Besta deild karla

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Breiðablik 3-0 | Skelltu í lás og fóru á toppinn
Víkingur er á toppi Pepsi Max-deildar karla í fótbolta eftir frábæran 3-0 sigur gegn Breiðabliki sem gekk afar illa að skapa sér færi í Fossvogi í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir - Fylkir 3-0 | Eftirminnilegt kvöld í Efra-Breiðholtinu
Leiknir vann sinn fyrsta sigur í efstu deild í sex ár þegar liðið lagði Fylki að velli, 3-0, í 4. umferð Pepsi Max-deild karla í kvöld.

Fyrri hálfleikur langbesta frammistaða Víkings undir minni stjórn
Arnar Gunnlaugsson var skiljanlega kampakátur eftir að hafa stýrt Víkingum upp í toppsæti Pepsi Max-deildarinnar í fótbolta með frábærum 3-0 sigri gegn Breiðabliki.

Agla María: Mjög ánægð hvernig þetta hefur byrjað hjá mér
Agla María Albertsdóttir var ánægð með hvernig Breiðablik svaraði fyrir sig eftir tapið fyrir ÍBV í síðustu umferð. Hún skoraði tvívegis þegar Íslandsmeistararnir unnu Þór/KA, 3-1, í dag.

„Hélt að einhver hefði stigið á hælinn á mér“
Fyrirliði og markvörður ÍA í fótbolta, Árni Snær Ólafsson, spilar ekki meira með liðinu í sumar eftir að hafa slitið hásin í leiknum við FH í Pepsi Max-deildinni í gær.

Kostulegt rifrildi Óla Jóh og Atla Viðars: „Týpískur senter, það má ekki koma við ykkur þá farið þið niður“
Ólafur Jóhannesson og Atli Viðar Björnsson voru ekki sammála hvort HK hefði átt að fá vítaspyrnu gegn Val.

Óli Jóh um ÍA: „Af hverju haga leikmennirnir sér svona?“
ÍA hefur misst mann af velli með rautt spjald í tveimur af fyrstu þremur leikjum liðsins í Pepsi Max-deild karla. Ólafur Jóhannesson segir að spennustigið hjá Skagamönnum sé alltof hátt.

Lof og last 3. umferðar: Sóknarleikur blómstraði á kostnað varnarleiks, Mikkelsen, Páez, Hákon og Óli Jóh
Þriðju umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna tvo daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.

Svona braut Sindri tvö rifbein
Um korters bið varð á leik FH og ÍA í gær þegar Sindri Snær Magnússon, leikmaður ÍA, meiddist snemma eftir að hafa komið inn á í upphafi seinni hálfleiks. Myndband af því þegar hann meiddist má sjá í greininni.

Sjáðu markasúpuna úr Pepsi Max-deild karla í gær
Hvorki fleiri né færri en tuttugu mörk voru skoruð í leikjunum fjórum í Pepsi Max-deild karla í gær.

„Sölvi Snær er einn af efnilegustu leikmönnum á Íslandi“
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Blika var nokkuð sáttur með frammistöðu síns liðs á Kópavogsvellinum í kvöld er liðið lagði Keflavík 4-0 í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu.

„Ég bara bið fyrir því,“ sagði pirraður Brynjar Björn um dómara kvöldsins
Brynjar Björn þjálfari HK var sáttur við sína menn en ósáttur við stigaleysið eftir tap fyrir Val að Hlíðarenda í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍA 5-1 | Ógæfa dundi yfir Skagamenn og flóðgáttir opnuðust
Skagamenn enduðu með útileikmann í markinu, tveimur mönnum færri, í 5-1 tapinu gegn FH í Kaplakrika í kvöld. Með sigrinum eru FH-ingar á toppi Pepsi Max-deildarinnar með sjö stig en ÍA er með eitt stig eftir þrjár umferðir.

Tveir Skagamenn á sjúkrahús: „Hann var greinilega sárkvalinn“
Árni Snær Ólafsson, markvörður ÍA, gæti orðið lengi frá keppni eftir að hafa meiðst gegn FH í kvöld. Sindri Snær Magnússon meiddist einnig alvarlega og var fluttur með sjúkrabíl af vellinum.

„Höndin verður að vera með fram jörðinni, hvað annað á hann að gera við hana?“
Tristan Freyr Ingólfsson, leikmaður Stjörnunnar, var vissulega sár eftir annað tap Stjörnunnar í röð, í þetta sinn á heimavelli gegn Víkingi Reykjavík. Tristan var sérstaklega fúll með vítaspyrnuna sem Víkingar fá.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Stjarnan í tómu tjóni
Víkingur Reykjavík sótti þrjú stig í Garðabæinn í kvöld er Stjarnan tók á móti Víking í Pepsi Max deild karla. Lokatölur 3-2 Víkingum í vil.

Umfjöllun og viðtöl Breiðablik - Keflavík 4-0 | Tímabilið loks farið af stað hjá Blikum
Breiðablik vann öflugan 4-0 sigur á nýliðum Keflavíkur í Pepsi Max deild karla er liðin mættust á Kópavogsvelli í kvöld. Tomas Mikkelsen gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk í liði Breiðabliks.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - HK 3-2 | Almarr hetja Vals í markasúpu á Hlíðarenda
Almarr Ormarsson tryggði Íslandsmeisturum Vals dramatískan 3-2 sigur á HK að Hlíðarenda er liðin mættust í Pepsi Max deild karla í kvöld. Markið kom undir lok leiks.

Morten Beck upp á Skaga, Arnar Sveinn í Fylki, Ólöf Sigríður í Þrótt á láni | Fjöldi félagaskipta í gluggalok
Það var nóg um að vera í gærkvöld er knattspyrnulið landsins gerðu hvað þau gátu til að sækja leikmenn skömmu fyrir gluggalok. Félagaskiptaglugginn hér á landi lokaði nefnilega á miðnætti.

Sjáðu mörk KA á Dalvík, glórulausa tæklingu Páez og mörkin í jafntefli Fylkis og KR í Lautinni
Tveir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. Hér að neðan má sjá öll mörkin sem og fáránlega tæklingu Octavio Páez, leikmanns Leiknis Reykjavíkur, sem fékk verðskuldað rautt spjald í kjölfarið.

Sölvi Snær í Breiðablik
Sölvi Snær Guðbjargarson er genginn í raðir Breiðabliks frá Stjörnunni en Breiðablik staðfesti þetta í kvöld, undir lok félagaskiptagluggans.

Arnór Borg: Hefði átt að klára þetta
Arnór Borg Guðjohnsen, sóknartengiliður Fylkis, brást bogalistin á vítapunktinum í 1-1 jafntefli við KR í Árbæ í kvöld. Hann segir Fylki hafa átt skilið að taka öll stigin þrjú.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - KR 1-1 | Vítaklúður Arnórs Borg dýrkeypt
Fylkir og KR skildu jöfn 1-1 í þriðju umferð Pepsi Max-deild karla í Árbæ í kvöld. Fylkismenn voru nær því að taka stigin þrjú.

„Svona geturðu bara fótbrotið og endað feril manna“
KA skoraði þrjú mörk í dag og hélt hreinu gegn Leikni í Pepsi Max deildinni og var Arnar Grétarsson, þjálfari liðsins, sáttur við sigurinn þó spilamennskan hafi á köflum ekki verið nægilega góð að hans mati.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Leiknir 3-0 | Öruggt á Dalvík
KA er með sjö stig eftir þrjá leiki en þeir unnu 3-0 sigur á Leikni í kvöld. Leikurinn fór fram á nýja gervigrasvellinum á Dalvík. Ekki var hægt að spila á Greifavellinum á Akureyri þar sem hann kemur illa undan vetri.

Rúnar getur nú stillt upp sömu framlínu og síðast þegar KR vann tvöfalt
Eftir komu Kjartans Henrys Finnbogasonar getur KR nú stillt upp sömu framlínu og þegar liðið varð síðast tvöfaldur meistari fyrir áratug.

„Ég er ekki í þessu til að eignast vini“
„Ég elska KR og mun gera allt sem ég get til að liðið njóti velgengni,“ segir Kjartan Henry Finnbogason sem lendir á Íslandi í dag. Eftir stormasaman vetur í Danmörku ætlar hann sér að raða inn mörkum fyrir KR á komandi mánuðum og árum.

Arnar Grétars sagður svikinn um víti síðast þegar leikið var á Dalvík í efstu deild
KA og Leiknir R. mætast á Dalvík í 3. umferð Pepsi Max-deildar karla í dag. Þjálfari KA kom mikið við sögu í síðasta leiknum í efstu deild karla sem fór fram á Dalvík.

Dalvíkingar stoltir af því að geta boðið upp á leik í efstu deild á „besta velli landsins“
Í fyrsta sinn í 24 ár fer fram leikur í efstu deild karla á Dalvík þegar KA tekur á móti nýliðum Leiknis R. í dag.

KR staðfestir komu Kjartans Henrys
Kjartan Henry Finnbogason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR. Hann snýr því aftur til uppeldisfélagsins sem hann lék síðast með 2014.