Háskólar

Hvernig kennara viljum við?
Það skiptir okkur öll máli að skólastarf gangi vel, að börn og ungmenni njóti sín í námi og leik og að hlúð sé að velferð þeirra og þroska. Við vitum öll hve miklu máli góðir kennarar skipta og eigum flest minningar um kennara sem hafa snert hjörtu okkar og mótað okkur sem manneskju

Segir ósatt með öllu að Jóni Baldvin hafi ekki verið boðið
Ósatt er með öllu að ekki hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, til hátíðarviðburðar í tilefni þess að rúm þrjátíu ár séu liðin frá því að Ísland hafi á ný tekið upp stjórnmálasamband við Eystrasaltslöndin þrjú.

Segir að ekki hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvin
Fyrrverandi samflokksmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að íslensk stjórnvöld og Háskóli Íslands hafi ekki ætlað sér að bjóða Jóni Baldvin á hátíðarsamkomu um sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna sem fyrirhuguð er síðar í vikunni. Forsetar ríkjanna þriggja munu allir mæta á samkomuna.

Ein innritunargátt fyrir alla háskóla á island.is
Unnið er að því að koma á fót innritunargátt fyrir alla háskóla landsins. Í stað þess að hver skóli fyrir sig taki við skráningum munu allir tilvonandi háskólanemar skrá sig í nám á island.is.

Skipti um fag í miðri mastersritgerð og klárar nýja námið fertugur
Böðvar Páll Ásgeirsson kláraði fimm ár í hagfræði, átti aðeins ritgerðina eftir en ákvað þá að hætta og fara frekar í læknisfræði.

Gætu tekið á móti fleiri læknanemum á Akureyri
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að sjúkrahúsið geti tekið á móti fleiri læknanemum í grunnnámi, að því gefnu að stofnunin og Háskóli Íslands ráðist í skipulagsbreytingar og tímabil starfsnáms læknanema verði samræmt.

Njörður kveður og Ólína tekur við starfinu
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, skólameistari og borgarfulltrúi, hefur verið ráðin deildarforseti við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Ólína tekur við af Nirði Sigurjónssyni sem hefur gegnt starfinu síðustu tvö ár.

Rúmlega þriðjungur klárar bakkalárnám á tilætluðum tíma
Af þeim nýnemum sem hófu þriggja ára nám til bakkalárgráðu í háskólum á Íslandi árið 2014 kláruðu rúmlega þriðjungur það á tilætluðum tíma eða 38 prósent. Rúmlega 68,5 prósent nemenda kláruðu námið á sex árum eða skemur.

Heilbrigðiskerfið - ekkert án okkar!
Eftir tvö krefjandi ár í heilbrigðismálum þjóðarinnar stefnir því miður í áframhaldandi erfiðleika í heilbrigðiskerfinu. Vonandi er okkur að takast að ráða niðurlögum á Covid-19 faraldrinum en eftir stendur veikburða heilbrigðiskerfi þar sem langþreytt heilbrigðisstarfsfólki er keyrt út.

Stórt hlutfall íslenskra lækna útskrifast erlendis
Tæplega helmingur lækna frá Íslandi útskrifast nú úr grunnámi við erlenda háskóla.

Aldrei fleiri fengið íbúð á Stúdentagörðunum
Félagsstofnun stúdenta úthlutaði 512 leigueiningum á Stúdentagörðum til rúmlega 550 stúdenta í nýafstaðinni haustúthlutun. Aldrei hafa fleiri fengið leiguhúsnæði úthlutað hjá stofnuninni í haustúthlutun.

Kærir prófessor sem sé „í heilagri pólitískri baráttu gegn sjávarútvegi“
Birkir Leósson endurskoðandi hefur ákveðið að kæra Þórólf Matthíasson, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, til siðanefndar HÍ vegna skrifa hans um sjávarútvegsfyrirtækið Vísi.

Kennir háskólaáfanga út frá þróun tónlistarferils Harry Styles
Brátt mun háskóli í Texas ríki í Bandaríkjunum bjóða upp á sagnfræðiáfanga sem einblínir á söngvarann Harry Styles. Kennarinn segir áfangann vera þann fyrsta sinnar tegundar í heiminum og hefst hann á vorönn 2023.

Háskólanám Kvikmyndaskólans í sjónmáli
Væntingar Kvikmyndaskóla Íslands standa til þess að úttektarferli fyrir BA námsbraut skólans, í samstarfi við Háskóla Íslands, ljúki í september á þessu ári. BA námsbraut í Kvikmyndaskólanum gæti því orðið að veruleika í haust.

Að læra að lesa og að verða læs
Því miður hefur umræðan um það hvað sé helst til ráða verið á villigötum og ljóst að misskilningur ríkir um það hvað læsi er og hvernig sé árangursríkast að bæta það.

Tugir jarðvísindamanna mættir í Mývatnssveit að rannsaka Kröflu
Á fjórða tug vísindamanna vinna þessa dagana í Mývatnssveit að miklu mælingaverkefni í Kröflu, sem Jarðvísindastofnun Háskólans leiðir hérlendis í samvinnu við Landsvirkjun, erlendar rannsóknastofnanir og háskóla. Kanna á ítarlegar en áður hefur verið gert ýmis atriði í byggingu Kröflueldstöðvarinnar og varpa þannig frekara ljósi á samband jarðhita og kviku.

Um tuttugu prósent fleiri sóttu um leikskólakennaranám
Um tuttugu prósent aukning er í umsóknum í nám leikskólakennarafræði milli ára en sjötíu leikskólakennarar tóku við brautskráningarskírteinum sínum þann 25. júní síðastliðinn, sem er veruleg aukning frá síðustu árum.

„Menntun er ekki bara máttur, hún er vagga frelsis og farsældar“
„Menntun er ekki bara máttur, hún er vagga frelsis og farsældar. Megi ykkur auðnast, kæru kandídatar, að nýta mátt menntunarinnar, sjálfa þekkinguna til góðra verka, þannig að hún stuðli að farsæld og friði hvar sem þið látið til ykkar taka á komandi árum,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, í ræðu sinni við brautskráningu kandídata í dag.

Metfjöldi brautskráðra frá Háskóla íslands
Háskóli Íslands brautskráir 2.594 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi í dag, aldrei hafa fleiri verið brautskráðið. Í fyrsta skipti í tvö ár munu vinir og vandamenn brautskráðra mega mæta á athöfnina en hún verður einnig í beinni útsendingu hér á Vísi.

Nýsköpun og menntarannsóknir
Hvaða máli skipta grunnrannsóknir og nýsköpun í menntavísundum? Stutta svarið er að grunnrannsóknir og nýsköpun eru og hafa lengi verið eins mikilvægar fyrir menntavísindi og þau eru fyrir öll önnur vísindi og fræði.

Dásamleg upplifun að útskrifa son sinn og tengdadóttur
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri hafði í nógu að snúast um helgina því hann brautskráði á sjötta hundrað nemendur frá skólanum í þremur athöfnum.

Jordan Peterson á leið til landsins og treður upp í Háskólabíó
Samningar hafa tekist við Jordan Peterson, hinn umdeilda kanadíska sálfræðing og verður hann með fyrirlestur í Háskólabíó 25. júní næstkomandi.

Menntun á óvissutímum
Menntun er eitt skarpasta verkfæri allra þjóða til að stuðla að breytingum og búa til betra samfélag. Um þessar mundir sækja tæplega 900 manns menntaráðstefnuna NERA 2022 á Íslandi. Menntavísindasvið Háskóla Íslands heldur ráðstefnuna í samstarfi við samtökin Nordic Educational Research Association en yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Menntun og þátttaka á óvissutímum.

Sprengja í doktorsnámi við HÍ undanfarin ár
Qiong Wang, nemandi við Læknadeild Háskóla Íslands, varð á dögunum þúsundasti doktorsneminn til þess að verja ritgerð sína við skólann frá stofnun hans árið 1911. Aðeins sjö ár eru síðan fimm hundraðasti doktorsneminn lauk námi við skólann.

Hannes og Steinunn heiðursdoktorar við Háskóla Íslands
Skáldin Hannes Pétursson og Steinunn Sigurðardóttir voru sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Hátíðasal skólans í gær.

Nýjar hugmyndir og nýir frumkvöðlar í nýrri hringrás
Leitinni að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands á sviði matar, vatns og orku lýkur í kvöld þegar dómnefnd sker úr um hvaða ein af sex hugmyndum þykir skara fram úr. Hugmyndasamkeppnin nú er þó bara upphafið á annarri hringrás nýsköpunarstarfs á Norðurlandi.

Tekur við stöðu forstöðumanns Símenntunar HA
Stefán Guðnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Símenntunar Háskólans á Akureyri.

Starfar þú með börnum? Ný námsleið á sviði farsældar barna
Þann 1. janúar s.l. tóku gildi ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Með farsæld er vísað til aðstæðna sem skapa börnum skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar.

Stapa breytt í stúdentagarð
Háskóli Íslands (HÍ) hyggst selja Félagsstofnun stúdenta (FS) bygginguna Stapa við Hringbraut eftir að núverandi starfsemi HÍ þar flyst í nýtt húsnæði Heilbrigðisvísindasviðs á Landspítalasvæðinu. Til stendur að breyta Stapa í stúdentagarð sem fellur að Gamla Garði og nýrri viðbyggingu hans.

Tekur við starfi forstöðumanns Rannsóknamiðstöðvar HA
Arnar Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA).