Sambandsdeild Evrópu

„Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga var svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Shamrock Rovers í gær sem þýðir að Víkingar eru úr leik í undankeppni Meistaradeildarinnar. Hann sagði að það hafi verið erfitt að koma inn í búningsklefa eftir leik.

Valur mun spila seinni leikinn í Albaníu: „Verðum að trúa því og treysta að þetta verði í lagi“
Þrátt fyrir ofbeldisfulla hegðun fær albanska liðið Vllaznia að halda heimaleik fyrir opnum dyrum gegn Val næsta fimmtudag í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þetta staðfestir Jörundur Áki Sveinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við Vísi.

Valsmenn senda frá sér yfirlýsingu: UEFA lítur málið alvarlegum augum
Valur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna óláta áhorfenda á leik karlaliðs félagsins í fótbolta við Vllaznia frá Albaníu í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Hegðun stuðningsmanna er fordæmd en öll einbeiting sögð á síðari leiknum eftir viku.

UEFA á viðvörunarstigi, Interpol í málinu og Albaníuferðin í hættu
Hegðun stuðningsmanna og starfsfólks albanska félagsins Vllaznia í kringum leik liðsins við Val að Hlíðarenda í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld gæti dregið dilk á eftir sér. Málið er á borði KSÍ og UEFA auk lögreglunnar og Interpol.

„Hefðum átt að fá allavega eitt víti í viðbót“
Chris Shields fyrirliði Linfield var að vonum svekktur eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni í undankeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld. Emil Atlason skoraði fyrra mark Stjörnunnar og seinna var sjálfsmark eftir undirbúning Emils.

Öryggisvörður laminn eftir leik og lögregla kölluð til
Stuðningsmenn albanska liðsins Vllaznia réðust á öryggisverði eftir leik á Hlíðarenda. Svo virtist sem tekist hefði að leysa úr málunum en lögregla var kölluð til þegar múgurinn espaðist aftur.

Arnar: Maður fær ekki allt sem maður á skilið
Valur náði í jafntefli gegn Vllaznia í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Leiknum lauk 2-2 en Ólafur Karl Finsen jafnaði metin þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Arnar Grétarsson var svekktur en þó þokkalega sáttur að fara ekki út með tap á bakinu.

Seinna markið ekki skráð á Emil: „Ég er ekkert að kippa mér upp við það, boltinn fór inn“
Emil Atlason var frábær fyrir Stjörnuna í 2-0 sigri liðsins á norður-írska liðinu Linfield í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Uppgjörið: Valur - Vllaznia 2-2 | Læti undir lokin og liðin skilja jöfn
Valur gerði 2-2 jafntefli við Vllaznia frá Albaníu í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Valsmenn gáfu tvö klaufaleg mörk frá sér en gestirnir misstu mann af velli og misstu leikinn í jafntefli undir blálokin.

Uppgjörið: Stjarnan - Linfield 2-0 | Emil Atlason með bæði mörkin
Stjarnan lék sinn fyrsta Evrópuleik í þrjú ár í kvöld er liðið fékk norður-írska liðið Linfield í heimsókn. Aðstæður voru líkt og flest önnur sumarkvöld þetta sumarið á höfuðborgarsvæðinu, rigning og vindur. Það hafði hinsvegar lítil áhrif á skemmtanagildi leiksins sem var talsvert.

Uppgjörið: Tikves - Breiðablik 3-2 | Slæmur tíu mínútna kafli gerir stöðuna erfiðari fyrir Blika
Breiðablik laut í lægra haldi með þremur mörkum gegn tveimur þegar liðið sótti Tikves heim til Skopje í Norður-Makedóníu í fyrri leik liðanna í forkeppni Sambandsdeild Evrópu klukkan í kvöld.

Allir þrír Evrópuleikir íslensku liðanna sýndir beint í kvöld
Þrjú íslensk félög hefja leik í kvöld í forkeppni Sambandsdeildarinnar í knattspyrnu en þetta eru lið Breiðabliks, Vals og Stjörnunnar. Allir leikirnir verða sýndir beint á sportstöðvum Stöðvar 2.

Leikmenn Blika í útgöngubanni í Skopje
Breiðablik hefur vegferð sína í Sambandsdeild Evrópu í kvöld er liðið sækir Tikves Kavadarci heim í Skopje, höfuðborg Norður-Makedóníu. Steikjandi hiti er á svæðinu

„Ekki segja þjálfaranum það“
Hilmar Árni Halldórsson segir mikla spennu á meðal Stjörnumanna fyrir leik kvöldsins við Linfield í Sambandsdeildinni í fótbolta. Leikmenn hafa verið í yfirvinnu að fara yfir greiningarvinnu þjálfarans.

„Það erfiðasta sem þú gerir í fótbolta“
Jökull I. Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segir spennu á meðal leikmanna liðsins fyrir Evrópuleik morgundagsins við Linfield frá Norður-Írlandi.

Frederik fer frá Val og Ögmundur gengur til liðs við félagið
Frederik Schram hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við Val sem rennur út eftir tímabilið. Ögmundur Kristinsson snýr heim úr atvinnumennsku og mun verja mark Valsmanna næstu þrjú árin.

Íslensku liðin byrja á heimavelli og St. Mirren mætir á Hlíðarenda
Íslensku liðin Valur, Breiðablik og Stjarnan fengu í dag að vita hvaða liðum þau munu mæta í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu ef liðin komast áfram úr fyrstu umferð.

Valur og Stjarnan byrja á heimavelli en Breiðablik fer til Makedóníu
Íslensku liðin Breiðablik, Valur og Stjarnan fengu að vita í dag hverjum þeir mæta í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Ljóst hvaða liðum Breiðablik, Stjarnan, Valur og Víkingur geta mætt
Á morgun, þriðjudaginn 18. júní, kemur í ljós hvaða liðum Breiðablik, Stjarnan, Valur og Víkingur mæta í Evrópukeppnum karla í knattspyrnu. Hér að neðan má sjá mögulega móthejra liðanna.

KA áfrýjar dómi í máli Arnars gegn félaginu til Landsréttar
KA ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Norðurlands í máli Arnars Grétarssonar gegn félaginu til Landsréttar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu KA í dag.

Fyrsti Evróputitil grísks félagsliðs
Olympiacos vann Fiorentina á dramatískan hátt, 1-0, í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Leikurinn fór fram í Aþenu.

Í beinni: Olympiakos - Fiorentina | Úrslitaleikur í Aþenu
Olympiakos og Fiorentina keppa um Sambandsdeildartitilinn í fótbolta í Aþenu í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Meistaradeild Evrópu áfram á Stöð 2 Sport næstu árin
Sýn hf. og Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hafa undirritað samning um sýningarrétt á leikjum Meistaradeildar Evrópu, Evrópudeildar og Sambandsdeildar á Íslandi til næstu þriggja keppnistímabila.

Evrópudraumur Aston Villa úti
Síðasta von Englendinga um árangur í Evrópukeppni var slegin í rot í kvöld þegar Aston Villa tapaði 2-0 í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar gegn gríska liðinu Olympiacos og samanlagt 6-2.

Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar
Fiorentina er komið í úrslit Sambandsdeildar Evrópu, annað árið í röð.

Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki
Fiorentina rétt marði 3-2 sigur gegn Club Brugge og Aston Villa tapaði 2-4 á heimavelli gegn Olympiacos í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu.

Martínez missir af fyrri undanúrslitaleiknum vegna leikbanns
Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa, missir af fyrri leik liðsins gegn Olympiacos í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu eftir að fá sitt annað gula spjald í vítaspyrnukeppninni gegn Lille í 8-liða úrslitum.

Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald
Ef þú ert á leiðinni í vítakeppni þá er gott að vita af Argentínumanninum Emiliano Martínez í markinu.

Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni
Hákon Arnar Haraldsson lagði upp annað mark Lille þegar liðið mætti Aston Villa í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Lille vann leikinn 2-1 og því þurfti að framlengja, þar sem ekkert var skorað þar var gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Villa hafði betur.

Hákon og félagar lágu fyrir heimamönnum á Villa Park
Hákon Arnar Haraldsson og félagar í franska liðinu Lille töpuðu 2-1 fyrir Aston Villa í átta liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu.