
Sjálfbærni

Fyrirtæki ákærð og stjórnendur reknir fyrir að fegra upplýsingar
„Fólk verður að átta sig á því að úti í hinum stóra heimi er verið að ákæra fyrirtæki og reka stjórnendur fyrir grænþvott, en grænþvottur kallast það þegar upplýsingar gefa til kynna að starfsemin sé grænni en hún er í raun. Þetta er staðan og þetta verður framtíðin ef fyrirtæki taka ekki alvarlega á sínum sjálfbærnimálum og fara að sýna raunverulegan árangur,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel.

Móbergið mögulega jákvæð lausn fyrir heiminn en ekki íslenska bókhaldið
Það kemur kannski á óvart að heyra hversu mikil rannsóknar- og nýsköpunarstarf fer fram hjá BM Vallá. Fyrirtækið vinnur að nokkrum nýsköpunarverkefnum þessi misserin, þar sem hver steypuuppskriftin á fætur annarrar er blönduð, prófuð, rannsökuð og mæld.

Sjálfbærni: Tökum stökk í upplýsingagjöf en erum langt á eftir í öðru
Niðurstöður viðamikillar úttektar KMPG á heimsvísu um sjálfbærni fyrirtækja sýnir að íslensk fyrirtæki hafa tekið risastórt stökk í upplýsingagjöf um sjálfbærni.

Styrkja fræðslu um geðheilbrigði í íslenskum grunnskólum og samfélagsverkefni um allan heim
„Þú lætur gott af þér leiða þegar þú kaupir jólagjafirnar hjá okkur. Þú styrkir bæði Community Fair Trade verkefni sem Body shop tekur þátt í víða um heim og þá erum við alltaf í samstarfi um íslensk verkefni.

„Ég man hvað sjokkið var mikið, að sjá hvað hafði raunverulega átt sér stað“
„Ég man mjög vel eftir fyrsta vinnudeginum. Við vorum nokkur að byrja og embættið byrjað að skoða nokkur mál þótt það væri ekki opinbert enn. En ég man hvað sjokkið var mikið, að sjá hvað hafði raunverulega átt sér stað og hversu stórar upphæðir þetta voru,“ segir Eiríkur Rafn Rafnsson þegar hann rifjar upp fyrsta vinnudaginn sinn sem lögreglufulltrúi hjá Embætti sérstaks saksóknara.

Ísland í 22.sæti: „Komum okkur upp listann til hinna Norðurlandanna“
„Við þurfum að fara að líta á úrgang sem gull eða í það minnsta hráefni til nýtingar. Samkvæmt skýrslunni þurfum við Íslendingar til að mynda að ná tökum á raftækjaúrgangi. Við þurfum að endurnýta raftæki, láta gera við þau í stað þess að henda þeim og kaupa ný,“ segir Eva Magnúsdóttir ráðgjafi hjá Podium meðal annars um það hvað þarf að fara að gerast hraðar á Íslandi svo Ísland standi ekki svona aftarlega á merinni þegar kemur að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Umhverfisvænn byggingariðnaður: „Það má segja að ferillinn sé frá vöggu til grafar“
„Það er á hreinu að kröfurnar verði meiri á næstu árum. Í Danmörku er til dæmis verið að setja í lög að hafa lífsferilsgreiningar á öllum nýbyggingum frá og með 1. janúar 2023 og bara tímaspursmál hvenær það verður komið í reglugerðir hér á landi,“ segir Emilía Borgþórsdóttir sérfræðingur umhverfismála hjá Húsasmiðjunni.

Svansvottuð vinnuaðstaða ekki aðeins möguleg í nýbyggingum
Fólk er almennt farið að þekkja ágætlega Svansvottaðar hreinlætis- og hreinsivörur, hótel og veitingastaði og fleira en síðustu misseri hefur það færst í vöxt að við séum að heyra um Svansvottaðar byggingar. Miðbærinn í Selfossi er gott dæmi um viðamikið byggingaverkefni þar sem hver einasta skrúfa er Svansvottuð og allt byggt með umhverfissjónarmið í huga.

Þurfum að fara varlega í að halda að við séum best
„Landslagið á Íslandi hefur breyst mikið síðustu árin og nú eru um 15% þjóðarinnar íbúar af erlendum uppruna. Samt erum við ekki að ræða nógu mikið um kynþátt, þjóðerni eða stöðu innflytjenda og tungumálið hefur ekki fylgt eftir þessum breytingum,“ segir Charlotte Biering hjá Marel.

Empower stækkar: Stoltar, stórhuga og í sókn
Þær eru stórhuga konurnar sem stýra Empower enda ekki á hverjum degi sem tilkynnt er um hundruði milljóna í fjármögnun til félags sem stofnað er af konum og stjórnað af konum. Fjármagn er jú oft konum í óhag.

„Ekki líta á sjálfbærniupplýsingar sem markaðsefni“
„Ekki líta á sjálfbærniupplýsingar sem markaðsefni. Líttu á þær sem virðisaukandi upplýsingar sem auka aðgengi fjármálamarkaðarins að fyrirtækinu þínu,“ segir Reynir Atlason, forstöðumaður sjálfbærnimála hjá Creditinfo og formaður dómnefndar Hvatningaverðlauna fyrir sjálfbærniskýrslu ársins 2022.

„Stundum verða þessar skýrslur of mikið „sjáið hvað við erum frábær““
Nikólína Dís Kristjánsdóttir, Sara Júlía Baldvinsdóttir og Ísak Máni Grant luku nýverið nýjum áfanga sem Bjarni Herrera kennir í HR þar sem áhersla er lögð á sjálfbæran rekstur og upplýsingagjöf.

Frá bleiku hjólhýsi í Afríku til spennandi starfa hjá Marel
Hún fæddist í Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Og ólst þar upp í bleiku hjólhýsi í skóginum því pabbi hennar starfaði þar sem jarðfræðingur.

Erfitt fyrir sjóðina að kaupa í Marel vegna umsvifa í Rússlandi, segir greinandi
Marel þarf að svara fyrir viðskipti sín í Rússlandi þótt lítil séu og á meðan það heldur umsvifum sínum þar óbreyttum kann að vera erfitt fyrir lífeyrissjóði að réttlæta aukningu á eignarhlut í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í hlutabréfayfirliti greiningarstofunnar Jakobsson Capital.

„Pínu eins og konfektkassi nema þú mátt borða fullt af molum“
Umhverfisvæn stefnumót á Loftlagsmótinu 2022 þann 4.maí næstkomandi.

Loftlagsmótið 2022: Alls kyns samstarfsmöguleikar geta fæðst
Fyrirtæki, stofnanir og aðilar í nýsköpun hittast á stefnumóti til að ræða hugmyndir að umhverfisvænni rekstri.

Stríð og ábyrgar fjárfestingar
Ábyrgar fjárfestingar útloka almennt ekki fjárfestingar til hefðbundinnar vopnaframleiðslu þó vissulega séu einhverjir fjárfestar sem útloka vopnaframleiðslu með öllu. Getu landa til að verja sig verður tæplega teflt í voða þó fjárfestar kjósi að fjármagna ekki framleiðslu og þróun gereyðingarvopna.

Tölum um sjálfbærni á mannamáli
Aðilar innan orkugeirans skilja tungutakið sem er notað í tengslum við orkuskiptin en það er yfirþyrmandi fyrir neytendur að skilja um hvað orkuskiptin snúast. Í grunninn snúast þau um að fara úr því að nota jarðefnaeldsneyti yfir í sjálfbæra eða græna orkugjafa. Hvað þýðir það t.d. að eitthvað sé grænt?

Bein útsending: Janúarráðstefna Festu 2022
Janúarráðstefna Festu 2022 fer fram í dag milli klukkan 9 og 12 en um er að ræða stærsta árlega sjálfbærnivettvangur á Íslandi. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilara að neðan.

„Ég hef óbilandi trú á komandi kynslóðum“
„Þetta er bara áhættustýring 101“ segir Ásthildur Otharsdóttir meðal annars um hvers vegna fjármagn á að stuðla að sjálfbærri framtíð.

Í hvaða umboði gætum við framtíðarinnar?
Öll höfum við áhrif á umhverfi okkar, hvort sem er með aðgerðum og athöfnum eða athafnaleysi og hlutleysi. Þetta á líka við um fyrirtæki og fjárfesta. Fyrirtæki og fjárfestar stýra athöfnum sínum og aðgerðum, nú eða aðgerðaleysi, innan lagaramma, umboðs sem þeir starfa í og annarra viðurkenndra viðmiða.

Fimm sinnum fleiri fyrirtæki þurfa senn að upplýsa um sjálfbærni rekstursins
„Það er nokkuð yfirgripsmikið verk að meta áhrifin til hlítar,“ segir Tómas Njáll Möller formaður Festu, aðspurður um hvaða áhrif breytingar á lögum og upplýsingagjöf um sjálfbæran rekstur munu hafa á fyrirtæki á Íslandi.

Inn fyrir endimörk alheimsins
Heiminum hefur sennilega aldrei vegnað betur. Skrýtið að segja þetta á því sem við vonum að sé skottið á tveggja ára löngum heimsfaraldri.

Festi endurskoðar starfsreglur vegna máls Vítalíu
Stjórn Festi mun endurskoða starfsreglur stjórnar félagsins eftir að stjórnarformaður félagsins sagði af sér á dögunum vegna máls Vítalíu Lazarevu.

Þrjú fyrirtæki með yfir 90 prósent af kolefnisspori eignasafnsins
Íslenski lífeyrissjóðurinn hefur birt ítarlegt mat á UFS-þáttum eignasafnsins en á meðal þess sem matið varpar ljósi á er að sú staðreynd að rekja má meira en 90 prósent af kolefnisspori innlenda eignasafnsins til þriggja skráðra fyrirtækja.

Á döfinni í fyrra: Vinnan og lífið
Vegvísir í umfjöllun Atvinnulífsins á Vísi er eftirfarandi skilgreining: „Atvinnulíf fjallar á fjölbreyttan hátt um stjórnun, mannauðsmál, fyrirtækjamenningu, jafnvægi heimilis og vinnu og fleira.“

Sjálfbær útgáfa jókst um ríflega 40 prósent milli ára
Útgáfa sjálfbærra skuldabréfa á Íslandi nam 173 milljörðum króna á árinu 2021 samanborið við 122 milljarða króna árið 2020 samkvæmt tölum frá sjálfbærniteymi KPMG. Vöxtur í útgáfu sjálfbærra bréfa nam því 42 prósentum á milli ára.

Arnar vínsali, Controlant, Sidekick Health, Brim og Örn í Akta hlutu Viðskiptaverðlaun Innherja og 1881
Arnar Sigurðsson í Sante, Controlant Viðskiptaverðlaunum Innherja 2021, sem haldin voru í kvöld á Hilton Nordic. Auk aðalverðlauna voru veitt viðskiptaverðlaun í fimm flokkum.

Fjölga starfsfólki: „Við lærum hvort af öðru“
Það getur margt jákvætt áunnist með auknum fjölbreytileika og fjölmenningu á vinnustöðum.

Vinnan þarf helst að auka lífsgæði starfsmanna
„Vinnuvernd snýst um að skapa öruggt og gott starfsumhverfi þar sem starfsfólk getur stundað sína vinnu á þann hátt að þeir hljóti ekki skaða af og að helst stuðli vinnan frekar að því að auka lífsgæði starfsmanna,“ segir Sandra Rán Ásgrímsdóttir sjálfbærni verkfræðingur hjá Mannvit.