Alþingiskosningar 2021

Píratar eru lýðræðisflokkurinn
Stundum sé ég umræður á samfélagsmiðlum um hvort og hve mikið Píratar séu vinstri eða hægri flokkur. Vitaskuld á sérhver maður sína eigin skilgreiningu á hugtökunum „vinstri” og „hægri”, nokkuð loðnum frá upphafi, utan þeirra sem nefna þau „úreld hugtök”; óumflýjanlega lýkur umræðunni þannig að enginn lærir neitt.

Una sækist eftir einu af efstu sætunum hjá VG í Kraganum
Una Hildardóttir, varaþingmaður Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi og formaður lýðræðis- og mannréttindanefndar Mosfellsbæjar, sækist eftir 1. til 2. sæti í komandi forvali flokksins vegna komandi þingkosninga.

Fokk fátækt!
Skilgreining fátæktar er að viðkomandi líði efnahagslegan skort. Fátækt er í raun gríðarleg skerðing á tækifærum, að hafa miklu færri tækifæri og möguleika en aðrir, tækifæri til áhugamála, félagsskapar, afþreyingar og jafnvel menntunar.

Þingmenn í þjónustu þjóðar
Mælikvarði á gildi og árangur starfandi þingmanna er hvernig þeim hefur tekist að rækja hlutverk sitt. Samkvæmt ákvæðum stjórnarskrár er hlutverk Alþingis að setja lög, fara með fjárstjórnarvald, ráða skipun ríkisstjórnar og veita framkvæmdarvaldinu aðhald. Vísast í þessu samhengi til ákvæða 1., 2., 39., 40., 41. og 54. gr. stjórnarskrár lýðveldisins.

Framtíð ferðaþjónustunnar: Sigurður Ingi ræðir stöðu og horfur
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, er næsti gestur í þættinum „Samtal við stjórnmálin“ sem Samtök ferðaþjónustunnar standa að. Á næstu vikum munu SAF bjóða til sín leiðtogum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna til að ræða um stöðu og horfur í ferðaþjónustu.

Ráðherra og þingmaður takast á um forystusæti í Kraganum
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra tilkynnti í dag að hann sæktist eftir fyrsta sæti á lista Vinstri grænna í suðvesturkjördæmi í forvali flokksins sem fram fer í vor.

Guðmundur Ingi vill leiða lista VG í Kraganum
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tilkynnt að hann sækist eftir að leiða lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.

Nýju fötin keisarans
Enn á ný eru reglur um klæðaburð þingmanna til umræðu. Þar fer mikinn þingmaður Miðflokksins sem finnst óboðlegt að hleypa fólki inn í þingsali nema það sé upp klætt og með hálstau.

„Einboðið að næðu þessir flokkar meirihluta að þeir haldi áfram“
„Mér finnst alveg einboðið að næðu þessir flokkar meirihluta í næstu kosningum, þá hlýtur að vera fyrsti kostur að þeir haldi áfram. Þetta stjórnarsamstarf hefur verið í öllum aðalatriðum afskaplega gæfusamt,“ sagði Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Víglínunni í dag.

Almar sá fimmti sem sækist eftir fyrsta sæti VG á Suðurlandi
Almar Sigurðsson, sem rekur Gistiheimilið á Lambastöðum í Flóahreppi, gefur kost á sér í forvali Vinstri Grænna í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar, og sækist eftir fyrsta sæti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almari.

Sóknarfæri Pírata
Sérstaða Pírata felst í að vera frjálslynt, félagshyggjusinnað og and-popúlískt umbótaafl í íslensku samfélagi. Árangur Pírata á þeim níu árum sem hreyfingin hefur starfað má rekja til þessarar sérstöðu. Meðlimir hreyfingarinnar hafa tekið öflugan þátt í stjórnmálastarfi á sveitarstjórnarstigi og einnig á Alþingi.

Páll telur mótframboð í 1. sæti ekki beint gegn honum
Páll Magnússon fyrsti þingmaður Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi túlkar framboð tveggja annarra í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir næstu alþingiskosningar ekki sem framboð gegn sér, persónulega.

Ólafur Þór vill leiða lista VG í Kraganum
Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna, hefur gefið kost á sér til að leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum sem fram fara í september.

Guðrún Hafsteinsdóttir vill fyrsta sætið í Suðurkjördæmi
Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins og markaðsstjóri Kjörís, býður sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer í maí. Þetta tilkynnti hún á aðalfundi Sjálfstæðisfélags Hveragerðis í kvöld.

Miðflokkurinn í vanda á landsbyggðinni en Viðreisn og Píratar sækja á
Færa má rök fyrir því að Miðflokkurinn sé í vanda á landsbyggðinni ef litið er á niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um fylgi flokkanna í Norðvestur,- Norðaustur- og Suðurkjördæmi.

Framtíð ferðaþjónustunnar: Logi fer yfir stöðu og horfur
Á næstu vikum munu Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til sín leiðtogum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna til að ræða um stöðu og horfur í ferðaþjónustu. Í öðrum þættinum, sem hefst klukkan 9:15, verður rætt við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar.

Flokkspólitísk framboðsræða í Facebook-hópi hjúkrunarfræðinga veldur ólgu
Ýmsir hjúkrunarfræðingar eru afar ósáttir við framboðsræðu Katrínar Sifjar Sigurgeirsdóttur sem hún birti á Facebook-hópi þeirra. Athyglisverðar umræður áttu sér stað áður en pistillinn og umræðan var fjarlægð.

Boðskortið í brúðkaupið er stjórnarskráin
Eftir venju segjast allir flokkar ganga til kosninga óbundnir um stjórnarsamstarf. Formlega er það svo. En auðlindaákvæðið í stjórnarskrárfrumvarpi VG veldur því efnislega að stjórnarflokkarnir eru um leið að skuldbinda sig til áframhaldandi samstarfs.

Berglind Ósk vill annað sætið á lista Sjálfstæðismanna
Berglind Ósk Guðmundsdóttir lögmaður hefur gefið kost á sér til að skipa annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir þingskosningarnar sem fram fara í september næstkomandi.

Líklegra að ríkisstjórnin haldi ef minni flokkar ná ekki manni inn
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og forseti stjórnmálafræðideildar, telur að sitjandi ríkisstjórn muni halda samstarfi áfram eftir kosningar, haldi flokkarnir þrír meirihluta. Ef litlir flokkar nái ekki manni inn séu auknar líkur á því að ríkisstjórnin haldi meirihluta.

Fróðleikur um framboðslista Samfylkingarinnar
Tillaga um skipan framboðslista á vegum Samfylkingarinnar á að vera um fólk og röðun þess í sæti á lista, en ekki endanleg og óbreytanleg niðurstaða.

Allir vilja komast á Alþingi
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ómögulegt að spá fyrir um hvernig fer í slag um efsta sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Suðurlandi.

Magnús D. Norðdahl vill leiða lista Pírata í Norðvestur
Magnús Davíð Norðdahl lögmaður hefur tilkynnt um framboð hjá Pírötum í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar sem fram fara í september. Hann sækist eftir því að leiða lista flokksins.

Stjórnandi hjá Kópavogsbæ gefur kost á sér á lista Pírata í Reykjavík
Ingimar Þór Friðriksson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar Kópavogsbæjar, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. til 5. sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

Kosningar 2021: Stjórnmál á tímum sóttarinnar
Tiltölulega litlar breytingar er að sjá á fylgi flokkanna í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Sjálfstæðisflokkurinn heldur ágætum sjó og er sá eini sem segja má að njóti umtalsverðs fylgis – stöðugt með vel yfir fimmtung atkvæða. Hefur þó dalað í öðrum nýlegum könnunum, svo sem hjá MMR. Aðrir flokkar ná ekki yfir fimmtán prósenta fylgi könnun Maskínu.

Blóðug barátta á botninum fyrir kosningar
Fylgi Samfylkingarinnar dalar nokkuð samkvæmt nýrri könnun og Flokkur fólksins dettur út af þingi. Prófessor í stjórnmálafræði telur nær ómögulegt að flokkum fjölgi á Alþingi og segir blóðuga baráttu fram undan á milli minnstu flokkanna.

Setjum í lög að opinberir aðilar opni bókhaldið sitt
Við þurfum að setja í lög að öll opinber fyrirtæki opni bókhaldið sitt og lýsa með hvaða hætti það skuli gert. Nú eru liðin tæplega fimm ár frá því að fyrsti opinberi aðilinn opnaði bókhaldið sitt á Íslandi og nægileg reynsla er því komin á þetta verklag.

Heiða Guðný vill leiða lista VG í Suðurkjördæmi
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna, býður sig fram til að leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Heiða Guðný er bóndi á Ljótarstöðum og hefur setið í sveitarstjórn Skaftárhrepps í tíu ár. Þetta kemur fram í framboðstilkynningu frá Heiðu.

Vilhjálmur vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á sér til að leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Vilhjálmur hefur verið þingmaður kjördæmisins síðastliðin átta ár.

Eva Björk sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps, sækist eftir 2.-3. sætti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Eva Björk greinir frá þessu á Facebook í gær en Eva rekur ásamt fjölskyldu sinni Hótel Laka í Efri-Vík hjá Kirkjubæjarklaustri.