Tækni

Bein útsending: Við hverju má búast af fjórðu iðnbyltingunni?
Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt í tölvunarfræði, ræðir fjórðu iðnbyltinguna.

Segjast hafa selt milljón Fold-síma
Þrátt fyrir að útgáfa Samsung Galaxy Fold hafi einkennst af vandræðum og að síminn samanbrjótanlegi sé mjög kostnaðarsamur hefur Samsung selt milljón eintaka

Facebook prófar að hjálpa notendum að flytja myndir sínar
Fyrst um sinn munu notendur geta flutt myndir sína á Facebook yfir í Google Photos en það verður ekki mögulegt öllum fyrr en einhvern tímann á fyrri helmingi næsta árs.

Vinna að heimildamynd um umhverfisáhrif samfélagsmiðla
Samfélagsmiðlar hafa áhrif á umhverfið og orkan sem fer í að horfa á myndband á Youtube getur verið mengandi. Þetta segja nemendur í Tækniskólanum sem fylgdust með kynningu á nýjum Loftslagssjóði en opnað var fyrir umsóknir úr sjóðnum í dag.

Bein útsending: Lausnir kynntar við mörgum af stærstu áskorunum samtímans
Uppskeruhátíð & lokahóf Snjallræðis, vettvangs fyrir samfélagslega nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, fer fram í dag klukkan tvö og stendur í tvær klukkustundir í borgarstjórnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Bein útsending: Getur sýndarheimur haft meiri merkingu en raunveruleikinn?
Getur sýndarheimur haft meiri merkingu en raunveruleikinn? Þannig hljóðar yfirskriftin á fyrirlestri sem Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, heldur í Háskólanum í Reykjavík í dag.

Toppurinn sprakk af geimfari SpaceX
Um er að ræða frumgerð geimskipsins Starship og var verið að þrýstiprófa geimfarið með því að líkja eftir þeim mikla kulda sem geimferðir fela í sér.

Icelandair setur stefnuna á enn meiri sjálfvirkni
Flugfélagið hefur einsett sér að auka sjálfvirkni í reksti sínum og því fyrirséð að störf hjá flugfélaginu muni breytast.

„Sprenging“ í netglæpatryggingum íslenskra fyrirtækja
Íslensk fyrirtæki eru í auknum mæli farin að tryggja sig fyrir tjóni vegna tölvuglæpa sem getur hlaupið á hundruðum milljóna króna.

Kara Connect tryggir sér 160 milljónir
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Kara Connect hefur lokið 160 milljóna króna fjármögnun með aðkomu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og tveggja sænskra einkafjárfesta. Sjóðurinn mun eignast 10 prósenta hlut í félaginu.

Frá stálþræði til gervigreindar
Árið 1952 varð Alþingi fyrsta þjóðþingið til að taka upp þingræður, þá á nýjustu tækni þess tíma: stálþráð.

Læknir segir aukna þörf á lífstílstengdu inngripi hjá fólki
Læknar þurfa að leggja miklu meiri áherslu á lífstílstengd inngrip hjá sjúklingum að sögn yfirlæknis hjartalækninga á Landspítalanum. Nýjar tæknilausnir geti hjálpað hvað þetta varðar, til að mynda með notkun snjallsímaforrits í samskiptum við sjúklinga.

Kínverjar leitast eftir alþjóðlegu samstarfi í geimnum
Yfirvöld Kína buðu erlendum erindrekum og blaðamönnum að fylgjast með tilraun á lendingarfari í dag sem til stendur að senda til mars.

Brú milli okkar og vélanna
Hvernig horfir íslenskan við blindu og sjónskertu fólki? Þessi hópur notar tæknina mikið en tækin tala oftast ensku þó nýjungar séu í vændum. Miklu máli skiptir að vefir séu aðgengilegir og á vandaðri íslensku. Dagur íslenskrar tungu er á laugardaginn.

SidekickHealth verðlaunað
Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið SidekickHealth hlaut annað sæti í keppni EIT Digital fyrir að vera á meðal bestu heilbrigðistæknifyrirtækja í Evrópu.

Enn eitt merkilegt geimskot SpaceX
Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX munu í dag reyna að skjóta 60 smá-gervihnöttum á braut um jörðu. Þetta þykir merkilegt geimskot fyrir nokkrar sakir.

Nýtt app færir Berlínarmúrinn inn í nútímann
App sem styðst við aukinn veruleika gerir fólki nú kleift að sjá Berlínarmúrinn, en í dag eru þrjátíu ár síðan múrinn féll.

Hollywood logar vegna tölvugerðs James Dean
Skilningsleysið er skammarlegt, ritar Chris Evans.

Gervigreind gæti leitað upp ólöglega lyfjanotkun íþróttafólks innan tveggja ára
Alþjóðalyfjaeftirlitið eltir uppi nýjustu tækniframfarir í baráttu sinni gegn ólöglegri lyfjanotkun í íþróttum. Nú hefur stefnan verið sett á að nýta sér gervigreind í allra næstu framtíð.

Gervigreind mun gerbreyta atvinnulífinu
Gervigreind mun hafa gríðarlegar breytingar á atvinnulífinu í för með sér. Þetta segir Guðmundur Hafsteinsson, sem gegndi formennsku í stýrihópi um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland og var yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant.

Keyptu í Marel fyrir 1.350 milljónir
Erlendir fjárfestingarsjóðir, sem komu fyrst inn í hluthafahóp Marels í útboði í júní, bættu við sig um 2,3 milljónum hluta að nafnverði í félaginu í síðasta mánuði, eða fyrir um 1.350 milljónir króna miðað við núverandi gengi bréfa Marels.

Klóna hunda og ketti í hundraðatali í Texas
Mörg hundruð manns hafa tekið á það ráð að láta klóna gæludýrin sín líkt og Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú. Lauren Aston, hjá ViaGEn Pets, segir eftirspurn eftir klónun gæludýra vera að aukast.

Vilja þjálfa ungmenni til að gæta þjóðaröryggis
Ísland er þriðja heimsríki þegar kemur að netöryggi.

Vill auðvelda norðurljósaleitina á Íslandi
Smáforritinu Hello Aurora, sem ætlað er að auðvelda fólki að finna norðurljós, var ýtt úr vör á dögunum.

„Þetta eru peningar sem viðskiptavinir eiga inni hjá okkur“
Elko hefur rýmkað skilafrestinn duglega fyrir komandi jólavertíð. Markaðsstjóri fyrirtækisins segir það auka þrýstinginn á starfsfólk Elko að selja fólki réttu vöruna, til að koma í veg fyrir að þurfa að selja vöruna aftur með lægri framlegð.

Unnu verkfræðiafrek og færðu 120 ára gamlan vita
Sannkallað verkfræðiafrek þegar þúsund tonna viti var færður 70 metra leið.

Færist í aukana að upplýsingar fólks á netinu séu notaðar í brotastarfsemi
Yfirmaður netglæpadeildar lögreglunnar segir það hafa færst í aukana að upplýsingar sem fólk gefi upp á netinu um sig séu notaðar í aðra brotastarfsemi, til dæmis mansal og vændi.

Nýr Golf kynntur
Áttunda kynslóðin af Volkswagen Golf mun koma á göturnar á næsta ári. Hann verður einungis í boði í fimm dyra útgáfu og verður þónokkuð uppfærður frá því sem áður hefur sést.

Þrýstingurinn eykst á TikTok
Samfélagsmiðillinn TikTok á nú í vök að verjast vegna ásakana um að vera handbendi kínverska kommúnistaflokksins.

Google segist hafa náð þáttaskilum í þróun skammtatölva
Í grein sem birtist í Nature í dag segir að Google hafi þróað örgjörva sem hafi á 200 sekúndum unnið útreikninga sem hefðbundin ofurtölva þyrfti tíu þúsund ár til að reikna.