Þýski boltinn

Efnilegur táningur frá Liechtenstein til Hoffenheim
Gylfi Þór Sigurðsson hefur fengið nýjan liðsfélaga en það er hinn átján ára gamli Sandro Wieser frá Liechtenstein. Hann þykir stórefnilegur miðjumaður og kom var keyptur til liðsins frá Basel í Sviss.

Vicente del Bosque útilokar ekki að velja Raul í EM-hóp Spánverja
Vicente del Bosque, þjálfari spænska landsliðsins, er ekki tilbúinn að loka landsliðsdyrunum á hinn 34 ára gamla Raul sem hefur farið á kostum með þýska liðinu Schalke í vetur. Raul hefur skorað 10 mörk og gefið 4 stosðendingar í 17 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Skrýtinn jólahúmor hjá St Pauli liðinu
Leikmenn þýska liðsins FC St. Pauli sem spilar í þýsku b-deildinni sendu stuðningsmönnum jólakveðju í ár en hún getur þó ekki talist vera uppfull af hreinum jólaanda.

Gylfi og félagar heppnir í bikarnum - mæta Greuther Furth
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Hoffenheim höfðu heppnina með sér í dag þegar dregið var í átta liða úrslit þýska bikarsins því þeir sluppu við sterk lið eins og Bayern München, Borussia Dortmund og Borussia Monchengladbach.

Viðbjóðsleg dýfa hjá Robben
Arjen Robben, leikmaður FC Bayern, er ekki einn af heiðarlegri leikmönnum heims og hann sannaði það svo sannarlega gegn Bochum.

Gylfi og Hólmar komu ekkert við sögu
Leikið var í þýsku bikarkeppninni í kvöld og komu þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Hólmar Örn Eyjólfsson ekkert við sögu með sínum liðum.

Góður útisigur hjá Degi og Alexander
Füchse Berlin hélt uppteknum hætti í þýsku úrvalsdeildinni með góðum útisigri á Lemgo í kvöld, 31-27. Alexander Petersson skoraði sjö mörk fyrir Füchse Berlin og var markahæstur.

Gylfi : Ég er meiri Englendingur í mér en Þjóðverji
Það hefur minna farið fyrir Hafnfirðingnum Gylfa Þór Sigurðssyni síðustu vikur og mánuði en á síðasta keppnistímabili, er hann sló í gegn með Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni. Hann hefur ekki enn skorað á tímabilinu en meiddist reyndar í sumar sem setti stórt strik í reikninginn.

Gylfi á bekknum í jafnteflisleik
Gylfi Þór Sigurðsson er enn út í kuldanum hjá Hoffenheim og hann sat sem fastast á varamannabekk liðsins er Hoffenheim og Hertha Berlin gerðu 1-1 jafntefli í dag.

Bayern München náði sex stiga forskoti á toppnum
Bayern München er komið með sex stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 sigur á Köln í kvöld. Bayern hefur unnið þrjá leiki í röð og hefur sett pressu á Borussia Dortmund, Schalke 04 og Borussia Mönchengladbach að fylgja þeim eftir þegar umferðin klárast um helgina.

Schumacher kemur til greina sem næsti forseti Kölnar
Michael Schumacher, margfaldur heimsmeistari í formúlu eitt, gæti orðið næsti forseti þýska úrvalsdeildarliðsins Kölnar en Schumacher er einn af tuttugu nöfnum, sem ráðgjafi félagsins hefur lagt til, samkvæmt heimildum þýskra fjölmiðla.

Grunur um hneyksli hjá þýska knattspyrnusambandinu
Saksóknaraembættið í Frankfurt rannsakar nú meinta spillingu í þýska knattspyrnusambandinu en grunur er um að umboðsmenn hafi getað keypt FIFA-leyfi af sambandinu.

Gómez tryggði Bayern München mikilvægan sigur á Stuttgart
Toppliði léku bæði í þýski úrvalsdeildinni í dag en Borussia Dortmund missteig sig örlítið þegar liðið gerði jafntefli, 1-1, við Kaiserslautern. Bayern München vann flottan sigur á Stuttgart 2-1 á útivelli.

Loksins sigur hjá Hoffenheim | Gylfi ekki með
Hoffenheim vann í dag sinn fyrsta sigur síðan í lok október er liðið vann Nürnberg á útivelli, 2-0. Vedad Ibisevic skoraði bæði mörk liðsins.

Þjálfari Hoffenheim: Gylfi þarf á marki að halda
Gylfa Þór Sigurðssyni hefur ekki enn tekist að skora mark á leiktíðinni í þýsku úrvalsdeildinni en hann var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili.

Fimm leikir í röð án sigurs hjá Hoffenheim
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Hoffenheim sem tapaði fyrir Bayer Leverkusen, 2-0, í slökum leik í þýskum úrvalsdeildinni í kvöld.

Þetta eru 55 bestu fótboltamenn í heimi
Alþjóðaknattspyrnsambandið, FIFA, hefur gefið það út hvaða 55 leikmenn koma til greina í heimslið sambandsins fyrir árið 2011. FIFA mun síðan tilkynna það 9. janúar næstkomandi hvaða ellefu leikmenn komast í úrvalslið ársins. FifPro, sem eru regnhlífarsamtök atvinnuknattspyrnumanna, stendur fyrir kjörinu í samstarfi við FIFA.

Liðsfélagar Gylfa mættu of seint á æfingu og var hent út úr hópnum
Gylfi Þór Sigurðsson fær hugsanlega aftur tækifæri í byrjunarliði Hoffenheim á móti Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni á föstudagskvöldið. Holger Stanislawski, þjálfari Hoffenheim, henti nefnilega tveimur miðjumönnum liðsins út úr hópnum fyrir leikinn.

Framkvæmdastjóri Löwen: Erum ekki lengur topplið
Thorsten Storm, framkvæmdarstjóri þýska úrvalsdeildarfélagsins Rhein-Neckar Löwen var ómyrkur í máli eftir tap liðsins fyrir Füchse Berlin í kvöld.

Mainz kom á óvart og sigraði Bayern Munchen
Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en Mainz gerði sér lítið fyrir og sigraði Bayern Munchen 3-2 á heimavelli.

Óttinn við að gera mistök bugaði Rafati
Þýski dómarinn Babak Rafati, sem reyndi að svipta sig lífi á dögunum, segir að óttinn um að gera mistök hafi gert hann þunglyndan sem hafi síðan leitt til þess að hann reyndi að taka sitt eigið líf.

Gylfi enn út í kuldanum hjá Hoffenheim
Gylfi Þór Sigurðsson mátti gera sér að góðu að sitja á bekknum allan tímann er Hoffenheim gerði jafntefli, 1-1, á heimavelli gegn Freiburg. Freiburg jafnaði leikinn undir lokin.

Udinese og Gladbach komust bæði á toppinn í kvöld
Udinese og Borussia Mönchengladbach komust bæði á toppinn í sínum deildum eftir sigra í kvöld. Udinese vann 2-0 sigur á Roma á heimavelli og náði tveggja stiga forskot í ítölsku deildinni en Borussia Mönchengladbach vann 3-0 útisigur á Köln og náði eins stigs forskoti í þýsku úrvalsdeildinni.

Van Gaal vill starfslokasamning hjá Bayern
Hollenski þjálfarinn Louis van Gaal reynir nú að ganga frá starfslokum við FC Bayern svo hann geti byrjað að vinna fyrir Ajax. Hann er á launum hjá þýska félaginu fram á næsta sumar.

Gylfi kom ekki við sögu í tapleik
Gylfi Þór Sigurðsson sat allan leikinn á varamannabekk Hoffenheim sem tapaði, 2-0, fyrir Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Leik frestað í Þýskalandi vegna sjálfsvígstilraunar dómara
Köln og Mainz áttu að mætast nú síðdegis í þýsku úrvalsdeildinni en ákveðið var að fresta leiknum þar sem að dómari leiksins, hinn 31 árs gamli Babak Rafati, reyndi að fyrirfara sér skömmu fyrir leikinn.

Magdeburg vann með fimmtán mörkum
Magdeburg vann í dag fimmtán marka sigur á Hannover-Burgdorf í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 41-26.

Höness búinn að missa þolinmæðina
Uli Höness, forseti Bayern München, er búinn að fá sig fullsaddann af þeim hópi stuðningsmanna liðsins sem gagnrýna markvörðinn Manuel Neuer við hvert tækifæri.

Undrabarnið Götze tryggði Dortmund sigur á Bayern
Hinn nítján ára Mario Götze tryggði í dag sínum mönnum í Dortmund 1-0 sigur á Bayern München í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar.

Bayern ætlar ekki að selja í janúar
Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern München, hefur útilokað að félagið muni selja leikmenn þegar að opnað verður fyrir félagaskipti um áramótin næstu.