
Hernaður

Rússneskir friðargæsluliðar á leið til Nagorno-Karabakh
Rússneskir friðargæsluliðar lögðu í morgun af stað til Nagorno Karabakh héraðs í Aserbaídjan eins og ráð var fyrir gert í vopnahléssamningnum sem undirritaður var í gær af stríðandi fylkingum. Aserar og Armenar hafa háð harða bardaga um héraðið undanfarna mánuði.

Rússnesk herþyrla skotin niður af Aserbaídsjan
Tveir létust þegar rússnesk herþyrla var skotin niður í Armeníu í dag. Aserbaídsjan hefur nú viðurkennt að hafa skotið þyrluna niður fyrir slysni og hefur berist afsökunar. Árásin tengist átökum milli Asera og Armena um héraðið Nagorno-Karabakh.

Átök halda áfram í Nagorno-Karabakh
Átök brutust út á milli hersveita Aserbaídsjan og Armena sem búsettir eru í Nagorno-Karabakh í dag. Aserar og Armenar hafa báðir kennt hvor öðrum um að hafa komið í veg fyrir friðsamlegar málalyktir í átökunum um héraðið.

Vopnahlé brotið nokkrum mínútum eftir að það tók gildi
Aserar og Armenar saka hvern annan um brot á vopnahléi sem átti að taka gildi á miðnætti í gærkvöldi.

Armenía og Aserbaídsjan semja um vopnahlé
Armenía og Aserbaídsjan hafa samið um vopnahlé í deilunum um héraðið Nagorno-Karabakh.

Fluttu hjálpargögn en ekki vopn til Jerevan
Fjölmiðlar í Aserbaídsjan segja að vopn hafi verið flutt frá Íslandi til Armeníu um helgina og hafa vísað til fragtflugvélar Icelandair sem flogið var frá Keflavík til Jerevan, höfuðborgar Armeníu.

Saka hvor annan um brot á vopnahléi
Ráðamenn í bæði Armeníu og Aserbaídsjan saka hina um að hafa brotið gegn vopnahléi í Nagorno-Karabakh.

Samþykktu vopnahlé í Nagorno-Karabakh
Armenar og Aserar hafa samþykkt tímabundið vopnahlé í deilum sínum um Nagorno-Karabakh í Kákasusfjöllum. Þetta tilkynnti utanríkisráðherra Rússlands í nótt, eftir að fulltrúar ríkjanna höfðu fundað í um tíu klukkustundir í Moskvu.

Armenar og Aserar ætla að ræða frið í Moskvu
Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, segist reiðubúinn til að hefja friðarviðræður Aserbaídsjan á nýjan leik.

Enn átök á milli Armena og Asera
Amernar og Aserar berjast enn í Nagorno-Karabakh á sama tíma og forsvarsmenn Bandaríkjanna, Rússlands og Frakklands leita leiða til að binda enda á átökin.

Segir Tyrki halda þjóðarmorðinu áfram
Aðgerðir Tyrkja og Asera í deilunni við Armena um héraðið Nagorno-Karabakh eru hryðjuverk og framhald á þjóðarmorði Tyrkja á Armenum. Þetta segir armenski forsætisráðherrann Nikol Pashinyan í samtali við Sky News.

Fyrirliði armenska landsliðsins tekur herþjónustu fram yfir fótboltann
Varazdat Haroyan ákvað að slá félagaskiptum sínum til AEL Larissa á frest til að berjast í átökum Armeníu og Aserbaídsjan.

Armenar reiðubúnir til viðræðna um vopnahlé
Aserar segjast hins vegar einungis ætla að hætta hernaðaraðgerðum þegar armenskar hersveitir hafi hörfað.

Leggja ekki niður vopn enn
Yfirvöld í Aserbaídsjan og Armeníu hafa ekki orðið við ákalli Rússlands, Frakklands og Bandaríkjanna um vopnahlé í átökum þeirra á milli.

Hafa áhyggjur af sýrlenskum málaliðum í nágrannaerjum
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur áhyggjur af því að tyrknesk stjórnvöld sendi nú sýrlenska málaliða til að leggja Aserum lið í átökum þeirra við nágranna sína Armena um fjallahéraðið Nagorno-Karabakh. Tyrkir styðja Asera í átökunum en neita því að hafa sent erlenda málaliða þangað.

Bjóðast til að miðla málum í deilum Asera og Armena
Rússar hafa boðist til að miðla málum í mögulegum friðarviðræðum Armena og Asera um héraðið Nagorno-Karabakh.

Nagorno-Karabakh: Biðlað til deiluaðila að hlífa óbreyttum borgurum
Vegna ótta um að vopnuð átök brjótist út á milli Armeníu og Azerbaidjan hefur Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) hvatt deiluaðila til að virða alþjóðleg mannúðarlög

Koma saman til að ræða deilu Asera og Armena
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun koma saman í dag til að ræða deilu Asera og Armena en átök hafa blossað upp enn á ný í héraðinu Nagorno Karabakh og liggja tugir eða hundruð í valnum.

Framkvæmdastjórn ESB hvetur til vopnahlés Armena og Asera
Tugir hafa farist í átökum Armena og Asera í Nagorno-Karabakk í dag og í gær. Evrópusambandið segir brýnt að koma í veg fyrir að stríð brjótist út.

Setja herlög bæði í Armeníu og Aserbaídsjan
Átök armenskra og aserskra hersveita á landamærunum héldu áfram í nótt. 23 manns hið minnsta féllu í átökunum í gær og hafa herlög tekið gildi í báðum ríkjum. Alls hafa nú 31 maður fallið í átökum síðustu daga.

Grunar að sýrlenskir hermenn hafi verið í hópi hersveita Aserbaídsjan
Armenska varnarmálaráðuneytið segist nú rannsaka hvort fréttir um að sýrlenskir hermenn hafi verið í liði hersveita Aserbaídsjan séu sannar.

Mannfall í hernaðarátökum Asera og Armena
Bæði Aserar og Armenar segjast hafa orðið fyrir mannfalli í skærum ríkjanna um Nagorno-Karabakh, umdeilt og landlukt svæði innan Aserbaídsjan. Átökin eru sögð þau hörðustu frá því að sextán manns féllu í júlí.