagörðum
Einstaklingum á biðlista eftir haustúthlutun Stúdentagarða hefur fjölgað um 165 milli ára. Þeir voru 650 í fyrra en eru nú 815. Alls var 502 leigueiningum úthlutað í sumar til 530 stúdenta.

Frítími stúdenta er enginn
Jóna er í BS-námi í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og stefnir á að ljúka því á tilsettum tíma, þ.e. þremur árum. Hún hefur alltaf búið á Akureyri en flutti á stúdentagarða í Reykjavík meðan á náminu stendur. Hún stundar líkamsrækt og spilar á selló auk þess að mæta reglulega í vísindaferðir og skemmtanir hjá nemendafélaginu sínu.

Komu að hústökumanni sem hafði lagt íbúðina í rúst
Erlent par sem leigir stúdentaíbúð hjá Félagsstofnun stúdenta (FS) kom að hústökumanni þegar það opnaði íbúðina í fyrsta sinn. Maðurinn tók á rás en skildi eftir sig eiturlyf og íbúðina í rúst.

Íslensk ungmenni geta ferðast og starfað í Kanada í allt að tvö ár
Íslensk ungmenni á aldrinum 18 til 30 ára munu geta ferðast og starfað í Kanada í allt að tvö ár þökk sé nýundirrituðum samningi. Um er að ræða gagnkvæman samning sem tryggir ungu fólki frá Kanada sömu réttindi.

Sýndarsamráð á öllum skólastigum
Námslánakerfið hér á landi hefur lengi verið brotið. Það er ljóst að framfærsla menntasjóðsins dugir ekki fyrir almennum útgjöldum. Þetta má sjá á niðurstöðum Eurostudent VII, þar sem meirihluti stúdenta á Íslandi fullyrða að án launaðrar vinnu meðfram námi hefðu þau ekki efni á því að vera í háskólanámi. Einnig kemur í ljós í nýlegri rannsókn að um 13% stúdenta á Íslandi búa við fæðuóöryggi.

Fæðuóöryggi hrjáir 14 til 17 prósent íslenskra háskólanema
14-17 prósent íslenskra háskólanema lifa við fæðuóöryggi samkvæmt nýrri rannsókn sem framkvæmd var á menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Hækka leiguna á stúdentagörðum
Leigugrunnur íbúða og herbergja á Stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta mun hækka um tvö prósent frá og með 1. september næstkomandi. Hækkunin er sögð vera til komin vegna aukins rekstrarkostnaðar.

Arent Orri nýr formaður Vöku
Ný stjórn Vöku, hagsmunafélags lýðræðissinnaðra stúdenta, var kosin á aðalfundi félagsins í gær. Arent Orri Jónsson lögfræðinemi var kjörinn nýr formaður félagsins en hann tekur við keflinu af Viktori Pétri Finnssyni.

Vítahringur í boði Menntasjóðs námsmanna
Ég byrjaði í lögfræði haustið 2017, kláraði BA námið 2020 og byrjaði strax í meistaranámi. Á þessum tíma skall á Covid faraldurinn og mér bauðst vinna með skóla sem ég þáði með þökkum. Þegar leið á önnina fann ég að ég hafði ekki tíma til þess að sinna bæði náminu og vinnunni að fullu og því minnkaði ég við mig í skólanum.

Röskva fékk tólf menn en Vaka fimm
Röskva vann kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Kosningarnar fóru fram í dag og í gær en Vaka fékk fimm fulltrúa af sautján og Röskva tólf. Vaka fékk síðast tvo menn kjörna í ráðið.

Þú getur haft áhrif
Um þessar mundir kjósa stúdentar við Háskóla Íslands til forystu Stúdentaráðs og um það hver fær að bera uppi rödd stærsta stúdentahópsins á landsvísu.Kosningarnar snúast hins vegar ekki aðeins um það hver fær sæti í ráðinu, því það er kosið um það í hvaða átt við viljum að háskólasamfélagið okkar þróist.

Nokkuð í gjaldtöku og hún ekki úr lausu lofti gripin
Stúdentar mótmæltu í gærmorgun fyrirhugaðri gjaldtöku á bílastæðum við Háskóla Íslands. Rektor segir málið eiga sér langan aðdraganda.

Fyrir hverja er í boði að mennta sig?
Menntasjóður námsmanna er okkar mikilvægasta verkfæri til þess að stuðla að félagslegum hreyfanleika. Það mætti jafnvel ganga svo langt að segja að hann sé eitt af okkar miklvægustu jöfnunartólum.

Hafðu samband ef þú ert í vanda! (en helst ekki, því að við erum undirmönnuð)
Í Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands eru tæplega 700 nemendur og er hún með fjölmennari deildum innan skólans enda er námið spennandi og starfsgreinin skiptir miklu máli í íslensku samfélagi. Hér á landi hefur orðið mikil fólksfjölgun, innflytjendum fjölgar stöðugt og eru störf félagsráðgjafa mjög mikilvægur þáttur í því að takast á við þær framtíðaráskoranir sem fylgja fólksfjölguninni.

„Ein-stærð-fyrir-öll”
Menntakerfið er ekki réttur staður fyrir stífa ,,ein-stærð-fyrir-öll” umgjörð, heldur þarf það að vera sveigjanlegt eftir ólíkum þörfum stúdenta og tryggja þarf aðgengi fyrir öll. Hagsmuna fjölbreyttrar nemendaflóru í menntakerfinu er ekki fyllilega gætt, sérstaklega erlenda nemendur, foreldra í námi, kynsegin nemendur og fatlað fólk.

Hvaða afleiðingar hefur fjársveltið?
Tilvist félagsvísinda skiptir lykilmáli vegna þess að félagsvísindin snúa að öllu því sem viðkemur þróun samfélaga, hjálpar okkur að skilja umhverfið okkar betur, hegðun fólks, samskipti, áföll, aðstæður og önnur félagsleg fyrirbæri. Undirfjármögnun háskólans kemur sérstaklega illa niður á félagsvísindum.

Trúir þú á réttlæti?
Skrásetningagjöldin hafa mikið verið í umræðunni upp á síðkastið, þá sér í lagi vegna beiðni rektora opinberu háskólanna til háskólamálaráðherra um heimild til hækkunar á skrásetningargjöldum úr 75.000 kr. í 95.000. Röskva leggst alfarið gegn hækkun á skrásetningargjaldinu og hefur barist fyrir lækkun eða afnámi þess.

„Hvar varst þú í sumar?:” Ný stefna í menntasjóðsmálum
Stúdentar þekkja flestir til Menntasjóðs námsmanna (MSNM). Stór hluti háskólanema fær lán af einhverjum toga frá honum til að geta stundað nám sitt. Ef ekki væri fyrir menntasjóðinn væri aðgengi að háskólamenntun á Íslandi mun minna en það er í dag.