Sambandsdeild Evrópu

Umfjöllum: KA - Dundalk 3-1 | KA í góðri stöðu
KA vann Dundalk frá Írlandi 3-1 í fyrri leik liðanna í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Bjarni Aðalsteinsson opnaði markareikninginn fyrir KA, Daniel Kelly jafnaði svo fyrir gestina skömmu síðar áður en Sveinn Margeir Hauksson skoraði tvö mörk til viðbótar fyrir KA.

Mikael Anderson og félagar steinlágu gegn Club Brugge
Club Brugge unnu sannfærandi 3-0 sigur gegn AGF í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Útileikir Breiðabliks og KA sýndir beint á Stöð 2 Sport
Næstu útileikir Breiðabliks og KA í Evrópukeppnum verða sýndir á Stöð 2 Sport.

Þurfa að bíta á jaxlinn gegn beinskeyttum Írum í kvöld: „Þurfum að þora vera við sjálfir“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari karlaliðs KA í fótbolta er borubrattur fyrir fyrri leik liðsins gegn írska liðinu Dundalk í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Norðanmenn þurfti að setja í næsta gír frá einvígi sínu í fyrstu umferðinni til að eiga möguleika.

Gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir KA í kvöld: „Gefur okkur gæði og ró fram á við“
Færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Simun Edmundsson verður í leikmannahópi KA sem tekur á móti írska liðinu Dundalk í Sambandsdeild Evrópu í kvöld og gæti því spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Midtjylland með sigur í forkeppni Sambandsdeildarinnar
Midtjylland sem spilar í dönsku úrvalsdeildinni vann 2-0 sigur gegn FC Progrès Niederkorn í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

KA fer til Belgíu eða Danmerkur sigri það Dundalk
KA mætir Dundalk frá Írlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Takist KA að komast í gegnum FH-banana frá árinu 2016 þá bíða þeirra mótherjar frá annað hvort Belgíu eða Danmörku.

Íslensku liðin hafa unnið sjö af átta Evrópuleikjum sinum í ár
Breiðablik og KA eru komin áfram í Evrópukeppnum sínum en Víkingar eru úr leik þrátt fyrir sigur í seinni leik sínum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur - FC Riga 1-0 | Víkingur úr leik þrátt fyrir sigur
Víkingur sigraði lettneska liðið Riga FC á Víkingsvelli í kvöld. Leikurinn endaði 1-0 en Helgi Guðjónsson skoraði markið á 82. mínútu leiksins. Leikurinn var sá seinni í einvígi liðanna í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þrátt fyrir sigur eru Víkingar fallnir úr leik því að samanlögð úrslit úr leikjunum tveimur er 2-1 fyrir Riga og ljóst er að Víkingar ná ekki lengra í Evrópukeppnum þetta tímabilið.

„Ef þú vilt falla út þá vilt þú falla út eftir svona frammistöðu“
Þrátt fyrir hetjulega baráttu í síðari leik einvígisins náðu Víkingar ekki að slá út lettneska liðið Riga FC í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Víkingur sigraði seinni leik viðureignarinnar 1-0 á Víkingsvelli í kvöld en samanlagt fór einvígið 2-1 fyrir lettneska liðinu.

Umfjöllun: Connah's Quay - KA 0-2 | KA örugglega áfram í aðra umferð
KA tryggði sér farseðilinn í aðra umferð Sambandsdeildarinnar eftir 0-2 sigur á Connah´s Quay. KA vann fyrri leikinn 2-0 í Úlfarsárdalnum og einvígið samanlagt 4-0. Í kvöld skoruðu Daníel Hafsteinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson mörk KA. Umfjöllun væntanleg.

„Ég bið bara um gamla góða Víkingsliðið mitt“
Víkingar þurfa að taka á stóra sínum í dag þegar liðið mætir lettneska félaginu Riga í seinni leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

„Við getum gert ótrúlega hluti hér á heimavelli“
Víkingur mætir lettneska liðinu Riga á morgun í seinni leik liðanna í Sambandsdeild Evrópu. Riga leiðir 2-0 eftir fyrri leikinn og Víkingar því með bakið upp við vegg.

Flugu beint frá Akureyri til Liverpool
KA og velska félagið Connah's Quay Nomads eiga það sameiginlegt að spila heimaleiki sína í Evrópukeppninni ekki á sínum vanalega heimavelli.

KA-menn enn taplausir á heimavelli í Evrópukeppni eftir 33 ár
KA-menn spiluðu sinn fyrsta Evrópuleik fyrir rúmum þrjátíu árum. Þeir hafa enn ekki tapað Evrópuleik á Íslandi.

Hallgrímur Jónasson: Þurfum að spila vel í Wales til að komast áfram
KA er í ansi góðri stöðu í fyrstu umfer undankeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir að hafa lagt Connah´s Quay Nomads af velli 2-0 í Úlfarsárdal fyrr í kvöld. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Daníel Hafsteinsson sáu um markaskorun heimamanna og tryggðu KA gott veganesti til Wales í seinni leikinn sem er eftir viku. Þjálfari KA Hallgrímur Jónasson var að vonum ánægður með úrslitin en var um sig að það þurfti að klára verkefnið í næstu viku.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KA - Connah's Quay Nomads 2-0 | Öruggur sigur í fyrsta Evrópuleiknum í tuttugu ár
KA vann öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Connah's Quay Nomads frá Wales í Úlfarsárdalnum í kvöld í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þetta var fyrsti Evrópuleikur KA síðan árið 2003 og sá fimmti í sögunni.

Umfjöllun: Riga - Víkingur 2-0 | Bikarmeistararnir með bakið upp við vegg
Víkingar töpuðu í kvöld gegn Riga FC ytra, sannfærandi, lokatölur 2-0. Var leikurinn liður í undankeppni fyrir Sambandsdeild Evrópu. Heimamenn í Riga stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleik og náðu að skora eitt mark og skoruðu svo snemma í síðari hálfleik. Víkingar ógnuðu marki Riga FC lítið og miðað við þennan leik eiga Víkingar á brattann að sækja í síðari leik liðanna eftir viku.

Mótherjar Víkinga í kvöld keyptu leikmann á dögunum á 236 milljónir
Bikarmeistarar Víkinga sækja lettneska liðið Riga heim í kvöld í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

KA leikur sinn fyrsta Evrópuleik í 20 ár: „Stór stund og mjög spennandi“
KA spilar í dag sinn fyrsta Evrópuleik í 20 ár. Liðið þarf að spila leikinn í Reykjavík en það dregur þó ekki úr stærð leiksins samkvæmt Hallgrími Jónassyni, þjálfara liðsins. Leikurinn hefst klukkan 18.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport 5.

Allir Evrópuleikirnir á Stöð 2 Sport
Samningar hafa náðst um að komandi leikir íslensku liðanna í undankeppni Meistaradeildar og Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í júlí verði allir sýndir á Stöð 2 Sport.

Osasuna fær ekki að keppa í Sambandsdeild Evrópu
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið að spænska félagið Osasuna fái ekki að taka þátt í Sambandsdeild Evrópu á komandi leiktíð þrátt fyrir að hafa unnið sér inn sæti í keppninni á nýafstöðnu tímabili.

Stuðningsmenn West Ham fá ekki að mæta á næsta heimaleik
West Ham þarf að leika næsta Evrópuleik sinn fyrir luktum dyrum vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins á úrslitaleik Sambandsdeildarinnar fyrr í mánuðinum.

Ljóst hvað bíður KA og Víkings ef þau vinna
Nú hefur verið dregið í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta, þar sem KA og Víkingur spila takist þeim að vinna mótherja sína í 1. umferð. Einnig er aðeins skýrara hvaða liði Breiðablik mætir, falli liðið úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í næstu viku.

KA til Wales en Víkingur til Lettlands
Lið Víkings og KA voru í skálinni í dag þegar dregið var í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta.

Hræðist ekki kaldara loftslag í Reykjavík: „Mikil spenna fyrir þessu verkefni“
Það skýrist í dag hvaða liði KA mætir í fyrstu viðureign sinni í rúm tuttugu ár í Evrópukeppni í fótbolta. Liðið mun þurfa að leika Evrópuleiki sína í Reykjavík og ríkir mikil spenna hjá KA-fólki fyrir drætti dagsins.

Andstæðingar Blika sömdu við Maicon fyrir tveimur árum
Fyrstu andstæðingar Breiðabliks í forkeppni Meistaradeild Evrópu sömdu við gamla brasilíska stórstjörnu fyrir tveimur árum.

Yfir tuttugu handteknir eftir úrslitaleikinn
West Ham og Fiorentina hafa verið kærð af UEFA eftir atvik sem upp komu í úrslitaleik liðanna í Sambandsdeild Evrópu á miðvikudaginn.

Mikið um dýrðir þegar West Ham mætti heim til Lundúna
Lið West Ham kom heim til Lundúna í gær eftir að hafa unnið sigur í Sambandsdeild Evrópu á miðvikudagskvöldið. Mikill mannfjöldi tók á móti liðinu í austurhluta Lundúna.

Forseti Fiorentina kallaði West Ham-menn skepnur
Forseti Fiorentina hefur kallað West Ham United-menn skepnur vegna framferðis þeirra í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í gær.